Þjóðviljinn - 22.07.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.07.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 22, júli 1978 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 5 Samnorrænir sjónvarpshnettir innan fárra ára? Hvað er NORDSAT? Furðulitið hefur verið fjallað um þetta sam- norræna sjónvarpsfyrir- bæri hérlendis, þrátt fyrir þá staðreynd, að verði áætlunin fram- kvæmd, mun sjónvarps- neysla gjörbreytast á ís- landi og hinum Norður- löndunum og einnig má búast við að menning- ar og félagslif taki stakkaskiptum. — Þjóð- viljinn sneri sér til Njarðar P. Njarðvík til að forvitnast nánar um hina fyrirhuguðu sam- norrænu sjónvarpsáætl- un. — Hvenær varð NORDSAT - hugmyndin til? — Þessihugmynd varð upphaf- lega til, þegar umræður hófust um aukna samvinnu Norðurlanda i Utvarps- og sjónvarpsmálum. Hugmyndin var að senda út nor- ræna dagskrá, og var kallað sænska heitinu ,,TV över gránserna”. Ætlunin var að senda sér á öllum Norðurlöndum. Siðan kemur til sögunnar sií til- laga að skjóta upp gervitungli. Mérerekkialveg ljóst, hvaðan sú hugmynd er komin, en hUn var gerð undir þvi yfirskini, að það eigi að auka menningarleg sam- skipti milli Norðurlanda. — Hvernig er NORDSAT - áætlunin hugsuð i framkvæmd? — Hér er um að ræða tvö gervi- tungl, sem ætlunin er að skjóta á loft, og á annað að ná yfir Dan- mörku, Noreg, Sviþjóö og Finn- land, en hitt þekur landsvæði ís- lands, Grænlands og Færeyja. Gert er ráð fyrir, að i hverju landi megi sjá i heild sjónvarps- dagskrá hinna landanna. Og þá ekki einvörðungu norrænt efni, heldur allt efni, sem flutt er. — Hver er áætlaður kostnaður við NORDSAT? — Kostnaðurinn er tvenns kon- ar. Ifyrsta lagi er hér um að ræða kostnað við að skjóta gervihnött- unum á loft og halda þeim við. Þessi kostnaður er þá gr eiddur af rikisstjórnum viðkomandi Norð- urlanda, mö.o. borgaður með opinberu fé. 1 öðru lagi verður að taka með i reikninginn kostnað einstakra sjónvarpsneytenda. Til að ná NORDSAT-dagskránum á skjáinn, verða menn að kaupa þrenns konar tæki: Spegilloftnet, sem sett er á hUsþakið, „Trans- formator” sem er settur milli loftnets og sjónvarps, og breytir bylgjum i mynd, og þá þurfa menn svonefndan „Tex decoter”, sem gerir fólki kleift að velja texta á einhverju Norðurlanda- málanna. Ef þetta er allt saman lagt saman, nemur upphæðin 80 miljörðum sænskra króna eða 4600 miljarðir isl. króna. Þessi tala er byggð á fjölda sjónvarps- neytenda á Norðurlöndum. Það er áætlað að það kosti Is- lenska rikið 800 miljónir — 1 mil- jarð isl. króna — á ári að reka sinn hluta af NORDSAT-áætlun- inni. NU vakna spurningar: Er þetta gert til að auka menningar- samstarf Norðurlandanna? A að leggja alla þessa peninga i það eitt, að fólk horfi á sjónvarp? í öðru lagi: Ef islenska rikið leggur fram 800 miljónir á ári til að við getum séð prógrömm frá öllum Norðurlöndunum, er sú fjárhæð ekki i nokkru samræmi við fjár- framlög rikisins til menningar- mála að öðru leyti. Hins vegar er auðsýnilegt, hverjir munu hagnast á þessu, nefnilega framleiðendur, um- boðsmenn og seljendur rafeinda- útbúnaðar. A bak við NORD- SAT-fyrirtækið má greina fjöl- þjóðlega auðhringi á borð við General Electric, Hughes Aircraft, NASA, LM Erics- son og fleiri. Þarna má eygja dæmigerð vinnubrögð alþjóð- legra auðhringa, þ.e. að búa til nýjan markað og skapa nýja þörf, sem áður hefur ekki verið til. Það er vaxandi skoðun mjög margra á Norðurlöndum, að NORDSAT-áætlunin muni fyrst og fremst vinna i þágu þessara auðhringja. Þá lit ég svo á, að meginforsendan, sem upp er gef- in: að efla menningartengsl Norðurlanda, sé fölsk. — Hvað með menningarpóli- tiska hlið máisins? — Ef við byrjum á Islandi, þá þarf NORDSAT-Vest, eða „okkar hnöttur” að hafa 5 sjónvarpsrás- ir, og þaraf eiga Danir að ráða tveimur, sem ná munu Grænlandi og Færeyjum. Jafnframt munu þessar rásir ná Islandi. Þetta mun hafa i för með sér að fram- boð á sjónvarpsefni á Islandi mun tifaldast, eða breytast Ur uþb. 35 stundum á viku I uþb. 400 stundir á viku. Ekkert hefur verið kannað hvaða menningarleg og félagsleg áhrif NORDSAT muni hafa á lif þessara þjóða. Og ég veit ekki til þess, að málið hafi nokkurn tim- ann komið til umræðu á Alþingi. Ef þessi áætlun nær fram að ganga, mun hún einnig hafa i för með sér minnkun á framboði á islensku efni. íslenskt efni er núna um 3040% af heildarefni Njörður P. Njarðvik Sjónvarpsins, en mun þá minnka niður i 5% af framboðnuefni. Það er óhætt að fullyrða það, að þetta mun hafa þá hættu I för með sér að framleiðsla á innlendu sjón- varpsefni hinna minni málssvæða mun eiga miklu erfiðara upp- dráttar, ef NORDSAT verður að veruleika. — Hver eru hin minni máls- Þá þótti sumum okkar kynlegt, að það ætti einungis að ræða við listamenn um lögfræði og ekkert annað. Nú er önnur sérfræðinga- nefnd, sem á að rannsaka menningarpólitisk áhrif og dag- skárstefnu. Svo einkennilega bregður við að i þeirri nefnd sitja eingöngu fulltrúar ráðuneyta og sjónvarpsstöðva. Okkur fannst að það væri eðli- legast aðræða fyrst við listamenn um menningarpólitisk áhrif áður en farið væri að ræða um lög- fræði. Þess vegna hafa bæði is- lenskir og norskir listamenn mælst til þess, að þessi menning- arpólitiska nefnd verði stækkuð og þeir fái fulltrúa I henni. Við gerðum samþykktum þetta efni á fundi sem listsamtökin héldu með sér 29. júni sl. Einnig var samþykkt, að menntamálaráðu- neytið setti á stofn nefnd, sem rannsakaði menningarpólitisk áhrif á Island sérstaklega,og enn- fremur var skorað á Norrænu ráðherranefndina að hliðstæð könnun yrði látin fara fram á áhrifum NORDSAT á menningu Færeyinga, Grænlendinga og Sama, með fullri aðild þessara menningarsvæða sjálfra. — En fær ekki islenskt efni aukinn markað með tilkomu NORDSAT I huga teiknarans Carlos. Ekki spurning um aukin menningartengsl miili Norðurlanda, heldur um auðfengna afþreyingu. svæði á Norðurlöndum? — Ég er með þrjú menningarsvæði i huga, Færeyj- ar, Grænland og landssvæði Sama. Þessar þjóðir hafa aldrei verið spurðar neins og aldrei átt fulltrúa i neinum nefndum, sem um NORDSAT hafafjallað. Einn- ig mætti nefna islensku og ný- norsku i tölu minni málssvæða. — Hvernig stendur eiginlega á þvi, að formaður Rithöfundasam- bandsins er farinn að hugsa svo mikið um NORDSAT? — Fyrir uþb. ári eða svo, var ýmsum stofnunum og félögum gefinn kostur á að segja álit sitt á NORDSAT, og þar á meðal sam- tökum listamanna á Norðurlönd- um. Þau svör, sem bárust, voru yfirleitt neikvæð. Engu að siður var islensku listamannasam- tökunum boöið til fundar að ræða við fulltrúa þeirrar nefndar, sem rannsakar hina lagalegu hlið málsins (Juridiska Expert Gruppen). SU nefnd fjallar aðal- Iegaum áhrif NORDSAT á stöðu flytjenda og eigenda höfundarétt- ar. Þar vorum við beönir að til- nefna fulltrúa á fund, sem hald- innverður iKaupmannahöfn þ. 15 september og mun fjalla um hvernig hægt sé að semja við listamenn. NORDSATs? —- Þessu hefur stundum verið haldið fram, að Island fengi þarnanýjanogaukinnmarkað, ef svo mætti komast að orði. Þetta tel ég að sé hin mesta fjarstæða, bæði vegna þess, að islenskt sjón- varpsefni mun verða litt sam- keppnisfært vegna fjárskorts og ófullnægjandi tæknibúnaðar, og auk þess óttumst við, að gerð Is- lensks sjónvarpsefnis muni drag- astsaman.Sáóttikom likafram i svari Rikisútvarpsins, þegar það lét i ljós álit sitt á fyrirbærinu NORDSAT. Við getum tekið dæmi um þetta. Islenskt leikrit er sent Ut sam- timis og verið er að sýna norska, danska, tvær sænskar og etv. þrjár finnskar dagskrár, og af þeim hluta verða meir en helmingur breskur eða amerisk- ur. Þá spyr maður sjálfan sig, hversu margir munu horfa á hið islenska leikrit? I þessu sambandi má ekki gleyma þvi, að Nordvision, sem er samstarfsröö, þar sem norrænar stöðvar skiptast á efni, og sem hefur verið helsti mögu- leiki fýrir íslensk leikrit að ná til annarra Noröurlanda, fellur nið- ur. Framhald á 14. slðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.