Þjóðviljinn - 15.07.1978, Page 7
Laugardagur 15. júli 1978 . ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Með nokkurri forundran hafa menn nú um hríö
horft á ritstjóra Morgunblaðsins hefja enn
eina krossferð gegn því sem þeir kalla pólítíska
innrætingu í skólum
Vindhögg ætlað kennurum
Oft hefur manni blöskrah aö-
ferBir stjórnmálamanna og
annarra i opinberri umræöu,
dylgjurnar, hálfsannleikurinn,
útUrsnúningarnir, I stuttu máli:
hagræðing staðreynda á þann
veg sem mælanda hentar.
Omurlegast er þó þegar um-
ræöan byggistá hreinum tilbún-
ingi, höfundur býr til veruleika,
semhonumhentaraðsétil, með
orðum. Oft eru óskilgreind hug-
tök notuð i slika hugarsmið og
barist fyrir henni, eöa gegn
henni, af miklum móði, jafnvel i
Jesú nafni. Með nokkurri for-
undran hafa menn nú um há-
sumarið, að lokinni kosninga-
hrið, horft á ritstjóra Morgun-
blaðsins hefja enn eina kross-
ferð af þessu tagi gegn þvi sem
þeir kalla pólitisk innræting i
skólum.
Fátt um skilgreiningar
Eins og fyrri daginn er ekki
haft fyrir þvi að skilgreina til
neinnar hlítar hvað við er átt.
Liklega komast þessi orð úr
leiðara Morgunblaðsins 12. þ.m.
einna næst þvi að skýra þaö i
stuttu máli:
„Þessi misnotkun aðstöðu
verður ekki stöövuð nema for-
eldrar taki höndum saman um
það að gera börnum sinum
kleift aö komast i gegnum
skólakerfið á þann veg, að þau
geti myndaö sér sjálfetæðar
skoðanir um mál en veröi ekki
að sæta þvi á viðkvæmasta
þroska- og mótunarskeiði að
verða fyrir tilraunum óprútt-
inna manna til þess aö hafa
áhrif á stjórnmálaskoðanir
þeirra i framtiðinni”.
Nú má flestum ljóst vera að
tilraunir af þvi tagi sem þarna
er lýst eru dæmdar til að mis-
takast. Detti kennara sú fásinna
i hug aö reyna að hafa áhrif á
stjórnmálaskoöanir nemenda
sinna með þvi aö segja þeim
hvað þeir eigi að halda og
hugsa, hlýtur hann aö uppskera
öfug áhrif við það sem til var
ætlast. Almenningur gerir sér
auðvitað grein fyrir þessu og þvi
eru öskur Morgunblaðsritstjór-
anna, og annarra sem skrifaö
hafa I likum dúr, þeim mun
undarlegri.
Takmörkuð þekking
Onnur alþekkt vitneskja
viröist ekki enn hafa bæst i
þekkingarforða þessa fólks. Svo
kölluð innræting er hluti af
þeirri félagsmótun sem fram
fer i öllum þjóðfélögum, þ.e.
mótun viöhorfa og gildismats
uppvaxandi kynslóðar. Félags-
mótun og þar með innræting fer
að sjálfsögðu fyrst og fremst
fram innan f jölskyldunnar, hins
margrómaða „hornsteins þjóð-
félagsins”. Siðan ber að nefna
áhrif vina og félaga, og fjöl-
miðla. Skóhnn er lika áhrifa-
valdur við félagsmótun en
athuganir og skoðanir þeirra,
sem um uppeldis- og kennslu-
mál fjalla, benda til að þau séu
mun minni en margir halda og
beri að telja á eftir þeim aöilum
sem áður voru nefndir.
Þeir sem innsýn hafa i þessi
mál vita llka að uppeldisáhrif
þess sem sagt er við nemendur,
þeim ætlaðað taka við þegjandi
og athugasemdalaust, eru
vægast sagt hverfandi. Og geta
raunar haft þveröfug áhrif við
það sem til var ætlast eins og
áður var vikiðað. Uppeldislegra
áhrifa skóla gætir i réttu hlut-
falli við það að hve miklu leyti
honum tekst að miðla reynslu,
veröa vettvangur umræðna,
sjálfstæðra athugana einstakl-
inga og hópa á viöfangsefnum
sem nemendur hafa áhuga á,
telja sig varða með einhverju
móti. Ahrifavald skóla er fyrst
og fremst háð lýð*
ræðislegum vinnubrögðum þar
sem frumkvæði, fróöleiksfýsn
og vilji nemendanna hefur riku-
legt svigrúm. Það er ekki hægt
að troða skoöunum inn I heil-
brigðbörneins og sumir viröast
telja að gert sé, sist af öllu skoð-
unum sem eru andstæðar rikj-
andiskoðunum og ráðandi hefð-
um. Þær seytla hins vegar inn i
uppvaxandi kynslóð eftir
ýmsum leiðum eins og áður var
vikið að.
Fyrirspurn i fræðslu-
ráði:
Ljúkum þessum stuttu
athugasemdum um flókið og
merkilegt fyrirbæri með því að
virða fyrir okkur nýjasta dæmið
um dylgjur og útúrsnúninga i
tengslum við þetta efni. Það er
að finna i' leiðara sem Mbl. birti
á miövikudaginn var og fjallar
um svar Kristjáns J. Gunnars-
sonar, fræðslustjóra i Reykja-
vik viö fyrirspurn sem ég bar
upp i fræðsluráöi. Fyrirspurnin
var þannig:
„Siðastliðinn föstudag og
laugardag birtust i leiðara
Morgunblaðsins ásakanir á
kennara fyrir aö misnota að-
stöðu sina i pólitiskum tilgangi
(sbr. Mbl. 1. júli: „Spurningin
um pólitiska misnotkun
kennara á aðstöðu sinni er orðin
svo brennandi i hugum fólks, aö
óhjákvæmilegt er að það vanda-
mál verði tekið til sérstakrar
meðferðar. Það er ekki hægt að
liða það lengur að pólitisk inn-
ræting farifram i skólum lands-
ins”) t „Reglugerð um störf
fræðslustjóra”, 24. gr„ er það
talið meðal verkefna fræðslu-
stjóra að „ — kynna sér aga,
stjórn og uppeldisáhrif skóla”.
Einnig segir þar: „Virðist
þessum atriðum ábótavant, skal
fræðslustjóri ræða við skóla-
stjóra, kennara og skólanefnd
eftir þvi sem ástæður þykja og
gera ráðstafanir til úrbóta eftir
þvi sem hann telur fært”. Af
þessum sökum vil ég leyfa mér
að leggja fram svohljóöandi
fyrirspurn:
1. Hefur fræðslustjóri orðið
þess var að uppeldisáhrifum
skóla I Reykjavik væri ábóta-
vant á þann vegsem talaðer um
I áðurnefndum leiðurum
Morgunblaösins, þ.e. er
kunnugt um einhverja skóla I
Reykjavik” — þar sem mark-
viss pólitisk innræting fer
fram”?
2. Telur fræöslustjóri ástæðu
til að kanna málið sérstak-
lega?”
Svar fræðslustjóra
Svar fræðslustjóra Reykja-
vikur var lagt fram á næsta
fundi i fræðsluráði Reykjavikur
og er á þessa leið:
„Við samningu frumvarps til
laga um grunnskóla var svo ráð
fyrir gert að hluti námsstjórnar
i grunnskólum hvers fræðslu-
umdæmis væri i höndum
fræðslustjóra og aö fræðslu-
stjórinn hefði mannafla og fjár-
magntil að annast það verkefni.
t meðferð frumvarpsins á Al-
þingi var fjárhagsgrundvell-
inum kippt undan þessu ákvæöi
án þess þó að um leið væri gerö
breyting á skilgreiningu verk-
sviðs fræöslustjóra, sem m.a.
fól I sér að i hans verkahring var
áfram talið að sinna ýmsum
innri þáttum skólastarfsins.
Þannig á fræðslustjóri (sbr.
reglugerð um störf fræðslu-
stjóra, 24. gr.) t.d. að kynna sér
uppeldisáhrif skóla (en i þvi
felst m.a. hvernig námsefni er
lagt fyrir nemendur), sem aö
sjálfsögðu er I nánum tengslum
viö almenna námsstjórn.
Fjármagn og mannafli, sem
skv. grunnskólalögunum er
ætlað til rekstrar fræösluskrif-
stofanna, hefur aö minu áliti,
a.m.k. hvað Reykjavik varðar,
takmarkað verkefnið að lang-
mestu leyti viö fjármálastjórn
og rekstrarlega skipulagningu
skólastarfsins.
Ég tel þvi (eftir að áöur-
nefndar breytingar voru gerðar
á frumvarpinu við lagasetning-
una), að fræösluskrifstofur hafi
I reynd litið svigrúm til veru-
legra áhrifa og eftirlits meö
innra starfi skólanna, þar sem
þær skortir til þess mannafla og
fjármagn. Alkunnugt er aö
gagnrýni á marga innri þætti
skólastarfs á sér oft stað og frá
ýmsum aðilum.ensé hún aðeins
sett fram sem skoöun, án þess
að vera þannig rökstudd að
hlutlægu mati veröi viö komið,
er að minu áliti ekki hægt að
gera ráð fyrir aö fræðslustjóri
taki i embættisnafni afstöðu til
slikrar gagnrýni.
Komi hins vegar fram
rökstudd dæmi er varða t.d.
aga, stjórn, framsetningu
námsefnis og uppeldisáhrif
skóla þannig aö framkvæmd
þessara þátta skólastarfsins
þyki ámælisverö, geta afskipti
af slikum málum að sjálfsögðu
fallið I hlut fræöslustjóra og
talist I hans verkahring og þá
ber með þau að fara I samræmi
viö ákvæöi viðeigandi laga og
reglugerða.
Hinum beinu spurningum sem
fram eru bornar i bókun Haröar
Bergmanns svara ég þannig:
1. Mér hafa engar formlegar
kvartanir borist um að „mark-
viss pólitisk innræting” fari
fram i skólum sem reknir eru af
rikinu og Reykjavikurborg og
hef enga rökstudda vitneskju
um að svo sé.
2. Með visun til þess sem áður
er fram tekið i þessari greinar-
gerð, tel ég ekki ástæðu til að
kanna málið sérstaklega.”
Meðferð Morgunblaðs-
ritstjóranna á svarinu
Svar Kristjáns J. Gunnars-
sonar, fræöslustjóra, er vandað
og yfirvegað eins og hans var
von og visa. Ég tel það vel til
þess fallið að skýra nokkuö hvaö
hér er um aö ræða og bendi i þvi
sambandi sérstaklega á orö
hans um gagnrýni sem sett er
fram án þess að vera rödstudd.
En ritstjórar Morgunblaðsins
eru ekki á þvi aö hleypa neinni
skímuinn i vitund sina. Þeir búa
strax til veruleika sem þeim
hentar: Kristján J. Gunnarsson
meinar ekki það sem hann segir
að mati þeirra, heldur það sem
þeir vilja að sé sannleikurinn i
málinu. Svona litur dæmiö út I
leiöara Mbl. á miövikudaginn
var:
„Svar Kristjáns J. Gunnars-
sonar er eftirtektarvert fyrir þá
sök, að fræðslustjóri tekur
sérstaklega fram, að honum
hafi ekki borist „formlegar”
kvartanir og að hann hafi ekki
„rökstudda” vitneskju um slika
pólitiska innrætingu. Þessi orö
liggur beint viö aö skilja á þann
veg, að þótt fræðslustjóra hafi
ekki borist „formlegar” kvart-
anir, kunni honum aö hafa
boristóformlegar kvartanir. Og
þótt fræöslustjóri hafi ekki
„rökstudda” vitneskju um slika
misnotkun aöstööu má skilja
orö hans á þann veg, að hann búi
yfir vitneskju, sem erfitt kunni
að veraaö rökstyöja með dæm-
um”.
Lokaorð
Satt aö segja liður mér dálitið
undarlega aö vera farinn að
taka þátt i umræöu sem fer
framá þessu plani. Maöur hálf-
sér eftir kvöldstund sem fer i
svona skrif um hásumariö. Auö-
vitað er engin hætta á aö
foreldrar muni á komandi vetri
taka á móti börnum sinum úr
skólameðspurningunni: „Hvaö
sagði kennarinn um pólitikina I
dag?” Og kennarar hafa látið
formælingar og ógnanir af þvi
tagi sem hér um ræðir sem vind
um eyrun þjóta. Og halda þvi
áreiðanlega áfram þótt hundraö
leiðarar eigi eftir að bergmála
kröfur Morgunblaðsritstjór-
anna um meira eftirlit meö
starfi þeirra.
i
Til Tfzkublaðsins LIF, Ármúla 18, 105
Reykjavik.
Símar 82300 og 82302.óska eftir áskrift
Nafn
Heimilisfang...................
Sim i.,,,,,„,,„,„,,,,„,,,,„,,„
2. -6. tbl. kr. 3.390.-
3. -6. tbl. kr. 2.945.-
Tískublaðið LIF
er komið út