Þjóðviljinn - 31.12.1977, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 31.12.1977, Blaðsíða 32
 ÞJOBVIUINNX Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mártudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa timá er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfs- menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaðaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans I sima- skrá. Laugardagur 31. desember 1977 18 börn og unglingar komin frá New York „Til skáklandsins mikla” þar sem þau œtla að tefla þrisvar sinnum við jafnaidra sína Um kl. 10 i gærmorgun komu til islands 18 börn og unglingar úr hinum fræga skákskóla John Collens i New York, ásamt kenn- ara sinum Collens og hinum fræga stórmeistara séra Lombardy, sem eitt sinn var i þessum sama skóla. Þessi ung- menni sem eru á aldrinum 7 til 15 ára munu tefla vift jafnaldra sfna hér á landi. Fyrst var teflt i gær- kvöidi viö meðlimi Tafifélags Reykjavikur, i dag eiga þau fri, en á morgun tefla þau svo við meðlimi úröðrum skákféiögum á Stór Keykjavikursvæðinu cn TR. 2. janúar munu þau annaö hvort tefla við einhverja jafnaldra sina, eða þá að þeir Friðrik Ólafsson og Lombardy tefli f jöitefli við þau og einhverja fleiri unglinga, eða þá að haldiö verði hraðmót. Það er Skáksamband Islands ogTR ásamt Flugleiðum h.f. sem hafa séð um þessa heimsókn hér á landi. Séra Lombardy sagði á blm. fundiígær,að hann vonaðist til að íslensk börn gætu endur- goldið þessa heimsókn og komið til New York. Um það heföi að- eins verið rætt, en reynt yrði að ganga frá málinu þessa daga, sem hópurinn dvelur hér en hann heldur heim 3. ’jan. nk. Skákskóli Collens i New York er mjög frægur og hafa þeir Bobby Fischer, Lombardy og Bruns- bræðurnir, sem allir eru stór- meistarar, lært hjá Collens. Collens sagði i gær, að Fischer hafði heimsótt sig fyrir mánuði siðan og sagðist Fischer þá ætla að fara að taka aftur þátt í skák- mótum. Þeir tefldu margar skák- ir meðan Fischer dvaldi hjá Coll- ens. Sagðist hann hafa unnið eina, ein varð jafntefli en allar hinar vann Fischer. — S.dór. Lengstt.v. er John Collens, þá stórmeistarinn séra Lombardy ásamt. nokkrum af skákbörnunum og lengst til hægri er Sveinn Sæmundsson biaðafulltrúi Flugieiða, en Flugleiðir hafa aöstoðað við að gera banda- risku börnunum kleift að koma til tslands og tefla. (Ljósm. -eik-) ASI mótmælir harðlega I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i. Vegagerðin heldur eftir launum bílstióranna A fundi miöstjórnar A.S.t. i fyrradag var samþykkt að lýsa fullum stuðningi við kröfu Landssambands vörubifreiða- stjöra um að Vegagerð rikisins geri skilvislega upp laun við þá bílstjóra, sem hjá henni starfa. Að undanförnu hefur það viðgengist, að Vegageröin hefur þvingað bilstj óra viö vissar framkvæmdir til að samþykkja, að lána Vegagerðinni aksturs- iaun sin vaxtalaust um óákveð- inn tima, — og með tilliti til þessa var samþykkt mið- stjórnar A.S.Í. gerð. Samþykktin er á þessa ieið: Landssamband vörubífreiöa- stjóra hefir kynnt miðstjórn ASl ágreiningsefni við samgöngu- ráðuneytið og vegagerðina út af svonefndum vinnulánum. Að fyrirlagi samgönguráðuneytis- ins hefir vegagerðin að undan- förnu þvingað vörubifreiða- stjóra við tilteknar nýbygginga- framkvæmdir til að lána öll aksturslaun sin vaxtalaust i óákveðinn tima. Hafi vörubif- reiðastjórar neitað þessum kostum er þeim neitað um vinnu. Miðstjórn ASl telur þetta atferli rikisvaldsins gróft brot á grundvallarréttindum verka- lýðsins.Aldrei hefir launþegum veriðmeiri þörf á þvi en einmitt nú þegar óhófleg verðbólga rikir að fá vinnulaun sin skilvislega greidd. Er eigi heldur unnt að una þvi, að atvinnukúgun sé beitt til að knýja fram greiðslu- frest á vinnulaunum. Miðstjórn ASl styður eindreg- ið kröfur Landssambands vöru- bifreiðastjóra um skjóta leið- réttingu mála sinna i þessu efni. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I Um 430 skip sóttu um neta- veiðileyfi Öll fá veiðileyfi nema 350 tonna skip eða stærri sem ekki hafa áður verið á netaveiðum t gær rann út frestur sá er sett- ur var fyrir úteerðarmenn að sækja um veiðileyfi fyrir báta sina til þorskanetaveiða. Og rétt áður en fresturinn rann út i gær, höfðu um 430 skip sótt um leyfi að sögn Þórðar Eyþórssonar hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Þetta mun vera meiri báta- fjöldi en stundaði þorskveiðar i net i fyrra og er trúlegt að sótt sé um leyfi fyrir öll skip, menn vilja hafa vaðið fyrir neðan sig í þess- um efnum. Og öll skip fá leyfi að þessu sinni, nema skip sem eru 350 lest- ireða stærri og hafa ekki stundað netaveiðar áður. En skip af þess- ari stærð, sem áður hafa stundað netaveiðar fá leyfi, þannig að þá eru sárafá skip sem ekki fá leyfi aö þessu sinni. Nokkurrar óánægju gætir með- al útgerðarmanna og skipverja á minni bátunum, sem ekki geta stundað loðnuveiðar, með það að stóru loðnuskipin skuli ekki vera útilokuð frá þorskanetaveiðum i vetur. Hafa menn bent á, 3Ö nær séað leyfa þeim bátum sem'ekki geta stundað loðnuveiðar að sitja að netaveiðinni ásamt minnstu loðnuskipunum, sem ekki ná um- talsverðum loönuveiðum vegna smæðar sinnar. -S.dór. Útlit er fyrir élja- vedur um áramótin á vestanverdu landinu en betra veður fyrir norðan og austan ,,Þvi miður sýnist mér að það >é snjó- og slydduveð’ur á leið upp að suður og vesturströndinni og það muni ganga austur yfir landið á gamlársdag og þvi á ég von á þvi að um vestanvert landið verði éljagangur eða slydda, en tel hæpið að veðriið nái til Norður og Austurlands á gamlársdag, og þvi ætti að vera betra veður i þeim landshlutum” sagði Páll Berg- þórsson, veðurfræðingur er við spurðum hann hvernig áramóta- veðrið yrði. Páll tók fram, að sennilega yröi ekki um neitt illviðri að ræða og þess vegna ættu menn ekki að þurfa að sitja inni i húsum, enda væri það nú svo að mönnum fynd- ust flestar leiðir færar, eftir að hafa fengið sér aðeins brjóstbirtu i tilefni áramótanna. -S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.