Þjóðviljinn - 23.11.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.11.1977, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 23. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Laun forstjóra Aburðar- og Sementsverksmiðju: Yf ir hálf milj ón á mánuði Forstjórar Sementsverk- smiðjunnar og Aburðarverk- smiðjunnar hafa i mánaðarlaun um háifa miljón krónur. Þessar upplýsingar komu fram á AI- þingi f gær er fjármálaráðherra svaraði fyrirspurn frá Stefáni Jónssyni um iaun fjögurra rík- isforstjóra. ísvari ráðherra kom fram að þessir forstjórar taka laun sam- kvæmt launaflokki A-30 sem þýðir að laun þeirra eru um 300.000 á mánuði. bá fá þeir sér- stakar greiðslur fyrir yfirvinnu og bakvaktir. Að sögn ráðherra fær forstjóri Sementsverk- smiðjunnar greidda yfirvinnu fyrir um 45 tima á mánuöi, og samkvæmt þeim upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér er timakaupið i yfirvinnu um 3000 krónur þannig að þarna bætast við 135.000 á mánuði. Þá fær hann greitt fyrir bakvaktir um 81.000 á mánuði og greiðsla fyrir bifreiðakostnaö er miöuð við 12.000 km. akstur á ári, en greitt mun vera um 40 krónur á kíló- meter. Laun forstjóra Sements- verksmiðjunnar fara þvi vel yf- ir hálfa miljón á mánuði. Forstjóri Áburðarverksmiðj- unnar fær greidda yfirvinnu fyrir 28 tima á mánuði, sem mun gera 84.000 krónur. Þá fær hann einnig 81.000 krónur á mánuði fyrir bakvaktir, og greiðsla fyrir bifreiðakostnað er miðuð við 10.000 km. akstur, sem þýðir um 400.000 á ári. Mánaðarlaun hans fara þvi einnig yfir hálfa miljón á ári. Schmidt — leynileg áætlun um fækkun 1 herjum. Gierek — vill fá aö flytja meira út til Vestur-Þýskalands. Egypskir hermenn á göngu — nú hefur Sadat sagt að þeir muni aldrei framar þurfa að berjast gegn tsrael. Schmidt til Póllands Heimsóknin merki um góð samskipti VARSJA 22/11 Reuter — Helmut Schmidt, sambandskanslari Vestur-býskalands, er kominn i opinbera heimsókn til Póllands. Er þetta fyrsta heimsókn vestur- þýsks sambandskanslara þangað frá þvi að rikin tóku' upp stjórn- málasamband fyrir fimm árum og önnur i röðinni frá striðslok- um. Pólsk yfirvöld hafa gert miklar varúðarráðstafanir i til- efni heimsóknarinnar, að sögn þær mestu sem Pólverjar hafa nokkru sinni gert viö heimsókn erlends ieiðtoga. I dag flutti Schmidt fyrirlestur i Fátt uppgefið um viðræður Beginsog Sadats JERÚSALEM 22/11 Reuter — isaelska rikisstjórnin neitaði I dag að gefa nokkuð upp um trún- aðarviðræður þeirra Sadats Egyptalandsforseta og Begins forsætisráðherra ísraels, en haft er eftir svokölluðum áreiðanleg- um heimildum að næsta frum- kvæðið í átt til friðarsamninga muni einnig koma frá Sadat. Hinsvegar sagði Sadat i heimsóknarlok, að hann gerði sér vonir um að israelsmenn tækju næsta skrefiö og yrðu þá ekki smámunasamir. Heimildarmenn í Jerúsalem segjast nú telja, að Sadat muni einbeita sér að þvi að tryggja sér fylgi egypsks almennings við frumkvæði sitt i friðarátt, svo og tryggja sér stuðning Saudi-Arabiu og mýkja Sýrlend- inga. Þá er sagt að eitt þaö mikil- vægasta við heimsóknina sé það, að i opinberum yfirlýsingum, sem þeir Begin og Sadat sendu út i tilefni hennar, lagði Begin ekki áherslu á harðlinuafstööu sina gegn PLO, aðalsamtökum Palestinumanna, og um Vestur- bakkahéruðin, sem Begin til þessa hefur sagt aö eigi að heyra til Israel. Bæði i Israel og annars- staðar er mikið bollalagt um það, hvort eitthvað hafi miðað i átt til Genfarráðstefnu um Austurlönd nær i viðræðum þeirra Begins og Sadats, en Israelsmenn eru sagð- ir þeirrar meiningar aö það skipti ekki öllu máli, þar eð helstu ákvarðanirnar i þeim málum verði hvort eö er teknar fyrir ráð- stefnuna, ef af henni verði. Þá telja Israelsmenn að heimsókn Sadats hafi komið þeim að góðu haldi meö tilliti til þess, að nú standa flestir israelsku stjórnmálaflokkarnir sameinaðri i afstööunni til araba enlengstum áður. Biko-málið: Læknir viður- kennir fölsun vottorðs PRETÓRIU 22/11 Reuter — Ivor Lang, læknir i þjónustu suður- afrisku stjórnarinnar, upplýsti við yfirheyrslur I gær aö hann og annar læknir hefðu beðið leyfis um að Steve Biko, blökkumanna- leiðtoginn sem lést I höndufn lög- reglunnar undir grunsamlegum kringumstæðum fyrir skömmu, yrði sendur á sjúkrahús, en aö öryggislögreglan hefði neitað þvi. Hinsvegar ákvað öryggislögregl- an sjálf að senda Biko frá Port Elizabeth, þar sem hann var hafður i haldi, til fangelsissjúkra- húss i Pretóriu. Til Pretóriu var Biko fluttur allsnakinn og handjárnaður I landrover, en leiðin þangað frá Port Elizabeth er um 1000 kfló- metrar. 1 Pretóríu dó Biko af völdum heilaskaða i fangaklefa þann 12. sept. Við yfirheyrsl- urnar, sem haldnar eru vegna dauða Bikos, viðurkenndi Lang læknir að hann hefði vitað að til stóð að flytja Biko til Pretóriu og hvernig, en ekkert getað að þvi Ekkja Bikos og börn heilsa með baráttukveðju, eftir að þau hafa frétt dauða hans i fangelsi. gert. Lang viðurkenndi ennfrem- ur að hafa sagt ósatt til um dánarorsök Bikos á læknisvott- orði, sem hann gaf viðvikjandi dauða Bikos. A læknisvottoröinu stóð, að Biko heföi ekki orðið fyrir neinum verulegum skaða á líf- færum. Kentridge, lögmaður fjölskyldu Bikos, hefur gefiö i skyn að lög- reglan sé aö reyna að leyna með- ferð sinni á Biko, meðan lögregl- an yfirheyrði hann, sem og þvi aö hann hafi fengiö banvænan heila- skaöa meðan hann var f vörslu lögreglunnar. pólsku visindaakademiunni og hvatti Pólverja þá til þess að sýna skilning gagnvart þeirri ósk Þjóðverja, að Þýskaland yrði aft- ur sameinað i eitt riki. Gat kansl- arinn þess jafnframt, að Pólverj- ar kynnu aö óttast þann mögu- leika. Telja fréttaskýrendur það merki um góð samskipti Póllands og Vestur-Þýskalands nú, að leið- togi siðarnefnda rikisins skuli treysta sér til þess að viðhafa slik ummæli i Póllandi. Talið er að Þjóðverjar hafi drepið að minnsta kosti um sex miljónir Pólverja á árum heimsstyrjald- arinnar siðari, og hefur liklega engin önnur þjóð orðið hlutfalls- lega fyrir eins miklum áföllum af völdum nasista. Ráðamenn Póllands eru sagðir ánægöir með viðleitni Schmidts og fyrirrennara hans, Víillys Brandt, til þess að bæta samskipti Vestur-Þýskalands við Austur- Evrópu. 1 viðræðum þeirra Schmidts og Giereks, leiðtoga pólska kommúnistaflokksins, er talið að sá siðarnefndi muni meðal annars mælast til þess, að dregið sé úr hömlunum á innflutningi pólsks varnings til Vestur-Þýskalands. Schmidt mun fyrir sitt leyti að sögn leggja fyrir Gierek frumkvæði vestur-þýsku stjórnarinnar að alþjóðlegum samningi i þeim tilgangi að koma i veg fyrir að gislar séu teknir. Þá er liklegt að rædd verði mála- miðlunaráætlun vestur-þýsku stjórnarinnar um að koma skriði á Vinar-viðræður Nató og Varsjárbandalagsins um fækkun i herjum, en efni þeirrar tillögu Vestur-Þjóðverja hefur enn ekki verið gefið upp. Mengistú Haile Marjam, valús- maöur I Eþiópiu. Enn búast Sóm- alir til sóknar gegn honum. MOGADISHU 22/11 Reuter — Talið er að Sómalir muni innan skamms greiða atlögu að Harrar, fornri borg og frægri i fjalllendi Eþiópiu austanverðu. I undan- farna fjóra mánuði hafa Sómalir unnið af Eþiópum mestan hluta Ogaden-fylkis, sem aðallega er byggt Sómölum, og fjöllin á jöðr- um Ogaden-auðnar. Harrar er á þessu jaðarsvæði, og telja Sómal- ir sér nauðsyn að ná borginni til að geta siðar haldið Ogaden gegn Eþiópum. Ogaden-stríðið: Sómalir bú- ast til árásar á Harrar Arabiskir sendiráösmenn i Mogadishu, höfuðborg Sómali- lands, segja að sómalskir ráða- menn liti svo á, að þeir verði að taka Harrar nú þegar, ef þeir eigi að ná borginni á annað borö. Und- anfarið hafa miklar rigningar á þessum slóðum gert bardaga ómögulega, og óttast Sómalir að það hlé verði til þess, að af al- þjóðavettvangi verði gerð tilraun til að knýja Sómala til málamiðl- unarsamkomulags við Eþiópa. Næðist slikt samkomulag, er talið vist að Eþiópia myndi halda Harrar. Siðan Sovétmenn hættu að senda Sómölum vopn er Ogaden- striðið hófst fyrir alvöru i júli, hafa Sómalir fátt vopna fengið er- lendis frá, en umhverfis Harrar er fjöllótt land og erfitt yfirferð- ar, svo að sagt er að nýmóðins skriðdrekar og herþotur, sem Eþiópar hafa mikið af, muni koma þeim þar að litlum notum. PILLUKAPPAT LEIDDI TIL DAUÐA í fyrrakvöld, um kl. 20.00 var kvartaö yfir hávaða I húsi I Reykjavik og þegar lögreglan kom á staðinn fannst 27 ára gam- all maður látinn og annar. mjög langt leiddur, lá ofan á honum, en annarsstaðar i húsinu var 12 manns i einhverskonar rúsi, ann- að hvort af pilluáti eða ' vin- drykkju, nema hvorutveggja hafi verið. Áð sögn Njarðar Snæhólms. yf- irrannsóknarlögregluþjóns, virð- ist ljóst að sá sem fannst lát- inn og sá er ofan á honum lá, meðvitundarlaus hafi verið i — pillukappáti,— Sá meðvitundar- lausi var fluttur á slysadeild og þar tókst að bjarga lifi hans með þvi að dæla uppúr honum. Allt fólkið sem i þessu sam- kvæmi var i fyrrakvöld var sett i gæsluvarðhald, en siðdegis i gær var búið að sleppa einhverjum af þeim, en öðrum var haldið eftir til frekari yfirheyrslu um hvers hafi þarna verið neytt. Njörður Snæhólm sagði að ekk- ert það hefði komið fram, sem benti til átaka milli mannanna tveggja, sem eins og áður sagði vorum á öðrum stað i ibúðinni en hitt fólkið — S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.