Þjóðviljinn - 22.07.1978, Side 3

Þjóðviljinn - 22.07.1978, Side 3
Laugardagur 22. júli 1978 ÞJÚÐVILJINN — SIÐA 3 Eritrea: ELF á í vök aö veriast 21/7 —I Reuter-fréttfrá Kassala i Súdan (rétt hjá landamærum Eritreu) segir, aö svo virðist sem stjórnarher Eþiópiu sé nii I þann veginn aö vinna sinn fyrsta meiri- háttar sigur i yfirstandandi sókn sinni á hendur sjálfstæöissinnum i Eritreu, sem hófst fyrir fimm vikum. Sækir Eþiópiuher meö mikluliöi, studdu skriödrekum og striösþotum, aö borginni Tessenei, sem er samgöngumiö- stööog markaður fyrir láglendið i Eritreu vestanveröri. Sjálf- stæöishreyfingin ELF hefur haft borg þessa á valdi sinu siöan i aprili fyrra, ensvo ernií að heyra á talsmönnum ELF að hætta sé á aðTessenei falli Eþiópum i hend- ur. ELF hefur kvatt til liðsauka aö verja Tessenei, þar á meöal heimavarnarliö bænda, sem hversdagslega mun ekki taka þátt i bardögunum viö hliö skæru- liða hreyfingarinnar. En aö sögn fréttamannsReutersá ELF erfitt meö að einbeita liði sinu til varn- ar borginni, þar eð hreyfingin á i vökaö verjast fyrir sóknEþiópiu- hers á tvennum vigstöðvum aust- ar. Bólivía: Uppreisn hægriöfgamanna — umsátursástand 21/7 — Herforingjastjórnin i Bóli- viu lýsti i dag yfir umsátursá- standi i landinu eftir aö stuön- ingsmenn frambjóðanda hægri- manna i nýafstöðnum forseta- kosningum geröu uppreisn i nokkrum borgum með stuöningi nokkurs hluta hersins. Kosning- arnar fóru fram 9. þ.m., og sam- kvæmt tilkynntum úrslitum vann frambjóðandi hægrimanna, sem herforingjastjórnin studdi, hers- höfðingi aö nafni Juan Pereda Asbun, með miklum meirihluta atkvæða. Andstæöingar herforingja- stjórnarinnar sögöu kosningatöl- urnar marklausar, þar eð stuön- ingsmenn Pereda heföu framiö griöarlegt kosningasvindl. og er- lendir aðilar, sem fylgdust meö kosningunum, voru þar á sama máli. Sá herforingjastjórnin sér þá ekki annað fært en að lýsa kosningaúrslitin ógild. Yfirvöld hafa heitið öðrum kosningum inn- an sex mánaöa, og ætla herfor- ingjarnir aö fara meö völd þang- aö til. Hugo Banzer, forsprakki herforingjanna frá valdaráni þeirra I byrjun áratugsins, mun þó vikja úr forsetaembætti i ágúst. Harðlinumenn meðal hægri- manna undu þvi hinsvegar ekki að Pereda skyldi ekki fást settur inn I embætti forseta og geröu þvi uppreisnir I Santa Cruz i aust- urhluta landsins, Cochabamba i miöju landinu og i Potosi-hérað- inu sunnanvert. 1 Potosi-héraöi, þar sem námuvinnsla er mikil, hafa vinstrimenn mikið fylgi og eru árekstrar þar tiöir milli her- manna og vinstrisinnaöra námu- manna. Enn viröist allt á huldu um það, hvernig herforingja- stjórnin bregst viö uppreisn hinna ofstækisfyllstu meðal stuönings- manna sinna. Carter mundi lita dópneysiu starfsmanna sinna mjög alvarlegum aug- um. Hvita húsið 21/7 — Jody Powell, blaðafulltrúi Carters Bandarikjaforseta, sagði i dag aö sér væri ómögulegt aö komast á snoöir um, hvort starfs- menn Hvita hússins neyttu mari- júana eða kókains. Powell sagöi þetta eftir að Peter Bourne lækn- ir, fyrrum aðalráðgjafi Carters um heilbrigðismál og fiknilyfja- neyslu, lét hafa eftir sér aö hann héldi að starfsmenn forsetaem- bættisins notuöu marijúana i í dópinu? stórum stil og kókain endrum og eins. Powell þótti vissara aö taka þaö fram, að Carter forseti væri mjög á móti slikri neyslu starfsmanna sinna. — Bourne sagöi af sér i gær eftir aö hafa viðurkennt, að hafa falsað lyfseöil út á mjög sterkt lyf fyrir konu, sem starfaöi hjá hon- um. Þetta lyf er ætlað gegn þung- lyndi og er misnotkun þess sögð mjög algeng. Kona Slepaks ákærð 21/7 — Mariu Slepak, konu Vladimirs Slepak, andófs- manns af gyðingaættum, hefur verið stefnt fyrir rétt i Moskvu, og er hún sökuð um óspektir á al- mannafæri. Eiginmaður hennar var í s.l. mánuði sakaður um það sama og dæmdur til fimm ára út- legðar frá heimahögum. Slepak-hjónin voru hand- tekin í s.l. mánuði er þau höfðu tekið sér stöðu á svölum íbúðar nokkurrar í Moskvu og héldu á lofti spjaldi, sem á var letruð krafa um vegabréfsáritun til ferðar úr landi. AUGLÝSINGASTOFA KRISTlNAR 15.28' Enn eykur Olíufélagið þjónustu sína. ^ lú :' : «i 1 Olíufélagið hefur endurbyggt bensínstöð sína og verslun í Fossvoginum og býður þar upp á fyrsta flokks þjónustu. HRAÐVIRKAR RAFEINDADÆLUR Eitt ár er síðan Olíufélagið tók að nota hraðvirkar rafeindadælur á bensínsölustöðum sínum. Þeim fjölgar stöðugt og nú bætist Nesti í Fossvogi í hóp þeirra. RÚMGÓÐ VERSLUN r I versluninni, sem er helmingi stærri og rúmbetri en áður, býðst nú fjölbreytilegt vöruúrval. ÞVOTTAAÐSTAÐA Og þvottaplanið, stendur sem fyrr, fyrir sínu. VERTU VELKOMINN í FOSSVOGINN Olíufélagið hf h ijl i n'1$. ■ /" / J l-jJ .+•* jp|rif 1 ~ [ 1 ' tsso fr , f : | <B>cs vsx Ú

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.