Þjóðviljinn - 21.03.1978, Blaðsíða 16
MOOVIUINN
Þriðjudagur 21. mars 1978
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348.
^ 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans i sima-
skrá.
Engar fréttir
af rannsókn
Finansbankalistans
Rétta
listann
fram í
dags-
ljósið!
Ekkert er að l'rétta af rannsókn
þess á hvern hátt listi með 51 af 7(i
nöfnum reikningscigenda i
Finansbanken hefur borist út. Þó
er talið líklegast að nöfnin séu
fengin af afriti hjá Pósti og sima
yfir útsend ábyrgðarbréf.
Framhald á 14. siðu
Fagnaðar-
e&ii, því
þörfín er
gífurleg
Segir Adda Bára
Sigfúsdóttir
Ég fagna því að loksins skuli
þessi deild tekin til starfa, þó
fariðsó „hægt og sigandi” (MÖA)
af stað i samræmi við stefnu
Sjálfstæðisflokksins i þessum
málum", sagði Adda Bára
Sigfúsdóttir borgarfulltrúi. Það
er lika fagnaðarefni að frá henni
heyrist opinberlega, þvi eins og
þessi takinarkaða aðsókn sýnir
hefur fóTk varía vitaö að hún væri
tekin til starfa.
Það hefur kostað mikinn til-
löguflutning og eftirrekstur af
hálfu Alþýðubandalagsins i
borgarstjórn aö koma þessu máli
áfram. Arum saman höfum við
flutt tillögur þessa efnis fyrir
daufum eyrum meirihlutans, og
það var ekki fyrr en 18. mars 1976
að borgarstjórn samþykkti að
setja á stofn skipulagöa og sér-
hæfða vinnumiðlun fyrir fólk með
skerta starfsgetu. Sú tillaga var
breytingartillaga við tillögu frá
mér um aö komiö skyldi upp sér-
stökum vinnustöðum fyrir þetta
fólk. Siðan hefur verið rekið á
eftir þessu máli á hálfs árs fresti
og það var ekki fyrr en 3. nóvem-
ber 1977 að ráðinn var starfs-
maður til verksins, einu og hálfu
ári eftir að borgarstjórn sam-
þykkti deildina.
Ég vona nú að hægagangurinn
fari af i þessum efnum, enda er
þörfin fyrir þesjsa starfsemi
gífurleg. —ÁI
Sigurður Magnússon, Btjórnarformaður
FramSeiðsÍusamvinnufélags iðnaðarmanna
Framleiðslusamvinnu-
félag iðnaðarmanna hef-
ur ákveðið að greiða full-
ar verðbætur á laun sam-
kvæmt samningum. Inn-
an þess eru rafverktaka-
verkstæði víða um land
undír nafninu Rafafl og
vé laverkstæði undir
nafninu Stálafl. Þessi
ákvörðun nær til 40-50
iðnaðarmanna sem nú
eru í vinnu á vegum fé-
lagsins.
— Það er svo sem ekki mikil
tiðindi að við skulum greiða
þetta kaup, sagði Sigurður
Magnússon, stjórnarformaður, i
gær.
— Fyrirtæki okkar eru jöfn
eign allra starfsmanna eins og
oft hefur komið fram i fréttum.
Sem félagar stéttarfélaganna
og sumir hverjir framámenn i
Rafiðnaðarsambandinu erum
við aðeins að fylgja eftir okkar
eigin samþykktum á þeim vett-
vangi. Það kom aldrei annað til
greina en að greiða umsamin
■laun. Við treystum þvi lika að
verkalýðshreyfingunni takist aö
hrinda ólögum þeim sem stjórn-
arflokkarnir hafa sett á launa-
fólk.
Við þurfum ekki að spyrja
neinn um okkar gerðir, þvi allur
okkar rekstur er utan samtaka
atvinnurekenda. Og reyndar má
segja að i launamálum fylgi fyr-
irtæki okkar engum venjulegum
aðferðum — allir sem við þau
vinna, rafvirkja, járniðnaðar-
menn, ungir eða fullorðnir, taka
sama kaup. Dagvinnutaxtinn er
kr. 1160 á timann. Það telst
sjálfsagt gott miðað við kaup
iðnaðarmanna, en það er engin
ofsæll af þvi, að okkar dómi,
sagði Sigurður Magnússon enn-
fremur.
Þá lagði Sigurður áherslu á að
ineð þessu værufélagar að sýna
framá að kaupgjaldið væri ekki
of hátt. Vandamál i rekstri fyr-
Halldór Snorrason var aft vinna hjá Stálafli aft
Skemmuvegi 4 i gær. Hann er á sama kaupi og
aðrir hjá Framleiöslusamvinnufélagi iönaöar-
manna, þótt ungur sé. Ljósm. eik.
EOvarft Guftmundsson og Einar Kristimson hjá
Rafafli voru aö vinna viö tengingar aö Skemmu-
vegi 4 i Kópavogi í gær. —Ljósm. eik.
Kom aldrei annað til greina en
að greióa umsamin laun
irtækja væru tengd ástandinu i
efnahagsmálum, vaxtakostnað-
ur væri orðinn alltof hár og si-
stækkandi útgjaldaliður. Þá
yrðu þeir hjá Framleiðslusam-
vinnufélagi iðnaðarmanna
áberandi varir við að viðskipta-
menn þeirra, sérstaklega hús-
byggjendur, sæktust sifellt eftir
meiri og meiri lánaþjónustu
vegna þess að bankarnir væru
lokaðir hinum almenna manni.
— Ég held, sagði Sigurður, að
nauðsynlegt sé að hafa kaup-
gjaldið hér i einhverju samræmi
við það sem tiðkast i nágranna-
löndum okkar. Annars missum
við okkar besta verkafólk og
iðnaðarmenn úr landi. Ég hef
þegar orðið töluvert var við það
aö rafiðnaðarmenn eru farnir
að leita fyrir sér um vinnu t.d. i
Noregi. Mér finnst margt i
atvinnuástandinu farið að
minna á landflóttatimann 68-69.
Framleiðslusamvinnufélag
iðnaðarmanna tekur nú raf-
magns- og vélaverkstæði á
Raufarhöfn, vélaverkstæði i
Kópavogi og er með rafiðnaöar-
Tíkstur á Kópaskeri, Sauð-
árkrók, Suðureyri, Hafnarfirði,
Vestmannaeyjum og i Reykja-
vik. Rafaflsmenn annast um 20-
30% af öllum nýlögnum á
Reykjavikursvæðinu. A Suður-
eyri við Súgandafjörð var ný-
verið stofnað fyrsta rafmagns-
fyrirtækið innan Framleiðalu-
samvinnufélags iðnaðarmanna
og á Raufarhöfn er verið að
koma upp vélaverkstæði. A báö-
um þessum stöðum leysir þessi
þjónusta úr brýnni þörf.
—ekh
Kaupið er ekki of hátt
Vinnumiðlun fyrir fólk
með skerta starfsgetu
Stofnuð hefur verið sér-
stök deild fyrir fólk með
skerta starfsorku við
Ráðningarstof u Reykja-
vikurborgar. Þar starfar
einn maður, Magnús Jó-
hannesson, fv. borgarfull-
trúi Sjálfstæðisf lokksins,
og fræddi hann blaðamenn
Þjóðviljans um starfsemi
deildarinnar í gær.
Daglegur rekstur er fólginn i
þvi að fólk kemur hér og skr'áir
sig, sagði Magnús, og siðan leita
ég til stofnana og fyrirtækja eftir
starfi handa þvi.
Þarfir fólks i þessum efnum eru
mjög mismunandi, likamlegt
ástand er misjafnt og margir
treysta sér ekki til að vinna neina
hluta úr degi. Fyrir hvern og einn
þarf þvi að finna sérhæft starf þar
sem getan til almennra starfa er
skert.
Hingaðhafa leitað milli 20 og 30
manns. Tekist hefur að útvega
nokkrum þeirra vinnu, aðallega
við skrifstofustörf og eins hjá
hreinsunardeildinni, og vænti ég
svars við beiðnum fyrir aðra.
3 úr þessum hópi höfðu atvinnu,
sem þeir voru að gefast upp á,
hinir eru allir atvinnulausir.
Annars hefur timinn lika farið i
að koma þessu á laggirnar og
finna starfseminni farveg. Það er
erfitt eftir þetta stuttan tima að
segja til hvert framtiðarskipulag
deildarinnar verður; úr þvi
verður timinn og reynslan aö
skera. Vandamálið er aö menn
gera sér ekki grein fyrir þvi, að
þessa starfskrafta má nýta, og
þvi viðhorfi þarf að breyta. Þaö
er almennt viðurkennt að vinna
er algert nauðsynjamál, bæði
andlega og lfkamlega og það á
ekki siður viö um fólk sem hefur
skerta starfsgetu.
Ég reikna með þvi, að mest
verði þrýst á hið opinbera i
þessum efnum, þar sem riki og
bæjarfélög hafa ákveðnum
skyldum að gegna, skv. lögum
um endurhæfingu frá 1970.
Borgarstjóri hefur þegar sent
öllum forstöðumönnum borgar-
stofnana bréf, þaE-sem-miant er á
þessar skyldur og tilkynnt þeim
um stofnun deildarinnar. Hins
vegar höfum við lika leitað út á
hinn almenna vinnumarkað og
munum halda þvi áfram.
Við höfum haldiö nokkra fundi
meö framkvæmdastjóra Endur-
hæfingarráðs og Félagsmála-
stjóra, og þvi samstarfi verður
haldið áfram, enda eru þessar
stofnanir háöar hvor annari. AI
Alþýðubandalaglð á Fljótsdalshéraði
Landbúnaðarfundur
haldinn á Iðavöllum
Alþýðubandalagið á Fljótsdalshéraöi boðar til fundar um land-
búnaöarmál á Iðavöllum á skirdag, fimmtudaginn 23. mars.
f'undurinn hefst kl. 16.
Frummælendur eru Jón Viðar Jónmundsson, búfræðingur,
Þór Þorbergsson, tilraunastjóri á Skriðuklaustri, og Helgi
Seljan, alþingismaður.
Lúðvik Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins, mætir á
fundinn.