Þjóðviljinn - 04.01.1978, Side 11
MiBvikudagur 4. janúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA XI
Lugi?
Við því má búast þar sem hann
var ekki valinn til keppninnar í
Danmörku
Eins og viö skýröum frá i Þjóð-
viljanum i gær var landsliðið i
handknattleik sem leika á i Dan-
mörku valið i fyrrakvöld, og kom
það mönnum nokkuð á óvart að
hinn kunni handknattleiksmaður
úr Lugi.Jón Hjaltalin Magnússon,
var ekki á meðal hinna útvöldu.
Hins vegar voru menn eins og
Þorbergur Aðalsteinsson sem
ekki hefur nokkra leikreynslu til
slikrar keppni sem heimsmeist-
arakeppnin er, valinn,og kom það
mönnum mikið á óvart.
Það er greinilegt að leikur Þor-
bergs gegn Noregi hér á dögunum
hafi fleytt honum i islenska
landsliðshópinn. Þá skoraði hann
þrjú mörk og stóð sig að visu vel.
En það er ekki frammistaða gegn
lélegu landsliði Noregs sem á að
fara eftir þegar landslið þjóðar
eins og Islands er valið. Þá er
aðalatriðið að tjalda öllu þvi
besta sem við eigum. Þá er nauð-
synlegt að velja þá leikmenn sem
mesta leikreynslu hafa. Leik-
reynslan er eitt besta ef ekki
besta veganesti sem nokkur
leikmaður getur haft meðferðis i
keppni sem þessa. íþróttasiðan
reyndi i gær að ná sambandi við
Jón H. Magnússon, en það tókst
ekki þrátt fyrir itrekaðar tilraun-
ir. SK.
Jón H. Magnússon var ekki val-
inn i landslið sem leika á fyrir
tslands hönd i HM. Finnst
mörgum að landsliðsnefndin
hafi gert ærlega i buxurnar með
þessari ákvörðun sinni.
H.
Fer Jón
aftur til
Innanhússmót í
knattspyrnu
„Þorfoergur á
heima í HM-liðinu”
Segir Jón H. Karlsson fyrirliði
íslenska landsliðsins í handknattleik
„Ég get ekki sagt annað
en það að ég er ánægður
með valið á liði því sem
leika á í HM'' sagði Jón H.
Karlsson fyrirliði lands-
liðsins i handknattieik er
við inntum hann skoðunar
á því i gær.
„Það gefur auga leið að þegar
um svo marga frambærilega
menn er að ræða verður alltaf
erfitt að velja lið sem siðan á að
tefla fram i heimsmeistara-
keppni.” „Eins og flestir orðið
vita er ekki nema um hálfur mán-
uður til keppninnar i Danmörku
og er aldrei að vita nema meiðsli
og annað þess háttar geti sett
stórt strik i reikninginn. Þá verða
það Jón Hjaltalin og Páll Björg-
vinsson sem munu helst koma til
greina. Þessi hálfi mánuður sem
framundan er, er kærkominn timi
fyrir þessa menn sem valdir hafa
Framhald á bls. 14.
Reykjavikurmeistara-
mótið í innanhússknatt-
spyrnu hefur staðið yf ir að
undanförnu. Leikið hefur
verið í yngri flokkum,en í
kvöld hefst keppnin i M.fl.
karla. Búister við jafnri og
spennandi keppni. Keppnin
hefst klukkan 1800 og verö-
ur leikið í Laugardalshöll.
Atta lið taka þátt i mótinu
að þessu sinni og eru f jög-
ur þeirra úr 1. deild og
fjögur úr annarri deild.
Leiknir verða alls 14 leikir og
hefst úrslitakeppnin i M.fl karla
klukkan 2255 og verður þá leikið
um 3.-4.sætið. Strax á eftir fer svo
fram úrslitaleikur mótsins.
Hver leikur verður 2x10 minút-
ur, og ef framlengingar verður
þörf verður bætt við þann tima
2x4 minútum.
Liðunum hefur verið skipt i
riðla og ræður markahlutfall úr-
slitum i þeim. Riölaskiptingin er
þannig: 1 A-riðli leika Þróttur frá
Reykjavik, KR-ingar sem siðast-
liðið sumar féllu i 2. deild, Viking-
ur og Leiknir úr Breiðholti.
I B-riðli leika Ármann, Fram,
Valur og Árbæjarliðið Fylkir.
SK.
Stóri bróðir dæmdur
í stað þess yngri
Jón Jörundsson rekinn út af, en Kristinn bróðir hans tók bannið út.
Eins og flestum er kunnugt
gekkst unglingalandslið Islands i
körfuknattleik fyrir hraömóti i
körfuknattleik á milli jóla og
nýárs. Óvænt úrslit urðu á mótinu
svo ekki sé sterkara til oröa tekið.
Njarðvikingar sem nú eru efstir
i yfirstandandi Islandsmóti máttu
þola tap gegn IS i fyrstu umferð
mótsins þrátt fyrir það að
bandarikjamaðurinn Dirk
Dunbar léki ekki með liðinu.
Fyrsti tapleikur UMFN á
þessu keppnistimabili i næsta
leik sló lið IR Framara út,
en IR-ingar voru siðan slegnir
út af IS siðar i mótinu, KR-
ingar sem léku með alla sina
stekustu menn að undan-
skildum þjáifaranum Andrew
Piazza töpuðu fyrir hálfu Vals-
liði þar sem þá vantaöi Rick
Hockenos, Þóri Magnússon og
Kristján Agústsson. Valsmenn
sigruðu siðan IR i úrslitum.
Ekki er hægt að greina frá mót-
inu án þess að minnast á eitt það
mesta dómarahneyksli sem menn
muna eftir i körfuknattleiknum.
Það átti sér stað er IR lék gegn
IS. Annar dómari leiksins Þráinn
Skúlason dæmdi þá IS knött-
inn eftir að Bjarni Gunnar
Sveinsson leikmaður IS hafði
slegið hann út fyrir endamörk
Jón Jörundsson sem leikur
með 1R öskraði þá upp yfir sig
„djöfulsins", og dæmdi Þráinn
samstundis á hann tækniviti sem
allir dómarar hefðu að ölluim lik-
indum gert. En hann lét ekki þar
við sitja, heldur rak hann Jón út úr
húsinu. Kristinn Jörundsson
Fyrirliði IR brást þá hinn versti
við og lét skammirnar hrynja á
Þránni og sagði ýmis stærri orð
við Þráin en Jón hafði áöur sagt.
En Kristinn fékk ekki einu sinni
gula spjaldið fyrir sina hegðun.
En Þráinn átti eftir að launa hon-
um lambiö gráa.
Er landsliöið og Luther Collage
léku siðasta leik sinn i heimsókn
Luther hingaö til lands söknuöu
menn Kristins i leiknum, en hann
er fyrirliði landsliðsins.Þá kom i
ljós, að eftir leik IR og Fiam
hafði Þráinn kært Kristin
Jörundsson fyrir aganefnd KKI
og hafði landsliðsnefndarmönn-
um borist úrskuröur hennar rétt
fyrir leikinn við Luther. Ekki fékk
Jón neina kæru og var honum þó
vikið úr húsinu. En Jón fékk aö
leika leikinn gegn Luther, og er
þessi framkoma og frammistaða
Þráins Skúlasonar dómara lúa-
leg og fyrir neðan allar hellur. Er
langt frá þvi, að hún sé sæmandi
dómara i 1. deild.
SK.
MEISTARA-
MÓT TBR
1978
Sunnudaginn 15. janúar n.k.
byrjar nýtt badmintonmót i
sögu T.B.R. Nefnist það „Meist-
aramót T.B.R.” Mót þetta verð-
ur i þremur áföngum, og i þeim
fyrsta verðurkepptí einliðaleik.
Siðar verður keppt i tviliða- og
tvenndarleik, svo og i „öðlinga-
flokki” (i honum eru badmin-
tonmenn 40 ára og eldri).
Sigurvegarar i meistaraflokki
fá nafnbótina „T.B.R.-meistar-
ar 1978”, og skiptir þá engu máli
hvort þeir eru félagar i T.B.R.
6Ö3 ekki
Við þvi er að búast að þegár
fram liöa stundir, þá verði þetta
eitt fjölmennasta badminton-
mót sinnar tegundar á landinu.
Totten-
ham á
topplnn
í 2. delld
Keppnin i 2. deildinni
i ensku knattspyrnunni
fer nú að verða mjög
spennandi. Toppliðið
Bolton Wanderers tap-
aði mjög óvænt fyrir
botnliðinu Burnley, er
liðin léku i fyrrakvöld.
Bolton tapaði leiknum 0:2 og
hefur nú misst forystuna i deild-
inni til Tottenham. Bæði liðin
eru með34stig,en markahlutfall
Tottenham er betra. Leikið var i
öllum deildum i fyrrakvöld og
urðu úrslit sem hér segir:
1. deild.
Wolves-Bristol c. 0:0
2. deild.
Bolton-Burnley 0:2
Bristol R. Cardiff C. 3:2
Orient-Luton Town 0:0
StokeC.-Mansf. Town 1:1
3. deild.
Cambridge-Peterb. 1:0
Heref.-Shrewsbury 1:1
Preston-Port Vale 2:0
Rotherham-Bury 0:3
4. deild.
Aldershot-Soutþp. 0:0
Halifax-York 2:0
Swansea-Vimbled. 3:0
Torquay-Donc. 2:0
Staða efstu liða er nú þessi:
Tottenh. 24 13 8 3 47:21 34
Bolton 24 15 4 5 40:22 34
Southamt. 24 13 6 5 35:22 32
Blackb. 24 12 7 5 34:29 31
S.K.
OPIÐ MÓT
Tennis- og Badmintonfélag
Reykjavikur heldur opið mót,
meistaramót T.B.R. i einliða-
leik.
Keppt veröur i:
meistara-og a-flokkikarla og B-
flokki karla
meistara- og a-flokki kvenna og
B-flokki kvenna.
Mótið verður haldið i tþrótta-
húsi T.B.R. að Gnoðarvogi 1
Reykjavik sunnudaginn 15. jan-
úar kl. 2 siðdegis.
Tilkynningar um þátttöku,
þurfa að hafa borist til T.B.R.
fyrir 10. janúar 1978.