Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Blaðsíða 13
FimmtHdagur 24. nóvember 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 1S útvarp Leikrit vikunnar: Gisli Halldórsson Helga Bachmann. Róbert Arnfinnsson. Fjallalækurinn eftir Björn-Erik Höijer 1 kvöld kl. 20.10 verður flutt i útvarpinu leikritið „Fjalialæk- urinn” eftir Björn-Erik Höijer. Þýðandi er Ásthildur Egilson, en leikstjóri Gisli Halldórsson. 1 hlutverkum eru Róbert Arn- finnsson og Helga Bachmann. Flutningstimi leiksins er um 50 minútur. Gamall Lappi eöa Sami, eins og þeir eru nú almennt kallaðir, rifjar upp ævi sinar og konu sinnar. Brugöið er upp myndun af þvi hvernig þau kynntust og frá lífi þeirra og sambúö allt fram á elliár. Oft hefur lifsbar- áttan veriðerfiö, og glöggt kem- ur fram, aö litiö er á Samana sem eins konar utangarösfólk, sem hægt sé aö ráöskast meö eins og hver vill. Þetta er ljóörænt verk i eöli sinu, þrátt fyrir raunsæisyfir- bragð. Fjallalækurinn er tákn- mynd,' bæöi' fyrir æ.vina, ■ sem liöur áfram að einum ósi, og einnig fyrir hið frjálsa lif fjalla- búanna, sem hlýtur fyrst og fremst að treysta á sjálfan sig. sig. Höfundurinn, Björn-Erik Höjier, þekkir vel sögusviö leiksins, þvi aö hann er fæddur i Malmberget i Lapplandi áriö 1907. Fyrsta bók hans, smá- sagnasafniö „Gratt berg” kom út 1940. A næstu árum komu fleiri bækur, bæöi smásögur og skáldsögur, og skömmu fyrir 1950 fór Höijer einnig aö skrifa leikrit, sem fljótt vöktu athygli. Mörg þeirra hafa veriö flutt i sænska útvarpinu, þ.á.m. „Fjállbácken”, Fjallalækurinn. Seinni árin henur Höijer sent frá sér efnismiklar skáldsögur og frásagnir og reifar þar hin margvislegustu vandamál i þjóðlifinu. Útvarpiö hefur áður flutt eitt leikrit eftir Björn-Erik Höijer, „Vist ertu skáld, Kristófer” 1961. Bein útsending á nýjum þætti i dagskrárlok: Lúdvík spurður í þaula Nýr þáttur er á útvarpsdag- skránni i kvöld kl. 22.45. „Spurt i þaula” nefnist hann og stjórn- andi er Kári Jónasson frétta- maður. Kári fær annan mann til liðs við sig, en ekki var full- ákveðið hver það yrði, þegar blaðið ræddi við hann. Þátturinn veröur sendur út beint og eru dagskrárlok óákveðin, en Kári sagði að þátturinn yrði að öllum iikindum u.þ.b. hálftima langur. í þættinum veröur Lúövík Jósepsson, nýkjörinn formaöur Alþýðubandalagsins, spuröur I þaula um málefni Alþýöu- bandalagsins og fleira, meö til- liti til nýafstaöins landsfundar. Þáttur þessi verður á dagskrá annan hvern fimmtudag, en á móti honum veröur umræöu- þáttur meö hefðbundnu sniði. 1 báöum þessum þáttum veröur nýr umsjónarmaöur hvern fimmtudag, og sér útvarpsráö um aö velja hann. —eös Lúðvik Jósepsson 7.00 Morgunútvarp Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Rögnvaldur Finnboga- son les „Ævintýri frá Narniu” eftir C. S. Lewis (10) Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriöa. Tannlækna- þáttur kl. 10.25: Sigurjón Arnlaugsson talar um tann- holdssjúkdóma. Alþýðulög kl. 10.40. Morguntónleikar kl. 11.00: Julian Bream og John Wiliams leika Serenööu i A-dúr fyrir tvo gitara op. 96 eftir Ferdinando Carulli og Spænskan dans nr. 6 eftir Enrique Granados / Kari Frisell syngur Rómönsur eftir Agathe Backer Gröndahl, Liv Glaser leikur með á pianó. Wilhelm Kempff leikur á pianó Sinfóniskar etýöur op. 13 eftir Robert Schumann. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni 14.30 Miðdegissagan: „Skakkt númer — rétt núm- er” eftir Þórunni Elfu Magnúsd. Höfundur les (14). 15.00 Miðdegistónleikar: Til- brigði eftir fjögur tónskáld 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Lestur úr nýjum barna- bókum Umsjón: Gunnvör Braga Siguröardóttir. Kynnir: Sigrún Siguröar- dóttir. 17.30 Lagiö mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar 19.35 Daglegt málGfsli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 lsiensk sönglög 20.10 Leikrit: „Fjalialækur- inn”eftir Björn-Erik Höijer Þýöandi: Asthildur Egils- son. Leikstjóri: Gisli Hall- dórsson. Persónur og leik- endur: Per-Mikael Fjallström ... Róbert Arn- finnsson Susanna Fjallström ... Helga Bach- mann 21.00 Samleikur i útvarpssal Sigriður Vilhjálmsdóttir og Hrefna Eggertsdóttir leika saman á óbó og pianó. a. Sónötu eftir Giuseppe Sammartini, b. Rómönsu eftir Carl Nielsen, — og c. Sónötu eftir Francis Poulenc. 21.25 „Sláttumaðurinn”, smásaga eftir H.E. Bates Pálmilngólfsson islenskaöi Baldvin Halldórsson leikari les. 21.55 Frá hollenska útvarpinu Kór og hljómsveit útvarps- ins flytja lög eftir Rodgers, Black, Rota, Rosza og New- man, Einleikari á trompet: Jan Marinus. Stjórnandi: Stanley Black. 22.30 Veðurfregnir og fréttir. 22.45 Spurt í þaula Kári Jónasson stjórnar þætti, sem stendur allt að klukku- stund. Fréttir. Dagskrárlok. Islenska jámblendifélagið h.f. vill innan skamms ráða i stöðu forstöðu- manns fyrir mötuneyti fyrir 150 — 250 manns og rekstur vinnubúða fyrir 200 manns. Kunnátta og reynsla i innkaupum og vinnslu matvæla er áskilin. Upplýsingar gefur Guðlaugur Hjörleifs- son, staðarverkfræðingur, i sima 93-1092. Umsóknir óskast sendar fyrir 3. desember n.k. ÍSLENSKA JÁRNBLENDIFÉLAGIÐ H.F. Grundartanga Skilmannahreppi 301 AKRANES Staða fulltrúa á skrifstofu Tækniskóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir 5. desember nk. Menntamálaráðuneytið, 18. nóvember 1977. Forstö ðumaður íþróttahúss í Borgarnesi Borgarneshreppur óskar að ráða for- stöðumann fyrir iþróttahús og sundlaug i Borgarnesi. Ætlunin er að ráða i starfið frá 15. des. n.k. eða eftir nánara sam- komulagi. Umsóknir um starfið þurfa að berast skrifstofu hreppsins fyrir 5. des. n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirrit- aður. Sveitarstjórinn i Borgarnesi. BLAÐBERAR óskast 1 eftirtalin hverfi: Melhagi Rauðalækur Laufásvegur Hraunbraut Miðtún (Þjóðv. & Timinn) Okkur vantar tilfinnanlega blaðbera í þessi hverfi, þó ekki væri nema til bráðatyrgða í nokkrar vikur. Það er hálftímaverk að bera út i hvert þessara hverfa. MOÐVIUm Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsluna Siðumúla 6 — simi 81333. p)< 81333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.