Þjóðviljinn - 18.04.1978, Side 11

Þjóðviljinn - 18.04.1978, Side 11
Þriöjudagur 18. aprll 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 FUNDUR UM BORGARMÁL BREIÐHOLTI III Sl. fimmtudagskvöld hélt Framfarafélag Breiöholts III fund IFellahelli. Áfundinn komu fulltrúar allra stjórnmálaflokka2 sem bjóöa fram til borgar- stjórnarkosninga I Reykjavik. Sigurjón Pétursson borgar- ráðsmaður var fulltrúi ^Alþýðu- bandalagsins á fundinum. Fyrir ihaldið mætti Magnús L. Sveins- son, Guðmundur G. Þórarinsson fyrir Framsókn og Björgvin Guð- mundsson fyrir krata. Flutti hver þeirra tvær stuttar ræður, en sið- an voru almennar umræður. Fimmti hver Reykvik- ingur i Breiðholti A siðustu 11 árum hafa rúmlega 20.000 manns flutt i Breiðholts- hverfin, eða 5. hver Reykviking- ur. Eins og gefur að skilja, eru mörg félagsleg verkefni óleyst i Breiðholti, enda hefur Sjálf- stæðisfiokkurinn verið ófeiminn að svikja flest þau glæstu kosn- ingaloforð, sem Breiðholtsbúar voru trakteraðir á fyrir siðustu kosningar. ,,Rétt að draga úr fram- kvæmdum” Magnús L. Sveinsson reyndi að skjalla Breiðhyltinga og afsaka framkvæmdaleysi og svik borg- arstjórnarmeirihlutans i málefn- um hverfisins. Hann sagði, að nauðsynlegt hefði verið að draga úr framkvæmdum vegna óða- verðbólgunnar. „Ég tel að það sé rétt stefna að draga úr fram- kvæmdum” sagði Magntls og taldi eina ráðið að leggja nýjar álögur á borgarbúa, ef standa ætti við framkvæmdaáætlanir. Viðunandi um aldamót- in Frá borgarmáiafundinum I Fellahelli. Myndir: eik Sigurjón Pétursson sagði að Borgarfulltrúar t.v. og einn fundarmanna f ræöustól. Skortur á dagvistarstoínunum brennur heitast á íbúum Breiðholtsh verfanna kvæmt núgildandi verðlagi. Mý- mörg slik dæmi mætti taka um spillingu i stjórn borgarinnar. Heilsugæslustöðin hlutans. Heilsugæslustöð i leigu- húsnæði við Asparfell hefði enn ekki veriö opnuð þrátt fyrir margitrekuð loforð. Kaupmenn númer eitt. það væri engin tilviljun, að fjölg- un dagvistunarstofnana væri efst á blaði á óskum Framfarafélags- ins um forgangsröðun verkefna i Breiöholti III. Hinn gifurlegi skortur á dagvistarstofnunum brennur heitast á ibúum Breið- holtshverfanna. Hinsvegar væru ekki nema þrir mánuðir siðan borgarstjórnarmeirihlutinn felldi tillögu frá Alþýðubandalaginu, sem gerði ráð fyrir að dagvistar- málum yrði komið i viðunandi horf á næstu átta árum. Sigurjón sagði, að samkvæmt samþykkt þeirri sem borgarstjórn gerði, verði þessu marki náð um eða upp úr næstu aldamótum, ef sama stjórn verður áfram við völd i borginni. Nú eru um 600 börn á biðlista eftir plássi á dag- heimili, ogeruþó aðeins börnein- stæðra foreldra og námsfólk i þeim hópi. Starfsvellir Sigurjón minnti á, að árið 1972 hefðu Alþýðubandalagsmenn flutt tillögu i borgarstjórn um að reynt yrði að koma upp einum starfevelli á ári i hinum ýmsu hverfum borgarinnar. Tillagan var felld, en ihaldið ætli i staðinn að koma upp einum starfsvelli á 5 ára fresti. Aðeins einn starfsvöll- ur hafi verið gerður siðan 1972. Fjármálaspilling Sigurjón minnti einnig á þá miklu ábyrgð, sem borgarfulltrúum er fengin i hendur, þar sem væri ráöstöfun fjármuna borgarbúa, alls 25 milj. króna á árinu 1978, eða tæplega 300.000 kr. á hvert mannsbarn. Þessu fé væri vissu- lega hægt að ráðstafa misjafn- lega, og fjármálaspilling hefði þróast I skjóli hins langvinna valds ihaldsins i borginni. Sem dæmi um spillinguna nefndi Sigurjón, að Samvinnubánkinn hafi átt að greiða hátt á niundu miljón i gjöld vegna bilastæða. Bankinn hafi hinsvegar aðeins greitt 3 1/2 miljón. Þessi upphæð hafi verið greidd á einum og sama degi til borgarlögmanns með tveimur ávisunum, annarri að upphæð 3 miljónir, en hinni 500 þúsund. Aðeins önnur þessara ávisana hafi siðan komið fram! 54 miljónir i hönnun Annað dæmi um spillinguna væri Borgarbókasafnið. Nýtt hús fyrir safniö hefði verið i hönnun i meira en áratug og væri ekki séð fyrir endann á hönnunarvinnunni enn. Nú væru komnar 54 miljónir króna i hönnunarkostnaö, sam- Björgvin Guðmundsson taldi upp svik borgarstjórnarmeiri- hlutans á kosningaloforöum um framkvæmdir i Breiðholti. Dag- heimili hefði verið byrjað að byggja ári eftir að það átti að vera tilbúið, leikskóli hefði verið boðinn út ári eftir að hann átti að vera tilbúinn, skóladagheimili væri ekkert risið og leikfimi- kennsia væri alls ekki viðunandi. Græna byltingin lofaöi göngustig- um milli Breiðholtshverfa, en engar hafa efndirnar orðið. Þá átti að byrja að byggja heilsu- gæslustöð i Mjóddinni 1974, en ekki hefur verið staðiö viö það kosningaloforð. En hönnun bygg- ingarinnar hefur þegar kostað 20 miljónir og virðist hönnunin vera atvinnubótavinna fyrir nokkra gæðinga borgarstjórnarmeiri- Sigurjón Pétursson sagði frá ýmsum tillögum Alþýðubanda- lagsmanna um fjáröflun til auk- inna félagslegra framkvæmda. Þar á meðal var tillaga um að hækka kvöldsöluleyfi úr 50 þús- undum i 200 þús. á ári og tillaga um hækkun aðstööugjalda um liðlega 200 miljónir. Þessar tillög- ur hefðu verið felldar, og væri augljóst að ihaldið bæri hagkaup- manna meira fyrir brjósti en hag barnanna. Leiðinleg borg Sigurjón sagði aö tekist hefði i tið ihaldsins að gera Reykjavik að leiðinlegri borg. Ekkert væri gert til að lifga upp á mannlifið, og kvikmyndahús og sjónvarp væru nánast eina dægradvöl Reykvik- inga. -eös Aðkallandi yerkefni í Breiðholti Framfarafélag Breiðholts III fer fram á eftirfarandi for- gangshröðun verkefna i Breið- holti III: Málefni barna og ung- linga. Fjölga þarf dagvistunar- stofnunum, þ.e. leikskólum, dagheimilumog skóladagheimil- um. Fjölga þarf starfsvöllum og láta þá starfa lengri tima af ár- inu en nú er gert. Hraðað verði byggingu iþróttahúsa fyrir Fjölbrauta- skólann og HÓlabrekkuskóla. Lokið veröi öörum áfanga Hólabrekkuskóla fyrir næsta haust. Haldið verði áfram upp- byggingu Fjölbrautaskólans með fullum hraöa og öldunga- deild verði komið þar á fót fyrir nægta haust. Haldiö verði áfram ung- lingavinnu (13-15 ára) á sumrin við uppgræðslu og trjárækt i hverfinu og umhverfis það og einnig viö frágang opinberra svæða og aðra umhverfisvernd. Lokið verði frágangi á al- mennum leiksvæðum i hverfinu. Athugaö veröi hvort ekki sé nauðsyn á svonefndu athvarfii Hólabrekkuskóla eins og i Fellaskóla. Reist verði æskulýðsheim- ili, sem samkvæmt skipulaginu á aö risa norðan við iþróttavöll- inn. Byggt verði vallarhús við iþróttavöllinn þar sem iþrótta- félagið Leiknir og e.t.v. fleiri fé- lög hefðu aðstööu. Sundlaugin verði tekin i notkun sem allra fyrst. Opinber þjónusta. Fullkomin heilsugæslustöð taki til starfa í hverfinu sem fyrst. Lögreglu- og slökkvistöð verði reist i þessari 25 þús. manna byggð. Bygging Félags- og menn- ingarmiöstöðvar hverfisins og útibús Borgarbókasafnsins, san risa eiga sameiginlega austan Austurbergs, verði hafin hið fyrsta. Samgöngur Lagðir verði greiöfærir gangstigar milli Breiöholts- hverfanna. Endurskoöaðar veröi leiðir strætisvagna i hverfinu. Bæta við akreinum eða endurbæta á annan hátt inn- keyrslu á Reykjanesbraut úr Breiðholti 1 og á Breiðholts- braut úr Braöholti II. Flýtt veröi eins og unnt er tengingu Höfðabakka yfir i Ar- bæjarhverfi. Atvinnumál. Fjölgað verði atvinnutæki- færum i Breiöholti eða næsta nágrenni, sérstaklega verði reynt að fjölga halfsdags störf- um.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.