Þjóðviljinn - 22.04.1978, Page 17
Laugardagur 22aprn 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Meira fjör!
Sjónvarpiö hefur tekiö framför-
um undanfarnar vikur i gerö
islenskra skemmtiþátta, og var
ekki vanþörf á eftir aö hinn
„bráöskem mtilegi” þáttur
„Menntaskólarnir mætast” lauk
göngu sinni sællar menningar.
Lof og pris ber sjónvörpurum
fyrir þáttinn „Alltaf vorar i sál-
inni á mér”, sem sendur var út
beint siðasta vetrarkvöld. Þáttur-
inn var léttur og hnökralaus og
Magnús Axelsson aldeilis ágætur
kynnir, eðlilegur i framkomu og
vel máli farinn. M.a.s. hefur
maðurinn kimnigáfu, sem
sjaldnast hefur iþyngt kynnum
islenskra skemmtiþátta til þessa.
Mættum við fá meira að sjá og
heyra af þessu tagi?
Þáttur þeirra ólafs Ragnars-
sonar og Tages Ammendrup með
blönduðu efni. „Á vorkvöldi”, er
á dagskrá i kvöld klukkan
hálfniu. Á myndinni sést
hljómsveitin Brunaliðið með
Þórhall Sigurðsson alias Ladda i
broddi fylkingar. Brunaliðið hef-
ur komið fram i þættinum áður og
er aldrei að vita nema liðið bruni
fram á sviðið i kvöld lika.
Kommúnistaofsóknir
kaldastríðsáranna
„Undir fargi óttans” kl. 22.05
//Undir fargi óttans"
nefnist bandarísk sjón-
varpsmynd, sem sýnd
veröur í kvöld kl. 22.05
Aðalhlutverk leika George
C. Scott og William
Devane.
Myndin er byggð á sönn-
um atburðum og gerist i
Bandarikjunum á sjötta
áratug aldarinnar,
McCarthy-tímabilinu/ þeg-
ar móöursýkislegar
George C. Scott I hlutverki Louis
Nizer, verjanda Faulks i sjón-
varpsmyndinni i kvöld.
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55:
Séra Guðmundur Þorsteins-
son flytur. Tilkynningar kl.
9.00. Létt lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir. Barnatimikl. 11.20:
Umsjónarmaður: Baldvin
Ottósson varðstjóri. Keppt
til úrslita i spurningakeppni
um umferðarmál meðal
skólabarna i Reykjavik.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 V'ikan framundan
Sigmar B. Hauksson kynnir
dagskrá útvarps og
sjónvarps.
15.00 Miðdegistónleikar. a.
Filharmoniusveit Berlinar
leikur „Capriccio Italien”
op. 45 eftir Pjotr Tsjai-
kovský; Ferdinand Leitner
stjórnar. b. John Ogdon og
Konunglega filharmoniu-
sveitin i Lundúnum leika
Pianókonsert nr. 2 i F-dúr
op. 102, eftir Dmitri Shosta-
kovitsj, Lawrence Foster
stjórnar.
15.40 islenskt mál. Gunnlaug-
ur Ingólfsson cand. mag.
talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin
Vignir Sveinsson kynnir.
17.30 Barnalög, sungin og
leikin.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.25 Konur og verkmenntun.
Fyrri þáttur. Umsjónar-
menn: Björg Einarsdottir,
Esther Guðmundsdóttir og
Guðrún Sigriður Vilhjálms-
dóttir.
20.00 IHjómskálamúsik.
Guðmundur Gilsson kynnir.
20.40 Ljóöaþáttur. Umsjónar-
maður: Njörður P. Njarð-
vik.
21.00 Tónleikar: a. Julian
Bream og John Williams
leika á gitara tónlist eftir
Carulli, Granados og
Albeniz. b. tgor Gavrysj og
Tatjana Sadovskja leika á
selló og pianó lög eftir
Fauré, Ravel, o.fl.
21.40 Stiklur. Þáttur með
blönduðuefni i umsjá Óla H.
Þórðarsonar.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
16.30 IþróttirUmsjónarmaður
Bjarni Felixson.
' 17.45 Skiöaæfingar(L) Þýskur
myndaflokkur. Þrettándi og
síðasti þáttur. Þýðandi
Eirikur Haraldsson.
18.45 On We GoEnskukennsla.
23. þáttur endursýndur.
18.30 Skýjum ofar (L) Sænsk-
ur sjónvarpsmyndaflokkur i
sex þáttum. 3. þáttur. Eyði-
eyjan Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
19.00 Enska knattspyrnan (L)
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Á vorkvöldi(L) Umsjón-
armenn ólafur Ragnársson
og Tage Ammendrup.
21.20 Þjóðgarður i Þýskalandi
(L) Landslag og dýralif i
Berchtesgadenþjóðgarðin-
um i þýsku ölpunum. Þýð-
andi og þulur óskar Ólafs-
son.
22.05 Undir fargi óttans (L)
(Fear on Trial) Bandarisk
sjónvarpsmynd. Aðalhlut-
verk George C. Scott og
William Devane. Myndin er
byggð á sönnum atburðum
og gerist i Bandarikjunum á
sjötta áratug aldarinnar,
McCarthy-timabilinu, þeg-
ar móðursýkislegar
kommúnistaofsóknir ná há-
marki i landinu. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
23.40 Dagskrárlok
kommúnistaofsóknir náðu
hámarki þar i landi.
1 myndinni segir frá ungum
dagskrárgerðarmanni, Faulk að
nafni, sem starfar hjá CBS út-
varpsstöðinni. Hann er vinsæll
meðal áheyrenda og i góðu áliti
hjá stjórn útvarpsstöðvarinnar.
Þingmaður i Washington,
McCarthy að nafni, beitir sér
fyrir stofnun þingnefndar, sem
hefur það hlutverk að rannsaka
atferli „óþjóöhollra” Bandarikja-
manna. Kalda striðið er i al-
gleymingi og aliir eru undir smá-
sjá þingmannsins.
Ekki liður á löngu þar til sú
saga kemst á kreik að Faulk sé
varhugaverður og „óameriskur”.
Ástæðan er sú, að hann er talinn
hafa sótt fundi hjá vinstrisinnaðri
konu i heimariki sinu, Texas.
Orðrómur þessi berst til eyrna
auglýsingafyrirtækjum, en eins
og kunnugt er standa auglýsingar
undir rekstri hinna „frjálsu og ó-
háðu” útvarpsstöðva i Bandarikj-
unum. Þessi íyrirtæka aðvára
CBS, sem verður að reka Faulk,
ef halda á fyrirtækinu gangandi!
En hann gefst ekki upp og höfðar
mál, og sjáum við hvernig þvi
vindur fram i myndinni.
Myndin lýsir vel þvi andrúms-
lofti skefjalauss ótta og tor-
tryggni, sem rikti i Bandarikjun-
um á þessum árum. Margir leik-
aranna leika sjálfa sig i þessari
mynd.
PETUR OG VELMENNIÐ
Eftir Kjartan Arnórsson