Þjóðviljinn - 29.07.1978, Qupperneq 9
Laugardagur 29. júll 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Árás á forystumenn
verkalýðs hrey f ingar-
innar og fleiri
Og köldu kveöjurnar til Alþýöu-
bandalagsins héldu áfram. Sama
daginn og Sighvatur Björgvins-
son reyndi aö andmæla Eyjólfi
Sigurössyni var taliö nauösynlegt
aö birta á forsiöu Alþýöublaösins
hörkulega árás Vilmundar Gylfa-
sonar á forystumenn Alþýöu-
bandalagsins i verkalýöshreyf-
ingunni og þó sérstaklega Snorra
Jónsson. Verkalýösleiötogum,
sem Alþýöuflokkurinn ætlar
væntanlega aö ræöa viö um
kjarasáttmála, var lýst á eftir-
farandi hátt: „Einangraöir
verkalýösleiötogar sitja í fila-
beinsturnum, án nokkurra lff-
rænna tengsl viö sitt fólk”. —
„Það er enn alvarlegra, þegar
forystumenn launþegahreyf-
ingar, sem sumir hverjir jafnvel
hafa ekki hugmynd um, hvernig
þeirra fólk litur út, nota laun-
þegahreyfinguna einasta sem
tæki til pólitiskrar taflmennsku.”
Vilmundur Gylfason telur Snorra
Jónsson vera fulltrúa einangr-
aðrar kliku.
Alþýöublaöiö hélt áfram á
sömu braut. Þegar vinstri viö-
ræöur höföu staöið tæpa viku birt-
ist á forsiðu blaösins enn ein
skammargreinin i garö Alþýöu-
bandalagsins og nú eftir Garöar
Sverrisson, sem greinilega er tal-
inn til meiriháttar spámanna i
rööum þeirra nýkrata. „Alþýðu-
bandalagiö er hiö eyðileggjandi
afl á vegum lýöræöissinnaðrar
jafnaöarstefnu” — „áframhald-
andi viðræður viö bandalags-
menn hljóta að teljast varhuga-
veröar” — „er efalaust aö ýms-
um sönnum verkalýössinnum i
Alþýöubandalaginu sviður hátt-
erni þessa gamla Moskvukomma
sem Lúövik Jósepsson vissulega
er” — „eins og staöan er i dag
getur þaö engan veginn talist 6-
eðlilegt að Alþýöuflokkurinn fari
fram á hlutleysisstuöning af háifu
Sjálfstæðisflokksins. Þaö er
fjandakorniö skárra en spila ein-
hvers konar bingó viö félaga Lúö-
vik”.
Meöan vinstri viöræöurnar
hafa staðið yfir hafa dag eftír dag
birst I Alþýðublaðinu forslðu-
greinar sem boöa allt aöra stjórn
en þásem Benedikt Gröndal er nú
aðreyna aö mynda. Skammirnar,
fúkyrðin og hatursyfirlýsingarn-
ar I garö Alþýðubandalagsins
hafa sett sterkan svip á mál-
flutning blaðsins. Er nokkur
furða þótt okkur, sem daglega
reynum aö meta gang viðræön-
anna, reynist erfitt að átta okkur
á þvi hvor sýningin er nær raun-
veruleikanum: Brosin og hlýju
handtökin á viðræðufundunum i
Þórshamri eða köldu kveöjurnar
sem birtast i málgagni Alþýðu-
flokksins.
Andstaðan I Fram-
sóknarflokknum
Innan Framsóknarflokksins
voru andstæðingar vinstri-
stjórnar ekki siður öflug fylking.
Þar var fremstur i flokki Ólafur
Jóhannesson sem i fyrstu viku
eftir kosningar boðaði eindregið
að Framsóknarflokkurinn ætti að
standa utan stjórnar. Þegar ljóst
var aö ýmsir af yngri leiðtogum
Framsóknarfloksins vildu fá að
spreyta sig og öflugir hagsmunir
kröfðust áframhaldandi setu
Framsóknarflokksins I rikis-
stjórn lét Olafur tilleiðast að
Eyjólfur Sigurösson.
Förum fram á hlutleysisstuðning
af hálfu Sjálfstæðisflokksins
leyfa Steingrimi og Tómasi Arna-
syni ásamt Jóni Helgasyni aö
spreyta sig á vinstri viöræöum,
en formaöur og varaformaöur
flokksins neituöu báöir aö koma
nálægt þeim. Þaö hefur
aldrei fyrr gerst I sögu felenskra
stjórnmála aö flokkur hafi tekiö
þátt i viöræðum um stjórnar-
myndun án þess aö slikir tveir
höfuöforystumenn ættu þar hlut
aö máli. Enda var greinilegt aö
ritara Framsóknarflokksins
Steingrimi Hermannssyni kom
þetta mjög á óvart.
Hann sagöi i viötali viö
Morgunblaöiö sama dag og viö-
ræöurnar hófust: „Ég var búinn
aöræðaviðólafog égstóði þeirri
trú aö hann myndi veröa meö”.
Sá er greinUega munurinn á
spUamennsku ólafs Jóhannes-
sonar annó 1978 og annó 1974 aö
fyrir f jórum árum lék hann sér aö
þvIaðspUameð aöra stjórnmála-
flokka I viöræðum um vinstri-
stjórn eins og fram kom I frægri
ræðu sem haldin var á Hótel
Sögu. 1 ár er Framsóknarflokkur-
inn hins vegar orðinn svo litiU aö
formaöurinn lætur sér nægja aö
spUa með eigin þingmenn.
Sama dag og Framsóknarmenn
þinguðu um þátttöku I vinstri viö-
ræöum flutti formaöur þingflokks
Framsóknarflokksins um árabU,
Þórarinn Þórarinsson, sem nú er
aö vlsu faUinn út af þingi, I
leiðara Tímans þennan boöskap:
„Eölilegasta lausnin er þá minni-
hlutastjórn sigurvegaranna.
Framsóknarflokkurinn og Sjálf-
stæöisflokkurinn eiga ekki að
standa í vegi þess, aö sigurvegar-
arnir fái þannig aö sýna úrræði
sin.”
I fyrsta skiptí I áratugi birtust i
Timanum viröulegar greinar
undir dulnefninu Dufgus. Þar var
pólitiskur boöskapur á háu plani
fluttur meöháletri sem hingaö til
hefureingöngutiökast á leiöurum
blaðsins en ekki verið boöiö ó-
merkilegum greinarhöfundum.
Þessi boöskapur hefur þann
virðulega sess, að birtast á blað-
siöu tvö og blasir viö sjónum les-
enda strax aö lokinni forslöu og
löngu áöur en aö leiöaranum
kemur.
Greinar Dufgusar eru augljós-
lega skrifaöar af einhverjum höf-
uöleiötoga flokksins. Þar er ráö-
ist harkalega á vinstri viöræð-
urnar. Steingrlmi Hermannssyni
eru ekki vandaöar kveöjurnar
fyrir að vilja vinstristjórn. Þátt-
taka Framsóknarflokksins I
vínstri viðræðunum er kölluö
„óskiljanleg stefna” og hann
gagnrýndur harkalega fyrir að
hnýtasig „aftan I Alþýðuflokkinn
og Alþýðubandalagiö og hlýöa
kalli þeirra”. Leiðtogi Fram-
sóknarflokksins, sem dylst undir
dulnefninu Dufgus, spyr með
þjósti „eru þaö kannske blygð-
unarlausar tilraunir þessara
flokka beggja (þ.e. Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags) að brjóta
niður landslög á siöastliðnum
vetri og nú I vor sem gerir þá
svona eftirsóknarverða? Ekki
getur þaö gert'þessa flokka svo
aðgengilega aö augljóst hefur
verið að þeir hafa undanfarna
daga verið. að hamast við að
undirbúa og svikja öll sin
kosningaloforð.” — „Fram-
sóknarflokkurinn er að reyna að
smeygja sér inn i stjórn bakdyra-
megin, litið er geð guma ef þeir
láta berja sig á þennan hátt án
þess að depla auga.”
Vilmundur Uylfason
Árás á verkalýðshreyfinguna.
Ekki vinstristjórn heldur við-
námsstjórn
Dufgus eða Steingrimur
Þegar Steingrímur Hermanns-
son reyndiaö bera blak af vinstri
viðræðum i málgagninu, birtist
enn á ný heilsiða af Dufgusboö-
skap. Andstaðan við Fram-
sóknarflokkinn færi i stjórn meö
Alþýöubandalaginu var nú oröin
enn greinilegri en áöur. „Viö
skulum vera hreinskilnir, Stein-
gri'mur. Það eru til enn þá
skuggalegri öfl i Alþýðubanda-
laginu en afturhaldið. Þú skilur
væntanlega hvað er á ferðinni
þegar Þjóðviljinn segir að
borgarstarfsmenn Reykjavikur
þurfi endurhæfingar viö? Skoð-
anakúgun og hreinsanir eiga
nefnilega ennþá upp á pallborðið I
Alþýðubandalaginu.” Þaö er
ekki verið aö tvinóna viö
lýsingarnar á viöræöuaöila
Framsóknarflokksins: „Innan
Alþýðubandalagsins eru öfl sem
berjast á móti hverju einasta
framfaramáli.. — „Ég hygg að
við Steingrímur getum veriö
sammála um aö afturhald sé
einu stigi verri eiginleiki en i-
haldsöfl. Hins vegar hygg ég að
augu hans hafi ekki enn þá opnast
fyrir því að Alþýöubandalagiö er
i dag höfuövigi afturhaldsins i
landinu.” Þessi eldri leiötogi
Framsóknarflokksins, hr.
Dufgus, sakar Steingrim Her-
mannsson blátt áfram um barna-
skap fyrir þátttöku hans I viöræð-
um við Alþýðubandalagið.
Jón Skaftason er sama sinnis.
Hann birti haröoröa grein i Tím-
anum nokkrum dögum 'eftír að
vinstri viðræðurnar hófust og
segir: „Þátttaka þingflokksins i
stjórnarmyndunarviðræðum nú
er mistök”. Hann sakar Stein-
grim Hermannsson og Tómas
Arnason um aö hafa látið
freistinguna um ráðherastóla
hafa forgang fram yfir flokks-
hagsmuni. „Það er, aö mínu viti,
óafsakanleg bjartsýni og skortur
áskilningi á eðli þeirrar refskák-
ar, sem forystumenn Alþýðu-
bandalagsins og AlþýðufloWtsins
leika nú, ef þingmenn Fram-
sóknarflokksins trúa því, að
samþykktir siðasta þings veröi
lagðar til grundvallar málefna-
samningi nýrrar vinstristjórn-
ar.”
Þegar vinstri viöræöurnar
Garðar Sverrisson
Alþýðubandalagið er eyðileggj-
andi afl.
höfðu staöiö i nokkra daga og
komiö var aö sunnudagsboðskap
Þórarins Þórarinssonar til les-
enda Tfmans fólst I leiöaranum
enn ein ábendingin um myndun
minnihlutastjórnar Alþýðu-
bandaiags og Alþýöuflokks. Þar
var trúnni á vinstristjórn og
stuöning viö viöræöurnar ekki al-
deilis fyrir aö fara. Þvert á móti
var eyttlöngumáli Inauösyn þess
aömynda minnihlutastjórn ogþá
þingræðisskyldu sem hvildi á
Alþýöuflokki og Alþýöubandalagi
að koma sllkri stjórn á laggirnar.
Til aö sýna rödd hinna sönnu
framsóknarmanna birti Tlminn
svo við upphaf annarrar viðræðu-
viku viðtal við andlegan leiötoga
samvinnumanna, Hauk Ingi-
bergsson, skólastjóra Samvinnu-
skólans, sem nú situr I hinu
gamla sæti Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. Boöskapur lærifööur
hinna ungu samvinnumanna var
fluttur i risafyrirsögn „Fram-
sóknarflokkurinn ekkert I stjórn
að gera”.
Vonir
Nú fer I hcmd önnur helgin siðan
viðræður um vinstristjórn hófust.
Alþýöubandalagið hafði forystu
um aö leiöa Alþýöuflokkinn og
Framsóknarflokkinn til
samningaborðs um sllka stjórn.
Viö myndun hennar voru og eru
bundnar miklar vonir. Hún hefur
greinilega yfirgnæfandi stuöning
meðal þjóöarinnar, langt umfram
allar aörar rikisstjórnartegundir
sem hugsanlegar eru. Stundum
getur veruleikinn þó oröiö annar
en óskir standa til.
Viöræöur um vinstristjórn eru
ágreinilegum timamótum. I upp-
hafi næstu viku mun koma i ljós,
hvort þeir andstæðingar vinstri-
stjórnar i Framsóknarflokknum
og Alþýðuflokknum, sem hér
hefúr verið vitnaö til og sett hafa
meginsvip á málgögn þessara
flokka siöustu daga, munu bera
sigurúr bitum. Eöa hvortþau öfl,
Alþýöubandalagiö I heild sinni og
einlægir stuðningsmenn vinstri-
stjórnar i Framsóknarflokki og
Alþýöuflokki, bera gæfu til þess
að koma slikri stjórn á fót. Tlm-
inn og Alþýðublaðiö hafa siðustu
dagaafhjúpaöþá sterkuandstööu
sem rikjandi er innan Fram-
sóknarflokks og Alþýöuflokks
gegn tilraun til myndunar vinstri-
stjórnar. Sú andstaöa hefur orðið
mörgum vonbrigöi. En dagurinn
er þó ekki enn að kvöldi kominn.
Þvi höldum við áfram ótrauöir.
(Skrifað fimmtudaginn 27. júli
1978)