Þjóðviljinn - 15.07.1978, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. júli 1978
Umsjón: Helgi Ólafsson
„World Open” í Bandaríkjunum
Árangur Ingvars
engin tilviljun
(Afar slappur leikur sem færir
svörtum frumkvæðið á silfur-
fati. Mun sterkara er 10. Be3,
eöa 10. a3)
10. .. Dd7 13. Bc3 Rd4
11. Rc4 b6 14- Bxb7 Dxb7
12. Bd2 Bb7 15. Bxd4 Bxd4
(Svartur hefur þegar leyst öll
vandamál og stendur jafnvel
betur aðvigi. A.m.k. er erfitt að
finna haldgóða áætlun fyrir
hvltan.)
16. a4 Had8 18. a5?
17. Dc2 Hfe8
(Skilningsleysi hvits á stöðunni
er algjört. Þessi framrás þjónar
aöeins hagsmunum svarts.)
18. .. h5
(Blæs til atlögu á kóngs-
vængnum. Það er athyglisvert
að svartur hefur frumkvæöi
hvert sem litið er. A kóngs-
vængnum, drottningar-
vængnum og á miðborðinu. Er
hægt að biðja um meira?)
19. axb6 axb6
20. h4
(Affarasælla heföi liklega verið
að leika 20. f3 og siðan Kf2 við
hentugt tækifæri.)
- 20. .. Dc7
(Hótar 21. - Dxg3+)
21. Kg2 Dc6+ 24. f4 b5
22. Kh2 Ha8 25. Rd2 Hxal
23. e3 Bg7 26. Hxal e5!
(Kraftmikill leikur sem
opinberar veilurnar í stöðu
hvits. staða hans er begar
töpuö.) 6
27. Re4 exf4 29. Hdl Dd5
28. exf4 c4 30. Dg2 Dd4
(30. - cxd3 hefðu verið ömurleg
endalok vegna 31. Rf6+)
31. Hel Kf8 34. Db7 Df2+
32. dxc4 f5 35. Kh3 Dfl+
33. Rg5 Hxel
— Hvitur gafst upp.
Það er vist óhætt að fullyrða
að sjaldan hafi tslendingur
komið jafn mikið á óvart i
keppni og Ingvar Asmundsson á
„World Open”— skákmótinu i
Bandarikjunum i siðustu viku.
Eins og kunnugt er lenti hann i
1-7. sæti af u.þ.b. 500 kepp-
endum og slikt segir ekki svo
litia sögu. 1 hugum þeirra er
heitna sátu hefur árangur hans
uggiaust verið túlkaður sem
heppni og það mikil. En sem
áhorfandi af skákum hans getur
sá sem þessar linur skrifar full-
vissað þá að svo var ekki.
Ingvar tefldi allt mótið út i gegn
af mikilli hörku og grimmd og
gaf ekkert eftir, þrátt fyrir
hinar óvenjulega erfiðu að-
stæður. Mótið hófst 30. júni og
lauk 4. júlf, ails 9 umferðir. Þar
af voru 8 umferöir tefldar á 4
dögum eða 2 skákir á dag.
Skyidi engan undra þó einhver
þreyta hafi veriðfarin aösetjast
i menn er liða tók á mótið.
Arangur Islensku keppend-
anna, en þeir voru 14, varð
þessi:
7 1/2 v. Ingvar Asmundsson. 6
1/2 v. Margeir Pétursson 6 v.
Jón L. Arnason og Helgi Ölafs-
son 5 1/2 v. Ásgeir Þ. Arnason,
Benóný Benediktsson, Jóhann
Þ. Jónsson, Guðni Sigurbjarnar-
son og Bragi Halldórsson 5 v.
Sævar Bjarnason, Jóhannes
Glslason 4 1/2 v. Leifur Jó-
steinsson og Guðmundur
Agústsson 4 v. Þórir Ólafsson.
Li'klega hefur Ingvar As-
mundsson unnið flestar skákir i
röð á mótinu eöa 6 talsins. Sigur
hans yfir Saltzman, sem er
landflótta Rússi, var árangur
einhverjar fallegustu leikfléttu
sem ég hef séð lengi:
Staðan kom upp eftir 40. leik
svarte De6-d5 (leikinn I æðis-
gengnu timahraki). Ingvar sem
nú átti skyndilega nógan tlma
lagðist djúpt i stöðuna og fann
bráösnjallan leik:
41. e6!! Dxe6
(Eöa 41. - fxe6 42. Df6+ og lokin
eru skammt undan.)
42. Dh8+ Ke7
(Eini leikurinn. Saltzman hefur
vafalaust búist við framhaldinu
43. Dxh6 með óljósri stöðu, en
litið á næsta leik hvlts.)
43. Dal!!
(Stórkostlega leikið. Það finnst
engin vörn gegn 44.Rc5. Saltz-
man gafst upp. Lokastaðan
verðskuidar stöðumynd)
Reyndar minntu lokin mig á
lausn skákdæmis sem ég iæt
fljóta með til gamans:
Hvltur leikur og vinnur:
Lausnin er eftirfarandi:
i. Dg8!
(Auðvitaðekki 1. Dxal ogsvart-
ur er patt.)
1. ...I)a2!
(Eina vörnin gegn hótunum 2.
Ke7 og 2. Kd7 mát.)
2. De8! Da4
(Aftur eini leikurinn)
3. De5+ Ka8 4. Dh8!
— ogsvartur er varnarlaus. Það
er athyglisvert aö 1. De8 strax
strandar á 1. - Dg7! o.s.frv.
En nóg um það. Hér birtist
svo ein vinningsskák Ingvars i
fullri lengd:
Hvitt: Katiein
Svart: Ingvar
Enski ieikurinn
1. c4 Rf6 6. cxd5 Rxd5
2. Rc3 g6 7. 0-0 C5
3. Rf3 Bg7 8. Rxd5 Dxd5
4. g3 0-0 9. d3 Rc6
5. Bg2 d5 10. Rd2?
Skotlandsfarar valdir
Af unglingalandsliði
(lið yngri manna)
Þá er vali á unglingalandsliði
á Evrópumót yngri manna
lokiö. Liðið verður þannig
skipað : Sigurður Sverrisson,
Skúli Einarsson, Guömundur S.
Hermannsson og Sævar Þor-
björnsson.
Mótið hefst siöla I ágúst
mánuði, og verður keppt i
háskólabænum Stiriing, i Skot-
landi.
Alls munu 18 þjóðir taka þátt i
mótinu, og er það svipuð tala og
undanfarin ár. Spilaðir veröa 20
spilaleikir, aliir v/alla. Fyrirliði
liðsins, er Sverrir Armannsson.
Bæði þessi pör hafa náö
ágætum árangri hér heima sl.
keppnistimabil, og voru td.
saman i sveit si. vetur.
Ættu þau að standa sig með
prýði, i Skotlandi.
Frá New Orleans
I New Orleans voru veitt hin
ýmsu verðlaun af hálfu alþjóða-
bridgesambandsins, og kjörnir
voru td. „menn ársins” og
„Ahugamaður ársins” auk þess
sem i boði er C.C. Wei og frú
héldu bridgefréttamönnum og
stjórn alheimssambandsins,
auk velunnurum, voru veitt
Precision verðlaun þeim, er reit
bestu bridgegrein ársins. Þau
voru veitt Jeff Rubens, ritstjóra
The Bridge World, fyrir grein
hans „Puppet Stayman”.
Hvernig væri að nálgast hana,
Jakob?
Forseti Alheimssambandsins
i Bridge, Jaime Ortiz-Patino,
var kjörinn bridge-maður
ársins, fyrir eljusamt starf iþágu
bridge, þann stutta tima sem
hann hefur gegnt forseta-
starfinu, auk þess sem hann
hefur beint iþróttinni á hærra
svið og aukið athygli manna á
gildi hennar. Auk þess sem hann
gegndi starfi gjaldkera Evrópu-
'Sambandsins.
„Sportmaður ársins”, eða
velunnari ársins, var valinn
Maurits Caransa frá Hollandi,
sá hinn sami og rænt var sl. ár,
og krafist lausnargjalds fyrir.
Hann er einn áhrifamesti auð-
maöur Hollands, og hefur alla
tið verið sérstakur áhugamaður
um framgang bridge, ekki
aðeins i Hollandi heldur og viða
i heiminum.
Caransa átti slæma tima i
ræningjahöndum, og enn þann
dag i dag, er hann i hægfara
endurhæfingu vegna alls þess,
sem hann mátti þola.
Af tslands hálfu, sótti Jakob
R. Möller boð þetta, sem haldiö
var á vlðfrægum veitingastað i
borginni, og voru gestir Wei-
hjónanna um 100.
Eins og kunnugt er, samdi
C.C. Wei, Precision kerfiö, sem
á Islandi er hvað vinsælast -i
dag.
Af bikarkeppni
BSÍ-sveitakeppni
Þættinum hafa borist úrslit úr
nokkrum leikjum, sem lokiö er I
1. umferð (32 liða).
Sveit Vigfúsar Pálssonar
Reykjavik, sigraði sveit Páls H.
Jónssonar Akureyri, með 24
stigum.
Sveit Guðmundar Páls Arnar-
sonar Reykjavik, sigraöi sveit
Sigurðar B. Þorsteinssonar
Reykjavik, með 29 stigum.
Sveit ólafs Lárussonar Kópa-
vogi, sigraði sveit Sigurjóns
Tryggvasonar Reykjavik, meö
28 stigum.
Sveit Armanns J. Lárussonar
sigraði sveit Eiriks Helgasonar,
með 27 stigum.
Sveit Alfreðs Alfreössonar
sigraöi sveit Jóns Alfreðssonar
Akranesi.
Sveit Hjalta Elíassonar
Reykjavik, sigraði sveit Krist-
jáns Kristjánssonar, Reyðar-
firði.
Frá Asunum
Sl. mánudag, var keppt I 2
riölum. Þátttaka er sýnilega að
aukast að mun, og eru bridge-
áhugamenn hvattir til að mæta
vel næsta mánudag. Þessi urðu
úrslit sl. mánudag: A-riðill:
1. Sigfús Þórðarson —
Vilhj. Pálss. Self. 203 st.
2. Óli Már Guömundss. —
Þórarinn Sigþórss. 193 st.
3. Jón Hilmarsson —
Oddur Hjaltason 187 st.
4. Siguröur Sverrisson —-
Sævar Þorbjörnss. 183 st.
B-riðill:
1. Siguröur Sigurjónsson —
Trausti Finnbogason 181 st.
2. Baldur Kristjánsson
Hrólfur Hjaltason 178 st.
3. Haukur Ingason —
Þorlákur Jónsson 173 st.
4. Erla Eyjólfsdóttir —
Gunnar Þorkelss. 173 st.
Allir eru velkomnir næsta
mánudag, meðan húsrúm
leyfir.
Frá BR
Vakin er athygli á þvl, aö
aðalfundur félagsins verður
haldinn nk. þriðjudag, I Domus
Medica og hefst hann kl. 20.30. Á
dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf auk verölauna-
afhendingar. A fundinum verða
einnig afhentir bronsstigamiðar
þeim, er þá eiga inni hjá
bridge
Umsjón:
Óiafur
Lárusson
féiaginu. Einnig er stjórnarkjör
á dagskrá.
í dag, laugardag verða bikar-
leikir á dagskrá, og hef jast þeir
kl. 13.00 i Domus Medica. öllum
er frjálst að spila leiki þar, þeir
sem vilja, bikarleiki sem
æfingaleiki.
Félagsmenn eru eindregið
hvattir til að mæta.
Fyrirspurn
Menn hafa komið til min og
spurt, hvort ég vissi eitthvaö um
afdrif bikarkeppni BSí-tvim.
Ég sagðist ekkert vita, heföi
ekki mætt i neina jarðarför né
séð auglýst andiát keppninnar I
blöðum. Þó benti ég þessum
mönnum á, að hafa samband
við nánustu aðstandendur, ef
þeir vildu fregna mála, frekar
en orðið væri.
Nefnilega, mér var kennt i
æsku, aö Iáta hina látnu hvila i
friði, sem ég hef og gert. Eða
missti ég af jarðarförinnr.
Er kannski búið að birta
úrslitin? Hvar?