Þjóðviljinn - 29.07.1978, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJóÐVILJINN' Laugardagur 29. júli 1978
I Dagblaðinu, sem er frjálstog óháð dagblað
er að vísu ekki skýrt fyrir hinum frjálsu og
óháðu lesendum hvaða næringar sendimað-
urinn Steingrímur Hermannsson hafi fært
Ólafi, þó talið líklegt að hann haf i haft i mat
sínum bæði söl og þara, því talið er að Ólafi
þyki hvorttveggja gómsætt eða jafnvel lost-
æti, svo mikið dálæti sem hann hef ur ætíð haft
á þaraverksmiðjunni á Reykhólum. En þetta
er að sjálfsögðu aðeins ágiskun því alkunna er
að Ólafi þykir saltket líka gott.
AF SAGNFRÆÐILEGUM
ENDURTEKNINGUM
Sagt er frá því í Egils sögu Skallagríms-
sonar, að þegar Egill hafði misst sonu sína
tvo, Böðvar og Gunnar, þá gekk hann til lok-
rekkju þeirrar er hann var vanur að sofa í,
lagðist niður ok skaut f yrir loku, en engi þorði
að kref ja hann máls og eftir því sem sagan
segir þrútnaði hann svo að kyrtillinn rif naði af
honum ok svo hosurnar. En eftir um daginn
lét Egill ekki upp lokrekkjuna: hann hafði þá
ok engan mat né drykk, lá hann þar þann dag
ok nóttina eptir; engi maður þorði at mæla við
hann.
Sagt er frá því í Dagblaðinu, frjálsu og
óháðu blaði, s.l. laugardag, að þegar Ólafur
Jóhannesson formaður minnsta flokksins í
landinu, Framsóknarflokksins hefði misst
lungann af liðsmönnum sínum í síðustu
alþingiskosningum, hafi hann lagt leið sína til
Þingvalla, lokað sig inni í ráðherrasvítu Þing-
vallabæjarins og óskað eftir að fá að vera í
friði. Líklega talið að þetta væri í síðasta
skipti, sem hann ætti kost á slíkri dvöl í
ráðherrasvítunni.
hann látinn ríða sem ákaflegast vestur í
Hjarðarholttil aðsækja Þorgerði dóttur Egils,
ef takast mætti að hugga og lempa hina öldnu
kempu, Egil.
Sagt er f rá því í Dagblaðinu f rjálsu og óháðu
blaði.að þegar Ólafur Jóhannesson formaður
Framsóknaf lokksins, minnsta flokksins í
landinu, hafi verið búinn að liggja i hugarvíli,
sorg, sút og f ýlu í þr já sólarhringa í ráðherra-
svítu Þingvallabæjarins hafi fulltrúum í
viðræðunefndinni um stjórnarmyndun þótt
.ástæða til að reyna að lempa fljótamanna-
foringjann og var skotið bíl undir Steingrím
Hermannsson, sem þegar þusti á Þingvöll, ef
takast mætti að ná Ölafi útúr rekkjunni í
ráðherrasvítunni í Þingvallabænum, þó ekki
væri nema til þess að gefa honum eitthvað að
éta, í þeirri veiku von að honum yxi ásmegin
svo hann gæti aftur komið til Reykjavíkur til
að ræða um stjórnarmyndun, jafn fáliðaður
og hann þó var.
Já, svona endurtekur sagan sig í sífellu.
Þegar þetta er ritað er ekki vitað hvort Ólaf ur
er búinn að yrkja þingmannatorrek en sé hann
búinn að þvi er vonandi að hann hafi orkt frá
sér harminn eins og Egill forðum, taki gleði
sína aftur og verði farsæll mað
ur í lífi sínu, þó hann verði að snúa aftur til
upphafs síns, sem er dreifbýlið, búa í Fljót-
unum eins og Egill á Borg og verða gamall
maður og að þess verði ekki getið að hann eigi
í málaferlum við menn hér á landi.
Mér ertjáð að nær fullvíst sé að næsti dóms-
málaráðherra verði Vilmundur Gylfason og
jafnvel forsætisráðherra líka og sumir telja
að Ólaf ur eigi erf itt með að kyngja því að Vil-
mundur verði a.m.k. dómsmálaráðherra,
hvernig sem annars á því stendur. Annars
hefur Timinn að undanförnu haldið því fram
að Vilmundur sé í nánum tengslum við
„glæpalýð og hugsanlega morðingja" og hver
er eiginlega kjörnari til að vera dómsmála-
ráðherra en sá sem að sögn Tímans er i nánum
tengslum við þá, sem dómsmálin eiga — að
fjalla um.
Hér á ef til vill vel við gömul vísa úr
Alþingisrímum, visa, sem kveðin var að,
afloknum kosningum:
Sagter frá því i Eglu að þegar kempan Egill
Skallagrímsson var búinn að dvel ja í lokrekkj-
unni í þrjá daga samfleyttán þessað láta á sér
kræla, þótti kominn tími til að gera eitthvað í
málinu, svo skotið var hesti undir mann og
í Eglu segir að þegar þau Þorgerður höfðu
legið í lokrekkjunni þegjandi um hríð, þá hafi
Egill spurt og ekki að ástæðulausu: „Hvat er
nú dóttir, tyggur þú nökkut?" „Tygg ek söl"
segir hún —og síðar — „Viltu eta??"
Illa nú ég í því lá
enda sorgum hlaðinn.
Þegar ég verð að víkja frá
kemur Vilmundur í staðinn.
Flosi
5.
SKAK
Umsjón Helgi Ólafsson
5. skákin fór aftur í biö:
Kortsnoj yfir-
sást rakiö mát!
— og Karpov á nú alla möguleika
á jafntefli þótt enn
eigi Kortsnoj vissa möguleika
Þau undur og stór-
merki gerðust í gær er
þeir Kortsnoj og Karpov
settust aftur að tafli, til
að útkljá 5. einvigisskák
sina sem farið hafði i bið
á fimmtudaginn, að
Karpov tókst með mik-
illi seiglu og útsjónar-
semi að koma skákinni
aftur i bið og er með
mjög góða jafnteflis-
möguleika. Óvæntur
biðleikur Karpovs virt-
ist setja Kortsnoj út af
laginu og hugsaði hann
sig mjög um við hvern
leik. Þrátt fyrir snjalla
taflmennsku heims-
meistarans kom allt fyr-
ir ekki. Kortsnoj ávaxt-
aði istt pund þrátt fyrir
litinn tima og þegar rak-
ið mát blasti við gerðust
stórmerkin. Kortsnoj
lék biskup á kolvitlaus-
an stað og Karpov slapp
með skrekkinn. Þarf
ekki að fara i grafgötur
með það að framgangur
mála i þessari skák er
geysilegt áfall fyrir
Kortsnoj. 6. skákina var
ráðgert að tefla i dag og
þá hefur Karpov hvitt.
Bi&staöan:
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: Anatoly Karpov
(Eftir rannsóknir sérfræöinga
um allan heim var niöurstaöan i
öllum tilfelium sú sama. Staöa
Karpovs töpuö. Siöasti leikur
Kortsnojs 42. Hhl var feiknalega
öflugur því hann innihélt tvöfalda
hótun 43. Bh4 og Be5 og svartur
tapar liði. Sá leikur gem líkiega
hefur veriö hvaö mest rannsakaö-
ur i herbúöum Kortsnojs er 42.
—Re7 sem valdar f5 peöiö. Gegn
þeim leik á hvitur tiltölulega auð-
sóttan vinning. Annar möguleiki
er 42. — Re6 en hann dugir einnig
skammt. Þegar umslagiö var
opnað kom hinsvegar I ljós aö
Karpov haföi leikiö leik sem eng-
inn sérfræöinganna tók meö i
reikninginn.)
42. ..Rh7!
(Og eftir allt saman er þetta lang-
besti leikurinn. Þaö sem kemur
hvaö mest á óvart, er aö Karpov
var mjög fljótur aö leika þessum
leik og innsigla hann siöan. Fyrir
Kortsnoj hlýtur leikurinn aö hafa
verið fremur óþægilegur enda
hugsaöi hann i dágóöa stund um
svarleik sinn.)
43. Be5-Dg5
44. Dxf5-Dd2+
(Eftir næturlangar rannsóknir
hafa Karpov og hans menn kom-
ist að þvi aö þessi leikur hafi
meira tíl brunns aö bera en 44.
-De3+)
45. Kg3-Rhf6 47. Be4!-íte7
46. Hgl-He8
(Karpov lék þessum leik eftir 39
minútna umhugsun. Þegar hér
var komiö sögu átti Kortsnoj aö-
eins 5 minútur eftir á klukkunni
en Karpov 25 minútur. Spennan i
keppnissalnum i Baguio var að ná
hámarki sinu.)
48. Dh3!
(Langbesti reiturinn fyrir drottn-
inguna. Ef t.d. 48. De6 þá Dg5+
o.s.frv.)
48. ..Hc8 49. Kh4 ,
(Þrátt fyrir litinn tima hikar
Kortsnoj ekki við að fara meö
kónginn út á borðið. A h4 stendur
hann einna best auk þess sem
hvitur hótar nú 50. Dg3 o.s.frv.)
49. ..Hcl!
(Karpovgefur ekkert eftir þó aö
vörnin sé erfið. Léki hvitur nú 50.
Hxcl kemur 50. -Dg5 mát!)
50 Dg3-Hxgl
51. Dxgl-Kg8
(Karpovhefur tefltvörnina vel en
það dugar ekki til. Yfirburöir
Kortsnojs bæöi i stöðu og i liöi
hljóta aö nægja til sigurs.)
52. Dg3
(En ekki 52. Bxf6Df4+ og svartur
sleppur.)
52. ...Kf7 53. Bg6 + -Ke6
(Þaömásleppa spurningarmerk-
inu. Eftir 53. -Kf8 eða 53. -Kg8 er
staðan eftir sem áöur gjörtöpuö.)
54. Dh3+-Kd5
55. Be4 + ???
(Otrúleg yfirsjón og þaö i einvigi
um Heimsmeistaratitilinn.
Kortsnoj sem var bókstaflega al-
veg aö falla, átti miklu frekar
sekúndubrot en sekúndur eftir á
klukkunni lék þessum grófa afleik
meö leifturhraða og studdi siöan
á klukkuna. Hinn einfaldi leikur
sem hver meðalgreindur ungling-
ur heföi leikiöí hraöskák 55. Bf7+
leiöir til máts: 55. -Kc6 56. De6+
Kb5 (56 -Kb7 57. Dxe7+ og mát-
ar.) 57. Dc4+ Ka4 58. Da6 mát.)
55. ...Rxe4
(Karpov var fljótur aö drepa
biskupinn en það var sem Korts-
noj stírönaöi upp i' sætinu er hann
sá hvaö hann haföi gert.)
56. fxe4 + -Kxe4
(Timaharkinu er lokiö og vinn-
ingurinn ekki lengur til staöar.
Þaö verður að segjast Kortsnojs
til hróss að hann lét þetta mikla
áfall ekkert á sig fá og tefldi
framhaldið mjög vel.)
57. Dg4 + -Kd3
58. Df3-De3
(Annar möguleiki var 58. -Kc2 en
Karpov vill létta á stööunni.)
59. Kg4!-Dxf3+
6Q, Kxf3-g6
61. Bd6-Rf5
62. Kf4!
(Auövitaö ekki 62. hxg6 Rh4+
o.s.frv.)
62. ..Rh4
63. Kg4-gxh5+!
(63.-g5 leiðirtil tapseftir64. Bf8.)
64. Kxh4-Kxd4
(Stööumynd
(Upp er komiö geysilega f lókiö og
vandasamt endatafl fyrir báöa
aöila þar sem hver einasti leikur
getur haft úrslitaþyöingu. Fyrir
Karpov er markmiöiö einfalt.
Hann þarf aöeins aö ná b4-peöinu
i skiptum fyrir öll hin peöin. Þá er
staöan jafntefli vegna þess aö
biskup Kortsnojs valdar ekki
hvita hornreitinn á a8. Dæmi:
Hvitt: Kb6 Bd4, a5. Svart: Ka8.
Reyniö aö vinna þessa stööu á
hvitt. Meö bestu taflmennsku á
svart er þaö ekki hægt.)
Framhald á 18. siöu