Þjóðviljinn - 15.07.1978, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. júll 1978
Fulltrúi
Hitaveita Akureyrar óskar að ráða nú
þegar til starfa fulltrúa á skrifstofu Hita-
veitunnar, með viðskiptafræði- eða tækni-
menntun.
Umsóknir er greini aldur menntun og
fyrri störf skulu sendar undirrituðum
Hafnarstræti 88b Akureyri fyrir 24 júli n.k.
Undirritaður veitir nánari upplýsingar
um starfið
Hitaveitustjóri
Bókari óskast
á skrifstofu vinnuheimilisins að Reykja-
lundi. Heilsdags framtiðarstarf i góðri
vinnuaðstöðu.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri Helgi
Axelsson i sima 66200
Vinnuheimiiið að Reykjalundi.
Reyðarfjörður
Þar sem lagfæra á og slétta kirkjugarðinn
á Búðarmel i sumar er nauðsynlegt að
þeir sem óska að merkja leiði eða á annan
hátt annast sjálfir um frágang leiðanna
gefi sig fram sem allra fyrst eða i siðasta
lagi 30. júli við Kristinn Þ. Einarsson
Reyðarfirði i sima 97-4140.
Sóknarnefnd Reyðarf jarðar.
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
Landspitalinn.
Staða Sérfræðings við brjóstholsað-
gerðadeild spitalans er laus til
umsóknar. Áskilið er, að sérfræð-
ingurinn hafi starfað i sérnámi við
h jartaskurðlækningar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun
og fyrri störf, sendist skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 16. ágúst n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deild-
arinnar i sima 29000.
Staða sérfræðings i lyflæknisfræði
og öldrunarlækningum við öldrun-
arlækningadeild i Hátúni 10B er laus
til umsóknar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun
og fyrri störf, sendist skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 20. ágúst n.k.
Upplýsingar veitir yfirlæknir deild-
arinnar i sima 29000.
Reykjavik, 17.7.1978
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000
Gisli Guðmundsson skrifar:
Fátt um fína—
og þó
Það er yfirleitt fátt um fina
drætti hér núorðið. Ég meina
drætti úr sjó. Þó kom það fyrir i
gær, 6/7, að Þorvaldur Krist-
jánsson, sem stundar hér hand-
færaveiðar á sumrin á þriggja
rúmlesta opinni trillu, fékk á
færið sitt 120 kg. þunga lúðu,
sem Vestfirðingar kalla svo, en
heitir réttu nafni flyðra.
Þorvaldur var á annan klt. að
lokka hana upp. Loks kom hann
á hana höfuðhöggi og stungu til
óllfis. En ekki gat hann innbyrt
hana. Hann tók þvi þaö ráð,
eins og þeir hafa það á hvalbát-
um með hvalina, að binda hana
á siðuna. Næsta öryggisráöið
var að kalla upp i talstöð nær-
liggjandi trillu og kom hún til
aðstoðar viö aö koma skepnunni
innfyrir borðstokkinn.
Veiðarfærið var tveggja mm
færi og 1,4 mm slóði. Hvoru-
tveggja nælon.
Það má teljast vel að verki
staðið að ná þessari dýrmætu
skepnu upp. Verömæti hennar
var 45 þús. kr. en það er kr.
380,- fyrir kg. Að auki i stofn-
fjársjóð kr. 4560,— eða samtals
kr. 50.160,- Það má kallast góður
dráttur þaö.
Gisli Guðmundsson. Gisli Guðmundsson
Leiörétting
-5 en ekki 3
Stundum bila heimildir þótt
öruggar séu ætlaðar.
Landpósti hefur verið bent á
aö ekki sé rétt hermt frá sveit-
arstjórnarkosningum i Tjörnes-
hreppi, sem getið var um hér á
siöunni sl. miðvikudag. Er þvi
sjálfsagt að birta fréttina hér á
ný, aukna og endurbætta, og llt-
ur hún þá þannig út:
1 Tjörneshreppi voru tveir
listar i kjöri: H-listi, sem borinn
var fram af Guðmundi G. Hall-
dórssyni og Gunnari Sigurðs-
syni og fékk hann fjóra menn
kjörna: Úlf Indriðason, oddvita,
Héðinshöfða, Kristján Kárason,
bónda, Ketilsstöðum, Eið Arna-
son, múrarameistara, Hall-
bjarnarstöðum, og Halldór Sig-
urðsson, bónda Syðri-Sandhól-
um. I-listi var borinn fram af
Sigriði Parmesdóttur og Ingi-
björgu Sigtryggsdóttur og fékk
hann einn mann kjörinn: frú
Sigrúnu Ingvarsdóttur á
Héðinshöfða.
Sjálfkjörinn til sýslunefndar
var Clfur Indriðason af H-lista
og Gunnar Sigurðsson, Arholti,
til vara.
A nýafstöðnum fundi hinnar
nýju sveitarstjórnar var (Jlfur
Indriðason einróma kjörinn
oddviti,en varamaður hans var
Kristján Kárason kosinn með 4
atkv.
—mhg
Kristján Pétursson skrifar:
Hvers eiga Barðstrendingar að
gjalda í verslunarmálum?
Eru Barðstrendingar nauö-
■ beygðir til að versla viö Kaup-
félag Patreksfjarðar og lúta
■ þeirri þjónustu, sem það býður
■ upp á? Er ekki lýðræðið orðið
það mikið á Islandi ennþá að
I menn megi versla þar, sem þeir
i kjósa helst?
Bændur hér leggja allar sinar
I afurðir inn hjá Kaupfélagi
• Patreksfjarðar að þeim frá-
g teknum, sem hafa mjólkursölu.
• Siðan er fé bænda bundið inni
I hjá kaupfélaginu I þvi skyni, að
i þeir versli ekki annarsstaðar.
| En hver er svo þjónustan? Það
er náttúrlega hlaupið upp til
■ handa og fóta og umbeðin vara
I send heim aö dyrum bænda eins
[ og annarsstaðar gerist þar sem
| heilbrigð og eðlileg verslunar-
■ þjónusta rikir? Onei, það er að-
I eins áburðinum, sem ekið er
| heim og hluta af þeim fóður-
i bæti, sem bændur þurfa að nota
> en þá á aökeyptum bjlum. Alla
| aðra nauðsynjavöru verða
I bændur sjálfir að sækja á slnum
■ eigin bilum. En nú eiga ekki all-
| ir bila, og hvernig fara þeir að?
Að visu er Mjólkurstöðin að
, reyna að hlaupa undir bagga og
| taka pakkaflutning, en það er
' takmarkað, sem hún getur tekið
| með mjólkur- og póstflutning-
I um. Og fær svo kannski ekkert
[ þakklæti fyrir að vera að fást
| við pakkaflutning. 1 það
■ minnsta finnst verslunar-
I stjóranum ýmsir annmarkar á
, þvi að koma þessum flutningi á
| Mjólkurstöðina.
Tvö ár tekur það að fá afurö-
. irnar greiddar hjá kaupfélaginu
I og næst þó aldrei grundvallar-
j verð. Aramótareikningar frá
| kaupfélaginu til bænda koma
• ekki fyrr en i mars-april og svo
| kemur fyrir aö þeim er lokaö án
■ nokkurs fvrirvara.
L
Bændur hafa unnið að slátrun
hjá kaupfélaginu og eiga að fá
vinnulaun sin greidd i pening-
um. A greiðslu er oftast einnar
til tveggja vikna bið og siðan er
hún færð inn i reikninga og út á
hana verður svo að taka vörur.
Ætli bændur að taka
heim skrokk af sinu eigin kjöti
þá verða þeir að kaupa hann
okurverði sem svarar þvi, að sé
tekinn út einn skrokkur verður
að leggja tvo inn i staðinn.
Kaupfélagiö er með oliusölu,
og það rekur frystihús ásamt
Sambandinu. Ég hef nú dundað
við að róa. á trillu, sem ég á, og
lagt fiskinn inn hjá nefndu
frystihúsi. Ekiðfiskinum sjálfur
inn á Patreksfjörð á dráttarvél.
Eitt sinn var ég oliutæpur og
dældi 54 ltr. af oliu á dráttarvél-
ina, hjá söluturni kaupfélagsins.
Þetta geröi 900,- kr. Ég hafði
ekki aura á mér, bjóst við að
þetta yrði skrifaö til mánaða-
móta, ekki sist þar sem ég var
nú að leggja inn fisk hjá fyrir-
tækinu. Þarna vann ung og
elskuleg stúlka, sem sagði aö
sér væri bannað að skrifa oliu.
Og þarna virtist vera komið
upp heilmikið vandamál, sem
leystist með þvi, að blessuö
stúlkan ságðist borga þetta sjálf
I bili, eða þar til ég kæmi með
aura, sem ég auðvitað gerði
fljótlega.
Svo bar til hér fyrir nokkrum
árum að gamall bóndi, sem bú-
inn var að versla mörg ár við
kaupfélagið, pantaði sér gasoliu
til upphitaunar yfir veturinn.
Olian var pöntuð snemma i
september. En þaö dróst
stöðugt að bóndinn fengi oliuna
þótt alltaf væri verið að aka
henni á aðra staði. Liður nú að
jólum og þá fær þessi gamli
bóndi fyrst að vita það, að öll
olia sé búin og hann fái enga og
allir vegir að verða ófærir
vegna snjóa. Ekki get ég kallað
þetta heilbrigð viðskipti. Og
ekki sýnist mér þetta vera sam-
vinnustefna.
Nei, Barðstrendingar eiga að
stofna sitt eigið kaupfélag I sinni
heimabyggð. Við eigum marga
unga og dugandi menn, sem
eiga að beita sér fyrir þvi, að
verslunin sé færð inn I hrepp-
inn. Barðstrendingar eiga ekk-
ert að þurfa að krjúpa fyrir
kaupfélagi Patreksfjarðar og
láta draga sig þar I dilka þann-
ig, aö þegar Páll fær fjórar
brauðsneiðar þá fær Pétur eins
og Gunnar Enga, samanber
gamla bóndann og oliuna.
Kristján Pétursson,
Skriönafelli.
Umsjón: Magnús H. Gíslason
f