Þjóðviljinn - 24.11.1977, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. nóvember 1977
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóöfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar
Gestsson.
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson.
Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni
Bergmann.
Auglýsingastjóri: Úlfar Þormóösson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Sfðumúla 6. Simi 81333.
Prentun: Blaöaprent hf.
Aronskan fékk
fleiri atkvϚi
en Geir
Þegar Keflavikursamningurinn var
gerður fyrir liðlega 30 árum bentu islensk-
ir sósialistar á þá hættu að hér kynni að
vera stigið fyrsta skrefið i bandarisku
hernámi á Islandi til frambúðar. Tals-
menn Keflavikursamningsins töldu svo
ekki vera; þvert á móti rynni hann út eftir
5 ár og þá væru islendingar lausir allra
mála. Fyrir nokkrum misserum birti
Þjóðviljinn bandariskar utanrikismála-
skýrslur frá þessum árum og þá kom hið
sanna i ljós: Að Keflavikursamningurinn
átti aðeins að verða skref á brautinni til
varanlegs hernáms — að i stað þess að fá
fastan samning um þrjár lokaðar her-
stöðvar til 99 ára eins og Bandarikjamenn
kröfðust 1945 hugðust þeir ná marki sinu i
áföngum. Þegar íslendingar gerðust aðil-
ar að Atlantshafsbandalaginu bentu
sósialistar á að hér væri kominn annar
áfanginn; sá næsti yrði sjálfsagt varanleg
bandarisk herseta. Það sóru talsmenn
NATO-aðilarinnar af sér með itrekuðum
heitstrengingum, en ekki liðu nema tvö ár
uns hingað var kominn bandariskur her.
Hernám hans hafði þegar i stað veruleg
efnahagsleg áhrif á allt þjóðlifið, en her-
námið hafði einnig andleg áhrif: Hernám
hugarfarsins gróf um sig. Hin siðarnefnda
tegund hemámsins var skipulögð af
Bandarikjastjórn til þess að breyta hugs-
unarhætti Islendinga — enda hafði utan-
rikisráðherra íslands kvartað undan þvi
við bandariska sendimenn 1949 að það
væri sérstaklega erfitt að ala Islendinga
upp. Hemám hugarfarsins var skipulagt
með margvislegum hætti: í fyrsta lagi
með þvi að treysta fjármálasambönd við
allskonar aðila innan hernámsflokkanna,
þannig að pólitiskt starf þessara aðila
varð um tima beinlinis háð umsvifum
Bandarikjahers á íslandi. í annan stað
komu Bandarikjamenn fljótt upp útvarps-
stöð sem á sinum upphafsárum hafði
veruleg áhrif. í þriðja lagi komu Banda-
rikjamenn upp sjónvarpsstöð, og um sinn
höfðu Bandarikjamenn einokun á öllum
sjónvarpsrekstri á íslandi. Vinstristjórnin
siðari lokaði hermannasjónvarpinu og var
það i rauninni einn stærsti ávinningur her-
stöðvaandstæðinga á siðari árum, en her-
nám hugarfarsins hefur samt haldið
áfram að grafa um sig.
Fyrri forystumenn Sjálfstæðisflokksins
lögðu á það þunga áherslu að vera hersins
hér væri hluti af framlagi íslands til svo-
kallaðs varnarkerfis vestrænna þjóða, og
þeir höfðu allir það lágmarks stolt fyrir
hönd þjóðar sinnar að neita að taka leigu-
gjöld fyrir hernámsliðið. Núverandi for-
ystumenn Sjáifstæðisflokksins hafa haft
aðra afstöðu, sumir hverjir, þó hefur Geir
Hallgrimsson haldið I orði uppi merki
fyrirrennara sinna i þessum efnum. En
þar hefur honum brugðist bogalistin eins
og á öðrum sviðum flokksformennsku
sinnar: Aronskan — sú afstaða að taka
leigugjöld fyrir herstöðina — fékk fleiri
atkvæði i prófkjöri Sjálfstæðisflokksins en
forsætisráðherrann sjálfur. Merkið er
fallið; Geir Hallgrimsson hefur misst það
úr höndum sér fyrir ágangi spraðurbassa
ogknattspyrnukappa. Sigur aronskunnar
er táknrænn fyrir ástandið í Sjálfstæðis-
flokknu; fyrir upplausnarástand i stærsta
stjórnmálaflokki landsins.
En umfram allt er sigur aronskunnar til
marks um það að hernám hugarfarsins
hefur haldið áfram að grafa um sig; að æ
fleiri herstöðvasinnar telja þjóðinni sæm-
andi að taka við leigugjöldum af hernum.
Þar með yrði þjóðin beinlinis háð banda-
riskri hersetu — en um það hugsa her-
stöðvasinnar ekki. Hitt gæti orðið mörgum
manninum umhugsunarefni — jafnvel
þeim sem hafa stutt veru Bandarikjahers
hér — að rótin að sigri aronskunnar er
hernámið sjálft, og eina leiðin til þess að
losna úr greipum þeirra óhugnanlegu við-
horfa sem nú eru i meirihluta innan Sjálf-
stæðisflokksins er sú að reka herinn úr
landi. Það er eina leiðin: Aronskan er að-
eins rökrétt framhald Keflavikursamn-
ingsins, aðildarinnar að NATO, hernáms-
ins 1951, hermangsgróðans, bandariska
hermannasjónvarpsins og peningatengsla
hernámsflokkanna við herliðið. Aronskan
er enn eitt skrefið á þeirri braut niðurlæg-
ingarinnar sem hófst um leið og islensk
rikisstjórn samþykkti að stiga það fyrsta.
Sigur aronskunnar i Sjálfstæðisflokkn-
um er óhugnanleg visbending — sigur
aronskunnar hvetur herstöðvaandstæð-
inga til aukins starfs. — s.
----------------------------------------!
Tveir kostir og báftir vondir.
j Geir í náö
Alberts
Einu sinni uröu stuðningsblöð
| Sjálfstæöisflokksins sammála.
1 Þau eru i forystugreinum i gær
[ sammála um að úrslit pröf-
| kjörsins I Reykjavik hafi veriö
■ mikill áfellisdómur yfir forystu
■ flokksins. Geir Hallgrimsson er
2 sjálfur i miklum vanda. Klippt
■ og skorið hefur haft af þvi
' spurnir aö Albert Guðmundsson
! hafi þegar boðiö flokksformann-
I inum að eftirláta honum fyrsta
■ sæti þinglistans i Reykjavik.
| Annað er varla sæmandi en for-
■ sætisráðherrann sé i öndvegi.
I Geir Hallgrimsson vill engin
m hornkerling vera, en þaö er
mikil minnkun fyrir hann að
| sitja i æðsta sætinu I náð Alberts
I Guömundssonar. Þeir sem
I þekkja vinnubrögð knatt-
! spyrnuhetjunnar vita lika að
| hann vill fá eitthvað fyrir sinn
■ snúð. Engin lausn er þvi til á
j vandamálinu. Hvorttveggja er
■ vont.
L
Vantraust á for-
sœtisráöherra
t annan stað fékk aronskan I
prófkjörinnu fleiri atkvæöi en
Geir Hallgrimsson. Þegar
Gunnar Thoroddsen fór á flot
með aronskuna fyrir um það bil
hálfu ári gekk forsætisráðherra
fram fyrir skjöldu ásamt
Morgunblaðinu og barði allt
slikt hjal niður með harðri
hendi. Siðan var umræðu um
hana visað i kot Dagblaðsins.
Jafnvœgis-
tímabilinu lokiö
Þriðja dæmið um klofninginn
i Sjálfstæðisflokknum er sú
staðreynd aö stuðningsmenn
Geirs og Gunnars hafa enn ekki
friðmælst og berjast hvorir
gegn öðrum i prófkjörinu. Út-
koman er eftir þvi. Gunnar
Thoroddsen er maður sem
engu gleymir og aldrei grefur
striðsöxina, þótt mjúkmáll sé á
opinberum vettvangi.
En eins og Visir bendir á i for-
ystugrein er jafnvægistimabili
Geirs og Gunnars lokið og flokk-
urinn i vanda. Blaðiö segir einn-
ig að úrslitin i prófkjörinu séu
tákn óánægju en ekki úrræða.
Siðan segir:
„Framhjá þvi verður hins
vegar ekki litið, að það hefur að
öllum likindum óheppileg áhrif
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
annar launþegafulltrúi flokks-
ins á þingi, Pétur Sigurðsson,
skyldi færast niður i áttunda
sæti listans. f þessu efni varð
sama upp á teningnum og átti
sér stað i prófkjöri Alþýöu-
flokksmanna fyrir skömmu.”
Visir telur einnig að prófkjör-
ið beri vott um hægri sveiflu
sem geti valdið erfiðleikum, þvi
að mörgu þurfi að hyggja ef
flokkar vilji vera stórir.
Dagblaðið er enn ákveðnara
og kemst einfaldlega að þessari
niðurstöðu:
„Hvar sem litið er á niöur-
stööur þessara kosninga blasir
vantraustsyfirlýsingin við.”
Harmur
Morgunblaösins
Sjálft Morgunblaðið getur
ekki leynt áhyggjum sinum
vegna ábyrgðaleysis háttvirtra
kjósenda, og leggur til endur-
skoðun á prófkjörunum:
„Hinu má þó ekki gleyma að
ýmsir gallar fylgja prófkjörun-
um. Sú spurning vaknar i sam-
bandi við þau prófkjör sem
fram hafa fariö á þessu ári,
hvort þessi lýðræðislega leiö til
vals á frambjóðendum sé á villi-
götum. Umsvif einstakra fram-
bjóðenda eru orðin geysileg.
Tryggja prófkjörin þjóðinni
hæfustu menn til setu á Alþingi
sem völ er á?”
Fulltrúi
álfurstans
Hér er sjálfsagt átt við Frið-
rik Sóphusson, sem hafði 60
sima i gangi og beitti fyrir sig
þeim manni sem hefur selt þjóð-
inni islenskan iðnað með góðum
árangri sl. ár. Aðstoð við sölu-
mennskuna fékk hann frá
Heimdellingum og Ragnari
Halldórssyni, álfursta, sem er
formaður Stjórnunarfélagsins.
Sérlegur fulltrúi álfurstans.
Alfurstinn hefur þvi fengið sér-
legan fulltrúa á þing.
Ummæli efstu manna i próf-
kjörinu eru ekki siður fróöleg
heldur en viðbrögð leiðarahöf-
unda ihaldsblaðanna. Albert,
Ellert, Friðrik og Gunnar Thor-
oddsen eru sammála um að úr-
slitin beri vott um óánægju meö
stjórnarstefnuna og Gunnar
ætlar að hugsa málið.
Hvorki múrara
né sjómann
Athyglisverðust eru þó um-
mæli Péturs Sigurðssonar, „sjó-
manns”.
„Mér viröist i fljótu bragði
þegar ég lit að niðurstöðurnar
að þessi hópur sem að mestu
hefur ráðið um tvö siöustu próf-
kjör hér i borginni, og þar á ég
við bæði i Sjálfstæðisflokknum
og Alþýðuflokknum, að þeir séu
sterkari innan Sjálfstæðis-
flokksins, en ég hélt.”
„Það er ljóst, að sá hópur vill
hvorki hafa múrara né sjómenn
á þingi,og eins og nú háttar virð-
ist það ekki vera sigurstrang-
legt að sitja f 8. sæti fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. En annars er ég
ekki farinn að taka neina af-
stöðu til þess hvað ég geri.Nú
það er að segja ef ég hætti, en
hver veit nema að Magnús
Torfa vanti stýrimann.”
Ekki er flokkurinn samstæður.
Málefnaágreiningur er uppi.
Forystan er umdeild og klofin.
Öánægjan bullar og sýður.
Tækifærissinnar spila fritt i
tómarúminu. Og enginn vill sjó-
mann i baráttusætið.
-r^kh.
Fsr ef til vill pláss sem
stýrimaður hjá Magnúsi Torfa.