Þjóðviljinn - 29.07.1978, Side 4

Þjóðviljinn - 29.07.1978, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júll 1978 UODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóöfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Berg- mann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Ein- ar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson Ritstjórn, afgreiösla auglýs- ingar: Siöumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf. Nú vilja kratar meira kauprán I gær sigldu stjórnarmyndunarviðræðurnar, sem f ram hafa farið undanfarna daga milli Alþýðubandalagsins, Alþýðuf lokksins og Framsóknarf lokksins,, í strand. Ekkert fer milli mála á hverju viðræðurnar strönduðu. Það var ágreiningur um ef nahags- og kjaramál, sem olli því að allt strandaði, áður en nokkuð var farið að reyna alvarlega á, hvort hugsanlegt væri að samkomulag tæk- ist um önnur efni. Alþýðuflokkurinn ogv Framsóknarflokkurinn gerðu kröfu um gengislækkun og að kjarasamningar verka- lýðsfélaganna yrðu skertir enn frekar en fráfarandi ríkisstjórn hefur þegar gert. Það átti að bæta ofan á kaupránið. Þessu neitaði Alþýðubandalagið. Alþýðubandalagið krafðist þess, að kjarasamningar almenns launafólks tækju gildi ekki seinna en 1. september n.k..Alþýðubandalagið lagði til, að í stað gengislækkunar krónunnar, þá yrði nú hafist handa um niðurfærslu verðlags, m.a. með lækkun söluskatts og verslunarálagningar, sem fráfarandi ríkisstjórn hefur nýlega hækkað. Tillögur Alþýðubandalagsins miðuðu að því að tryggja umsaminn kaupmátt almenns launafólks, að tryggja rekstur framleiðsluatvinnuveganna og að draga mjög verulega úr hraða verðbólgunnar. í því skyni að ná fram þessum meginmarkmiðum lagði Alþýðubandalagið til verulega f jármunatilfærslu i þjóðfélaginu m.a. með skattlagningu á gróðalýð þjóðfé- lagsins, þá sem hlaðið hafa upp stóreignum í skjóli verð- bólgunnar á undanförnum árum. Þessum tillögum Alþýðubandalagsins höfnuðu Alþýðuf lokkurinn og Framsóknarflokkurinn afdráttar- laust. Þeir sáu ekkert nema gengislækkun og kauprán. Allir vita, að gengislækkun dregur ekki úr verðbólgunni, held- ur eykur slik ráðstöfun stórlega verðbólguhraðann. Ein gengislækkun nú kallar líka aðeins á aðra gengislækkun eftir nokkra mánuði nema launafólk sé svipt umsömd- um verðbótum á laun sín og kaupið bundið fast meðan verðlagið æðir upp á við. Það er kominn tími til að ráðast gegn efnahagsvand- anum með öðrum úrræðum en gengislækkun og aftur gengislækkun. Það er kominn tími til að láta þá borga, sem eiga að borga og vel geta borgað. I forystugrein Vísis í fyrradag, er Alþýðuflokkurinn lof aður f yrir það hversu laginn hann sé að ,,stela" stef nu Sjálfstæðisf lokksins. Til marks um þetta vitnar leiðara- höfundur Vísis m.a. í tillögugerð Alþýðuflokksins nú í stjórnarmyndunarviðræðunum. Þetta er rétt hjá Vísi. Alþýðubandalagið hefur hins vegar ekki áhuga á að ,,stela" stefnumálum Sjálfstæðisf lokksins. Það er sagt, að kosningasigur Alþýðubandalagsins leggi flokknum miklar skyldur á herðar og vissulega er það rétt. Það er þóalgerlega Ijóstað meðstuðningi við Alþýðubandalagið voru kjósendur síst af öllu að kref jast þess, að flokkur- inn hæfist handa um að framkvæma stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Kjósendur Alþýðubandalagsins voru að mót- mæla óðaverðbólgu og kaupráni, — þeir voru að mót- mæla gengislækkun en krefjast niðurfærslu verðlags. Þeirra krafa var um jafnaðarstefnu, um skýra vinstri þróun í íslenskum stjórnmálum. Þetta verða allir að skilja, líka þeir, sem hyggjast „stela" stefnu Sjálf- stæðisf lokksins. k. Siglt í strand 1 gær sigldu stjórnarmyndun- arviöræöurnar i strand eins og Benedikt Gröndal oröaöi þaö i útvarpsviötali I gær. Þaö strandaöi á skammtima aö- geröum I efnahagsmálum, þar sem Alþýöuflokkurinn sá enga leiö út úr vandanum aöra en gömlu ihaldsúrræöin. Alþýöu- flokkurinn neyddist tilaö fara Ut i vinstri viöræöur, eftir aö Alþýöubandalagiö haföi hafnaö viðræöu meö Sjálfstæöis- flokknum. Ljóst var aö Alþýöu- flokkurinn vildi vinna til hægri og þaö var i samræmi viö þann vilja aö Alþýöuflokkurinn lagöi til gömlu íhaldsúrræöin, gengis- lækkun er nema á 15% og meiri kjaraskeröingu en kaupránslög fráfarandi rikisstjórnar geröu ráö fyrir, þ.e. 7% kjaraskerö- ingu. Menn sem leggja fram slík ihaldsúrræöi vilja einfaldlega ekki mynda vinstri stjórn. Framsóknarflokkurinn fór einnig meö hálfvelgju inn i vinstri viðræður og undirstrik- uöu þeir þaö meö fjarveru formanns og varaformanns flokksins. Þeir lögöu litiö til málanna Framsóknarmenn og út á við viröist sem þeir hafi ekki haft neinar tillögur i efna- hagsmálum, enda gátu þeir vel fallist á ihaldsúrræöi Alþýöu- flokksins, sem eru litiö frá- brugðin efnahagsstefnu fýrri stjórnar. Alþýöubandalagiö lagði fram itarlegar tillögur um nýjar leiö- ir út úr efnahagsvandanum. Það hafnaöi jafnframt alfariö gengisfellingu og kjaraskerö- ingu. Alþýöubandalagiö er ekki flokkur sem gengur til kosninga og berst i þeim gegn ákveðinni kjararánsstefnu og framkvæm- ir slika stefnu síðan eftir kosn- ingar. Þvi visaöi Alþýöubanda- lagiö tillögum kratanna á bug. Samráð við verkalýðs- hreyfinguna Alþýöuflokksmenn gengu til kosninga meö slagoröiö „kjara- sáttmáli”. Nú hafa þeir afhjúp- aöhvað þaö fól i sér. Þaö virkar þvi hálf hjákátlegt þegar Arni Gunnarsson ritstjóri Alþýðu- blaðsins skrifar i gær: „Alþýöublaöiö itrekar einnig þá bjargföstu trú Alþýöuflokks- manna, að engar ráðstafanir verði gerðar, nema I samvinnu við launþegahreyfingarnar og með því að komið verði á kjara- sáttmála, er leitt getur til vinnufriðar. Arni hefur veriö úti á þekju I viöræöunum, ef dæma má eftir forystugreinum hans. Þaö getur farið svo, að þaö veröi verkalýðshreyfingin, sem úrslitum ráöi um þaö hvort hér á landi veröur mynduð vinstri eða hægri stjórn”. Sama dag og Arni skrifar þetta leggur Alþýöuflokkurinn til gengisfellingu og kaupskerö- ingu. Þaö getur vart talist væn- legt til aö koma á samvinnu og samráö viö verkalýöshreyfing- una aö byrja á þvi aö fram- kvæma meira kauprán en fólst i bráöabirgöalögum fráfarandi rikisstjórnar. Þaö er fallegt orö að tala um samráð, en þaö sýnir heiiindi Alþýðuflokksins aö sigla viö- ræðunum i strand á kröfunni um kaupskeröingu og gengislækk- un. Arásin á Gunnar Thoroddsen Eins og kunnugt er hefur Gunnar Thoroddsen veriö full- trúi Kassagerðar Reykjavikur i útgáfustjórn Visis. Nú er veist að þessum fulltrúa i forystu- grein Visis og ummæli Gunnars kölluö Karlarugl. 1 leiöaranum segir m.a. ,,Dr. Gunnar Thoroddsen tel- ur, aö Sjálfstæðisflokkurinn hafi beöiö afhroð I siöustu kosning- um fyrir þá sök fyrst og fremst að Visir og Morgunblaðið hafi hætt stuðningi við flokkinn, og Vfsir þar að auki lagst á sveif með Alþýðuflokknum og gert Vilmund Gylfason aö þjóðhetju. Krafa dr. Gunnars Thoroddsens lýtur einkanlega að eigendum Visis og Morgun- blaðsins. En aðspuröur á fúndi Sjálfstæðismanna siðastliöinn miðvikudag sagðist hann reiðu- búinn að vinna að þvi, að Dag- blaöiö yrði málgagn Sjálf- stæðisflokksins, en stjórnar- formaður þess á sæti i miðstjórn Sj álfstæðisflo kksins. Ef karlarugl af þessu tagi væri tekið alvarlega liti dæmið þannig út, aö varaformaður Sjálfstæðisflokksins teldi farsæiast að snúa vörn i sókn með þvi aö svipta þrjú dagblöö sjálfstæði slnu. 1 bókstaflegri rnerkingu fela ummæli vara- formanns Sjálfstæðisflokksins þaö í sér, að flokkurinn eigi að hlutast til um að útgáfustjórnir blaðanna reki ritstjóra þeirra. Það er a.m.k. ljóst, að núver- andi ritstjórn Vísis heldur fast fram óbreyttri ritstjórnar- stefnu”. Krafa Gunnars um aö Visir hlýði stefnu Sjálfstæöisflokksins flokkast eölilega undir „karla- rugl” að mati ritstjóranna. En deilan um málgögnin og atlagan aö Gunnari kemur i kjöltar mik- illar deilu i Sjálfstæðisflokkn- um. Meðan vinstri flokkarnir hafa verið aö sigla vinstri viö- ræöum i strand, þá hafa Sjálf- stæðismenn gamnaö sér við inn- byröis deilur. Þetta er eölilegt. Þegar enginn vill tala við þá, verða þeir aö tala við sjálfa sig. Fundur Sjálfstæðismanna A miövikudag héldu Sjálf- stæöismenn fund til að veita mönnum útrás fyrir gagnrýni á flokksforystuna. Forystugrein Dagblaösins lýsir vel ástandinu , i ihaldsherbúöunum. Þar segir : ,,Viða i ræðum annarra og frammiköllum kom fram það sjónarmiö, að stefna forystu Sjálfstæðisflokksins hefði að undanförnu verið „dæmigerö vinstri stefna ” og þar fram eftir götunum. Sjálfstæðisstefnan hefði „týnzt”. Menn lýstu þvi, að þeir hefðu gefizt upp I starfi . fyrir flokkinn við sUkar aðstæð- ur, þótt þeir hefðu ekki horfiö frá stefnunni, eins og hún hefur verið mörkuð á landsfundum. Jafnmikil áherzla var lögð á, aö forystusveit Sjálfstæðis- flokksins hefði aldrei veriö veik- ari. Trúnaðarsamband skorti miUi forystumanna, eins og FriðrUi Sophusson alþingismað- ur nefndi meöal annarra. Sam- bandsleysi forystu við flokks- menn slævði allt starf. Forystu- menn og fulltrúar þeirra stæðu I stöðugu valdatafli f einstökum hverfasamtökum og flokksfé- lögum”. Gunnar, Geir og Albert i hár saman OU forystan var mætt og viö hringboröiö var skotiö mörgum föstum skotum. Föstustu skotin komu þó utan úr sal. En Dag- blaðiö lýsir svo forystunni: „Geir Hallgrimsson, formað- ur flokksins, bar Albert Guðmundsson þeim sökum, að hann hefði magnað undiröldur i flokksfélögum. Albert bar þetta af sér. Engin launung er þeim, sem komiö hafa nálægt starfi i Sjálfs tæðisf lokknum , að þar hefur logaö bál illdeilna. Mönn- um er gjarnan skipt f „Geirs- menn”, „Gunnarsmenn” og „Albertsmenn” og langt leitað til að brennimerkja þá, sem ekki vilja láta draga sig I dilka. Rifjað var upp þaö, sem alkunna er, aö margir i forystu- sveit flokksins tóku Gunnari Thoroddsen illa, þegar hann kom heim frá Danmörku og hóf að nýju afskipti af flokksmálum haustið 1970. Aldrei hefur gróið þar um heilt. Ljóst er, að Sjálfstæöisflokk- urinn hefur lamazt, þegar allt þetta kemur saman i eitt. Stefn- an flokksins hefur glatazt I meö- ferðforystumanna. Forystan er veik. Flokksstarfið logar I eldi sundrungar”. Dýrkun valds í stað stefnu Það er ekki von aö Geir gæti stjórnað landinu fyrst hann var búinn að missa stjórn á ftokkn- um ogstefnan glötuð. Dagblaöið segir i gær: „Aö visuer ekki rétt aðsegja, að forystan hafi tekið upp „dæmigerða vinstri stefnu”. Undir stjórn flokkseigendafé- lagsins hefur forystan fylgt algerri hentistefnu hrossa- kaupa. Sjálfstæðisflokkurinn hefur orðið dæmigerður kerfis- flokkur, þar sem völd eru dýrk- uð valdanna vegna en ekki stefnu eða hugsjóna. Flokkurinn hefur brugðizt stefnu réttinda einstaklingsins og oröið burðar- ás samtryggingarkerfisins. Flestir sjálfstæöismenn hafa gertsér þetta Ijóst, einnig ýmsir forystumenn. Miklu skiptir, eigi flokkurinn að hjarna við, að höggvið sé á slíkar viðjar fortið- arinnar, eins og einn ræöu- manna komst að orði, og byggt að nýju á þeirri stefnu, sem flokksmenn vilja. Til þess þarf að gera flokkinn lýðræðislegan, svipta flokkseigendafélagið völdum og hefja nýja forystu. Hinn opinskái fundur Heim- dallar er góðs viti fyrir sjálf- stæöismenn. Til lítils er aö reyna að fela þann ágreining, sem nánast hefur riðið flokkn- um að fullu og valdið feigö I brjósti hans”. Sjálfstæöisflokkurinn ber „feigð i' brjósti” segja málgögn tengd Sjálfstæöismönnum. Það blæs þvi vart byrlega að fela Geir að gera tilraun til að mynda stjórn. Eina tilraunin sem Geir getur gert er að hjálpa öörum aö mynda nýja stjórn i Sjálfstæöisftokknum. —óre.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.