Þjóðviljinn - 28.01.1978, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. janúar 1978.
Leiðbeiningar um útreikning
tekjuskatts, útsvars og fleiri
opinberra gjalda 1978
Leiðbeiningar þessar um út-
reikning þeirra opinberu gjalda
sem birtast i skatt- og útsvars-
skrá, svo og um ákvörðun ónýtts
persónuafsláttar og barnabóta,
eru fyrst og fremst miðaðar við
launþega, þó svo að framteljend-
ur með sjálfstæðan atvinnurekst-
ur geti haft þar nokkur not af.
Þvi aðeins koma þessar leið-
beiningar að notum að framtelj-
andi hafi fyllt út framtal sitt fyrir
árið 1978 og lagt saman alla liði
þess.
Með leiðbeiningunum er eyðu-
blað sem framteljandi getur
skrifað þær upphæðir á sem um
er að ræða við útreikning hvers
gjalds. Til hagræðis fyrir fram-
teljendur fylgir texti leiðbeining-
anna stafliðum eyðublaðsins.
Jafnframt fylgir dæmi um út-
reikning á opinberum gjöldum
barnlausra hjóna i ReykjavÍK.
sem búa í eigin ibúð. Með dæminu
fylgja nokkrar tölulegar skýring-
í» r
A. Tekjuskattur eða
ónýttur persónuaf-
sláttur.
1. Hreinar tekjur til skatts eru
mismunur tekjukafla framtals-
ins, III, á bls. 2 og beggja frá-
dráttarkaflanna, IV, og V, á 2.
bls. framtalsins.
2. Ef framteljandi telur sig eiga
rétt til ivilnunar skv. 52. gr.
skattalaganna (sjá nánar i
Leiðbeiningum um Utfyllingu
skattframtals 1978) skal hann
draga þá upphæð frá hreinum
tekjum. (Skattstjóri Urskurðar
fjárhæð ivilnunar.)
3. Skattgjaldstekjur eru annað-
hvort sama upphæð og hreinar
tekjur til skatta (þ.e. i heilum
hundruðum) eða hreinar tekjur
tilskatts að frádreginni ivilnön
skv. 52. gr. Skattgjaldstekjur
eru þvi þær tekjur sem skattur
er reiknaður af.
4. Þegar skattgjaldstekjur hafa
verið reiknaðar út skal reikna
skatt af þeim á eftirfarandi
hátt:
a) Hjá einstaklingum og hjón-
um.telji þau fram hvort i sinu
lagi:
Af fyrstu 1.310.700 kr. skatt-
gjaldstekjum reiknast 20%
skattur.
Af næstu 524.300 kr. reiknast
30% skattur.
Af því sem umfram er reikn-
ast 40% skattur.
b) Hjá hjónum sem samsköttuð
eru og hjá sambýlisfólki sem
átt hefur barn saman og ósk-
að hefur eftir að sameina
skattgjaldstekjur sinar og
skattgjaldseign:
Af fyrstu 1.835.000 kr. skatt-
gjaldstekjum reiknast 20%
skattur.
Af næstu 786.500 kr. reiknast
30% skattur.
Af þvi sem umfram er reikn-
ast 40% skattur.
Færið siðan reiknaðan skatt I
samtalsreit.
Færið inn viðeigandi persónu-
afslátt. en persónuafsláttur
er:
a) 206.610 kr. fyrir einstakl-
ing og hjón sem telja fram
hvort i sinu lagi.
b) 308.850 kr. fyrir hjón sem
samsköttuð eru, einstætt
foreldri með barn, yngra
en 16 ára á heimili og á
framfæri 31. des. 1977, og
sambýlisfólk sem átt hefur
barn saman og óskar eftir
að sameina skattgjalds-
tekjur sinar og skatt-
gjaldseign.
Reiknið út mismun reiknaðs
skatts og persónuafsláttar. Ef
persónuafsláttur er hærri en
reiknaður skattur myndast ónýtt-
ur persónuafsláttur (sjá siðar
hvernig má nota ónýttan per-
sónuafslátt til greiðslu útsvars).
Ef reiknaður skattur er hærri
en persónuafsláttur kemur fram
sá tekjuskattur sem framteljanda
ber að greiða. Þó þarf að bæta þar
við 1% álagi til Byggingarsjóðs
rikisins er greiðist með tekju-
skatti.
B. Eignarskattur.
Eignir allsil 1. kafla framtalsins á
bls. 1, eins og framteljandi á aö
ganga frá þvi, fela i sér gildandi
fasteignamat húss og lóðar sem
tók gildi 31. des. 1977, sbr. Leiö-
beiningar um útfyllingu skatt-
framtals 1978.
Skv. gildandi lagaákvæðum,
þ.e. 26. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 2.
gr. laga nr. 63/1977, greiðist eng-
inn eignarskattur af 8.000.000 kr.
skattgjaldseign hjá einstaklingi
og 12.000.000 kr. hjá hjónum. Af
þeirri skattgjaldseign sem þar er
umfram greiðist 0,8%.
Við útreiknaðan eignarskatt
skv. framansögðu bætist 1% álag
til Byggingarsjóðs rikisins.
C. útreikningur útsvars
titsvarsskyldar tekjur eru
reiknaðar út á eftirfarandi hátt:
Dragið samtölu IV. kafla fram-
talsins á bls. 2, „Breytingar til
lækkunar á framtöldum tekjum
skv. III.”, frá samtölu III. kafla
framtalsins á bls. 2, „Tekjur árið
1977”. Mismunur sá sem fram
kemur er nefndur „Vergar tekjur
til skatts”.Otsvarsskyldar tekjur
og vergar tekjur til skatts eru
sama upphæðin hjá þeim sem eru
eingöngu launþegar og eiga ekki
eigin ibúð.
Frá „vergum tekjum til skatts”
skal draga reiknaða leigu af Ibúð-
arhúsnæði sem framteljandi not-
ar sjálfur og fram kemur I a-lið 3.
töluliðar III. kafla framtalsins á
bls. 2. Framteljandi, sem er ein-
göngu launþegi og býr i eigin
Ibúð, hefur nú reiknað út útsvars-
skyldar tekjur sinar.
Þeir framteljendur sem hafa
tekjur af eignaleigu eða útleigu
ibúðarhúsnæðis, eiga að skila
rekstraryfirliti þar sem fram
koma leigutekjur og gjöld. Við
framtalsgerð á framteljandi að
færa hreinar tekjur skv. sliku
rekstraryfirliti i tekjulið 2 I III.
kafla framtalsins eða, ef tap hef-
ur orðið, að færa tap I frádráttar-
lið 12 I V. kafla framtalsins.
Vaxtagjöld og fyrningar á
gjaldahlið áður getins rekstraryf-
irlits má ekki draga frá leigutekj-
um þegar útsvarsskyldar tekjur
eru ákvarðaðar þó að leyfilegt sé
að draga þessa gjaldaliði frá við
ákvörðun hreinna tekna til tekju-
skattsálagningar. Þessa tvo
gjaldaliði þarf þvi að draga út úf
rekstraryfirlitinu við ákvörðun
útsvarsskyldra tekna. Samsvar-
andileiðréttingu þurfa þeir aðilar
að gera sem láta öðrum i té ibúð-
arhúsnæði án eðlilegs endur-
gjalds, sbr. b-lið 3. töluliðar III.
kafla framtalsins, og hafa fært
þessa gjaldaliði I 1. tölulið V.
kafla framtalsins.
Ekki þykir ástæöa til þess að
lýsa hér heimildum sveitarfélaga
til hækkunar tekna til útsvars
enda gilda þær heimildir ein-
göngu gagnvart framteljendum
með sjálfstæðan atvinnurekstur
og auk þess notfæra mörg sveit-
arfélög sér alls ekki þessa heim-
ild. Verður þvi sérhver, sem þessi
heimildarákvæði gætu tekið til,
að áætla sjálfur um þetta atriði en
getur við þá áætlun haft útsvars-
álagningu sina frá fyrri árum til
hliðsjónar.
Þegar framteljandi hefur
reiknað út útsvarsskyldar tekjur
skv. framansögðu færir hann þá
upphæð i 1. tölulið C á eyðublað-
inu og reiknar út útsvarið meö
þeirri prósenttölu sem hann telur
að verði notuð við álagningu árið
1978. (Liklegt má telja að flest
sveitarfélög noti sömu prósent-
tölu og á árinu 1977 þó að ekki sé
óhætt að fullyrða það. Ef útsvör
voru reiknuð i skýrsluvélum 1977
má finna prósenttöluna á álagn-
ingarseðli 1977.)
Þeir framteljendur sem telja
sig eiga möguleika á Ivilnun skv.
27. gr. útsvarslaganna, verða að
ákvaröa sjálfir þá upphæð sem til
greina gæti komiö.þvi að vonlaust
er að gefa nokkrar leiðbeiningar
ist, skuli rikissjóður leggja fram
fé er nemi allt að þessum mun og
skuli þvi ráðstafað fyrir hvern
mann til greiðslu útsvars gjald-
ársins. Sé upphæð útsvars lægri
en ónýttur persónuafsláttur,fellur
það sem umfram er af ónýttum
persónuafslætti niður. Á þessu
eru þó tvenns konar frekari tak-
markanir svo sem hér segir:
1 fyrsta lagi má aldrei koma til
hærri greiðsla úr rikissjóði til
greiðslu útsvars framteljanda en
sem nemur þeim mismun sem
fram kemur annars vegar á full-
um persónuafslætti (upphæðin I 5.
tölulið A-liðar á eyðublöðum) og
hins vegar á þeirri upphæð sem út
kemur þegar 20% eru reiknuð af
um þetta atriði, aðrar en þær aö
reikna skal 10% af þeirri upphæð
sem framteljandi ákvarðar og
færa þannig fengna upphæð I 2.
tölulið C á eyðublaðinu. (Ein-
hverja hliðsjón gæti fólk haft af
ivilnun fyrri ára, þó að um það
gildi engin föst regla.)
Að lokum skal lækka útsvarið
með hliðsjón af fjölskyldustærð á
eftirfarandi hátt og færa þá lækk-
un I 3. tölulið C á eyðublaðinu:
a) Um 22.365 kr:
Hjá hjónum sem útsvarslögð
eru sameiginlega.
Hjá einstæðu foreldri sem
heldur heimili með barni sinu,
yngra en 16 ára 31. des. 1977.
Hjá karli og konu i óvigðri sam-
búð sem átt hafa barn saman
og óskað hafa sameiningar á
skattgjaldstekjum.
c) Um 15.975 kr. hjá einstaklingi
og hjónum sem telja fram
hvort i sinu lagi.
c) Um 3.195 kr. fyrir hvert barn,
yngra en 16 ára 31. des. 1977.
d) Um 6.390 kr. fyrir hvert barn,
yngra en 16 ára 31. des. 1977,
umfram 3 börn i fjölskyldu.
Þessar 6.390 kr. bætast við
3.195 kr. fyrir 4., 5„ o.s.frv.,
barn.
D. Aðeins fyrir þá
framteljendur
sem engan tekjuskatt
bera* en hafa i útreikn-
ingi i A-lið fengið
ónýttan persónuaflátt.
1 2. mgr.B-liöar 25. gr. laga um
tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 9.
gr. laga nr. 20/1976, segir að nemi
persónuafsláttur framteljanda
hærri upphæð en reiknaður skatt-
ur af skattgjaldstekjum, þ.e.
ónýttur persónuafsláttur mynd-
vergum tekjum til skatts eftir að
frá þeim hafa verið dregnar:
a) 532.500 kr. hjá einstaklingi og
hvoru hjóna sem telja fram
sitt i hvoru lagi,
b) 798.700 kr. hjá samskattlögð-
um hjónum og karli og konu
sem búa saman I óvigöri sam-
búð og átt hafa barn saman og
óskað hafa eftir sameiningu á
skattgjaldstekjum.
Launþegi færir þvi vergar tekj-
ur til skatts (sjá skilgreiningu á
vergum tekjum til skatts i skýr-
ingum um útreikning á útsvari) i
1. tölulið D og dregur frá
þeim I tölulið 3 D þá upphæð sem
við á skv. áðursögðu, þ.e. 532.500
kr. hjá einstaklingi og 798.700 kr.
hjá samskattlögðum hjónum.
Niðurstöðu færir framteljandi
sem er eingöngu launþegi i 4 tölu
lið D og reiknar 20% af þeirri
niðurstöðu, færir þá upphæð sem
þá kemur út i sömu linu yst til
hægri, en yfir þessari tölu eru á
eyðublaðið prentaðar upphæðir
persónuafsláttar og þarf þvi ekki
annað en að strika út þá upphæð
persónuafsláttar sem ekki á við.
i Niðurstaðan sem út kemur i 5. lið
D-liðar eyðublaðsins er það
hámark ónýtts persónuafsláttar,
sem gæti komið til greiðslu út-
svars sem þó takmarkast I fyrsta
iagi af upphæö ónýtts persónu-
afsláttar i 5. lið A-liðar eyðu-
blaðsins, i öðru lagi af upphæð
útsvars og I þriðja lagi af upphæð
takmörkunarútsvars, sbr. næsta
lið leiðbeininganna um takmörk-
unarútsvar, þ.e. sú talan af þess-
um fjórum upphæðum sem lægst
er, er sú upphæð sem rikissjóður
leggur fram til greiöslu útsvars
framteljanda. 2. töluliður D-liðar
eyðublaðsins er eingöngu vegna
þeirra sem hafa með höndum
sjálfstæðan atvinnurekstur. Skv.
tilvitnaðri lagagrein á eyöublöð-
um skal hækka vergar tekur til
skatts hjá þeim sem hafa lægri
tekjur af atvinnurekstri sinum en
ætla má að orðið hefði ef
framteljandi hefði unnið starfið
hjá öðrum. Ástæða þykir til að
taka skýrt fram að þessi hækkun
er eingöngu gerð til að takmarka
notkun ónýtts persónuafsláttar
hjá þessum aðilum og hefur engin
áhrif á tekjuskattsálagninguna.
Nánari leiðbeiningar um þetta
atriði verða vart gefnar á þessum
vettvangi,enda er nefnd hækkun á
vergum tekjum til skatts háð
upphæð hreinna tekna og eðli at-
vinnurekstrar viðkomandi
framteljanda.
E. Útreikningur tak-
mörkunarútsvars.
í öðru lagi, sbr. D-lið leiðbein-
inganna, er svonefnt takmörk-
unarútsvar sem felst i þvi að
rikissjóður greiðir ekki hærri
upphæð af útsvari gjaldanda en
sem nemur þeirri fjárhæð sem út-
svarið hefði numið ef útsvar hefði
veriö lækkað um hundraðshluta
útsvars i viðkomandi sveitar-
félagi af:
a) bótum skv. II. og IV. kafla
laga um almannatryggingar,
b) námsfrádrætti er skattstjóri
ákvarðar vegna þeirra sem
stunda nám i a.m.k. sex
mánuði á árinu,
c) lækkun skattgjaldstekna er
skattstjóri ákvarðar sem iviln-
un i tekjuskatti skv. 52. gr.
skattalaganna.
Útreikningur útsvarstakmörk-
unar fer þannig fram að i 1. tölu-
lið f E-liö eyðublaösins eru færðar
tekjur til útsvars (sama tala og I
1. tölulið C-liðar eyðublaðsins) og
útsvar reiknað út á sama hátt og I
1. tölulið C-liöar eyðublaðsins.
Sfðan skal útfylla a, b og c-liði 2.
töluliðar E-liðar eyðublaðsins
eins og tilefni gefst til.
I a-lið skal færa bætur skv. II.
kafla almannatryggingalaga, en
þær eru: Ellilifeyrir, örorku-
lifeyrir, örorkustyrkur, maka-
bætur, barnalifeyrir, mæðralaun
(og sambærilegar bætur til ein-
stæðra feðra með börn) og ekkju-
eða ekklabætur og lífeyrir. Þá
skal einnig færa i a-lið bætur IV.
kafla almannatryggingalaga, en
þær eru dagpeningar og ýmsar
dánarbætur.
I b-lið skal færa þann námsfrá-
drátt sem gjaldandi telur sigeiga
aðfá vegna náms sem hann hefur
stundað a.m.k. I sex mánuði á sl.
ári. Vakin er athygli á þvi, að
aðeins má færa þann námsfrá-
drátt sem nemandi fær sjálfur
eða námsfrádrátt að frágenginni
skerðingu hans, vegna hugsan-
legrar Ivilnunar i tekjuskatti til
foreldra vegna stuðnings þeirra
við barn þeirra sem orðið er 16
ára, ef um hana er að ræða.
Framteljendur verða sjálfir að
geta sér til um upphæð ivilnunar
á skattgjaldstekjum hjá skatt-
stjóra, ef um hana er sótt, og færa
hana i e-lið, enda er ómögulegt að
setja fram reglu um þetta atriði
þar eð umsókn hvers framtelj-1
anda er metin sérstaklega.
Þegar niðurstaða a, b og c-liða
skv. framangreindum reglum er
fengin skal finna prósentuhlutfall
niðurstöðutölunnar með útsvars-
prósentu ársins 1977, þó aldrei
hærri en 10%. Útkomu skal færa
út á eyðublaði lengst til hægri
neðan við reiknaða útsvarsupp-
hæð i 1. tölulið.
13. tölulið E-liðar skal reikna út
lækkun útsvars vegna fjölskyídu
á sama hátt og gert er I C-lið
eyðublaðsins. Dragið nú útkomu-
tölu 2. og 3. töluliðar E-liðar eyðu-
blaðsins frá útsvarsupphæö i 1.
tölulið E-liðar. Niðurstaða þessa
útreiknings er svonefnt takmörk-
unarútsvar.
Hafi framteljanda, sem engan
tekjuskatt á að bera, tekist að
reikna út A, C, D og E-liði eyðu-
blaðsins, þ.e. ónýttan persónuaf-
slátt I A-lið, útsvar i C-lið,
hámark ónýtts persónuafsláttar