Þjóðviljinn - 29.07.1978, Síða 12

Þjóðviljinn - 29.07.1978, Síða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júlí 1978 Vinnudeilur magnast á Siglufirði Stjóm S.R. neitar aö greida vLsitölubætur á lægstu laun Verkalýðsfélagið Vaka hefur yfirvinnubann á ný Kolbeinn Friöbjarnarson formaöur Vöku. Þann 7. júli sl. gerði stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði munnlegt samkomulag við þá Jón Reyni Magnússon, fram- kvæmdastjóra Síldarverk- smiðja Rikisins á Siglu- firði og Hannes Baldvins- son, sem sæti á í stjórn S.R. á Siglufirði, sem miðaði að því að Verkalýðsfélagið aflétti yfirvinnubanni því, sem i gildi hafði verið frá setningu bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar i febrú- ar. Þess i stað skyldi S.R. greiða verðbætur á dag- vinnulaun upp að 168.000 krónum, en sömu krónu- tölu á hærri laun. Var það samkomulag svipaðs eðlis og Verkalýðsfélagið Vaka hafði gert við aðra atvinnurekendur á Siglu- firði, og i samræmi við sáttatilboð Verkamanna- sambands Islands. Hins vegar hefur nú stjórn S.R. lýst yfir, að kaup skuli greitt sam- kvæmt bráðabirgðalögun- um, og samkomulagið sem framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og stjórnarmeð- limur stóðu að, væri ógilt. Verkalýðsfélagið hóf því yfirvinnubann á ný kl. 16.00 í gær. I tilefni af þessu hafði blaðið samband við Kol- bein Friðbjarnarson, for- mann Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði. Hann sagði: „Þessi vinnudeila hér á Siglu- firði, er komin i fjölmiðla, þannig að ég tel rétt að rekja nokkuð itarlega þróun þessara launa- mála, launabaráttu eins og hún hefur verið hér á Siglufirði frá þvi að kjaraskerðingarlögin voru sett. Fyrsti árangur sem við náð- um hér, var sá að um mánaða- mótin mai — júni náðum við sam- komulagi við ýmsa minni atvinnurekendur um greiðslu fullra verðbóta á laun upp að 168.000 króna mánaöarlaunum fyrir dagvinnu og siðan sömu krónutölu i verðbætur á hærri laun, en þetta fyrirkomulag er i fullu samræmi við sáttatilboð Verkamannasamband Islands og hefur að minu áliti þann kost að með þvi er öllu almennu verka- fólki tryggðar réttar verðbætur á sin laun, en þeir sem hærri launin hafa verða samkvæmt þvi að sætta sig við sömu krónutölu i visitölubótum, enda engin sann- girni i þvi að menn sem hafa 4. — 500.000 kr. i mánaðarlaun fái þrefaldar verðbætur á við venju- legt verkafólk. Þann 12. júni sl. tókst okkur að gera samning við bæjarráð Siglu- fjarðarkaupstaðar á sama grund- velli. Samningurinn gildir frá 1. júni en er með afturvirkni, þannig að kaupskerðingin frá 1. mars til 1. júni var leiðrétt sérstaklega. Siðasti áfanginn náðist svo með munnlegu samkomulagi milli stjórnar Vöku annars vegar og Jóns Reynis Magnússonar, fram- kvæmdastjóra Sildarverksmiðja Rikisins og Hannesar Baldvins- sonar stjórnarmanns fyrirtækis- ins hins vegar, hinn 7. júli sl. Samkomulagið var um aö S.R. greiddu fullar verðbætur á laun upp að 168.000 krónum á mánuöi i dagvinnu og að hærri dagvinnu- laun á mánuði fengju sömu krónutölu i verðbætur. Sam- komulagið skyldi gilda frá 1. júli og þar til aðrir samningar kynnu að vera gerðir. Stjórn Vöku hét hins vegar að skýra fjölmiðlum ekki frá samkomulagi þessu, og við þaö hefur verið staðið fram til þessa. Sams konar samkomulag var siðan gert við aöra atvinnu- rekendur á Siglufirði, Þormóð ramma hf., og Lagmetisiðjuna Siglósild. Hér á Siglufirði hafa þvi verið greiddar fullar verðbætur á laun aö þessu marki, eða I samræmi við sáttatilboð Verkamannasam- bands íslands. Eftir að S.R. höfðu staðið við þetta samkomulag frá þvi það var gert höfðum við i stjórn Vöku svo fréttir af þvi sl. þriöjudag að stjórn S.R. ætlaði sér fyrirvara- laust að svikja þetta samkomulag og greiða laun starfsfólks sins með fullri visitöluskeröingu sam- kvæmt bráöabirgöalögunum og gera þannig framkvæmdastjóra sinn ómerkan að þvi samkomu- lagi sem hann haföi gert, og þannig munu laun greidd í fyrsta sinn í dag, föstudag, frá þvi sam- komulagið var gert. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir til þess aö fá stjórn S .R. til þess að hætta við þessi svik á samkomu- laginu, hefur það ekki tekist. Orsök þeirrar vinnudeilu sem nú er á Siglufirði er þvf fyrirvara- laus svik stjórnar S.R. á sam- komulagi um laun starfsfólks fyr- irtækisins sem framkvæmda- stjóriS.R. gerði við stjórn Vöku 7. júli sl. Ljóst virðist, aö stjórn S.R. ætl- ar sér að reyna að beygja verka- fólk á Siglufirði, semja ekki við verkalýðsfélagið en beina loðnu- flotanum á aðrar hafnir. Við treystum þvi aö verkafólk i öðr- um byggðarlögum þar sem loönu- bræðslur eru, veiti okkur allan þann stuðning sem það getur i þessari baráttu okkar”. Blaðið hafði þessu næst sam- band viö Hannes Baldvinsson, sem sæti á i stjórn S.R. á Siglu- firði, og bar þau ummæli Kolbeins, sem snerta samskipti Vöku við sildarverksmiðjurnar undir hann. Hannes hafði þetta um málið að segja: „Þarna er rakinn gangur mála i stórum dráttum og rétt með far- ið hjá Kolbeini. Skýringin á, aö ég og Jón Reyn- ir beittum okkur fyrir að þetta samkomulag var gert við Verka- lýðsfélagið Vöku, var, að eftir að félagið hafði lýst yfir yfirvinnu- banni, og það staðið i viku, hafði ekkert raunhæft spor i samkomu- lagsátt verið stigið af hálfu deilu- aðila. Þess ber þó að gæta, að stjórn S.R. fer ekki með samn- ingamál, heldur eru þau i höndum vinnumálanefndar rikisins. En eins og menn muna, voru alþ.kosn. nýafstaðnar, rikis- stjórnin búin að segja af sér, og vinnumálanefndin taldi sig þvi ekki hafa neitt umboð til samn- ingsgerðar. Upplýsingar sem fengnar voru hjá verkfræðingi Sildarverk- smiðjunnar hér á Siglufirði, bentu til þess, að ef ekki yrði þegar náð samkomulagi við Verkalýðsfé- lagið Vöku og yfirvinnubanninu aflétt myndu verksmiðjurnar ekki geta tekið við loðnu til vinnslu fyrr en eftir mánaðamót- in júli-águst. Segja má, að verk- smiðjan á Siglufirði hafi verið i flakandi sárum vegna gagn- gerðra endurbóta sem stóðu yfir á vélakostinum. Ekki reyndist unnt þrátt fyrir itrekaðar tilraunir, aö ná sambandi við menn f stjórn S.R. og urðum við Jón Reynir þvl sammála um, að taka á okkur ábyrgðina á þvi að reyna að ná samkomulagi við Verkalýðsfé- lagið Vöku og fá yfirvinnubann- inu aflétt.Það tókst okkur á eins hagkvæman hátt að minum dómi og hægt var að reikna með undir þessum kringumstæðum. Hins vegar hefur nú siðustu daga kom- ið i ljós að ég og Jón Reynir lögð- um mismunandi skilning i sam- komulagið að þvi leyti aö Jón tel- ur sig ekki hafa reiknað meö að samkomulagið næði til vakta- vinnu i verksmiðjunum. Ég áleit hins vegar frá upphafi, að sam- komulagið gilti þar til nýir samningar hefðu verið undirrit- aðir af réttum aðilum, og ég held, að allir hafi reiknað með þvi, að þess yrði ekki langt að biða aö ný stjórn yrði mynduð sem gæti unn- ið að þvi að lagfæra það þrúgandi ástand i launamálum, sem gamla ihaldsstjórnin skildi eftir sig. Ég vil persónulega taka fram, að ég hlustaði á einn af ráðherr- um rikisstjórnarinnar fullyrða að bráðabirgðalögin, sem rikis- stjórnin setti, bönnuðu ekki, þeim aðilum sem gætu eða treystu sér til að greiða hærri laun. Einnig má nefna, að samningar voru i gangi hjá mörgum bæjarfélögum sem byggðu á sömu úrlausn og fólst i samkomulagi þvi, sem gert var við Verkalýðsfélagið Vöku. Það má þvi segja, að við höfum aðeins fetað i fótspor þeirra sem á undan höfðu gengið i að leysa rikjandi vinnudeilur”. —jsj. Brot á reglugerdum um dagstimplun mjólkur: Erlendis væri mjólkur- búðunum lokað — segir Jóhannes Gunnarsson, mjólkurfrædingur ,,Þaö er enginn vafi á því að okkar mjólk er miklu verri en sú mjólk sen er á markaönum t.d. í Banda- rikjunum og á Norðurlönd- um. Þau brot sem mjóikursamsölur hér hafa orðið uppvísar að myndu nægja til að slíkum sam- sölum yrði þegar i stað lok- að, ef þær væru t.d. á Norðurlöndunum", sagði Jóhannes Gunnarsson mjólkurfræðingur, sem er formaður Borgarf jarðar- deildar Neytendasamtak- anna og jafnframt i vara- stjórn NS. Eins og skýrt var frá í fréttum hér í blaðinu, hefur Heilbrígöisef tirlítíð sent Mjólkursamsölunni harðort bréf, vegna þess að mjólk hefur verið stimpluð allt að 8 daga fram í tfmann í stað 4ra. „Þetta mál verður tekið fyrir á stjórnarfundi Neytendasamtak- anna bráðlega, en við teljum þetta mjög alvarlegt mál. Það er ekki aðeins Mjólkursamsalan i Reykjavik sem hefur brotið reglugerð um dagstimplun, heldur allmörg mjókurbú hér i nágrenninu. Sú heimild sem Mjólkursamsölunni i Reykjavik var veitt, um að stimpla 4 daga fram i timann i stað 3ja, hefur verið tekin upp i ýmsum öðrum mjólkurbúum, án þess að leyfi hafi verið veitt viökomandi búi. Þar að auki er mjólkin oft orðin of gömul þegar hún kemur i búin, þvi mjólk er ekki sótt nægilega oft til bændanna”, sagði Jóhannes ennfremur. Nú er sem kunnugt er sá timi, þegar erfiðast er að geyma mjólk og gæði hennar lélegust. Hefur það einnig komið fram eftir að fréttir bárusi af framlengdri dag- stimplun mjólkur, aö fjöldamarg- ir hafa keypt mjólk sem er bragð- vond og hefur orðið ónýt um leið og fernurnar eru opnaðar. Jóhannes sagði að við íslend- ingar gerðum allt of litlar kröfur varðandi gerlainnihald mjólkur, en hér fer mjólk i 1. flokk ef gerla- innihald pr. milliliter er undir 500 þús. en erlendis er algengast að mörkin séu við 50-200 þúsund gerla. þf

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.