Þjóðviljinn - 22.04.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 22 aprO 1078 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Dósabakkar meö tlvolisniði voru vinsselir
Sumarið gekk í garð með blíðviðri:
Miðbærinn
Eins og sjá má af þessari mynd var glfurlegt fjölmenni samankomiö f miöbænum (Myndir tók Leifur)
fylltist
af fólki
Blessaö sumarið gekk i garö
meö sól og bliðu að þessu sinni.
Skátar efndu til dálitils karnivals
i miöbænum i Reykjavik á sum-
ardaginn fyrsta og þar sannaðist
hversu fólk hefur mikla þörf fyrir
að koma saman, sýna sjálft sig,
skemmta sér og sjá aðra.
Miðbærinn fylltist af fólki svo
að annað eins margmenni hefur
ekki sést á þessum degi áður.
Skátar vorumeð dagskrá á þrem-
ur pöllum samtimis i miðbænum
ogauk þess önnur skemmtiatriði
svo sem skotbakka, spákonur,
boltaspil veðbr autino .fl. Steinþór
Ingvason framkvæmdastjóri
Skátafélags Reykjavikur sagði i
samtali við Þjóðviljann i gær að
skátar vildu frekar vera virkir
þátttakendur i skemmtuninni
með þessum hætti i stað þess að
vera eingöngu áhorfendur.
-GFr.
Trltiltoppakvartettinn skemmtir á Lækjartorgi
Starfsmannafundur hjá Samvinnuferðum og Landsýn.
Fyrsta úthlutun úr Minningarsjóði
um Barböru Árnason
Hrólfur Sigurðsson
Miðvikudaginn 19. april s.i. var
i fyrsta sinn úthlutað styrk úr
M inningársjóði um Barböru
Arnason. Sjdðurinn var stofnaður
af Magnúsi A. Arnasyni, iistmál-
ara, eftirlifandi eiginmanni
Barböru, og syni þeirra Vifli, að
aflokinni yfirlitssýningu á verk-
um listakonunnar árið 1976.
Það var Hrólfur Sigurðsson
listmálari, sem hlaut styrkinn að
þessu sinni og var nafn hans
dregið Ur nöfnum 20 umsækjenda.
Magnús sagði, við styrkveit-
inguna, að þeir feðgar, hann og
Vi'fili, heí'ðu ákveðið að stofna
sjóðinn með ágóðanum sem varð
af yfirlitssýningunni og nám
sjóðurinn við stofnun einni miljón
króna. Honum var einkum ætlað
það hlutverk að styrkja islenska
myndlistarmenn til utanfarar og
voru að þessu sinni veittar 300
þúsund kr-ónur.
Sagðist Magnús vona að það
yrði föst venja að veita úr sjóðn-
um 19. april ár hvert, á fæðingar-
degi Barböru, en hún var fædd
1911. Barbara Árnason var
starfandi hér á landi i hart nær 40
ár, og sagði Magnús að þau hjón
hefðu um árabil veitt svipaðan
styrk, og hér um ræðir, úr eigin
vasa en orðið að leggja það af
þegar peningaflóðið og verðbólg-
an var orðin svo mikil að allt
drukknaði i þvi.
I stjórn sjóðsins eiga sæti þeir
listarmanna, Hjörleifur Sigurðs-
son, listmálari —IGG. I
Landsyn og Samvlnnuferdir
.. ..........•••-. .:. .-. """. -■■■ .-. ^.
Fjölbreytni í
J úgóslavíuíerðum
Feröalög hafa margvíslegan tilgang
Sumarleyfisferðir Landsýnar
til Júgóslaviu hafa notið æ meiri
vinsælda hin siðari ár. Landsýn
og Samvinnuferðir sem nú starfa
í nánu samstarfi bjóða i súmar
uppa' fjölbreytilegri Júgóslaviu-
ferðir en áður, auk þess sem sum-
arleifisstaðurinn Portoroz við
Adriahafið verður miðstöð fyrir
lengri og skemmri ferðir til ná-
grannalanda.
Ferðist og megrist
Undir heitinu „Ferðist og
megrist” auglýsa Landsýn og,
Samvinnuferðir nú heilsubótar-
og megrunarferð til Portoroz.
Þar er rekin þekkt heilsubótar-
stöð, þar sem margir Islendingar
hafa fengið bót við liðagigt, asma
og soreasis. Nú hefur stöðin tekið
upp megrunaraðferð með tiu
daga meðhöndlun. Hún byggist á
reglulegu lækniseftirliti. likams-
æfingum og eyrnarstungum með
nálum, sem sagt er að dragi úr
matarlyst. Venjulega þyngjast
menn i sólarlandaferðum en i
heilsubótarstöðinni i Portoroz er
algengt að fólk léttist um eitt kiló
á dag.Viðbótarverð fyrir megrun-
arferð er kr. 25 þúsund og fæst
auka gjaldeyrisskammtur til fár-
arinnar gegn læknisvottorði.
Ferðist og fræðist
Utidir heitinu „ferðist og fræð-
ist” bjóða Landsýn og Samvinnu-
ferðir nú fram sjö daga ferð um
Jógóslaviu i samstarfi við verka-
lýðshreyfinguna á Islandi. í ferð-
inni eru heimsótt fyrirtæki og
vinnustaðir og leitast við að fræð-
ast um.hagi fólks i Júgóslaviu, en
þar búa 20 miljónir manna af sex
þjóðernum. Stjórnarfar i Júgó-
slaviu er um margt athyglisvert
m.a. vegna valddreifingar sem
stefnt er að i stjórn atvinnulifsins.
Sjálf fræðsluferðin tekur sjö daga
og er islenskur fararstjóri með i
förinni. Ferðin i heild tekur 21 dag
og er dvalist i Portoroz afganginn
af timanum. Lagt verður af stað
17. mai.
Sóiarferð til fimm ianda.
Portoroz er vel i sveit sett og
þaðan er stutt i önnur lönd og
merka staði. 10. ágúst bjóða
Samvinnuferðir og Landsýn uppá
þriggja vikna ferð til Júgóslaviu,
Austurrikis, Þýskalands, Sviss og
ttaliu. Upphafspunkturinn er
fjögurra daga dvöl i Portoroz en
þaðan er siöan ekiö i loftkældum
langferðavagpi að Bledvatni á
fimihta degi, og siðan liggur leíö-
in til Austurrikis tSalzburgar),
þrjáVdaga er staðnæmst i Miin-
chen, höfuðborg Bæjaralands, þá
er ekið til Sviss (Zurich) og eftir
viðdvöl þar haldið til Milanó og
Feneyja á ítaliu. Ferðinni lýkur
svo með vikuafslöppun i sólinni i
Portoroz.
Septemberdagar á italiu
önnur þriggja vikna ferð hjá
Landsýn og Samvinnuferðum
hefst 31. ágúst og nefnist
„Septemberdagar á Italiu”.
Fyrst er þremur dögum varið i
Portoroz, en siðan haldið með
langferðabil i 15 daga ferð um
Italiu með viðkomu i Bologna.
Florenz, Róma, Pescara við
Adriahaf og baðstrandarbænum
Rimini. Siglt er til Elbu, þar sem
Napóleon keisari var hafður i
haldi 1814-15komið við i dvergrik-
inu San Marino og Italiuferðinni
lýkur með F’eneyjarápi. Siðustu
þrjá dagana er svo aftur dvalist i
Portoroz.
Auk þessara sérferða með
Portoroz sem upphafspunkt eru
Landsýn og Samvinnuferðir með
margar ferðir i sumar eingöngu
til þessa baðstaðar við Adriáhaf-
ið. Innifalið i öllum ferðum er
hótel. morgunmatur og kvölú
matur. Eysteinn Helgason. frar.;
kvæmdastjóri Samvinnuferða t,,_,
Landsýnar, sagði á fundi
fréttamönnum i vikunni að undv
tektir fólks við valkostina i Ju,.
slaviuferðum sýndu að siie.
fleirí óskuðu eftir meiri f;
breytni og nýjum áfangastöðum .
suinarleyfisferðum sinum á é.
lenda grund.