Þjóðviljinn - 22.07.1978, Síða 11
Laugardagur 22. júll 1978 frJQÐVILJINN — SIÐA 11
Deilur um hraðbrautarlagningu i Garðabæ
Undirskriftasöfnun hafín til að
mótmæla ákvörðun meirihlutans
' - ■" •* .
$r* * : : -—* ^••,; ...&
XfJéiff- I
A þessari yfirlitsmynd sjást þær tillögur sem fram hafa komi
um framtíöarumferðaræð um Garðabæ.
Þessa dagana er að
hefjast undirskriftasöfn-
un meðal íbúa Garðabæj-
ar til að mótmæla á-
kvörðun meirihluta
bæjarstjórnarinnar þar
um breikkun Hafnar-
fjarðarvegar, þar sem
hann liggur gegnum bæ-
inn, úr tveimur akreinum
i 4. Um nokkurra ára
skeið hefur staðið yfir
nokkurs konar „hrað-
brautarstrið" i Garðabæ.
Málavextir eru i stuttu máli
þeir að árið 1967 sendi Vegagerð
rikisins frá sér áætlun um að
gera Hafnarf jarðarveg að
hraðbraut með 2 til 3 akreinum i
hvora átt. Þessari áætlun var
mótmælt af hálfu Garöbæinga á
borgarafundi árið 1976. Bæjar-
stjórnin tók þá ákvörðun um að
knýja á um byggingu Reykja-
nesbrautar frá Breiðholti meö
tengingu við Keflavikurveg hjá
Setbergi. Skipuð var þó nefnd til
að gera tillögur um framtiðar-
lausn umferðar i gegnum
Garðabæ. Nefndin skilaði álits-
gerð þar sem þrir valkostir
komu fram. í fyrsta lagi að
breikka Hafnarfjarðarveg þar
sem hann liggur nú, með svo-
nefndum planfrium gatnamót-
um þ.e. slaufugatnamótum þar
sem umferðin er á tveimur hæö-
um. Nefndin hafnaði sjálf þess-
um valkosti.
Annar valkosturinn var
breikkun Hafnarfjarðarvegar
án planfrirra gatnamóta.
Nefndin hafnaði einnig þessum
valkosti.
Þriðji valkosturinn var að
Hilmar Ingólfsson
leggja nýjan veg frá Arnarnes-
læk vestan Hraunholts og i
Engidal, þ.e. færa veginn niður
að sjónum, en núverandi
Hafnarfjarðarvegur haldist i ó-
breyttri mynd og verði innan-
bæjargata.
Núverandi bæjarstjórn hefur
hins vegar valið valkost númer
2, sem öll nefndin hafnaði á sin-
um tlma.
1 tilefni af þessu hitamáli sem
komið væri upp I Garðabæ hafði
Þjóðviljinn samband við Hilmar
Ingólfsson fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins i bæjarstjórn
Garðabæjar og bað hann aö út-
skýra kosti og galla valkostanna
og hvers vegna minnihlutinn
hefði staðið á móti ákvörðun
meirihlutans að velja valkost
númer 2.
— Helstu rök meirihlutans i
bæjarstjórninni, sagði Hilmar,
eru að með þvi að leggja veginn
niður við sjó, þá myndi bygg-
ingaland i Hraunsholti fara for-
görðum, auk þess að það yröu
lengri tafir á þvi að viðunandi
samgönguæð verði lögð um
Garðabæ. Rök okkar fyrir þvi
að styðja valkost númer 3 eru
þau að við teljum að vilji ibúa
Garðabæjar sé á þá vegu, sem
undirskriftasöfnunin mun
sanna. Þá höfum við bent á að
þeir skipulagssérfræðingar sem
fjallað hafa um málið mæla með
þessum valkosti sem neíndin
taldi æskilegastan, en i nefnd-
inni sátu m.a. núverandi vega-
málastjóri, borgarverkfræð-
ingur Reykjavikur, fulltrúi
skipulagsstjóra rikisins, yfir-
verkfræðingur Vegagerðar-
innar o.fl. Þá má nefna að ef
núverandi vegstæði verður val-
ið þá verður byggðarlagið klofið
af einni mestu umferðaræð
landsins. Umferð skólabarna
yrði hættulegri þar sem þau
þurfa að fara a.m.k. sex sinnum
á dag yfir veginn til að sækja
skólann, en skólinn er tviskiptur
eins og kunnugt er. Hávaði og
mengun mun aukast við veginn,
þvi breikkunin mun bjóða upp á
umferð stærri flutningatækja.
Skipulagssérfræðingar hafa
sagt að nauðsynlegt sé fyrir
Garðabæ að fá innanbæjarteng-
ingu, en með breikkuninni yrði
hún úr sögunni. Þá má nefna
þau rök við framkvæmdir við
veginn á núverandi vegstæði
myndi valda 2-4 mánaða um-
ferðaröngþveiti við Garðabæ.
— Margir eru þeirrar skoð-
unar að ákvörðun meirihluta
bæjarstjórnar sé endanleg.
Staðreyndin er hins vegar sú að
tillagan um breikkun Hafnar-
fjarðarvegar liggur frammi og
geta ibúar Garðabæjar komið á
framfæri athugasemdum við
hana allt til 5. ágúst. Endanleg
ákvörðun um legu vegarins
verður siðan tekin af ráðherra
að fenginni umsögn skipulags-
stjóra rikisins. Sem flest mót-
mæli við ákvörðun meirihlutans
frá Garðbæingum auka likurnar
á þvi að ákvörðuninni verði
hnekkt af ráðherra. Ég vil þvi
hvetja alla ibúa Garðabæjar til
að skrifa undir undirskriftalist-
ana sem munu ganga næstu
daga, en að þessari undir-
skriftasöfnun standa einstakl-
ingar úr öllum flokkum sem
hafa áhuga á þvi að stuðla að
sem öruggastri byggðarþróun I
bæjarfélaginu, sagði Hilmar að
lokum.
—Þig
Hálft orlofið
í eina tönn!
Er eðlilegt að borga
fyrir tvo tíma hjá tann-
lækni tæpar 70 þúsund
krónur þegar viðgerðin
fólst í því að setja nýja
krónu á framtönn úr
postulins- eða plastefn-
um?
Maður nokkur kom með
reikning til Þjóðviljans upp á
þessa upphæð fyrir ofangreint
verk. Maðurinn lét það fylgja
með, aö ef um báðar tennurnar
hefði verið að ræða þá hefði það
kostað hann orlofspeninga hans
þetta árið. Maðurinn hafði þá
beðið um sundurliðun á reikn-
ingnum en ekki fengið.
Þjóðviljinn hafði samband við
Kristján H. Ingólfsson formann
tannlæknafélagsins og spurði
hann hvort þetta gæti talist eðli-
legt verð fyrir svipaða viðgerð.
Kristján sagði ákaflega erfitt að
meta kostnað við viðgerðir ef
ekki lægju allar upplýsingar
fyrir um eðli viðgerðarinnar, en
taldi að þetta verð væri ekki ó-
eölilegt þó hærra væri. Kristján
var þá spurður að þvi hvernig
taxtar tannlækna væru settir
upp. Hann svaraði þvi til, að
erfitt væri að skýra frá þvi i
stuttu máli. Taxtarnir væru svo
margbreytilegir eftir aðstæö-
um. T.d. væru sértaxtar fyrir
börn og unglinga, sértaxtar
fyrir vangefna o.s.frv. Auk þess
væru viðgerðirnar af svo mörgu
tagi og mismunandi efni væru
notuð við þær.
—Þig
Skálholtshátíðin
er á sunnudag
MISJÖFN SPRETTA
Á SÖNDUNUM
— en heyskaparhorfur annars
þokkalegar, segir Egill á Seljavöllum
Hin árlega Skálholtshátið verð-
ur á sunnudaginn 23. júli. Ferðir
verða frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 11 árdegis og heim frá Skál-
holti kl. 18.
Hátiðin hefst með klukkna-
hringingu kl. 13.30, en siöan er
organleikur og lúöraþytur. Við
messuna predikar biskupinn yfir
Islandi hr. Sigurbjörn Einarsson.
Að lokinni messu verður sam-
koma I kirkjunni. Aðalræðumaö-
ur þar veröur Björn Þorsteinsson
prófessor.
— Sláttur er hafinn hér i sýsl-
unni og er raunar langt siðan þeir
fyrstu byrjuðu, sagði Egill Jóns-
son, ráðunautur á Seljavöllum i
viðtali við blaðamann Þjóðviljans
i gær. (fimmtudag).
— Þeir byrjuðu slátt austur i
Lóni 20. júni, a.m.k. Þorsteinn á
Reyöará og einn eða tveir aðrir,
hélt Egill áfram. — Svo upp úr
mánaðamótunum hefur þeim
bændum smáfjölgað, sem byrjað
hafa slátt þótt ekki sé hægt að
segja, að heyskapur sé almennt
hafinn ennþá. Enn eru þeir æði
margir, sem ekki eru byrjaðir.
Sandarnir eru misjafnlega
sprottnir. Sumt af þeim hefur
staðið af sér þurrkana en annað
ekki en júnimánuöur var þurr en
siðari hluti maimánaðar aftur
ákaflega blautur. Af þvi leiddi aö
menn áttu i erfiðleikum með að
bera I túnin. Hinir, sem búnir
voru að bera á fyrir miðjan mai,
eiga ágætar slægjur. Hinsvegar
eru þau tún, sem ekki fengu áburð
fyrr en i júnlmánuði og voru þá
lika beitt, eins og algengt er, tæp-
lega spróttin ennþá. tJtlit er ann-
ars fyrir að spretta verði hér yfir-
leitt alveg með eðlilegu móti. En
nokkur hluti af söndunum á þó,
eins og ég sagði, mjög erfitt upp-
dráttar, vegna þurrka. Og það er
hið eina, sem gæti bent til þess,
eins og sakir standa, að einhverj-
ir bændur verði ekki nógu vel
heyjaðir á haustnóttum. — Tún
eru hér óskemmd, kals gætir
ekki.
Heyþurrkur hefur veriö ágætur
og menn eru I óða önn að hirða inn
það, sem búið er að losa, En ég vil
náttúrlega leggja áherslu á það,
sagði Egill Jónsson, að þrátt fyrir
það, sem ég hefi hér sagt, þá er
heyskapur ennþá að verulegu
Á fundi borgarstjórnar í
fyrrakvöld/ fimmtudags-
kvöld# voru kosnir vara-
menn í skupulagsnefnd, 7
fulltrúar auk varafulltrúa
og formanns i veiði- og
fiskiræktarráð/ stjórnar-
maður í stjórn Sparisjóðs-
ins Pundsins/ auk tveggja
endurskoðenda og fimm
varamenn i stjórn Borgar-
bókasafns Reykjavíkur.
Voru öll embættin miðuð
við lok kjörtima borgar-
stjórnar, nema embætti
stjórnarmanns í spari-
sjóðsstjórnina, sem kosið
var i til fjögurra ára og
embætti endurskoðenda
sparisjóðsins/ sem kosnir
voru til eins árs.
Varamenn i skipuíagsnefncf
voru kosnir Gunnar H. Gunnars-
son (G), Finnur Birgisson (A),
Helgi Hjálmarsson (F), Magnús
Jensson (D) og Ólafur B. Thors
(D).
leyti ráðinn. Meginhluti sumars-
ins er enn eftir.
Hvað kartöfluræktina áhrærir
þá held eg að hún hafi ekki orðiö
fyrir miklum áföllum. Ég veit um
einn garð, sem nokkuð fauk úr i
roki hér um daginn en að öðru
leyti er vöxtur kartaflna hér,
miðað við árstima, með eðlileg-
um hætti. Og töluvert meira var
sett niður af útsæði hér nú en áður
hefur verið.
Varamenn i stjórn borgarbóka-
safns voru skipaðir eftirtaldir:
Sigrún Klara Hannesdóttir (G),
Sigurður Helgason (A), Aslaug
Brynjólfsdóttir (F), Haraldur
Blöndal (D) og Linda Rós Mika-
elsdóttir (D).
I stjórn Sparisjóðsins Pundsins
var kosinn til fjögurra ára Guð-
mundur Þorláksson, en endur-
skoðendur til eins árs þeir Þor-
steinn Sveinsson og Magnús
Hreggviðsson.
I Veiði- og fiskiræktarráð voru
kosnir Kristján Gislason (G),
Hákon Aðalsteinsson (G), Eggert
G. Þorsteinsson (A), formaður,
Garðar Þórhallsson (F), Ragnar
Júliusson (D), Haukur Pálmason
(D) og Davið Oddsson (D). Vara-
fulltrúar voru kosnir þau Guð-
mundur Þ. Jónsson (G), Alfheið-
ur Ingadóttir (G), Hörður Ósk-
arsson (A), Ólafur Karlsson (B),
Guðni Jónsson (D), Ingvi Hrafn
Jónsson (D) og Ólafur Jensson
(D).
1 öll ofangreind embætti bárust
tillögur um jafnmarga og kjósa
átti, þannig að sjálfkjörið varð I
allar nefndir.
—jsj.
Kosid í borgarnefndir