Þjóðviljinn - 04.01.1978, Side 5
Miövikudagur 4. janúar 1978 þjöÐVILJINN — SIÐA 5
Bæjarrád Siglufjarðar:
Mótmælir hardlega hug-
myndum um sölu Þormóds
ramma hf. og Siglósíldar
A fundi sínum i fyrradag sam-
þykkti bæjarráð Siglufjarðar
ályktun, þar sem harðlega er
mótmælt þeim tillögum, sem
fram hafa komið um að rikið
hætti þátttöku i rekstri Þormóðs
ramma hf. og lagmetisiðjunnar
Siglósildar. Samþykkt bæjar-
ráðs Siglufjarðar fer hér á eftir:
,,Að gefnu tilefni, vegna
framkominnar tillögu nefndar
um sölu ríkisins á lagmetisiðj-
unni SiglósHd og hugmyndum
um sölu á hlutabréfaeign ríkis-
ins i Þormóði ramma hf. á
Siglufirði, samþykkir bæjarráð
Siglufjarðar eftirfarandi:
Bæjarráð Siglufjarðar it,rekar
eindregið fyrri ályktanir sinar
um mikilvægi þeirra fyrirtækja
sem rikið er eignaraðili að fyrir
allt atvinnulif staðarins, og
minnir á þær atvinnulegu for-
sendur sem lágu til grundvallar
við stofnun þeirra. Þrátt fyrir
hina formlegu eignaraðild rikis-
ins er stjórnun þessara fyrir-
tækja i höndum heimamanna,
og hefur rekstur þeirra gengið
vel undanfarin ár. Meðal annars
vegna starfsrækslu þessara fyr-
irtækja hefur atvinnullf á
Siglufirði gjörbreyst til hins
betra á undanförnum árum og
verður nú ekki annað séð en að
þar verði áframhald á i framtið-
inni.
Bæjarráð Siglufjarðar mót-
mælir þvi harðlega öllum þeim
hugmyndum sem geta stefnt i
hættu þvi atvinnuöryggi, sem
loks eftir harða áratuga baráttu
hefur tekist að skapa á Siglu-
firði. Sala þessara fyrirtækja nú
gæti leitt til öryggisleysis i at-
vinnumálum bæjarins og þann-
ig valdið ófyrirsjánlegum erfið-
leikum i atvinnumálum bæjar-
félagsins á nýjan leik. Ef fyrir-
tækin yrðu seld, er hugsanlegt
að þau lentu i höndum fjárafla-
manna, sem hefðu aðrar hug-
myndir um hlutverk þeirra " i
siglfirsku atvinnulifi en Siglfirð-
ingar almennt telja æskilegt.
Afskipti atvinnurekenda, bú-
settra utanbæjar, á liðnum ára-
tugum, ættu að vera hér nægj-
anlegt viti til varnaðar.
Bæjarráð Siglufjarðar mót-
mælir þvi eindregið framkomn-
um hugmyndum um sölu þess-
ara fyrirtækja og skorar á
alþingi og rikisstjórn að leggj-
ast gegn hugmyndum nefndar-
innar i þessu efni.”
t samtali við Þjóðviljann i gær
sagði Kolbeinn Friðbjarnarson,
formaður Verkalýðsfélagsins
Vöku og bæjarráðsmaður á
Siglufirði, að afstaða manna á
Siglufirði væri mjög eindregin i
þessu máli og það yrði örugg-
lega meira en litið búið að
ganga á þar, áður en þessar
hugmyndir nefndarinnar yrðu
að veruleika.
—eös
Hlunnindavörur
fyrir 235 milj.
Að þvi er segir i fréít i „Sam-
bandsfréttum” voru svo kallaðar
hlunnindavörur bænda fluttar út
fyrir sem nemur 235 milj. kr. á
siðasta ári. Hér er átt við hcsta,
æðardún og selskinn.
412 hestar á fæti voru fluttir út á
siðasta ári fyrir rúmar 95 milj.
kr. eða um það bil 230 þúsund
krónur fyrir hvern hest. Markað-
ur fyrir islenska hestinn er mest-
ur i V-Þýskalandi, en einnig var
nokkuð flutt út af hestum til
Norðurlandanna og 30 hestar til
Bandarikjanna og telja menn að
þar sé að opnast stór markaður.
Æðardúnn var fluttur út fyrir
65 milj. króna. Voru það samtals
1490 kg. og fékkst þvi sem svarar
44 þúsund krónum fyrir kilóið. Nú
mun svo komið að nær allur æðar-
dúnn sem fæst hér á landi er
fluttur út, vegna þess að tslend-
ingar ráða ekki við það verð sem
fæst fyrir hann ytra.
Loks er að geta þess að um 6.500
selskinn voru flutt út á siöasta ári
fyrir um það bil 75 milj. kr. eða
vel á I24)úsund krónur fyrir hvert
skinn. Þó er enn ekki vitað um
Bændafundir
í Skagafirði
endanlegt verð fyrir siðustu send-
ingu, sem stafar af þvi að sölu-
tregða hefur verið á selskinnum
vegna áróðurs sem rekinn hefur
verið gegn notkun þeirra i heim-
inum undanfarin ár, einkum þó
kópaskinna, segir i „Sambands-
fréttum”.
—S.dór
412 hestar voru fluttir út á fæti á
siðasta ári.
Háskóla-
tónleikar
Háskólatónleikar verða haldnir
i Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut laugardaginn 7.
janúar kl. 17. Jónas Ingimundar-
son pianóleikari leikur þrjár
sónötur eftir Beethoven, Tungl-
skinssónötuna, Waldsteinsónöt-
una og sónötu op 111, sem er
siðasta pianósónatan sem
Beethoven samdi. Tónleika þessa
átti að halda 17. des. sl., en þeim
varð að fresta. Tónleikarnir
hefjast núna kl. 5 siðdegis og
verður svo um þá Háskóla-
tónleika sem eftir eru i vetur.
Aðgangur er öllum heimill og
kostar 600 kr.
Dagana 12. og 13. desember
voru haidnir tveir bændafundir I
Skagafirði. Búnaðarsamband
Skagafjarðar hafði boðað til þess-
ara funda, frummælandi á fund-
unum var Hákon Sigurgrimsson,
fulltrúi hjá Stéttarsambandi
bænda. Fundirnir voru mjög vel
sóttir og umræður fjörugar. Hér
verður getið þeirra ályktana sem
samþykktar voru á fundunum:
A almennum bændafundum i
Skagafirði, er haldnir voru að
Miðgarði og Höfðaborg dagana
12. og 13. des. 1977, voru m.a. gerð-
ar eftirfarandi samþykktir:
1. Fundirnir vita harðlega meiri-
hluta yfirnefndar fyrir úrskurð
á verðlagsgrundvelli landbún-
aðarafurða 2. des. s.l. Telja
fundirnir það einsýnt, að tekjur
bænda verði, eins og verið hef-
ur, aðeins um 2/3 af þvi, sem
þeim ber lögum samkvæmt.
Sérstaklega mótmæla fundirnir
þeirri rökleysu að viöurkenna
ekki þann fjármagnskostnað,
sem bundinn er i búrekstrinum
og rækilega var gerð grein fyr-
ir i tillögum fulltrúa framleið-
enda i sexmannanefnd.
Þá átelja fundirnir harölega
þann dóm yfirnefndar aö kon-
um skuli ætluð lægri laun en
körlum við bústörf. Jafnframt
fagna fundirnir þeirri ákvörðun
fulltrúa bænda i sexmanna-
nefnd að skjóta málinu til jafn-
réttisráös og skora á stjórn
Stéttarsambands bænda aö
hopa hvergi i þessu máli.
Fundirnir mæla eindregið með
þvi, að starf sexmannanefndar
og yfirnefndar verði lagt niður,
en i þess stað samið beint við
rikisstjórnina um verölags-
grundvöll landbúnaðarafurða i
trausti þess, að það tryggi
bændum betur þau laun, sem
þeim raunverulega ber.
2. Fundirnir átelja harðlega þann
áróður, sem rekinn er gegn
landbúnaðinum I fjölmiðlum,
m.a. i formi fréttaflutnings. 1
þvi sambandi benda fundirnir á
fréttaflutning hljóðvarps og
sjónvarps i tilefni af siðustu
hækkun á landbúnaöarafurö-
um. Fundirnir beina þeirri
áskorun til Stéttarsambands
bænda aö bera fram formleg
mótmæli við Útvarpsráð og
menntamálaráðherra vegna
þessa fréttaflutnings.
3. Fundirnir beina þeirri ein-
dregnu áskorun til rikisstjórn-
arinnar aö fella niður inn-
heimtu söluskatts af kjöti og
kjötvörum. Verði niðurfelling
söluskattsins hinsvegar talin
óframkvæmanleg verði I þess
stað aukin niðurgreiösla á
kjöti, sem söluskattinum nem-
ur.
4. Fundirnir beina þeirri ein-
dregnu áskorun til landbúnaö-
arráðherra að hlutast til um að
Framhald á bls. 14.
lækkun!
Ogenn einusinni lækkum við verðið.
Vegna tollalœkkunar á innfluttum verð, þannig að þér getið strax í
gólfteppum, sem tók gildi 1. janúar dag valið teppi ó hinu nýja útsölu-
sl., lœkkum við teppabirgðir okkar verði.
til samrœmis við hið nýja útsölu-
Óg viö bjóðum eftir sem áður mesta teppaúrval borgarinnar á
einum stað — Þér getið valið úr um 70 stórum tepparúllum
eða um 200 mismunandi gerðum af hinum vinsælu dönsku
Weston-teppum.
Opið til kl. 7 á föstudögum. Lokað á laugardögum
JIS
Lokað í dag vegna vörutalningar
TEPPADEILD
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbraut 12Í — Símar: 10600 - 28603