Þjóðviljinn - 15.07.1978, Page 11
Laugardagur 15. jiili 1978 ^JOPVILJINN — StÐA 11
Verða sett met í dag?
Meistaramót tslands i frjáisum
iþróttum fer fram á Laugardals-
velli f dag og einnig á sunnudag
og hefst þaö báða dagana klukkan
14.00.
Þá verður einnig keppt á mánu-
daginn I fimmtarþraut karla og
3000 metra hindrunarhlaupi.
Það er ekki f jarri lagi að áætla
að einhver tslandsmet sjái dags-
ins ljós i dag. Það er aldrei að vita
hvað Hreini Halldórssyni dettur i
hug að gera en það skýrist ekki
fyrr en á keppnisstað.
Hörkukeppni verður eflaust á
milli óskars Jakobssonar og
Erlends Valdemarssonar i
kringlukasti en þeir eiga svipað-
an árangur i sumar.
Alls verða keppendur um 140
talsins frá hinum ýmsu héraðs-
samböndum. Mun keppnin standa
yfir frá klukkan 14.00 báða dag-
ana og til 16.30 og það er þvi
greinilegt að sitthvað verður um
að vera á Laugardalsvelli á
morgun. Tima-seðill fyrir mótið
er i blaðinu I gær.
SK.
Sefur KSÍ á verðmum?
Siguröur Haraldsson skrifar „Úr markteignum
Hreinn Halldórsson er sá maðui
sem á að geta gert hvað stærsta
hluti á mótinu i dag. Hvað kastar
hann langt?
KR vann
KR og Fylkir léku i gærkvöldi i
Islandsmótinu i knattspyrnu 2.
deild og lauk leiknum með sigri
KR 4:0. Staöan i leikhléi var 2:0.
Mörk KR skoruðu þeir Stefán
örn Sigurösson tvö Vilhelm
Fredrekssen og Birgir Guðjóns-
son.
Leikinn dæmdi óli Ólsen.
SK.
Otbreiöslustarfsemi KSI er eitt
af þeim verkefnum sem eru van-
rækt aö minu mati af stjórn KSI
og getur stjórnin ekki kennt um
auraleysi þvi að KSl hefur verið
rekið meö hagnaði undanfarin tvö
ár. Þegar KSl menn'ræða um út-
breiðslustarfsemi er ein-
göngu talað um aö fleiri og fleiri
unglingalandslið hafi verið send
út til keppni, viö frændur okkar
Færeyinga.
Að minu mati er ekki eingöngu
um unglingastarfsemi að ræða
þegar útbreiðslustarfsemi er
annars vegar þvi að það eru
margir aldurshópar sem hafa
ekkert við sitt hæfi I knattspyrnu-
lifinuhérá landi annað en aðfara
á völlinn. Og þegar fólk getur ekki
tekið þátt I Iþróttum af lifi og sál
er vonlegt að það leiti sér að
öðrum áhugamálum, sem aftur
verður til þess að færri og færri
hafa tíma til að fara á völlinn.
Hvað er til ráða?
Það er margt sem hægt er að
gera, og eins og ég minntist á i
siðasta pistli minum þá held ég að
það verði að rey na að finna leið til
aðgefa sem flestum tækifæri á að
reyna sig I keppni, sem skipulögð
er af forráðamönnum knatt -
spyrnumála hér á landi.
Stórt skref fram á við er
Úrvalsdeildin en það vekur
athygli mina aö það eru áhuga-
samir einstaklingar sem hafafor-
göngu um að koma þeirri keppni
af stað.
Um önnur mót væri hægt að
hugsaog er mér þar efst I huga aö
koma á fót keppni varaliöa eins
og er allstaðar annars staðar þar
sem knattspyrna er leikin. Það er
allavega sorgleg staðreynd að hér
eru mörg lib sem missa marga
góða leikmenn úr sinum röðum
vegna þess að þeir komast ekki
um stundarsakir i lið.
Reykjavikurfélögin hafa
nokkra sérstööu hér þar sem þau
hafa haft keppni sin á milli fyrir
1. flokk, enda er þaö staðreynd aö
þeim helst mun betur á mann-
skap en utanbæjarliöum. En þau
eru einnig i erfiðleikum þvi þessi
1. flokks mót vekja ekki áhuga
leikmanna og held ég að það sé
vegna þess að þau séu það
stöönuö, enda 3 mót haldin með
þátttöku sömu liða úr Reykjavik.
Hér verður KSI aö taka i taum-
ana og reyna að koma 1. flokks
keppni á meö þátttöku sem
flestra liða og reyna að skipu-
leggja mótið þannig að f járhags-
lega hlið þess veröi hægt að yfir-
stiga. Með svona keppni væri
hægt að fjöiga þeim sem fá að
leika knattspyrnu einu sinni i viku
um 10%.
Þá er knattspyrnumót fyrir-
tækja örugglega framkvæman-
legt og væri með vel skipulögðu
móú hægt að veita mörgum sem
áhuga hafa á, þá ánægju að leika
knattspyrnu einu sinni i viku.
I sambandi við unglingamál
held ég að sé nauðsynlegast ab
KSt og aðildarfélögin reyni að
finna leiðir til að byggja upp
meiri félagslega aðstöðu fyrir
unglinga á athafnarsvæðum fé-
laganna, þannig að það verði
meiri þjónusta sem unglingarnir
geti sótt til iþróttafélaganna en
bara að æfa iþróttir, þvi þó það sé
gott þá er það ekki tæmandi.
Ég held að þetta þurfi ekki að
vera f járhagslegur baggi á félög-
unum, þvi ég er viss um að væri
meira félagslegt starf unnið
innan félaganna, væri hægt að
nota það sem tekjulind til
annarra starfa.
Eitt af þvi sem allir hafa rekið
augun I sem fylgjast með knatt-
spyrnumálum hér undanfarna
daga er hvernig þjálfari liðsins
Viking frá Noregi, sem nú er I 3.
sæti i 1. deildinni norsku, eyðir
sumarfrii sinu. Hann kemur til
Islands enda öllum hnútum
kunnugur hér sem fyrrverandi
landsliðsþjálfari, og lætur það
mjög opinskátt i ljós við fjölmiðla
að hann sé hér I þeim erinda-
gjörðum að næla sér i nokkra
islenska leikmenn, til ab
„tryggja” liði sinu norska
meistaratitilinn. Og þessi maður
sem alltaf hefur kunnað að láta á
sér bera notar ýmsa fjölmiðla,
eins og Dagblaðiö til að auglýsa
veru sina hér og tilgang hennar.
Ég verð að segja aö mér finnst
hneykslanlegt að islenskir
iþróttafréttaritarar skuli ekki
hafa skorið upp herör gegn ætlun
mannsins en ég hef ekki séb neina
grein á Iþróttasiðum dagblað-
anna hér sem bendir fólki á að
norsk knattspyrna hefur ekki upp
áneitt sérstakt að bjóða fyrir þá
leikmenn sem langar aö fara og
reyna sig I atvinnumennsku. Hins
vegar hefur verið skrifað að
norska knattspyrnusambandið
hafi ákveðið að greiða leik-
mönnum landslibsins 40.000 kr.
fyrir hvern leik I stað 12.000 áöur.
Ég vona að Tony Knapp verði
ekki kápan úr þvi klæðinu að
reyna að fá góða leikmenn fyrir
Framhald á 14. siðu
Rennt
fyrir
lax"
Lýkur á metveiði
Veiði í flestum ám landsins er mun meiri en á sama tíma í fyrra
I dag hef ur göngu sina i blaðinu þáttur sem heitir
„rennt fyrir lax" og er hann um laxveiði. Er ætlun-
in að hafa hann á laugardögum og þriðjudögum
framvegis.
Skýrt verður frá veiði í hinum ýmsu laxveiðiám
landsins svo og silungsveiðinni á helstu svæðum
hennar.
I dag byrjum við á Elliðavatni, Norðurá, Grímsá
og svo Elliðaánum sjálfum, paradis okkar Reyk-
víkinga.
Norðurá
Hjá kokkinum I veiði-
húsinu i Norðurá fengum við
þær upplýsingar að veiðin
hefði gengið mjög vel það
sem af er. Alls væru nú
komnir á land um 885 laxar.
íslendingar voru við
veiðar i Noröurá frá 1. júni
en þá þvi miður tóku útlend-
ingar við veiðinni 1. júli og
hafa verið við veiðarnar
siöan. Landinn mun siðan
taka til við veiðarnar aftur i
ágúst.
Fyrsta mánuöinn, þ.e.
þegar tslendingar voru viö
veiðar komu á land 435 laxar
ofan við Stekk. Er það meiri
veiðien á sama tima i fyrra.
Útlendingar þeir sem tóku
við 1. júli höfðu I gærkvöldi
fengið 450 laxa þannig aö svo
virðist að þeir standi sig
betur en landinn. Hafa
verður þó i huga aö þeir fá að
sjálfsögðu besta tima
sumarsins en „okkur
hinum” er skammtaður
timinn i byrjun og lok veiöi-
timans.
Hjá kokkinum I veiði-
húsinu fengum við einnig -
þær upplýsingar aö vatn i
ánni hefði verið með minna
móti undanfarið en það væri
nú þegar farið að aukast
aftur. Alls komu á land i
fyrra úr Norðurá 1470 laxar.
Elliðaárnar
Hjá Friðrik Stefánssyni
hjá Stanga veiðifélagi
Reykjavikur fengum við þær
upplýsingar að allar likur
væru á metveiði i Elliöa-
ánum I sumar. Þegar væru
komnir á land um 470 laxar
en á sama tima i fyrra heföu
þeir verið 281. Þetta væri þvi
um 65% aukning. Þessar
tölurerufrá 13. júli. Þann 19.
júli s.l. ár voru komnir á land
400 fiskar og sagði Friðrik að
segja mætti að við værum
um 9 dögum á undan áætlun.
Af þeim 470 löxum sem
þegar hefðu veiðst I sumar
sagði Friðrik að um 120
heföu veiðst á flugu og færi
það vaxandi að menn reyndu
þá veiðiaðferð er hlýna tæki.
Alls komu um 1240 laxar á
land úr ánum I fyrra.
Grímsá
Úr Grimsá komu i fyrra
1103 fiskar en Elsa Þorkels-
dóttir aðstoðarstúlka I veiði-
húsinu vib Grimsá sagði
okkur i gær aö nú væru
komnir á land um 700 fiskar
og er þaö mun meiri veiði en
i fyrra.
Frá þvi að veiðin hófst
hefur iaxinn ekki látiö á sér
standa þrátt fyrir þaö aö
vatniö i ánni hefði verið litið
framan af en það færi nú
vaxandi með hverjum degi.
Elsa sagði aö nú væru
aðeins útlendingar við veiðar
I ánni og væri aðeins leyfilegt
að veiða á flugu. Útlending-
arnir veröa við veiðar til 7.
ágústen þá fá tslendingar að
komast að aftur. Stærsti lax-
inn sem veiðst hefur til þessa
var 18 pund og veiddist hann
á flugu sem Skröggur heitir.
Elliðavatn
„Hér I Elliðavatni fór
veiðin rólega af stað en eftir
að framkvæmdum lauk viö
stifluna hefur vatnið aukist
og veiðin að sama skapi”,
sagði Vignir Sigurðsson
veiðivörður við Elliðavatn er
Góð veiði hefur verið I Grimsá I sumar eins og fram kemur I þættinum.
A myndinni sést maður renna fyrir lax i veiðistað sem heitir Jötna-
brúarfoss.
við slógum á þráðinn til hans
I gærkvöldi.
„Það veiðist nú einna mest
hér á flugu ef hlýtt er i veðri
en annars eru menn hér
einnig lagnir við að veiða á
maðkinn og hrognin.”
Að sögn Vignis er það tölu-
verð kúnst að veiða I vatninu
og oft eru það sömu
mennirnir sem stunda
veiðina hvaö harðast.
Nauösynlegt væri að ráða
bót á þessu og vildi Vignir
nota tækifærið og skora á
alla Reykvikinga að koma i
vatnið og veiöa. Veiðileyfin
væru ódýr og oft væri hægt
að eiga skemmtilegt kvöld
við Elliðavatn. SK