Þjóðviljinn - 12.08.1978, Blaðsíða 1
UÚWIUINN
Laugardagur 12. ágúst 1978 —171. tbl. 43. árg.
Stjórnarmyndunarviðræðurnar:
Kaupskipaslippur í Reykjavik.
Eitt af áhugamálum nýja meiri**
hlutans í borginni.
Viðtal við Sigurjón Pétursson.
Sjá siðu 8 og 9.
Landbúnadarsýn -
Ekki aukin bjartsýni
á aö tilraunin takist
Enginn ágreiningur enn um efnahagsmálin
Efnahagsmálin en þó ekki
hugsanleg gengisfelling voru ein-
göngu til umræöu á fyrsta viö-
ræðufundi fulltrúa Alþýöuflokks-
ins, Framsóknarflokksins og
Sjálfstæöisflokksins, um mögu-
lega samstjórn þessara flokka.
Fundurinn, sem haldinn var I
Stjórnarráöshúsinu, hófst kl. 10 i
gærmorgun og stóö I um þaö bil
tvær og hálfa klukkustund.
Þátttakendur I viðræöunum
voru ófáanlegir tíl aö tjá sig um
niðurstöður fundarins. Stein-
grlmur Hermannsson sagðist þó
ekki vera neitt bjartsýnni en áö-
ur.
Benedikt Gröndal sagði að
ómögulegt væri að segja eitthvað
um það hvort þessi tilraun tækist
eftir þennan fyrsta fund. Geir
HaUgrimsson sagði að umræöurn
ar um efnahagsmálin á fundinum
hefðu ekki náð það langt að
ágreiningur heföi komiö upp um
leiðir til lausnar, en tók það jafn-
framt fram aö I reynd væri niður-
staða fundarins engin og hann
væri bæöi vantrúaður og trúaður
á að þessi tilraun tækist.
Næsti fundur hefur veriö boðað-
ur á mánudagsmorgun kl. 10.
Af hálfu Alþýðuflokksins taka
þátt I viðræðunum þeir Benedikt
Gröndal og Kjartan Jóhannsson,
af hálfu Framsóknarflokksins,
þeir Ólafur Jóhannessonog Stein-
grimur Hermannsson og af hálfu
Sjálfstæðisflokksins þeir Geir
Hallgrlmsson og Gunnar Thor-
oddsen.
„Meö viðreisnina á milli sin” gæti þessi myndi heitiö. Benedikt Gröndal og Geir Hallgrfmsson takast i hendur við upphaf viðræðna f gærmorgun
um að Alþýöuflokkurinn gangi til liðs við fráfarandi stjórnarflokka. A milli þeirra má sjá myndir af tveimur útgáfum viðreisnarstjórnarinnar,
samstjórnar Alþýðii flokks og Sjáifstæðisflokks i tólf ár. Til hliðar er Kjartan Jóhannsson, varaformaður Alþýðuflokksins.
ingin á Selfossi:
Fjöldi gesta
viö opnunina
Þessi ungi piltur sem heldur
á vikugömlum gris frá Nýja-
bæ, heitir Kjartan Björnsson
og er einn af yngstu starfs-
mönnum á Landbúnaöarsýn-
ingunni.
Forseti Islands, hr. Kristján
Eldjárn setti Landbúnaöar-
sýninguna á Selfossi i gær, eft-
ir að flutt höfðu verið nokkur
ávörp. Sýningin verður opin
daglega frá 14-23, nema um
helgar, þá er opnað kl. 10 f.h.
Sýningunni iýkur sunnudaginn
20. ágúst.
Sýningin, sem haldin er i til-
efni 70 ára afmælis Búnaðar-
sambands Suðurlands, er i
húsum Ggnfræðaskólans á
Selfossi og á nærliggjandi úti-
svæðum.
Hlutverk sýningarinnar er
fyrst og fremst að kynna hlut-
verk og stöðu islensks land-
búnaðar i þjóðfélaginu. Á
sýningunni sýna fjöldi fyrir-
tækja og félaga framleiöslu
sina, vélar, afurðir og tæki,
auk þess sem margskonar
skepnur eru á sýningunni, sem
væntanlega munu vekja at-
hygli yngri sem eldri. Við
opnunina fluttu einnig ávörp
Einar Þorsteinsson, formaður
sýningarstjórnar , bæjar-
stjórinn á Selfossi, erlendur
Hálfdánarson, Halldór E.
Sigurðsson landbúnaðarráð-
herra, og Stefán Jasonarson
frá Búnaöarsamb. Suður-
lands Sjá opnu
Svavar Gestsson í viðræðunefnd
þingfiokks Alþýðubandaiagsins:
Lofsvert
framtak
Benedikt Gröndal,
formaður Alþýðuflokksins:
Óvænt
frumkvæði
Framkvæmdastjórn
Verkamanna-
sambandsins
Eindregin
áskorun á
Alþýöuflokk
og Alþýðu-
bandalag
Sjá baksiöu
„Mér sýnist aö þarna sé um
að ræða lofsvert framtak af
hálfu VMSÍ‘,sagði Svavar Gests-
son, einn fuiltrúa Alþýðubanda-
lagsins í viðræðunefnd þing-
flokksins . Alþýðubandalagið
hefur ævinlega staðið þétt við
hlið verkalýðshreyfingarinnar
og það var raunar stofnað fyrir
frumkvæði hennar. í sögu
Alþýðuflokksins er hins vegar
að finna annars konar afstöðu
og siðustu dagana hefur hann
hallað sér að kaupránsflokkun-
um og krafist 7% kauplækkun-
ar. Þeirrikröfu hafnaði Alþýðu-
bandalagið i viöræðum um
vmstí-i stjórn og er áreiðanlega
ekki viö til viðræðu um stjórnar-
samstarf nema kaupránslögin
verði numin úr gildi eins og lýst
var yfir fyrir kosningar.
Alþýðubandalagið er að sjálf-
sögðu tilbúið að ræöa við hvern
flokkanna sem er, en ekki verð-
ur hjá þvi komist að benda á að
Alþýðuflokkurinn á nú þessa
dagana viðræður við kaupráns-
flokkana um myndun rikis-
stjórnar.Þess vegna er vandséð
hvernig Alþýðuftokkurinn ætti á
næstunni að taka upp viðræður
við Alþýðubandalagið sem
stefna auövitað i þveröfuga átt.
—A1
„Þessi áskorun vakti mikla
athygli á fundi þingflokks
Alþýðuflokksins, sagöi Benedikt
Gröndal, formaður Alþýðu-
flokksins, en honum var rétt að
ljúka i þessu”. ,,Ég tel þetta
óvænt og athyglisvert frum-
kvæði af hálfu VMSl, og niöur-
staða þingflokksfundarins var
að við munum kynna okkur
þetta mál frekar af miklum
áhuga”. Benedikt sagði enn-
fremur að áskorunin hefði i
engu breytt stöðu Alþýðuflokks-
ins I yfirstandandi stjórnar-
myndunarviöræðum, „ekki
enn”, eins og hann orðaði það.
Þá sagöi Benedikt aö Alþýðu-.
flokksmenn heföu sjálfir gert
tvær tilraunir til þess að mynda
rikisstjórn, og i bæði skiptin
hefði veriö leitaö tíl Alþýðu-
bandalagsins. ,,AÖ þvi búnu gáf-
umst viðupp, en þetta bréf, sem
við erum nýbúnir að fá i hend-
um munum við kanna nánar”,
sagði Benedikt aö lokum.
—A1