Þjóðviljinn - 28.01.1978, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 28.01.1978, Qupperneq 17
Laugardagur 28. janúar 1978. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 17 Lee Remick og Paul Scofield f hlutverkum sinum Ileikriti Edwards Aibees, ótrygg er ögurstundin. Sjónvarp kl. 22.05: r Otrygg er ögurstundin Edward Albee, höfundur leikritsins ótrygg er ögurstund- in (A Deiicate Balance), sem sýnt verður i sjónvarpinu í kvöld, varð heimsfrægur fyrir fimmtán árum fyrir leikrit sitt „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?” Strindberg endurborinn, sögðu sumir, kvenhatari, sem gerði hjónabandsviti að yrkis- efni. Aður hafði Albee þó verið vel kunnur þeim, sem gefa gaum að framúrstefnuleikrit- um, þvi hann hafði skrifað nokkra einþáttunga i anda absúrdistanna frönsku og beindi þar skeytum sinum að banda- risku þjóðfélagi. Með „Virginiu Woolf” söðlaði hann um, felldi leikrit sin upp frá þvi i hefð- bundnari ramma og varð um leið feikilega mælskur fyrir hönd persónanna i sjónleikjum sinum. Edward Albee er fæddur i Washington árið 1928 kjörsonur vellauðugs iðjuhölds i skemmt- anaiðnaðinum og eigandi fjölda leikhúsa. Hann var alinn upp i munaði og sendur i dýrustu og finustu skóla, sem honum var litið um gefið. Mjög snemma komst hann i andstöðu við yfir- ráðasama móður sina og gerði uppreisn gegn Itilraunum hennar til að gera hann að broddborg- ara og fella hann inn i þjóðfélagsmynd sina.Móðirin var myndarleg og glæsileg kona, sem ráðskaðist með smá vaxinn, innhverfan eigin mann sinn. Talið er, að hún sé fyrir- mynd allra þeirra viljasterku kvenna, sem Albee hefur verið að lýsa i leikritum sinum frá upphafi og allt ætla að kaffæra i umhverfi sinu. 1 framhaldi af „Hver er hræddur við Virginiu Woolf” skrifaði Albee tvö leikrit, „Tiny Alice” og „Ótrygg er ögur- , stundin” (A Delicate Balance). Fyrir það fékk hann Pulit- zer verðlaunin sem besta leik- rit ársins 1966. I grundvall- aratriðum fjalla öll þessi þrjú leikrit um sama efnið: Tilraun manneskjunnar til að ráða lifsaðstöðu sina, sambandið við fjölskyldu vini og umhverfið. Þau hafa stund- um verið spyrt saman og nefnd „Þrileikurinn um kær- leikann i Bandarikjunum”. f þeim ber allt að sama brunni. Hver hefur sinn djöful að draga, hjónabandserjur, sjálfsblekk- ingu, ástamál, brennivins- drykkju og eigin sálarupplausn. Vandinn er að fóta sig og ná jafnvægi i linudansi lifsins. Eftirtalin leikrit Albees hafa verið sýnd hér á landi: Saga úr dýragarðinum, hjá Leikfélagi Reykjavikur, 1964. Hver er hræddur við Virginiu Woolf?, i Þjóðleikhúsinu 1965. Dauði Bessie Smith, i Lindarbæ á veg- um Þjóðleikhússins, 1967, Allt i garðinum, i Þjóðleikhúsinu, 1971. Ótrygg er ögurstundin, hjá Leikfélagi Reykjavikur, 1973. Leikstjóri i kvöld er Tony Richardson og aðalleikarar þau Katharine Hepburn Paul Sco- field og Lee Remick. Þýðandi er Heba Júliusdóttir. Þegar leikritið var sýnt hér i Iðnó veturinn 1973—74, fóru Sigriður Hagalin, Jón Sigurbjörnsson og Helga Bachmann með aðalhlut- verkin. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Vikan framundan Ólafur Gaukur kynnir dagskrá út- varps og sjónvarps. 15.00 Miödegistónleikar 15.40 isienskt mál Gunnlaug- ur Ingólfsson cand. mag. talar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.30 Handknattleikslýsing Hermann Gunnarsson lýsir, frá Randers i Danmörku, sfðari hálfleik milli íslend- inga og Dana I heims- meistarakeppninni. 17.10 Enskukennsla (On We Go) Leiðbeinandi: Bjarni Gunnarsson. 17.40 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Antilópu- söngvarinn” Ingebrigt Dalvik samdi eftir sögu Rutar Underhill. Þýðandi: Siguröur Gunnarsson. Leik- stjóri: Þórhallur Sigurðs- son. Annar þáttur: Slöngu- bitið. Persónur og leikendur: Ebeneser Hunt. Steindór Hjörleifsson. Sara... Kristbjörg Kjeld. Toddi... Stefán Jónsson, Malla... Þóra Guðrún Þórs- dóttir, Emma... Jónina H. J ónsdóttir. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Tveir á taliValgeir Sig- urðsson ræðir við Skjöld Eiriksson skólastjóra frá Skjöldólfsstöðum. 20.00 A óperukvöldi: „Madame Butterfly” eftir Puccini Guömundur Jóns- son kynnir. 21.10 „Eg kom til þess að syngja” Sigmar B. Hauks- son ræðir viö Sigurö A. Magnússon rithöfund um ferð hans til rómönsku Ameriku, bókmenntir og þjóðlif álfunnar, einkum i Mexikó og Guatemala. Hjörtur Pálsson og Gunnar Stefánsson lesa úr Islensk- um þýðingum á verkum suðurameriskra skálda. 22.05 Ór dagbók Högna Jón- mundar Knútur R. Magnús- sonles úrbókinni „Holdiö er veikt” eftir Harald A. Sig- urösson. 22.20 Lestur Passiusálma (5). Sigurjón Leifssori stud. Theol. les. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. 22.45 Danslög 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 16.30 tþróttir Umsjónarmað- ur Bjarni Felixson. 18.15. On We GoEnskukennsla 13. þáttur endursýndur. 18.30 Saltkrákan (L) Sænskur sjónvarpsmyndaflokkur. 4. þáttur. Þýðandi Hinrik Bjarnason. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 19.00 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Gestaleikur (L) Spurn- ingaleikur. Stjórnandi ólaf- ur Stephensen. Stjórn upp- töku Rúnar Gunnarsson. 21.10 Barnasýning i Fjölieika- húsi Billy Smarts (L) Þáttur frá fjölleikasýningu, þar sem börn og dýr leika margvislegar listir. Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdótt- ir. (Evrovision — BBC) 22.05 Ótrygg er ögurstundin (A Delicate Balance) Leik- rit eftir Edward Albee. LeikstjóriTony Richardson. Aðalhlutverk Katharine Hepburn, Paul Scofield og Lee Rerriick. Leikurinn ger- ist á heimili efnaðra, mið- aldra hjóna, Agnesar og Tobiasar. Drykkfelld systir Agnesar býr hjá þeim. Það fjölgar á heimilinu, þvi að vinafólk hjónanna sest að hjá þeim, svo og dóttir þeirra. Þýðandi Heba Júliusdóttir. Leikritið var sýnt hjá Leikfélagi Reykja- vikur veturinn 1973-74. 00.10 Dagskrárlok Kærleiksheimilid Bil Keane Snúðu bókinni rétt, annars skemmirðu i þér augun TÆKNITEIKNARAR Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða tækniteiknara sem fyrst. Starfsreynsla æskileg. Umsóknir með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannast jóra. Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 116, Rvik. RÍKISSPÍTALARNIR iausar stöður VÍFILSSTAÐASPÍTALI HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast nú þegar á deild III (lungna- deild) HJÚKRUNARFRÆÐINGAR og SJÚKRALIÐAR óskast nú þegar á ýmsar deildir spitalans. Barnagæsla er á staðnum. Upplýs- ingar veitir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri i sima 42800. Staða AÐSTOÐARLÆKNIS við lungnadeild spitalans er laus til um- sóknar, staðan veitist til 6 mánaða. Upplýsingar veitir yfirlæknir i sima 42800. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA RITARI óskast nú þegar. Góð æfing i vélritun og stúdentspróf eða sam- bærileg menntun áskilin. Umsóknir sendist til starfsmannastjóra sem einnig veitir nánari upplýsingar i sima 29000. Reykjavík 27. janúar 1978 SKRIFSTOFA Rí KISSPÍ TALANN A EIRÍKSGÖTU á, SÍMI 29000

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.