Þjóðviljinn - 15.11.1977, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 15. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17
Ríkisstjórnin
íþyngir iðnaði
Rikisstjórnin hefur ákveðið að
uppsafnaður söluskattur af út-
fluttum iðnaðarvörum fyrir árin
1975 og 1976 verði ekki endur-
greiddur, heldur aðeins fyrir árið
1977. Þetta kom fram i svari fjár-
málaráðherra við fyrirspurn frá
Albert Guðmundssyni s.l.
fimmtudag.
Albert Guðmundsson, Magnús
Kjartansson, Magnús T. Ólafs-
son, Þórarinn Þórarinsson og
Steingrfmur Hermannsson lýstu
óánægju sinni með þessa ákvörð-
un, og þeir tveir siðastnefndu
skoruðu á rikisstjórnina að end-
urskoða afstöðu sina.
Það kom fram i umræðum um
málið að meiri söluskattur er nú
innheimtur af iðnaði en öðrum
framleiðslugreinum.
Tímaritið
Málmur
er nýlega
komið út
Komið er út 9. tbl. timaritsins
Málms sem Málm- og skipa-
smiðasamband Islands gefur út.
Það er 16 bls. að þessu sinni,en i
ritnefnd eru Guðjón Jónsson,
Guðmundur Hilmarsson og Helgi
Arnlaugsson. Meðal efnis e.r
Reynsla siðustu samninga, Ný
ákvæði i siðustu samningum,
Bónuskerfi tekið upp i Stálvik,
viðtal við Guðmund Bergmann
Guðmundsson eldsmið, jarðar-
kaup Félags járniðnaðarmanna,
grein um rafsuðumengun, um
sameiningu stéttarfélaga, vöru-
MALMUR ííiiitifiíjT.........................
UTCCPANÐi: MALM- OC SKIPASMIOASAMBANU fStANOS
Cf'NI:
■» xv AnV&x t $wMx
SMMÓNÓUW
ti
« iX'VKJtVVv '
• •-'.■ ■ v.v Wír.v,-'
• VWÍ>« v« RA'ívfV
• V'Xojs ( »v«'\Sís<<J
’-uns
• WPtWMgl.lKiAK.
X NCSKAvsWSf
• KVK* 'TVONS-
bilaverkstæði Veltis er heimsótt,
heyrnarmælingar á Neskaupstað
og viðtal við konu sem lýkur
sveinsprófi i bilamálun.
— GFr
Skortur er
á nautakjöti
Hætt er við að skortur verði á
nautgripakjöti þegar kemur fram
á veturinn. Fyrstu 9 mánuði
þessa árs var slátrun nautgripa
14.5% minni en á sama tima i
fyrra.
Sala á nautgripakjöti var mjög
svipuð þessi timabil, heildarsalan
fyrstu 9 mánuði ársins var 1382
lestir. Birgðir af nautgripakjöti 1.
sept. sl. voru með allra minnsta
móti, eða aðeins 69 lestir. Mjög
mikið hefur verið slátrað af ung-
kálfum i ár, og er þvi augljóst að
ásentingur er með minna móti.
Helst eru það bændur á Fljóts-
dalshéraði sem leggja stund á
nautakjötsframleiðslu og kaupa
þeir þó nokkuð af ungkálfum úr
öðrum héruðum. Nautgripaslátr-
un stendur nú yfir i mörgum slát-
urhúsum en hún er með minnsta
móti.
Barnablaðið Æskan
fjölbreytt
Ot er komið októberblað Æsk-
unnar, 52 siður að stærð. Blaðið er
fjölbreytt af efni og myndum, og
má meðal annars nefna þetta
efni: Höfuðstöðvar Sameinuðu
þjóðanna i New York, Mannfjöld-
ann i heiminum I dag.
Frásögn um férð Kristófer
Kolumbus, Ævintýri af Astara
konungssyni, Klunni fær nýja
stöðu, eftir Walt Disney, Alfakýr-
in, islensk þjóðsaga, Þjóðveldis-
bær Islendinga, Leynistigurinn,
ævintýri, Sonur Dýrlingsins, Indi-
ánasögur, Bærinn minn Akureyri,
Úr sögu listarinnar, Kisa brýnir
klærnar, Sundkappinn mikli, æv-
að vanda
intýri, Flug Lindbergs, Verð-
launaferð Flugleiða og Æskunn-
ar á siðastliðnu sumri til Chicago,
eftir Svein Sæmundsson, Fyrir
yngstu lesendurna, Knútur og
Anna fljúga til Kina, ævintýri,
grein um Elvis Presley, Sá
yngsti, ævintýri, 111 meðferð á
skipum, Unglingareglan, Handa-
vinnubók, Teiknisamkeppni, Á
flótta, íslenskur hestur i Nregi.
Hvað skrifa þeir um Æskuna.
Færeyskar sagnir um dverga.
Leikfimi i heimahúsum, Hvað
viltu verða? Furðuleg pönnu-
kaka, ævintýri, skrýtlur, mynda-
sögur, krossgáta og m.fl. Rit-
stjóri er Grimur Engilberts.
Rammagerð
[ Innrömmum allar tegundir af myndum, teikningum og út- j
/I saum. Höfum yfir 70 tegundir af römmum á boðstóluni.
Opið 10 til 18.30 alla virka daga.
Innrömmun Péturs Lockhart,
Kolbeinsstöðum
w við Nesveg (Seltjarnarnesi).
Verslunin Tröð í Kópavogi
Að Neðstutröð 8 i Kópavogi hef-
ur verið opnuð verslun sem ber
nafnið Tröð. Þar eru seld barna-
föt og leikföng auk allskyns gjafa-
vara. öl, gos, sælgæti og tóbak
eru einnig á boðstólunum. Eig-
endur verslunarinnar eru Torfi
Guðbjörnsson og fjölskylda. Hún
er opin á venjulegum verslunar-
tima nema á föstudögum til 22 og
laugardögum til hádegis. A
myndinni eru Bára Benedikts-
dóttir og Inga Teitsdóttir við af-
greiðslustörf.
IÐN AÐ ARB ANKINN
útibú á Selfossi
Nýtt
Föstudaginn 4. nóvember s.l.
opnaði Iðnaðarbanki isiands h.f.
úlibú á Selfossi. Útibúið er til
húsa að Austurvegi 38 en þar hef-
ur bankinn keypt fyrstu hæð nýrr-
ar skrifstofubyggingar. Húsið
teiknaði Sigurður Jakobsson
tæknifræðingur, en innréttingar
útibúsins teiknaði Pétur B.
Lúthersson, húsgagnaarkitekt.
Útibússtjóri Iðnaðarbankans á
Selfossi er Jakob J. Havsteen,
lögfræðingur, en starfsmenn
verða alls 5 talsins. Þar mun
vérða veitt öll almenn bankaþjón-
usta, og verður opið alla virka
daga frá kl. 9.30 til kl. 15.30. Auk
þess verður siðdegisafgreiðsla
opin á föstudögum frá kl. 7.00 til
18.30.
í tilefni af opnun útibúsins á
Selfossi samþykkti bankaráð Iðn-
aðarbankans að færa Iðnskólan-
um á Selfossi að gjöf kvikmynda-
sýningarvél til notkunar við
kennslu.
Nónkex er heilhveitikex
hollt og gott,
enda Frónkex
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN