Þjóðviljinn - 21.12.1977, Qupperneq 5
Miövikudagur 21. desember 1977 ÞJÓDVILJINN — StÐA S
Ekki stafkrókur um
eflingu atvinnulífs
þrátt fyrir allt taliö um alhlida atvinnuuppbyggingu í
höfuöborginni, sagdi Sigurjón Pétursson í ræðu sinni
Hér birtist siðari hluti ræðu Sigurjóns Péturssonar borgarráðsmanns
sem hann flutti við fyrstu umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyr-
ir árið 1978.
Sfðari umræða uin fjárhagsáætiunina fer fram 18. janáar á næsta ári.
Afskiptaleysi
A yfirstandandi ári hefur verið
gerð allitarleg úttekt á stöðu at-
vinnumála i borginni. Sú úttekt
hefur leitt i ljós aö reykviskt at-
vinnulíf stendur á ýmsan hátt á
ákaflega ótraustum grunni.
Framleiöslu- og úrvinnslu-
greinum hefur hnignað i borginni
svo m jög, aö i sumum greinum er
ekki aöeins um hlutfallslega
hækkun, heldur beina fækkun
starfandi fólks aö ræöa, þrátt fyr-
ir fólksf jölgun i borginni á sama
tima.
Þaö er enginn vafi aö þróun at-
vinnumála i borginni og hnignun
framleiöslu- og úrvinnslugreina
er bein afleiöing af afskiptaleysi
borgaryfirvalda af atvinnulifi l
borginni, stööu þess og þrdun.
Raunar er eölilegt aö ihalds-
stjórn hafi ekki mikil afskipti af
atvinnulífi.
Kenning þeirra er sú aö ,,hiö
frjálsa framtak einstaklingsins”
megihvorki takmarka eöa skeröa
meö neinum hætti, né breyta með
aögeröum stjórnvalda sam-
keppnisaöstööu atvinnugrein-
anna.
Fjármagnsstreymi
Frá þvi á striösárunum og langt
fram eftir siöasta áratug var eöa
virtist a.m.k. heldur engin þörf á
afskiptum af atvinnulifi hér i
Reykjavik.
Or uppbygging borgarinnar
samfara bæöi fólks- og fjár-
magnsflótta frá dreifbýlinu
tryggöi næga atvinnu hér.
Sem miöstöö stjórnsýslu, sam-
gangna og kaupsýslu jukust þjón-
ustugreinar hraöarhér en annars
staöar.
A sildarárunum stofnuöu Reyk-
viskir atvinnurekendur til rekstr-
ar viöa úti um land. Þeir áttu
bæöi báta og verkunarstöövar og
fluttu siöan afraksturinn til fjár-
festingar hér I borginni.
Stéttarbræöur þeirra margir
hverjir, sem búsettir voru úti á
landi höföu sama háttinn á.
Hin mikla og hraöa uppbygging
Reykjavikur á þessum árum á
þvi verulegar rætur i atvinnu-
starfsemi sem stunduö var langt
utan borgarmarkanna og þvi
fjármagni sem til borgarinnar
var flutt frá þeirri atvinnustarf-
semi.
Þaö er á samdráttartimunum i
lok slöasta áratugs, sem fyrst
kemur i ljós hve veik staöa höfuö-
borgarsvæöisins er i atvinnulegu
tilliti. Um leiö og samdráttur
varö I undirstööuatvinnugreinun-
um og verulega dró úr fjár-
magnsstreymi til þéttbýlisins, þá
veröur eins konar hrun i úr-
vinnslu- og þjónustugreinum, þar
sem viöa er litil f járfesting 1 þeim
og þvi auðveldur fjármagnsflótti
úr þeim.
Þött atvinnuleysiö i lok siöasta
áratugs hafi komið illa niöur á
verkafólki vitt um landiö þá var
þó áberandi hvaö þaö kom verst
viö höfuöborgarsvæðiö.
Hnignun togara-
útgerðar
Þaö væri freistandi aö rekja
sögu útgerðar frá Reykjavik. Og
vissulega veröur aö hafa þann
mikilvæga þátt atvinnulifsins irini
I myndinni þegar reynt er aö
meta stööu atvinnumála og spá i
framvindu þeirra.
Til þess treysti ég mér þó ekki i
þessari ræöu.
Þó er rétt aö minna á aö ekki
eruýkja mörgársiöan Reykjavik
var stærsti útgeröarbær landsins.
Hnignun togaraútgerðar á
sjötta og sjöunda áratugnum er
jafnframt hnignunarskeiö út-
geröar og fiskvinnslu i Reykja-
vik.
Þegar endurreisn atvinnulifs-
ins hófst eftir atvinnuleysistima-
biliö I lok siöasta áratugs þá gerö-
ist þaö meö skipulegri uppbygg-
ingu atvinnufyrirtækja vitt um
landið fyrir forgöngu vinstri
stjórnarinnar aö frumkvæöi Al-
þýöubandalagsins.
Þessi atvinnuuppbygging fór
þvi miöur aö verulegu leyti fram
hjá Reykjavik en ef frá eru talin
togarakaup Bæjarútgeröar
Reykjavikur til endurnýjunar á
löngu úreltum siöutogurum.
Með uppbyggingu atvinnulifs
um hinar dreiföu byggöir lands-
ins dró af eölilegum ástæöum úr
fólksflutningum til höfuöborgar-
svæöisins og fjármagnsstreymiö
til höfuöborgarinnar hefur veru-
lega mikiö minnkaö.
Æ minna svigrúm
Reykvikingar standa nri and-
spænis þvi aö veröa aö vera sjálf-
um sér nógir um atvinnustarf-
semi og fjármagn i rikari mæli en
áöur.
Eins og ég gat um áöan, þá hef-
ur skýrslan um stööu atvinnu-
mála i Reykjavik leitt þaö ber-
lega i ljóst aö atvinnulif I Reykja-
vik veröur einhæfara með hverju
árinu sem liöur þar sem atvinna
eykst fyrst og fremst i þjónustu-
greinum.
Af þessari ástæöu telja höfund-
ar skýrslunnar aö vaxandi hætta
sé á atvinnuleysi á höfuöborgar-
svæöinu og telja jafnframt aö
möguleikar og svigrúm stjóm-
valda til aö bregöast viö atvinnu-
leysi fari stööugt minnkandi
vegna einhæfni atvinnulifsins.
Orörétt segir i skýrlunni á bls.
7: „Allt til þessa hefur reynst
unnt aö bregöast viö atvinnuleysi
i Reykjavik á sama hátt og gert
hefur veriö annars staöar hér-
lendis. Fremur einfaldar og
skjótvirkar ráöstafanir til örvun-
ar hverskyns framleiöslustarf-
semi hafa dugað til þess aö bægja
hættunni frá.
Flest tiltæk gögn um islenskt
atvinnullf benda til þess, aö æ
minnasvigrúmveröitilsvo skjót-
virkra aögerða á komandi árum
og jafnframt sé siöri árangurs aö
vænta af þeim. Einkum á þetta
viö um höfuöborgarsvæöiö, vegna
þess, aö svæöiö heldur ekki hlut
sinum 1 framleiðslustarfsemi og
umsvif þjónustugreina i heild
viröast nálægt þvi hámarki sem
framleiöslugreinarnar geta bor-
iö. Viö þessar aöstæöur veröur
ekki stofnaötilaukinnar þjónustu
i atvinnuskyni án þess aö á undan
fari örvun og efling framleiöslu til
þess aö standa straum af kostnaöi
viö þjónustuaukninguna.”
Ekki króna
1 framhaldi af gerö skýrslunnar
um atvinnumál i Reykjavik hafa
verið haldnir fundir meö framá-
mönnum i atvinnulifinu bæöi úr
hópi samtaka atvinnurekenda og
launafólks.
Þaö kemur þvi verulega mikiö
á óvart, aö i þessari fjárhagsáætl-
un er ekki stafkrók aö finna til efl-
ingar atvinnulifi i Reykjavik ef
frá er taliö framlag til Fram-
kvæmdasjóös, sem þó er svo lágt
aö þaö nær ekki aö fullnægja þörf-
um BOR um bráönauðsynlegar
framkvæmdir á næsta ári.
Viö borgarfulltrúar Alþýöu-
bandalagsins munum viö siöari
umræöu um fjárhagsáætlunina
leggja fram itarlega stefnutillögu
um atvinnumál i Reykjavik.
Alhliöa atvinnuuppbygging i
Reykjavik er nauösyníeg, eigi aö
tryggja reykviskum ungmennum
atvinnu viö hæfi á næstu árum.
Þaö erskylda kjörinna fulltrúa aö
móta og framfylgja atvinnu-
stefnu sem tryggi öllum vinnu.
Þeirriskyldu ætlum viö borgar-
fulltrúar Alþýöubandalagsins
ekki aö bregöast.
Einstök borgar-
fyrirtæki
Viö þessa fyrri umræöu um
fjárhagsáætlunina mun ég ekki
fjalla nema litiö um hin einstöku
fyrirtæki borgarinnar.
Aö sjálfsögöu bera fjárhags-
áætlanir þeirra og gjaldhækk-
unarbeiönir keim af efnahags-
ástandinu og óöaveröbólgunni
eins og aörar áætlanir.
Fyrirtæki eins og Hitaveitan,
sem tók verulega mikil erlend lán
til framkvæmda I nágranna-
sveitafélögunum er af eðlilegum
ástæöum viökvæm fyrir stööugu
gengissigi.
Og auövitaö þýöir ekki aö láta
sem veröbólga og gengissig sé
ekki til þegar ákveöa þarf gjald-
skrá fyrirtækjanna.
Fjárhagsáætlun Hitaveitunnar
gerir ráö fyrir aö verö á heitu
vatni veröi 75 kr pr. tonn. Þaö er
hækkun um 18.5%.
Þrátt fyrir þessa hækkun er
Hitaveitan vaxandi hagkvæmt
fyrirtæki fyrir Reykvikinga og
nágrannabyggðirnar.
Hitunarkostnaöur meö hita-
veitu er aöeins um 30% af veröi
gasoliuhitunar, þegar reiknaö er
með væntanlegu veröi Hitaveit-
unnar, en núverandi veröi gas-
oliu.
Raunhæfasti samanburöurinn
er þó kannski aö miöa viö kaup
hafnarverkamanns og sé þeirri
viömiöun beitt þá kemur I ljós aö
fyrir 1 klst. vinnu fær hafnar-
verkamaöur50% meira heittvatn
eftir 18,5% hækkunina en hann
fékk áriö 1970 og liölega 80%
meira en hann fékk 1961.
Rafmagnsveitan
Um fjárhag Rafmagnsveitunn-
ar er svipaö aö segja og f járhag
Hitaveitunnar.
Ekki er gert ráö fyrir sérstakri
veröhækkun i fjárhagsáætluninni
en R.R. fékk sem kunnugt er
hækkun á gjaldskrá 1. nóvember
s.l.
Þessi fjárhagsáætlun R.R. er
þó athyglisverö fyrir þá miklu
fækkun á starfsliöi á skrifstofum
stofnunarinnar sem þar er gert
ráö fyrir.
Samtals eru lagöar niður 14
stööur á skrifstofunum i Hafnar-
húsinu og auk þess felldar niöur
þrjár stööur, sem áætlað hefur
veriö fyrirundanfarin ár, en ekki
hefur veriö ráöiö i.
Auk þessa er fækkaö um 11/2
stööu I bækistöö R.R. viö Armúla
en hins vegar bætt þar viö einum
húsveröi.
Þessi mikla fækkun á starfsliöi
er gerö án þess aö nokkur veröi
var viö skerta þjónustu.
Rafmagnsveitan hefur nú um
nokkur ár unniö aö hagræöingu á
rekstri sinum meö ákaflega
athyglisveröum árangri.
Fyrir nokkrum árum var
Benedikt Gunnarsson hagræðing-
arráöunautur fenginn til aö koma
á launahvetjandi kerfi hjá vinnu-
flokkum Rafmagnsveitunnar
með mjög góöum árangri og
verulegum sparnaöi. Þá hefur
fyrirtækiö Hagvangur unniö aö
gerö kostnaöarbókhalds fyrir
Rafmagnsveituna sem auöveídar
mjög aö fylgjast meö kostnaöi viö
lin einstöku verk og verkefni.
Meginþáttinn i þessum hagræö-
ingarverkefnum eiga þó starfs-
menn Rafmagnsveitunnar sjálfir,
enþeirviröastleggjaáherslu á aö
Iraga úrkostnaöi eftir föngum án
þess aö skeröa þjónustu.
Fordæmi Rafmagnsveitunnar
aetti aö vera öörum borgarstofn-
unum hvatning til aö endurskoöa
rekstur sinn og endurbæta.
Ég minnist þess ekki aö hafa
heyrt talaö um aö Rafmagnsveit-
an væri sérlega illa rekiö fyfir-
tæki, áðuren þessi hagræöingar-
verkefni voru unnin, en þrátt fyr-
ir þaö hefur þessi árangur náöst
og ég veit aö enn er i bígerö f rek-
ari hagræöing hjá fyrirtækinu.
SVR
Strætisvagnar Reykjavikur eru
sérstakt áhyggjuefni viö
afgreiöslu þessar fjárhagsáætl-
unar.
Gert er ráö fyrir taprekstri aö
upphæö hvorki meira né minna en
300 miljónum króna á komandi
ári. Þrátt fyrir þennan mikla tap-
rekstur, sem Reykjavikurborg
veröurað sjálfsögöu aö taka á sig
þá þarf aö hækka fargjöld mjög
verulega og fáist ekki fargjalda-
hækkun blasir við hætta á skertri
þjónustu.
Ég hef margsagt þaö hér i
borgarstjórn og vil Itreka þaö enn
einu sinni, aö ég tel eölilegt aö
nota hluta af fé skattborgaranna
til þess aö greiöa fyrir almenn-
ingssamgöngum I borginni. Og ég
minni á þaö aö jafnvel þeir, sem
fara allra sinna feröa á einkabil
hafa strætisvagninn i bakhönd-
inni ef og þegar eitthvað fer úr-
skeiöis.
En þrátt fyrir þaö, aö ég telji
sjálfsagt aö leggja strætisvögn-
unum til af almannafé, þá veröa
þó einhversstaðar aö vera þau
mörk sem reynt er aö takmarka
greiöslurnar viö. Sist má skeröa
þjónustu SVR frá þvi sem nú er.
Mikiö frekar þarf aö stórbæta
hana.
Eigi i alvöru aö reyna að koma
rekstri SVR i sæmilegt horf, þá
verbur að minni hyggju aö gera
þá langtum meir aölaöandi val-
kost en nú er gert.
Þaö þarf i vaxandi mæli aö
tryggja strætisvögnunum sér-
stakar akstursleiöir, þannig aö
þeir veröi I senn fljótir I förum og
stundvisir. Þaö þarf að stórbæta
aöstööu farþega I biöskýlum og
leitast viö aö gera þau aölaöandi,
en þvi fer viösfjarri aö þaö veröi
sagt um þau nú.
Hluti af kostnaö viö rekstur
strætisvagnanna eru ákaflega
Framhald á bls. 14.