Þjóðviljinn - 29.07.1978, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 29.07.1978, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJOÐVILJINN j Laugardagur 29. júll 1978 Símínn er helsti böhaldur mannkyns Mér list ekkert á blikuna. Ég veit hreint ekki lengur hverskonar timar það eru sem við lifum á. Visir segir i leiðara i gær að alþýðu- flokkurinn sé að stela Sjálfstæðisflokknum minum og það hrika- legasta er að það er engu likara en að þetta sé dagsatt. Og þetta er einhver mesti þjófnað- ur i sögunni siðan Dan- ir stálu handritunum. Þið vitið öll hve langan tima það tók að fá þau aftur. Og það er lika bent á það, að hægri sauðir Framsóknar- flokksins séu farnir að randa iskyggilega á vinstrigötum. Nú hefur leiöari blaðsins verið fluttur af hægri síðu og lengst yfirá vinstrisiðu. Þessi vinstri- villa munar hvorki meira né minna en fimm dálkum. Jónas minn frá Hriflu hefur snúið sér við i gröfinni ef ég þekki hann rétt. önd min er þvi þreytt og ég veit ekki hvar hún má finna hvild. Ég ætlaði að hverfa frá amstrí heimsins innan hinna fjögurra veggja heimilisins sem Bretar kalla sinn kastala. Ekki veit éghvernig það er hjá þeim. En ég varð fyrir þeirri reynsiu að mér er nær að halda að hinn sanni böl valdur mannkynsins sé hvorki kommúnisminn né sundrungin i Sjálfstæðisflokkn- um minum heldur einmitt sim- inn. — Þaö stóð ekkert um þaö í ferðabæklingnum aö það væri enn veriö að byggja hótelið.... Já, ég sagði siminn. Ég sat heima i rólegheitum eittkvöldið og las ræður Bjarna Benediktssonar mér til upplyft- ingar og þá hringir simaskratt- inn. Það var dóttir min, Hekla. — Hefur nokkur hringt, pabbi? spurði hún. — Nei, sagði ég — Ef að Palli hringir, segöu honum þá að ég hafi farið á Hótel Sögu, sagði hún. Upp i grillið. Ekki hafði ég lesið háifa síðu þegar simafjandinn hringdi aftur. — Þetta er Járngerður, var sagt i tólið. Er frúin heima? — Nei, ég hélt hún hefði farið til þin, sagði ég. Atti ekki að vera fundur hjá innsta hring Hvatarkvenna? — Aaa, æ, jú, sagði Járngerð- ur og var vandræðaleg. Jújú. En fundurinn verður vist hjá Val- gerði. Þar með skellti hún á. Þetta þótti mér grunsamlegt, þvi að Valgerður er svo sérvitur að hún hefur alltaf verið á móti sima eins og faðir hennar var árið 1906. Ekki hægt að hringja i hana, sem sagt. Hvern fjandann er kerlingin aðbauka? hugsaði ég. Ég hugs- aði svo harkalega að ég varð að fá mér einn viski. Tvöfaldan. Þá hringdi Palli. Ég sagði honum, að Hekla væri uppi i Grilli. Fint sagði hann en hvar er Siggi? Siggi er sonur minn. — Það veit ég fjandann ekki, sagði ég. — Ef þú heyrir frá honum, sagði Palli, þá segðu, að við för- um á eftir heim til Villa. — Hvar er Villý? spurði ég. — Hver er Villý? spurbi ég. — Ær þaðer gaur, sagði hann. Og segðu honum að ef hann komi ekki með brennivín með sér, þá geti hann eins setið heima hjá Gunnu. — Hver er Gunna? spurði ég. — Æ, það er skvisa, sagði Palli. Ég fékk mér annan tvöfaldan og hugarflugið fór af stað. Kerl- ingin einhversstáðar úti að arka. Siggi kannski að gera ein- hverja fimmtán ára stelpu ólétta uppi i kvistherbergi. Og svo framvegis. Enn hringdi simadjöfullinn. — Þetta er Jóna, var sagt i simanum. Hvar er hún Hekla? — Hún á að vera uppi i Grilli, sagði ég. — Það getur ekki verið, sagði Jóna. Éger uppi í Grilli og Dódó og Maggi og Palli og Bóbó. En engin Hekla. — Hvað get ég gert? spurði ég og var ósáttur við tilveruna. — Þú átt að ala börnin þin upp eins og maður, Skaði, sagði hún. — Geri ég það ekki? spurði ég. — Nei. Gugga var að segja, að einhver hefði séð hana Heklu dóttur þina á leið á kommafund með einhverju strákgerpi úr Háskólanum! Og hún skellti á. — — Jesús minn, stundi ég. og fékk mér einn fjórfaldan. A kommafundi! Hún dóttir mfn! Og svo fékk ég mér enn einn. Ég se-segi þér það satt, elsku vinur, ég er á móti, sko, hvað það heitir, framlegum tækniför- um. Tækni i framförum, Nei, hikk, fram-förum i tæ-tækni.... Skaði í undirkjól ömmu sinnarí grafhýsi Maós Hápunktur heimsóknar i Kina ír að skoða jarðneskar leifar Vlaó formanns, og af þvi vilja æstir ferðamenn missa. Kana- ifekurlæknirsem vinnur i Hong Kong, en fer af og til til Peking :il að vitja sjúklinga á vegum íanadiska sendiráðsins, fór með nokkra ættingja með sér á iögunum til að skoða leifar for- mannsins. Þvi miður hafði enginn upp- lýst lækninn og fjölskyldu hans um strangar reglur varðandi klæðaburð, þegar gengið er i grafhýsið. Þegar þau mættu stundvislega kl. 9 um morgunn var þeim góöfúslega bent á að stuttbuxur frúarinnar væru ekki viðeigandi klæðnaður við likbörur Maós. Frúin snaraði sér þá i undir- kjól móöur sinnar utan yfir stuttbuxurnar, og létu verðirnir það gott heita. En nú kom i ljós að stuttbuxur sonarins Francois, sem er 17 ára, voru á sama hátt óviðeigandi og þá fór i verra þvi' engar aukabuxur voru með i'ferðinni. „Allt i lagi, þá förum við upp á hótel og sækjum buxur” sagði faðirinn og bjóst til að fara aftur með leigubilnum. ,,Nei” sagði kin- verskur leiðsögumaður þeirra. „Þessi bill á að fara með ykkur næst að Sumarhöllinni, en ekki upp á hótel.”Nú sá kanadiski læknirinn að leiðsögumaðurinn var með plastregnkápu undir hendinni og spurði, hvort hann mætti ekki fá hana lánaða á son sinn, til aðhylja nakin hné hans. „En regnkápan er min einka- eign” sagði leiðsögumaðurinn ,,Þar að auki er ekki rigning, og þvi óviðeigandi að vera i regn- kápu”. Frúin, sem hafði áöur farið i grafhýsið, spurði þá, hvort hún mætti ekki bara lána syninum undirkjól móður sinnar og myndi hún þá sjálf biöa fyrir ut- an, á meðan hin færu inn. Það þótti vörðum jarðneskra leifa Maó viðeigandiogþannig komst sonurinn inn i grafhýsið i undir- kjól ömmu sinnar. IHT þJÓÐVILJINN fyrir 40 árum Rikisstjórnin mun eins og fyrri daginn hafa það sér til af- sökunar að hún hafi ekki hand- bært fé til að láta vinna austur i Sibiriu, en það væri hinsvegar fróðlegt að vita hvaðan rikis- sjóður hyggst fá þær 50 til 100 þúsund krónur, sem telja má vist að varið veröi til að taka á móti Friðriki Kristjánssyni (krónprins Dana), syni þess manns, sem hefur fengið 60-70 þúsund króna árlegan atvinnu- leysisstyrk úr rikissjóði. Þjóð- viljanum er ekki kunnugt um þetta, en það þarf hinsvegar ekki að þurfa að óttast það að peningar verði ekki fyrir hendi i rikisfjárhirslunni þegar um það er að ræða að eyða tugum þús- unda i svall handa yfirstéttinni, þó aö engir peningar séu til þeg- ar um hundruð atvinnulausra verkamenn er að ræða. Þjóðviljinn 22. júli 1938 Hér kemur gamall félagi i Alkuklúbbnum með áriöandi innlegg. (Þar sem félaginn er meðlimur i klúbbnum, reikn- ast sendingin ekki sem umsókn). Gjöriðisvovel: „Hellingur að atkvæðum” „Vegna greinar I Morgun- blaðinu i dag, viltu þá endilega koma þeirri beiðni á framfæri hvort einhver hörkuduglegur viljinú ekki taka það að sér að snapa saman 60 glænýjum menningarvitum til að vinna að þvi að f æra okkur Kefla vik- ursjónvarpið aftur. Meðan að það var við lýði fékk maður heimsmenninguna beint að rúmstokknum — haldið að það sé munur i staðinn fyrir allar þessar „listrænu”, ónáttúru- legu sænsku, dönsku og finnsku rúmstokksmyndir sem islenska sjónvarpið dembir fyrirvaralaust yfir landsins börn svo að þau vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Fyrir utan frábæra listþætti, en þeirra naut mað- ur i Keflavikursjónvarpinu á sinum tima, bauð sjónvarpið upp á fjölda skemmtiþátta, leikþátta en Bandarikjamenn og Bretar, sem búa yfir skemmtilegustu kimni heims- ins, geta einir gert slfka þærti. ...Nú eru alþingiskosningar afstaðnar og ekki farið að setja kveik i nýjar kosninga- sprengjur fyrr en eftir svona þrjú ár, það er að segja takist stjórnarmyndun nýkjörinna manna áður en farið verður að kjósa aftur. En það segi ég satt, verðum við ekki búin að fá Ameríku-sjónvarpið aftur fyrir þann tima fær sá flokkur, sem mun beita sér fyrir þjóð- aratkvæðagreiðslu um hermannasjónvarpið, Stinu og Stjána og almennilega teikni- mynd (Andrés önd) frá Finn- landi, helling af atkvæðum. Fyrst við þurfum endilega að hafa þennan her þarna á tang- anum, en hann er þar vitan- lega fyrst og fremst til að hugsa um sig og sina, þá finnst mér aö fleiri megi hafa gagn af honum en Islenskir aðal- verktakar”. Alyktun: Mjög gott Guðrún. Ensemsagt: Þaöþarfbara að sækja um einu sinni ef maður kemst inn. Meðástúð. Hannibal ö. Fannberg formaður

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.