Þjóðviljinn - 28.01.1978, Page 6

Þjóðviljinn - 28.01.1978, Page 6
« SIÐA — ÞJÓDVILJINN Laugardagur 28. janúar 1978. flVIEÐ^ |EYRUN | ■ OPIN 1 Hljómplötumnsagnir: Lokauppgjör fyrir áriö 1977 Björk Guðmundsdóttir: Björk Bergþóra Arnadóttir: Eintak Fálkinn hf. ★ ★ ★ ★ Á þessari fyrstu hljómplötu sinni syngur Bergþóra ágæt frumsamin lög við Ijóð ýmsra höfunda. Ber þar mest á frábær- um ljóðum Steins Steinarr. Undirleikurinn, sem er framreiddur af nokkrum meðlim- um hljómsveitanna Mannakorn og Celsius, er eins og lög og söng- ur Bergþóru, látlaus en smekk- legur og þýöur. Tónlistin er islensk þjóðlagatónlist og „country/rock”. Þetta er róleg og þægileg plata, sem menn ættu að gefa gaum. Vmsir flytjendur — Jólastrengir llljómplötuútgáfan hf. ★ ★ ★ ★ ★ Þetta er besta jólaplata, sem út hefur komið hérlendis svo að ég viti. Útsendingarnar eru lista- verk Karls Sighvatssonar. öll lögin eru gömul og þekkt jólalög, að undanskildum þremur nýjum lögum, sem Magnús Þór Sig- mundsson samdi sérstaklega fyr- ir þessa plötu. Lög hans gefa gömlu lögunum ekkert eftir, og lag hans Jólastjörnur er eitt al- besta lag, sem hér hefur heyrst um hriö. Með söng sinum á þessari plötu er Ruth Reginalds orðin ein af okkar bestu söngkonum. Vil- hjálmur Vilhjálmsson, Egill Ölafsson og Berglind Bjarnadótt- ir sanna að þau eru söngvarar á heimsmælikvarða. Þá er hijómun (sound) plötunnar betri en geng- ur og gerist með islenskar plötur. Deildarbungubræður — Enn á jöröinni ískross hf. ★ ~ Þetta er ein allra lakasta plata ársins 1977. Hjálpast þar allt að: lélegar útsetningar, léleg lög, hörmulega lélegir textar o.sv.frv. Fálkinn hf. fyrir fullorðna: ★ ★-í- fyrir börn: ★ ★ ★ ★ Þetta er ein af þremur bestu barnaplötunum, sem út hafa komiðá tslandi (Eniga Meniga og Lög Unga Fólksins). En textarnir sem eru lélegir, draga plötuna niður. 6 laganna eru eftir islenska höfunda. Þar af á listakonan unga sjálf eitt stykki. Lögin eru mjög misjöfn. Best eru: Músastiginn (Björgvin Gislason), Álfur út úr hól (Lennon/McCartney) og Bú- kolla (Steve Wonder). Hljóðfæra- leikurinn er að mestu framinn af nokkrum meðlimum hljómsveit- arinnar Poker. Er hann á köflum nokkuð skemmtilegur. Tónlistin er létt popp. Það verður gaman að fylgjast með þessari efnilegu listakonu i framtiðinni. Ekki sist vegna þess að hún hefur mun þorskaðri tónlistarsmekk en gengur og gerist meðal 12 ára barna. Textarnir fylgja á sér- prentuðu blaði, eins og með öllum öðrum plötum, sem Fálkinn gefur út. Geimsteinn — Geimtré Geimsteinn FALKINN hf. ★ ★ Þetta er ein besta platan frá Rúnari Júl. & félögum, frá þvi Hljómar hættu i seinna skiptið. Þetta er létt en kraftmikil rokk- plata. ,,Disco”-blærinn” er horf- inn úr útsetningunum (sem betur fer). f staðinn er kominn kraft- mikli og hressilegi sólógitarleik- urinn, sem hefur vantað á Geim- steinsplöturnar hingað til. Lögin, sem öll eru frumsamin, eru flest þokkaleg. Best eru Grjótaþorp og Þokunótt (Þórir Baldursson). Textarnir eru flestir hörmulegir og stórskemma plötuna. Þeir fylgja á sérprentuðu blaði, eins og með A-F. Fjörefni-A-F Steinar hf. ★ ★ ★ -f Aðalaðstandendur Fjörefnis eru Jón Þór Gislason og Páll Pálsson. Þeir eiga öll lögin og flesta textana. Efnið er mjög mis- jafnt að gæðum. Sumt er vont, en annað mjög gott. Hlið 1 er tileink- uð „Hallærisplaninu” og kyn- slóðabilinu, en hlið 2 fjallar m.a. um læralækinn fræga o.fl. Tónlistin er létt rokk, „country” og „disco”. Fjörefni er eitt efni- legasta nafniö i plötubransanum, sem fram kom á árinu 1977. Og með fullri virðingu fyrir Agli Ólafssyni og Björgvini Halldórs- syni, er Páll Pálsson einn skemmtilegasti rokksöngvari landsins. Gunnar Þórðarson og Lummurn- ar — Gamlar Góðar Lummur Ýmir hf./STEINAR hf. ★ ★-*. Það er meira en grátlegt að veröa vitni að þvi, að maður, sem hefur samið og flutt inn á hljóm- plötur lög eins og Starlight og Reykjavik, skuli vera viðriðinn gamlar vondar lummur eins og Marina og Viltu með mér vaka. Ég óska Ólafi Þórðarsyni til ham- ingju með að vera búinn að yfir- gefa lummupeningavél. Haukar — ...Svo á réttunni llljómplötuútgáfan Ilaukur hf. ★ ★ + Efni þessarar plötu er lélegt, að undanskildu einu lagi, Hverfandi þrá (Jóhann Helgason), og tveimur textum, í tvilyftu timburhúsi og Gunna litla i Garði (Steinn Steinarr). Og þó að Engil- bert Jensen sé, eins og reyndar Gunnlaugur Melsted lika, mjög góður söngvari, þá er ólikt skemmtilegra að heyra hann syngja lög eins og Lover man (Hljómar ’74) heldur en þau lög, sem hann syngur á þessari plötu. Af hljómplötu- flóðinu 1978 Eins og búast mátti við er von á mörgum góðum og ennþá fleiri vondum plötum á árinu. 1 febrúar er von á eftirtöldum plötum m a.: „Deadlines” með The Strawbs. Vonandi tekst þeim á henni að rifa sig upp úr þeirri meðal- mennsku, sem þeir hafa verið i s.l. fimm ár. Jefferson Starship (Airplane) koma með plötuna „Earth”. Little Feat verða með „liveplötuna” „Waiting For Col- umbus”. Bob Marley & The Wail- ers verða með plötuna „Kaya”. Þá verða Genesis, The Kinks, Tom Robinson, Mannfred Mann’s Earth Band, John Miles o.m.fl. með plötur I febrúar. Ekki má heldur gleyma Herbert Guð- mundssyni og plötu hans „Á Ströndinni”. t mars er m.a. vænt- anleg plata með hljómsveitinni Kraftwerk, „live” plata með The Band, og Bob Dylan kemur með eina. Verður spennandi að vita hvort hann svarar fyrir skotin sem Joan Baez o.fl. hafa verið að skjóta á hann að undanförnu. t mai er væntanleg plata frá David Bowie. Rolling Stones og Lou Reed hafa tilbúnar plötur. Á Lou Reedplötunni verður önnur hliðin „live”. Um þessar mundir eru Steely Dan að taka upp eina góða og sömu sögu er að segja af Steve Winwood. Einhverntimann seinni part ársins má eiga von á plötum frá George Harrison, Yes, Pink Floyd og Fallen Angels. En i Fall- en Angles er m.a. söngvarinn frá- bæri Phil May úr Pretty Things. Af islenskum plötum á árinu má búast við plötum með: Krist- inu ólafsdóttur, Poker, Gaukum, Árbliki, Nútimabörnum, Celsiusi Fjörefni, Björgvini Halldórssyni (sóló), Gunnari Þórðarsyni (sóló), Brimkló, Mannakorni Spilverki Þjóðanna, Megasi, Vil- hjálmi Vilhjálmssyni, Melchoir, Lummunum & Gunnari Þórðar- syni, Halla & Ladda o.m.fl. — jens Silfurkórinn — Hvit jól SG-hljómplötur ★ ★ + Ég var nú reyndar búinn að skrifa langa umsögn um þessa plötu og Jólastrengi fyrir s.l. jól. En Þjóðviljinn er ekki siður háð- ur aug 1 ýsingaskrum i kapitalistanna fyrir jólin en hægri blöðin. Þvi var ekki pláss fyrir umsagnirnar fyrr en eftir jól. En það er nú svo sem hægt að hlusta á jólaplötur þó að hvergi sjáist til jóla. A Hvitum jólum eru syrpur, og fimm lög i hverri. Allt eru þetta gömul og þekkt jólalög. Mikið af textunum er béað bull rétt eins og á öðrum islenskum jólaplötum. Auk þess eru margir þeirra f ihaldssömum dúr. Faðir- inn vinnur fyrir jólagjöfunum, móðirin sér um baksturinn, dótt- irin fær brúður og saumadót i jólagjöf., osfrv. I Silfurkórnum eru 24 karl- og kvensöngvarar. Ekkert af þvi fólki er alþjóð kunnugt, nema galdrakarl einn að nafni Vilhjálmur Guðjónsson. Vil- hjálmur hefur reyndar hingað til verið mun þekktari fyrir ágætan gitarleik með hljómsveitum eins og Gaddavir, Frostmark, Galdra- karlar o.m.1'1., en kórsöng. Stjórn Silfurkórsins og útsetningar eru allar i höndum Magnúsar Ingi- marssonar. Allt hans verk er einfalt en pottþétt. Sem sagt: þokkaleg jólaplata. Hilmar — Skin og skúrir H.H. /HLJÓMPLÖTUÚTGAFAN hf. ★ ★ + Það var kominn timi til að Hilmar H. Gunnarsson, þekktasti „partispilari” borgarinnar, kæmi efni sinu á plötu. Hann getur sam- ið góð lög. Sérstaklega eru rólegu lögin hans skemmtileg. Textarnir eru ekki eins góðir, en hreinskiln- in i þeim kemur skemmtilega á óvart. Þó að það sé orðið mjög dýrt að gefa út hljómplötu hérlendis, valdi Hilmar þann kost að gefa plötuna útá eigin kostnað. Með þvi að selja flestar eigur sinar og með hjálp góðra vina gat platan orðið að veruleika og þar með stærsta ósk Hilmars ræst. Undirleikurinn er allur unninn af erlendum og þaulvönum stúdió- mönnum. Textarnir fylgja á sér- prentuðu blaði með þessum tveim siðasttöldu plötum. Framhald á bls. 18. Bob Marley m

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.