Þjóðviljinn - 28.01.1978, Side 7
Laugardagur 28. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Hljódvarpid er orðið hornreka meðal
íslenskra fjölmiðla. Efling hljóðvarpsins
er andsvarið við lýðskruminu um
frjálsan útvarpsrekstur”
Olafur R.
Einarsson:
99
Opnari dagskrár-
gerð er andsvarið
Ýmsir aðilar hafa á liðnum
mánuðum haft i frammi mikinn
áróður fyrir svonefndum
„frjálsum útvarpsrekstri”.
Þessi áróður hefur jafnframt
getið af sér timabæra umræðu
um hlutverk fjölmiðla og
áhrifamátt þeirra. Þessi um-
ræða hefur einkum tengst til-
löguflutningi Guðmundar H.
Garðarssonar á Alþingi um
„frjálsan útvarpsrekstur” og
Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert
samþykktir erhniga i sömu átt.
Þeir sem eru hlyntir áfram-
haldandi „einokun” Rfkisút-
varpsins hafa aftur á móti litið
haft sig i frammi og alia vega
ekki mótað neitt skeleggt and-
svarvið þessum áróðri sem haft
hefur á sér öll einkenni lýð-
skrums.
Fyrir skömmu birtist i Þjóð-
viljanum ágæt grein eftir náms-
mann er leggur stund á fjöl-
miðlanám i London. I tveim
opnugreinum rekur Stefán Jón
Hafstein einkenni fjölmiðla-
reksturs i einkaeign og bendir á
að slikur rekstur leiði til vax-
andi múgmenningar og lélegri
dagskrárgerðar er taki nær ein-
göngu mið af hagsmunum aug-
lýsenda. En í lok greinar sinnar
segir Stefán: „Margt mætti þó
tina til um rikiseinokun. Til að
mynda er ljóst að gagnger
endurskoðun á útvarpsrekstri á
Islandi þarf að koma til. Sú
endurskoðun þarf að hafa það
að markmiði að fjölga rásum,
auka fjölbreytni, — i einu orði
sagt opna möguleika þessarar
umræddu tækni öllum lands-
lýð..Eitt verður þó sú breyt-
ing, sem vænta má, að hafa að
leiðarljósi: Bylgulengdir sem til
ráðstöfunar eru, eru almenn-
ingseign. Þær ber að nota sem
slikar.”
Endurskoðunar er
þörf.
I niðurlagi greinar sinnar
kemur Stefán einmitt að kjarna
málsins. Umræðan um „frjáls-
an útvarpsrekstur” er m.a. til
kominn vegna þeirrar stöðn-
unar sem vart hefur orðið i dag-
skrárgerð Rikisútvarpsins. Þvi
er nauðsynlegt að huga svolitið
að rekstri hljoðvarpsins. Segja
má, að eftir að sjónvarpsrekst-
ur hófst á Islandi hafi málefni
hljóðvarpsins fallið allmikið i
skuggann. Rækilegar áætlanir
og tillögur hafa verið gerðar um
skipulagningu og dreifingu
sjónvarps, en á meðan hefur allt
verið látið danka hjá hljóðvarp-
inu. En ef hljóðvarpið á að vera
hlutverki sinu vaxið þá þarf þar
að eiga sér stað mikil endurnýj-
un og dagskrárgerð að taka mið
af breyttum lifsháttum.
Rikisútvarpið, hljóðvap er
gott dæmi um stofnun sem auð-
veldlegastaðnar i föstum skorð-
um og stofnunin sem slik býður
upp á vissa ihaldssemi i vinnu-
brögðum. Þannig geta ýmsir
dagskrárliðir unnið sér fasta
hefð og enginn þorir að hrófla
við þeim. Uppbygging dagskrár
verður föst i sniðum og breytist
litið þó t.d. miklar breytingar
verði i þjóðlffinu hvað vinnu-
tima o.fl. snertir. Stjórnendur
hljóðvarpsins hafa einnig tak-
markað möguleika á að kanna
hlustuná ýmsa dagskrárliði eða
æskilega timasetningu þeirra
vegna þess að litlu fé er varið til
hlustendakannana. Ef breyt-
ingar verða á dagskrá láta hinir
óánægðu til sin heyra en aðrir
aðilar mynda hinn þögla meiri-
hluta. Þetta leiðir til þess að
menn freistast til að breyta sem
minnstu.
Eg er þeirrar skoðunar að nú
sé nauðsynlegt að gera heildar-
áætlun um eflingu hljóðvapsins
er taki mið af þvi að gera stofn-
uninni kleift að sinna betur þvi
menningar- og sameiningar-
hlutverki sem hljóðvarpið hefur
að gegna með þjóðinni. Liklega
hafa hlústendur aldrei fundið
betur hve mikinn sess hljóð-
varpið skipar i daglegu lifi
landsmanna, en s.l. haust er út-
sending féll niður vegna verk-
falls. Hljóðvarpið er eini fjöl-
miðillinn sem nær til allra
landsmanna samtimis og hefur
mótandi áhrif á daglegt lif allra
landsmanna. Þvi skiptir miklú
að þessi fjölmiðill hafi upp á
sem best dagskrárefni að bjóða.
En hvaða breytinga er þörf.
Hverjuþarf að breyta?
Forsenda þess að hægt sé að
breyta miklu er að handhafar
fjárveitingavaldsins hætti að
skera við nögl fjármagn til erl-
ingar hljóðvarpsins á sama
tima og ekki er horft i miljóna-
tugi varðandi sjónvarp. Sama
gildir um ráðamenn stofnunar-
innar sjálfrar. Þar þarf að
kanna nýjar fjáröflunarleiðir,
sparnað i rekstri o.fl. Menn
horfa i aurana varðandi aðeins
dýrari dagskrárgerð hjá
hljóðvarpi á sama tima og
ákvarðanir eru teknar um mil-
jónaútgjöld vegna dagskrár-
gerðarsjónvarps. Ekki má ráða
nýtt fólk á dagskrárdeild eða
fréttastofu, heldur telur kerfið
betra að kaupa meiri auka-
vinnu. Loksi vetur fékkst haldið
námskeið i dagskrárgerð er gat
af sér nýtt dagskrárgerðarfólk
sem h'fgað hefur upp á dag-
skrána i vetur, en halda þarf
áfram á þessari braut.
Á tæknisviðinu þarf að gera
stórátak, bæta upptökuaðstöu
og dreif ingakerfi. Hagnýta
tækninýjungar eins og stereoút-
varp o.fl.
Fyrir nokkrum árum var
mikið rætt um nauðsyn þess að
koma upp landshlutaútvarpi.
Var gerðkönnun á þvi, hvernig
hagkvæmast var að reka slikar
stöðvar og maður sendur til
Noregs til að kanna rekstur
slikra stöðva. Siðan hefur nær
ekkert gerst, þrátt fyrir allt tal
um byggðastefnu. Égtel, að eitt
brýnasta verkefnið sé nú að
koma á slikum landshlutastöðv-
um er sendi út efni um sérmál
hvers iandshiuta, birti lands-
hlutafréttir og aðra dagskrár-
gerð er lýtur að menningu við-
komandi landshluta. Þessi dag-
skrá sé send út á þeim tima sem
aðalstöðin hafi hlé. Jafnframt
sé útsendingartimi dagskrár
lengdur og vissulega timabært
að hafa sólarhringsdagskrá
með hliðsjón af ört vaxandi
vaktavinnu i landinu. Létt dag-
skrá að næturlagi mun vart hafa
mjög mikinn kostnað i för með
sér, enda opnar hún fyrir nýja
tekjustofna.
Þá hefur litið miðað áfram
áætlunum um skólaútvarp. Það
mál virðist strandað i einhverri
kerfisnefnd sem enn hefur ekki
skilað áliti. Hljóðvarpið er
mikilvæg fræðslustofnun fyrir
fólk á öllum aldri og þvi ekki
vanþörf á að leggja rækt við
þessa hlið rekstursins.
Ef dagskrárgerðin á að geta
mætt kröfum nýs tima er nauð-
synlegt að fjölga starfsliði dag-
skrárdeildar eða hafa meira
fjármagn til ráðstöfunar til að
kaupa dagskrárefni. Jafnframt
þarf að hækka greiðslur fyrir
dagskrárgerð, svo hljóðvarpið
verði samkeppnisfært um hæf-
ustu starfskrafta til að vinna
dagskrárefni og vinna það vel.
Að likindum hefur fréttastofa
hljóðvarps átt erfiðast með að
aðlaga sig að breyttum aðstæð-
um. Óviða hafa orðið meiri
breytingari islenskuþjóðlifien i
fréttamennsku. Breytingin á
fréttaflutningi blaðanna, eink-
um siðdegisblaðanna hefur haft
i för með sér breytt fréttamat.
Fréttastofa hljóðvarps hefur
eðlilegaorðiðað temja sér vissa
fastheldni i fréttaflutningi og
reglur um fréttaflutning og
heimildir fyrir fréttum gera
fréttastofu hljóðvarps erfitt um
vik að f jalla um fréttir sem sum
dagblöðin gera að forsiðuefni.
Þannig verða fréttatimar
stundum eins og þurr upplestur
fréttatilkynninga og fréttaaukar
af landsbyggðinni oft heldur fá-
brotnir, en landshlutaútvarp
'myndi breyta þessu til muna.
En þrátt fyrir takmarkanir
vegna reglugerða væri mögu-
legt að gera fréttaflutning lif-
legri en nú er. Sifelldar endur-
tekningar á sömu fréttum er
aftur á móti gjörsamlega að
sliga fréttatimana, einkum á
morgnana. Hið fámenna starfs-
lið fréttastofunnar megnar
ekki að breyta þessu og tima-
pressan i starfi hefur einnig
leitt til þess að æ fleiri villur
slæðast inn I fréttir. A þessu
þarf að ráða bót og gera frétta-
stofu hljóðvarps kleift að mæta
kröfum timans um fréttaþjón-
ustu, þó ekki verði farið út i öfg-
ar fréttamennsku siðdegisblað-
anna.
Rikisútvarpið á að vera mið-
stöð lifandi þjóðfélagsumræðu,
veitandi menningarefnis og
vera til afþreyingar. Ef hljóð-
varpið á að verða fært um að
sinna þvi hlutverki betur en nú
er, þarf að gera heildaráætlun
um eflingu hljóðvarpsins. Það
er verðugt andsvar við kröfum
um útvarpsstöðvar einka-
gróðans.
Hvaðan á frumkvæðið
að koma?
Ég tel að það sé hlutverk
alþingis og ráðandi aðila i
menntamálum að gera úttekt á
stöðu hljóðvarpsins og ákvarða
hvaða stefnu skuli hafa varð-
andi sess rikisf jölm iðla i
islensku „fjölmiðlasamfélagi”.
Verði það niðurstaðan,að æskil-
egt sé að Rikisútvarpið eigi að
skipa öndvegið, þá ber að
tryggja það að fjárhagslega sé
hægt að efla stofnunina. Nú
kunna sumir að spyrja: Er það
ekki hlutverk útvarpsráðs að
marka stefnuna? Þvf er til að
svara að útvarpsráð er aðeins
ritstjórn dagskrár en Rikisút-
varpið sem slikt lýtur ekki
neinni slikri yfirstjórn, heldur
er útvarpsstjóri æðsti maður
stofnunarinnar er heyrir undir
menntamálaráðuneytið. Þar að
auki er þess vart að vænta að
frá núverandi útvarpsráði komi
frumkvæði i þessu efni. Þar
hefur dagskrárgerð hljóðvarps
verið algerlega hornreka,
megintimi ráðsins fer i málefni
sjónvarps sem virðast hafa for-
gang og dagskrárgerð hljóð-
varps aðeins sinnt með yfir-
lestri dagskrárdraga, en litið
fer fyrir stefnumótandi umræðu
um hlutverk hljóðvarpsins.
Þess er heldur ekki að vænta að
fulltrúar þess flokks sem vill
koma á svonefndum frjálsum
útvarpsrekstri og vill sem flest
rikisfyrirtæki burt, að slikir
fulltrúar vilji að hljóðvarpið
sanni ágæti sitt. Slikt striðir
gegn yfirlýstri stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Ahugaleysið
um hljóðvarpsmálefni sem ég
hef kynnst i útvarpsráði s.l.
kjörtimabil býður svo sannar-
lega ekki upp á bjartsýni á efl-
ingu gamla góða útvarpsins á
Skúlagötuströnd.
Ólafur R. Einarsson
„Þaö var”
Framhald af bls 8.
með) og held ég helst að engin
þeirra hafi vitað neitt um téðan
grip, og mátti einu gilda.
Eitt var þeim sameiginlegt
flestum ef ekki öllum: þær voru
geysimontnaraf þvi að hafa verið
i skólanum og héldu sig afbragð
annarra kvenna. Sitt sýnist ætið
hverjum, þessum sýndist hið
sama. t hundrað ár hefur enginn
islenskur maður litið við á götu,
né mun nokkru sinni gera. Svo er
kvennaskólanum fyrir að þakka
,,Hvurnin breitt var við
kvenfólkið er ei um-
skrifandi”
Úr Tyrkjaránssögu
I barnæsku minni hélt ég að
landinu væri stjórnað af karl-
mönnum eintómum, það væri
karlmannaveldi, réðu þeir einnig
fyrir hverri sveit og hétu þá
hreppstjórar, eða oddvitar, og á
heimilum riktu þeir flestir með
einhverju bölvuðu offorsi, kunnu
þeir raunar ekki þeim ráðum að
fylgja sem til nytsemdar leiddu,
og komu þvi fáar nytsemdir fram
en voru ólatir að flengja varnar-
laus tökubörn, svelta þau svo þau
stækkuðu ekki svo sem þeim bar,
ástunduðu að gera úr þeim vesa-
linga og fáráðlinga, stundum
lukkaðst að láta af börnum þess-
um lifið. Ég hef það eftir áreiðan-
legum heimildum að vinnukonur
þeirra hafi jafnan átt þá yfir höfði
sér, og þeim ekki tjáð aðleitalaga
og réttar, en verið sveltar þvi nær
til ólifis, smáðar á allan hátt ef
þær merktust vera með barni, og
þrælkaðar, en barnið fæddist
beyglað og brenglað og var til
þess fenginn umkomulaus maður
fátækur að meðganga það, og er
þvi oft lltið mark takandi á ætt-
færslum. Atakanlegust er sagan
af Sólborgu þeirri sem lengst
fylgdi Einari Benediktssyni dauð,
eftir að hafa farið sér á krans-
auga, en hann haft hana í fangi
sér hljóðandi þangað til hún tók
andvörpin. Þvi það var og er al-
mæli á Tjörnesi að bóndinn á
bænum hafi verið hinn seki, en
bróðir hannar saklaus, og hafi
bóndinn logið og áklagað þau
hálfsystkini (en milli þeirra var
góð vinátta með frændsemi og
annað ekki), og slapp sá bóndi
óhegndur.
Fantaskapur við skepnur var
algengur i karlmannaveldi þessu,
ogeruum það mýmörgdæmi, en
þó flest fyrnd.
Það kom i þær hroilur
við lifið
A meðan þetta veldi (ásamt
prestaveldi, kaupmannaveldi,
konungsveldi) vari blóma, var að
brúðkaupi l'oknu tekið i hönd
brúðinni og hún leidd inn I hús sitt
sem til frambúðar átti að vera, og ,
liktist engu húsi, moldargryfja
daunill, lek, rök og þröng, þarna
var henni ætlað að ala börn sin tiu
til tuttugu og hjúkra þeim, eldhús
með hlóðum, fá efni tii hægðar,
tinkrúsir, askar, alpakkaskeiðar
með óbragði af spanskgrænu,
þugnir járnpottar með sóti neðan
á sér, skófum hið efra, grimmi-
lega stórar sleifar, flaga til að
elda við og mór, þungur og
óbrennanlegur mór, isaldarsand-
ur aðhálfu, leifar af þunglyndum
birkikræklum sem lifað höfðu af
kuldaskeiðið mikla og komið i
þær hrollur við lifið, en ekki getað
dáið útaf.
Okkar hjálparhella
Kvenréttindaskráin var okkur
hjálparhella i þessu okkar göfuga
verki, ogþvi lengrisem hún varð,
þvi betur gekk. Við stofnuðum
spitala, ætluðúm okkur að út-
rýma holdsveiki, barnaveiki,
sullaveiki, lús, kláða, flóm, eitur-
bólum, berklaveiki, umgangs-
kvillum,ogfjöldamörguöðru, t.d.
var svo ástatt i sveit minni að þar
dó allt að þvi helmingur barna á
fyrsta ári, flestallir höfðu bein-
kröm, sumir sjóndaprir (syfilis)
sumir alkoholistar, en hommi
enginn svo vitað sé nema ólafur
gossari, svo sem um hann er
skráð. Lesbia þorði engin að vera.
Um þessar og aðrar aberrationir
ástali'fsins var fátt skráð, ég ætla
það finnist ekki framar á pakk-
húsloftum, og hafi aldrei verið á
þeim neinum. Sumir fengu of-
hyldgun i nöglur.
Þetta vildum við amma min
ekki hafa, við útrýmdum þvi
mestöllu. Fyrst ég minnist á
Gossara, þá er best ég segi sög-
una af honum þegar hann kom að
Svarfhóli. Þangað kom hann á
flakki sinu, þvi hann var flakkari.
Þarnæst kom hann að Þingnesi
og var ferjaður yfir Hvitá. Þang-
að kominn hafði hann heldur en
ekki sögu að segja af bænum, sem
hann var að koma frá:
„Kallinn dauður, kellingin
verri en dauð, strákarnir örgustu
landeyður, Jósep á við tvær.
Stelpan (Helga) andhælis tuðra.
En Málfriður valkvendi.” Ekki
hæfa i neinu þessu nema e.t.v.
hinu siðasta.
I Þingnesi þótti ekki verulega
varið i óhróður nema hann væri
upploginn eða ýktur úr hófi. Að
minnsta kostiheyrðiég þar aldrei
neinn sannan óhróður. Það þótti
ekki hæfa, að geyma þvilikt. En
að sliku sem þessu fannst hið
rétta bragð.Þessvegna geymdust
setningarnar.
Sundurlyndi
Framhald af 3. siðu.
alltaf yrði verið að tala um að
stjórin væri i þann veginn að
detta i sundur og þetta myndi
hvorttveggja styrkja mjög stöðu
sósialdómókrata.
Enn eitt kæmi til greina: að
Falldin segði af sér og Johannes
Antonsson, varaformaður flokks-
ins um langt skeið, myndaði nýja
stjórn borgaraflokkanna þriggja,
Miðflokks, ihalds og Þjóðar-
flokks. Antonsson er öllu hlynnt-
ari kjarnorkunni en Fálldin.
Heldur liklegra er að þetta gerist
en að borgaraflokkarnir hrein-
lega gefist upp á stjórnarsam-
starfinu.
Ef það siðastnefnda gerðist
samt sem áður, er nokkurnveginn
ljóst að Þjóðarflokkurinn myndi
bjóða sósialdemókrötum
stjórnarsamstarf. Þjóðarflokkur-
inn hefur þegar gefið það til
kynna, en sósialdemókratar hins-
vegar tekið dauflega undir það.
Pípulagnir
Nylagmr, breyting
ar, hilaveitutenging
ari
Sirm 36929 (milli kl.
12 og ' og eftir kl. 7 a
kv oldin)