Þjóðviljinn - 30.04.1978, Page 17
Sunnudagur 30. apríl 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17
GUÐJÓN JONSSON, formaöur Sambands Málm- og skipasmiða:
Tryggja þarf fridhelgi
kjarasamninganna _
Þj óð v i I j i n n spurði
Guðjón fyrst að þvi hvað
honum væri nú efst í huga
á þessum baráttudegi
verkalýðshrey f ingar-
innar:
„Ég tel að aðalmál verkalýðs-
hreyfingarinnar sé að endur-
heimta verðlagsbótaákvæði
kjarasamningana frá júni 1977,
en eins og öllum er kunnugt þá
hefur rikisstjórnin og þingmeiri-
hluti hennar skert þessi samn-
ingsákvæði með lögunum frá
febrúar s.l. Þessi ákvæði i siðustu
kjarasamningum eru bestu verð-
lagsbótaákvæði sem nokkurn
timan hafa náðst i kjarasamning-
um til þessa og með þeim var
tryggður sá kaupmáttur sem
samið var um 1977 þrátt fyrir þær
verðhækkanir sem orðið hafa.
Það er þvi mjög mikilvægt að
verkalýðshreyfingin brjóti á bak
aftur þessar ráðstafanir rikis-
valdsins ekki einungis til að ná
þvi aftur sem tekið hefur verið af
verkafólki, heldur einnig til að
tryggja friðhelgi kjarasamninga i
framtiðinni og að þeim verði ekki
rift af stjórnvöldum með laga-
setningum. Ef verkalýðshreyf-
ingin er að gera samninga um
kaup og kjör sem rikisvaldið
brýtur siðan þá hafa kjarasamn-
ingar ekki lengur neitt gildi.
Baráttuna gegn slikri þróun tel ég
vera meginverkefnið nú alveg á
næstunni og sú barátta stendui
reyndar yfir.
Stadan í málm~
iðnaðinum
• Hvað varðar nánustu framtið
þá er mér margt i huga. Kjör
skapast t.d. ekki af kaupinu einu
saman. Það verður fleira að
koma til ef afkoma verkafólks i
þessu landi á að vera mann-
sæmandi. t fyrsta lagi verður að
tryggja fulla atvinnu. 1 þvi
sambandi má benda á hver þró-
unin er núna i málmiðnaði. Þar
hefur atvinna dregist saman bæði
hvað varðar viðgerðir og nýsmiöi
á skipum. Einnig má benda á aö á
sama tima og vinnan minnkar
hér þá færist þaö i vöxt að farið er
með þau verkefni sem hægt er aö
vinna hér heima, til útlanda.
Núna þessa stundina stöndum við
einmitt i harðri baráttu við aí
reyna að fá að framkvæma við-
gerð á skuttogaranum Rauðanúpi
hér innan-lands.
I ööru lagi þá stendur baráttan
nú um og mun standa um, betri
vinnuaðstööu við skipaviðgerðir
og skipasmiðar hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Gamli Slippurinn
er vinnustaður sem er úr sér
genginn hvað varðar aðstöðu og
möguleika til aukinna verkefna.
Aðstaðan þar er algjörlega
óviðunandi. Hér þarf að byggja
fullkomna þurrkvi, þar sem einn-
ig er hægt að framkvæma við-
gerðir á kaupskipum og að öll
vinna sem þar verði framkvæmd,
fari fram innan húss, ásamt full-
komnum tæknibúnaði.
Vinnuumhverfi
1 þriðja lagi og I beinu fram-
haldi af þvi sem ég hef sagt hér á
undan, þá vil ég minnast á vinnu-
umhverfi málmiðnaðarmanna al-
mennt. Málmiðnaður er óþrifaleg
vinna og þaö er mikil óhollusta á
vinnustööunum. 1 þessu sam-
bandi er mikil og löng barátta eft-
ir. Það má geta þess að i siðustu
kjarasamningum lofuðu stjórn-
völd að átak skyldi gert i þessu
efni m.a. að láta fara fram könn-
un á aðbúnaði verkafólks.
Þessi könnun hefur ekki verið
framkvæmd enn,en ég vonast til
að hún fari af stað núna á allra
næstu dögum. Ég vænti þess að
niðurstöður þessarar könnunar
leiði til þess að fólk opni augun
fyrir þeim vanda sem við blasir
og átak verði gert til þess að bæta
aðbúnað og hollústuhætti á vinnu-
stöðunum. Heilsa m'anna ákvarö-
ast mjög af vinnustaðnum sem
þeir vinna á og ég tel’.að vinnu-
staðurinn sé veikasti hlekkurinn i
heilsugæslu hér á landi. Það er
ekki nóg að fá viðunandi kaup, þvi
ef heilsan bregst þá er ekki mikið
eftir.
Húsnæöismál
Þá vil ég geta eins stórmáls
sem mér er ofarlega i huga, en
það eru húsnæðismálin. Að eign-
ast húsnasði á tslandi i dag er
hlutursem flestir lenda i að fram-
kvæma fyrr eða siðar. Fyrir ungt
fólk sem ekki á húsnæði fyrir, er
þetta gifurlegt álag. Verkalýðs-
hreyfingin hefur látið sig þessi
mál miklu varða, en það þarf að
gera betur og húsnæðisvanda-
málin verður að leysa á félags-
legum grundvelli með byggingu
verkamannabústaða. Húsnæðis-
vandamáliö var mál sem kom inn
i gerð siðustu kjarasamninga og
Guðjón Jónsson: Baráttu verka
lýðshreyfingarinnar verður einn-
ig að heyja á stjórnmálasviðinu.
ég vænti þess að við þau ákvæði
sem þar voru sett fram, verði
staðið”.
Varnarbarátta
framundan
Guðjón var spuröur þvi næst að
þvi hvort hann teldi aö á grund-
velli þeirrar umræðu sem væri
byrjuð meðal ákveðinna ráðaafla
i þjóðfélaginu að verkalýöshreyf-
ingin væri búin að fá of mikil völd
og verkafólk of mikil réttindi,
hvort framtiðin fæli það i sér að
nú þyrfti verkalýðshreyfingin að
hefja baráttu til að halda þvi sem
hefði náðst.
- „Verkalýðshreyfingin er orðin
öflug hreyfing i islenska þjóð-
félaginu og hún hefur náð langt i
baráttunni fyrir réttindum verka-
fólks til félagslegs öryggis. Þar
má benda á heilbrigðis- og trygg-
ingakerfið, menntakerfið, at-
vinnuleysistryggingar, lifeyris-
sjóðina og orlofsheimilin og or-
lofsgreiðslur. Sumt af þessu er
mjög nýtt af nálinni, t.d. lifeyris-
sjóðskerfið, sem ekki er eldra en
frá 1970. Það er þvi hægt að
benda á mörg dæmi um að verka-
lýðshreyfingin hafi verið i stöð-
ugri sókn á þessum sviðum, þ.e.
hvaðsnertirfélagslegt öryggi, þó
svo hún hafi nú um skeið verið i
vörn hvað snertir kaupmátt.
Það er hins vegar alveg rétt að
afstaða stjórnvalda og skrif i
borgarapressunni virka á mig
þannig að nú sé eins og þessum
aðilum finnist vera nóg komið,
verkalýðshreyfingin sé búin að fá
nóg. Auðvitað munum við bregð-
ast við öllum hugmyndum og
hugsanlegum tilraunum til að
skerða þetta, af fullri hörku og
hvergi draga úr okkar baráttu og
við munum ekki láta ýta okkur út
. i neina varnarbaráttu.
Sókninni skal haldið áfram. Ég
vil benda á i þvi sambandi að bar-
áttumál okkar á næstunni mun-
u snúast um að auka áhrif
verkalýðshreyfingarinnar á
fræðslu- og menntamál i þessu
landi. Þvi miður hefur hreyfingin
látið þessi mál sig allt of litlu
máli skipta, en nú Verður að
vinna þar stórátak.
Eflum flokka verka-
lýðshreyfinganna
Barátta verkalýðshreyfingar-
innar á ekki aðeins að verða i
höndum hennar sjálfrar. Sú bar-
átta verður einnig að fara fram i
stjórnmálasviðinu, i Alþingi og i
sveitastjórnum. Verkafólk verður
að hafa þetta i huga þegar það
gengur að kjörborðinu i vor og
sumar, þvi ef verkafólk ætlar að
tfýggja réttindi sin i komandi
framtið þá verður það að nota
kjörseðilinn til að veita hinum
sósialisku verkalýðsflokkum
brautargengi og aukin áhrif á Al-
þingi og i sveitastjórnum,” sagði
Guðjón að lokum.
BJÖRN ÞÓRHALLSSON, formaður Landssambands verslunarmanna:
Mótmæli áróðrinum
sem vinnuveitendur og æðstu
menn peningakerfisins reka
Þjóðv.: „Hvað sækir fastast á
huga þinn núna i tilefni af 1.
mai?”
Manni er efst i huga núna inn-
grip rikisstjórnarinnar i kjara-
samningana og skerðing verð-
lagsbótanna með lögunum frá þvi
i febrúar s.l. Þessar ráöstafanir
rikisstjórnarinnar valda sáralitlu
um minnkun verðbólgu en þær
valda ófriðarástandi, og liklegt er
að afleiðingin verði sú að sam-
starf launþega og rikisvalds
verður mun erfiðara i fram-
tiöinni. Megin viðfangsefni
verkalýðshreyfingarinnar nú er
þvi að fá samningana frá þvi i
júni 1977 i gildi.
Áróðurinn
Mig langar til aö koma þvi hér'
að hver min skoðún er á þeim
sterka áróðri sem vinnuveitendur
og æðstu menn peningakerfisins
reka nú um þessar mundir. Þeir
segja að böfuðorsök verðbólg-
unnar séu launahækkanir, og
dregið er fram i öllum skýrslum
þeirra um efnahagsmál að
ástandið hafi snúist til hins verra
um mitt ár 1977 eða um sama
leyti og kjarasamningar voru
gerðir.
Ég vil mótmæla kröftuglega
þessum áróðri, þvi hægt er að
benda á margt sem sýnir hið
gagnstæða. Ég vil einnig vekja
athygli á þvi að hverju og hverj-
um þessi áróður beinist, en hann
beinist einmitt að þvi að skapa
neikvætt viðhorf almennings til
aðildarsamtaka Alþýðusam-
bandsins með þvi að gera launa-
kröfur þeirra að höfuðorsök verð-
bólgunnar. Litið bar á þessum
áróðri þegar laun opinberra
• u Blikkiðjan Asgaröi 7, Garðabæ
1 W ónnumst þakréhnusmíði og w uppsetningu — ennfremur i . tiverskonar blikksmíði.
1 Gerum föst verðtilboð
i | SÍMI 53468
starfsmanna og ýmissa hátt-
settra embættismanna hækkuðu.
Launahækkanir þeirra hafa ef til
vill ekki nein áhrif á verðbólguna
að dómi atvinnurekenda og
stjórnenda peningastofnana
þessa þjóðfélags?
Valdbeitingum
linni
Ég vil aðeins bæta við um þessi
mál almennt að ég tel að við
verðum að huga alvarlega að þvi
að valdbei tingaaðaferðum i þjóð-
félaginu fari aö ljúka. Það sem ég
á við með þessu er lagasetningin
frá þvi i febrúar, sem var ekkert
annað en valdbeiting og ekki i
fyrsta skipti sem þannig er farið
að. Þetta á einnig um verkföll og
verkbönn. Menn verða að fara að
gera sér það ljóst að efnahags-
vandinn verður ekki leystur nema
með samstilltu átaki allra megin-
afla þjóðfélagsins.
Verslunarmenn hafa
dregist aftur úr
Þjóðv.: Ef viö snúum okkur þá
aðeins að þvi fólki sem þú ert i
forystu fyrir, þ.e. verslunar-
mönnum. Hvernig er staðan hjá
þeim i dag, hver eru helstu
baráttumál ykkar nú um þessar
mundir?
„Eftir að kjarasamningar voru
gerðir við opinbera starfsmenn
og starfsmenn bankanna, þá varð
það ljóst að launataxtar versl-
unarmanna, sem vinna sambæri-
.leg störf og bankamenn og opin-
berir starfsmenn, voru orðnir 10-
60% lægri en launataxtar þessara
hópa. Þessar tölur sýna hvað við
höfum dregistóhemju mikið aftur
úr öðrum þjóðfélagshópum hvað
Björn Þórhallsson: Samninga-
riftunin i febrúar s.l. voru mistök
rikisstjórnarinnar, sem hún á að
viðurkenna og leiðrétta.
laun snertir og þetta misræmi
tverðum við að fá leiðrétt.
Hlutverk
ríkisvaldsins
Þjóðv.: öðru hvoru hefur verið
umræða um hlutverk rikisvalds-
ins i kjarasamningum. 1 þvi sam-
bandi hefur þessi rikisstjórn sem
nú situr þótt vera heldur viljalitil
til afskipta af vinnudeilum, jafn-
vel þótt deilurnar séu komnar i
hnút. Hvað viltu segja um þetta
-sjónarmið?
„Ég er ekki alveg sammála þvi
að þessi rikisstjórn hafi verið
alveg afskiptalaus um lausn
kjaradeilna, þó svo megi vera aö
hún hafi verið afskiptaminni en
einhverjar aðrar rikisstjórnir.
Almennt séð þá tel ég að það sé
tilgangslausÞ annað en að rikis-
valdið taki fulla ábyrgð á gerð
kjarasamninga og standi umfram
allt við þá ábyrgð sem hún tekur.
Ég tel að rikisvaldið eigi hiklaust
að gripa inn i til lausnar þeirri
kjaradeilu sem nú stendur yfir og
leitt hefur til hins margumtalaöa
útflutningsbanns og annarra
aðgerða sem nú eru á döfinni. Það
er mjög slæmt ef rikisvaldiö litur
á aðgerðir sinar og ákvaröanir
sem prófraun á það hver ráði i
þessu þjóðfélagi.
Samningariftunin i febrúar s.l.
yoru mistök rikisstjórnarinnar
sem hún á að viðurkenna og leið-
rétta. en með þvi mundi hún
endurheimta eitthvað af viröingu
almennings.”
Tökum að okkur
smíði á eldhúsinnréttingum og skápum,
bæði i gömul hús og ný. Sjáum ennfremur
um breytingar á innréttingum. Við önn-
umst hvers konar húsaviðgerðir, úti og
inni. Verkið unnið af meisturum og vönum
mönnum.
Trésmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33 — Simar 41070 og 24613