Þjóðviljinn - 24.11.1977, Síða 7

Þjóðviljinn - 24.11.1977, Síða 7
Fimmtudagur 24. nóvember 1977 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7 Lix er stytting úr „Lesbarhetsindex” og er alþjóðlegur mælikvarði á því hversu læsilegur texti er. Það er fundið út með því að leggja saman meðalfjölda orða í málsgrein og meðalfjölda orða sem er lengri en sex bókstafir. Þorgrímur Gestsson Beðið um læsilegan texta Þjóðviljinn hefur haft á sér orð fyrir það frá upphafi að hafa á að skipa afbragðs pennafær- um mönnum. Að sjálfsögðu hafa málfarsleg gæði blaðsins verið bæði upp og ofan gegnum árin, enalltaf hefur mér fundist hann skera sig frá öðrum dagblöðum landsins hvað málfar og stil snertir. Þessu verð ég að láta fylgja, að ég er bókstaflega al- inn upp með þetta ágæta blað i hondunum og byrjaði snemma að stauta mig fram úr þvf. NU er liðið háttá þriðja mán- uð siðan ég hef séð Þjóðviljann, en f gær fékk dágóöan bunka sem kunningi minn hafði lesið nægju sina af. Ég sökkti mér niöur I lesturinn, en brá heldur en ekki I brún þegar ég kom að 16. siðu sunnudagsblaðsins 23. október. Blaðsins sem var sið- ast þegar ég vissi undir ritst jórn Ama Bergmann, eins af ágæt- ustu Þjóðviljapennum siðari ára, að minu mati. A neðri helmingi blaðsiðunnar er grein- arstúfur undir fyrirsögninni „Gamlar lummur — fyrir fólk yngra en 12 ára og eldra en 30 ára”. Mér leist ekkert á blik- una. Ég held að ég sé ekki mjög hneykslunargjarn, en i' þetta sinn óx hneykslun min þvi meir sem mér miðaði við lestur þess- arar flatneskju islensks máls. Reyndar er tungutakið á popp- siðum islenskra blaða yfirleitt ekki til að státa af, en þarna keyrði um þverbak. Og hver skrifaði greinina? Jú, sá heitir vist að þvi er segir i „haus” sið- unnar: „Jens Kristján Guð...”. Við fáum einnig að vita i fyrstu setningu greinarinnar, að hann er fæddur „...eftir að „Presleyæðið” svokallaða var upp á sittbesta...”. Málsgrein- in sem hefst á þessum upplýs- ingum telst mér vera 54 orð. En það er ekki lengsta málsgreinin i þessari ritsmiði „Guðs”. Lengsta málsgreinin er hvorki meira né minna en 156 orð, en alls er greinin 776 orð, sem skiptast á 13 málsgreinar. Með- alfjöldi orða i málsgrein er 60. Ernest Hemingway sem var tal- inn afbragðs blaðamaður, ekki siður en rithöfundur, komst af með niu orð I málsgrein að með- altali i blaðagreinum sinum. Ég hélt áfram að leika mér að orð- unum i greininni, siður en svo mér til ánægjuauka, og reiknaði út svokallað lix greinarinnar. Lix er stytting úr „lesbarhets- index”, og er alþjóðlegur mæli- kvarði á þvi hversu læsilegur texti er. Það er fundið úr með þvi að leggja saman meðal- fjölda orða i málsgrein og með- alfjölda orða sem eru lengri en sex bókstafir. Lix reyndist 71. Viðmiðunarskali, sem byggist á mörgum sænskum athugunum, nær upp i 60 lix, en það er talinn mjög erfiður texti. Aðeins ein- staka kaflar úr upplýsingabækl- ingum frá hinu opinbera komust upp i' 70. Það þykir ákafiega illa gert gagnvart þeim sem þurfa á upplýsingum um þau málefni að halda að skrifa svo þungan texta. Norsk athugun á fimmtfu leiðurum norskra dagblaða sýndi að lix þeirra var að með- altali 46,5. I ljós kom greinileg fylgni meö afturhaldssemi og þungu máli: afturhaldssamasta blaðið, Aftenpogten, hafði hæst lix, eða 50. Hinir visu sænsku menn staðhæfa aö stefna beri að þvi að lix sé ekki hærra en 40, helst minna. Það segir sig sjálft, að þegar málsgreinar eru mjög langar verðurerfitt að skilja þær. Setn- ingarnarhljóta að verða flóknar þegar hrúgað er saman auka- setningum og aðalsetningum, sem eru tengdar saman með aragrúa af kommum og sam- tengingum, auk annarra tengi- orða og tákna. Stillinn verður þunglamalegur og klaufaiegur: ég hika ekki við að segja bama- legur. Satt að segja rifjuöust upp fyrir mér unglingaskólastil- ar af lakara tæinu við lesturinn. Ég er ekki eins kunnugur barnaskólastilum.Eftirþvi sem ég veit best hefur þó „Guð” þessi, sem heitir vist Jens i kirkjubók, fengist við blaða- mennsku i nokkur ár. Að minnstakosti rekur mig minni til þess að hann ritaði um popp- mennsku i Alþýðublaðið fyrir þremur eða f jórum árum, þegar ég starfaði þar sjálfur. Ég skal nefna fáein dæmi um málfar, sem er svo slakt, að það er ekki einungis Þjóðviljanum til skammar, heldur á alls ekki heima á prenti. „Fyrir þremur árum var tækifærið komið til að ná aftur einhverju af fyrri vinsæld- um...."„Hálfklaufalegt! ,,....og Lúdó var ekki hættur lengur og....” Þessi gáfulega fullyrð- ing er í frekar stuttri málsgrein. í henni er bara 31 orð. „í fyrra- vetur þegar lagið „Lets Twist Again” var að ná toppnum aftur, en nú á vinsældarlistum barna undir 12 ára aldri og fólks milli 30 og 50 ára, kom út fyrsta L.P. platan....’” Mikið er á sig lagt til að halda fjölda máls- greina I lágmarki og spara punkta. í sömu máis- grein: ....með hörmulega lé- legum texta eftir Þorstein Eggertsson sem heitir „Ólsen Ólsen”,....” Heitir nú Þorsteir>n Eggertsson orðið ólsen óisen? Annars eru 155 orð I þessari máisgrein, svo það er ekki und- arlegt þótt eitthvað sé brogað við samhengið. Ég er alveg sammála upphafi næstu setn- ingar (sem er að finna I 94 orða langri málsgrein): ,,....það virðast ekki vera til nein tak- mörk á þvi' hvað meigi hnoða saman mikilli vitleysu/(sam- mála hingað) og syngja inn á plötur, mætti ég þá heldur bara biðja um að upprunalegu text- arnir séu sungnir............” (leturbreytingar minar, ÞG). Eitthundrað og sex orða máls- grein kemur næst og hefst svo: „Það er einnig skrltiö eða vanskapað að....” Samkvæmt orðabók Menningarsjóðs þýðir skrýtið: spaugilegt, sem vekur bros, kynlegt, undarlegt, og er skrifað með ý. Merkingin stenst þarna. En vanskapað þýðir (sama heimild): ekki rétt skapað, skakkt eða óeðlilegt sköpulag. Það er semsagt skrýtið og skakkt sköpulag að besta platan sem SG-hljómplöt- ur hafa sent frá sér, einleiks- plata Björgvins Gislasonar, skuli seljast minnst, en plötur eins og Lúdó & Stefán renni út eins og heitar lummur. Svo setningunni sé komið á einfald- ara mál (að undanteknum „óskapnaðinum”, og einu orða- tiltæki kippt i liðinn (,,....en svo seljast..eins og heitar lummur með rúsinum”)). Ég hef hingað til ekki minnst á efni greinarinnar. Hún fjallar um nýja hljómplötu með sunn lenskri hljómsveit, Lúdó sextett og Stefáni, sem hefur látið á sérkrælaáný eftiraðhljótthef- ur verið um hana i' nokkur ár. En það skiptir reyndar ekki máli.Hittskiptir meira máli, að sá sem tekur sér fyrir hendur að gagnrýna lélega dægurlaga- texta ætti helst að skrifa þannig sjálfur að skammlaust sé. Ég er alveg sammála þvi, að textinn „Ólsen Ólsen” er hörmulega lé- legur, og ég er reyndar efnis- lega sammála greinarhöfundi I flestum atriðum. En það breytir engu I þvi, að greinin er öllum aðstandendum hennar til hábor- innar skammar. „Jens Kristján Guð” gefur plöt- unni eina stjörnu. Hann fær ekki einu sinni það fyrir gagnrýnina á henni. Ég nenni ekki að meðhöndla greinina á efrihluta blaðsiðu 16 á sama hátt og margnefnda grein. Enfljóttá litið virðisthún undir sömu sökina seld, en hefur það þó framyfir hina, að hún er styttri (færri orð). Þessi grein fjallar lika um plötu. En platan er erlend og fær góða dóma. Þarna örlar ekki á meiri kunnáttu I greinarmerkjasetn- ingu en fyrri daginn, þótt finna megi visstkerfi inotkun punkta. Höfundur tekur nefnilega fyrir hvern meðlim hljómsveitarinn- ar og hrósar honum, og setur siðan punkt. Annars eru ekki punktar. Margt fleira er við þessa grein að athuga. Sérstak- lega stingur mig notkun er- lendra slanguryrða. En það breytirekki þvi að „Guð” virð- ist fyrirmunað að tjá sig (á is- lensku) án þeirra. Og eins og áður er hann meira og minna reikandi i merkingafræði. Það ert.d.mjögerfittaðtrúa þvi, aö snjöllum bassaleikara megi lýsa sem „þéttum bassaleik- ara”. Ætlunin hefur vafalaust verið að segja, að bassaleikur- inn væri þéttur, en ég er ansi hræddur um að mörgum finnist að eitthvert annað lýsingarorð lýsi athöfn þessa manns betur. Hins vegar er ekkert ótrúlegt að bassaleikarinn sé þéttur svona af og til, án þess að það sé neitt honum til lasts. Vonandi þurfum við velunn- arar Þjóðviljans ekki aö þola svona málfarsleg áföll oftar. Osló, 8. nóv. 1977 Þorgrimur Gestsson bækur bækur bækur bækur bækur bækur bækur bækur Flogið yfir flæðarmáli í 2. útgáfu Bókaforlag Odds Björnssonar hefur gefið út í 2. útgáfu bókina Flogið yfir flæðarmáli eftir Ármann Kr. Einarsson. Bókin er ein af „Arnabókunum” svoköll- uðu, en bókaflokkur sá kom fyrst útá sjötta og sjöunda áratugnum og naut mikilla vinsælda barna og unglinga. Aðalpersónurnar i bókum þess- um eru Ami I Hraunkoti, Gussi á Hrauni og Olli ofviti, systurnar Rúna og Helga litla í Hraunkoti, að ógleymdum svaðamenninu Svarta Pétri. Spítala- skipið Bókaforlag Odds Bjornssonar hefur sent frá sér enn eina „Slaughter” bókina og nefnist hún „Spitalaskipið” og er þetta 55. skáldsaga Franks Slaughters. Segir á bókakápu að meira en 50 miljón eintök hafi selst af bókum þessa mikilvirka höfundar. Bókin Flogið yfir flæðarmáli er 10. bindið I ritsafni Ármanns Kr. Einarssonar, sem Bókaforlag Odds Björnssonar gefur út. Armann er einn þekktasti barna- bókarhöfundur hef- á landi, og hefur sent frá sér 27 barna- og unglingabækur, auk þriggja ann- arra skáldsagna og smásagna- safns. Bækur hans hafa verið þýddar á erlendar tungur og sög- urnar um Arna i Hraunkoti hafa verið fluttar i útvarpinu I formi framhaldsleikrits fyrir börn. Flogið yfir flæðarmáli er 140 bls. Prentverk Odds Björnssonar prentaði. Teikningar i bókina gerði Halldór Heitinn Pétursson, enKristján Jónsson teiknaði bók- arkápu. —eös KARLUK Sagan sem Vilhjálmur Stefánsson lét liggja í þagnargildi Bókaútgáfan Om og örlygur hefur gefið út bókina KARLUK eftir William Laird McKinlay en hann var einn af leiðangursmönn- um með Vilhjálmi Stefánssyni i norðurhöfum á árunum 1913-1918 en fyrir þann leiðangur var Vilhjálmur siðar sæmdur æðstu orðu bandariska landfræðifélags- ins. tslenska þýðingu gerði Jón A Gissurarson fyrrum skólastjóri. t þessari bók er i fyrsta sinn rakin öll saga KARLUKS, forystuskips i leiðangri Vilhjálms Stfefánssonar til norðurhafa á ár- unum 1913-1918, en það brotnaði og sökk i isnum, áður en leiöang- urinn var raunverulega hafinn. Tuttugu og fimm menn voru skildir eftir skipreika á isnum, meðan foringi þeirra fór I fimm ára landkönnunarferð norður Hina næsta ótrúlegu sögu um örvæntingarfulla lifsbaráttu fákunnandi og forystulausra manna, segir segul- og veöur- fræðingur leiðangursins, William McKinlay, sem þá var hálfþritug- ur kennari. Eins og flestir félagar hans var hann fákunnandi og reynslulaus i baráttu við ógnir norðurslóða. Ekki hafði verið reynt aö velja skipshöfn þannig að hún yrði samstillt til átaka, lygar stuidir og blekkingar voru daglegt brauð og skortur á félags- anda var undirrót margra harm- leikja. Við þessar aðstæður gat ekki hjá þvi farið að endir sögunnar yfði hörmulegur. Atta manns lét- ust á leið yfirisinn.einn skaut sig, tveir sveltu i hel og hinir drógu með naumindum fram lifið, uns hjálpin barst. Frásagnirnar um Skipt um Frá Ægisútgáfunni er komin bókin Skipt um hlutverk eftir Denise Robins I þýðingu Valgerð- ur Báru Guðmundsdóttur. Fjallar hún um unga stúlku sem missir þolraunir þeirra eruátakanlegar, en bera vott um ótakmarkaðan lifsvilja. I bókinni eru einstakar ljósmyndir, teknar i leiöangrin- um og hafa flestar þeirra aldrei birst áöur. hlutverk minnið I bilslysi og er siðan sett i hlutverk annarrar stúlku af ósvifnum fjárglæframönnum. Þetta er 12. bók höfundar sem þýdd er á Islensku.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.