Þjóðviljinn - 06.10.1978, Síða 6

Þjóðviljinn - 06.10.1978, Síða 6
6 SjÐA — ÞJ6ÐVILJINN !Fðstuda6ur 6- október 1978 Hér á landi er nú staddur 23 ára Chilemaöur, sem kýs aö kalla sig Luciano, þótt ekki sé þaö fullt nafn hans. Hann er hingaö kominn frá Sviþjóö, þar sem hann er viö nám, og erindiö er aö heimsækja islenska vini. Þar sem þaö gerist ekki á hverj- um degi aö Chilemenn sæki okk- ur heim, þótti blaöamanni Þjv. forvitnilegt aö hitta Luciano aö máli. — Eg er alinn upp i fátækra- hverfi i Santiago — segir hann. — Foreldrar minir eru verka- fólk. Ég gekk i barnaskóla en fór svo strax aö vinna viö þaö sem til féll. Þegar ég var 15 ára var Allende kosinn forseti og þá uröu miklar breytingar á lifi okkar. Ég var ekki og er ekki meölimur i neinum pólitiskum flokki, en ég starfaöi mikiö aö allskyns málum I hverfinu á All- ende-timanum. Maöurgatekki annaö en hrifist meö. Fjöl- skylda min hefur alltaf veriö vinstrisinnuö og viö uröum óskaplega glöö þegar Allende náöi kosningu. Þaö uröu allir i Rætt viö ungan verkamannsson frá Chile Luciano er pólitlskur fióttamaöur I Svlþjóö. Pólitískur flótta- maður frá 18 ára aldri hverfinu. Og þaö voru stofnaöar nefndir til aö vinna aö ymsum málefnum okkar. Þetta varekki i fyrsta sinn sem Ibúar fátækra- hverfanna áttu frumkvæöi aö stofnun slikra nefnda, þaö haföi veriö gert áöur, en aldrei fyrr höföu menn haft jafnmiklar vonir um aö ná einhverjum árangri. Ogþaö náöist árangur. Kjörin bötnuöu hjá þeim sem verst voru settir. En brátt var stéttabaráttan komin á þaö stig aö borgararnir gripu til gagnráöstafana og sköpuöu efnahagslegt öngþveiti i land- inu. Þegar vöruskortur tók aö gera vart viö sig tóku hús- mæöurnar i hverfinu sig saman og stofnuöu neyslusamtök til aö annast dreifingu á matvælum osfrv. Þá vorum viö strákarnir fengnir til aö aöstoöa þær. Viö stóöum vöröum vörubilana sem komu meö matvælin, bárum sekki og kassa og hjálpuöum til einsog viö gátum. Þetta var timabil vakningar. Allir fóru aö vasast I pólitik, lesa blööin og ræöa málin. Mik- ill meirihluti ibúanna i hverfinu okkar skildi aö stjórnin þarfnaðist stuðnings og aö fólkiö gat veitt þennan stuöning meö þvi aö taka beinan þátt i þróun- inni. Nú vartækifæriö komiö til aö hafa áhrif á gang mála, skipta sér af þeim málum sem snertu alþýöuna beint. Ég hafði aldrei lesiö neinar bækur, en andrúmsloftiö var þannig aö maöur fór ósjálfrátt aö bera sig eftír fræðslu. Viö þurftum aö fá aö vita svo margt, t.d. um baráttu verkalýðsins i Chile, um efnahagsmál og sögu landsins, og einnig um aörar þjóöir. Ég las mina fyrstu al- varlegu bók áriö 1972. Þaö var Kommúnistaávarpiö. Valdaránið Viö vissum vel aö viö þurftum aö standa vörö um þaö sem á- unnist haföi. Viö fylgdumst meö viöbrögöum borgarastéttarinn- ar og vissum aö hún var líkleg til aö gripa til valdaráns þegar allt annaö heföi brugöist henni. Viövorum reiöubúin aö verjast, en mikið skorti þó á skipulag i okkar röðum. 29. júni 1973 var gerö tilraun til valdaráns sem mistókst. Þá bjóst fólk til varn- ar i miklu rikara mæli en varö svo 11. september, þegar valda- rániö heppnaöist. Ég tók þátt i þessum varnaraögeröum i júni. Þaö voru reist götuvigi og kom til bardaga, en ekki varö af valdaráninu þá. 11. sept. hvar ég heima hjá mér, þegar fréttin um valda- rániö barst út. Fyrstu viðbrögð- in I hverfinu voru aö kalla sam- an fund til aö ræöa aögerðir. Viö reyndum aö skipuleggja vörn hverfisins. Þá komu her- menn á vettvang og umkringdu hverfiö. Fólkiö geröi hróp aö þeim, en þeir gripu þegar i staö þá sem mest höföu sig I frammi og fóru meö þá burt. Svo skutu þeir inn i hópana til aö hræöa fólkiö, og drapu þá nokkra. A þessari stundu skildum viö aö viö máttum okkar einskis frammi fyrir hervaldinu. Mörg okkar voru handtekin. Ég komst undanog faldi mig. Ég gat ekki fariö heim aftur, þvi aö ég vissi aö þeir voru aö leita aö mér, einsog öllum þeim sem veriö höföu stuöningsmenn Allende. Siöan hef ég ekki séö fjölskyldu mina. Ég sá hvernig þeir drápu fólk á götunum i Santiago þennan dag. A flótta minum fór ég inn i hús sem er rétt hjá háskólanum. Þaðan sá ég útum glugga að herinn haföi umkringt háskól- ann. Inni voru stúdentar sem höföu náð sér i einhver vopn og héldu uppi vörnum. Allt i einu kom sjúkrabill meö sirenur i fullum gangi og ætlaöi inn i skólaportiö. Hermennirnir hleyptu honum ekki i gegn, en neyddu bilstjórann til aö nema staðar. Þá stukku nokkrir ungir menn út úr bilnum og hófu skot- hriö á hermennina, sem svöruöu i sömu mynt. Eftir stuttan bar- daga lágu stúdentarnir i valn- um. Hermennirnir fóru inn I sjúkrabilinn og komu út aftur meö birgöir af vopnum, sem stúdentarnir höföu veriö að reyna að smygla inn I háskólann á þennan hátt. Pólitískur flóttamaður Ég var i felum I tvo mánuöi, en þá komst ég i samband viö nokkra Itali, sem buöust til aö hjálpa mér aö komast úr landi. Meö aöstoö þeirra komst ég til Argentinu, þar sem ég var i 3 mánuöi eöa þangaö tíl ég fékk sendan farseöil til Italiu, fyrir tilstílli þessara itölsku kunn- ingja, sem unnu mikiö hjálpar- starf þangað til þeir voru reknir frá Chile.Þeir voru i tengslum við Itölsku samstööuhreyfing- una. Eftir nokkra dvöl á ítaliu fór ég til Sviþjóöar og fékk þar hæli sem pólitiskur flóttamaöur. 1 Sviþjóö búa pólitiskir flótta- menn viö meiraöryggi en viðast hvar annarsstaöar. Ég er núna sestur á skólabekk, stunda há- skólanám. Þar fyrir utan vinn ég eins mikiö og ég get aö þvi aö efla samstöðuna meö Chile og fræöa fólk um ástandiö þar, og um baráttu okkar gegn fasism- anum. Viö chilensku útlagarnir litum á þetta starf sem skyldu okkar, verkefni sem viö verðum aösinna fyrst og fremst. I Svi- þjóö eru starfandi ýmis samtök, einsog t.d. Chilenefndin og OPRECH, sem er félag sem annast aðstoö viö pólitiska fanga I Chile. Þessi aöstoö fer fram meö ýmsu mótí, t.d. meö þvi aö safna upplýsingum um fanga, sérstaklega þá 2500 póli- tisku fanga sem vitað er meö vissu aö hafa horfiö eftir hand- töku. Herforingjarnir neita þvi stööugt aö þetta fólk hafi veriö handtekiö, en fyrir þvi eru til nægar sannanir, sem ekki er hægt aö hrekja. Viö vitum aö mun fleiri hafa horfiö, ýmist veriö myrtir eöa eru enn I fang- elsum og fangabúöum, en viö vitum ekki hversu margir þeir eru. Þegar 'talað er um 2500 fanga er aöeins átt viö þá sem örugg vitneskja er um. Viö sendum lika peninga og fót til Chile, beint tíl fólksins sem við vitum aö þarfnast slikra sendinga mest. Yfirvöld- in geta ekkert gert til aö stööva þessar sendingar, þvi að þarna er um aö ræöa póstsendingar til ákveöinna einstaklinga. Viö sendum t.d. fatnaö i 10 kg. pökk- um til fjölskyldna i fátækra- hverfunum, aöstandenda póli- tiskra fanga eöa fólks sem viö vitum um. Viö sendum lika bréf, og reynum þannig aö veita bæöi andlegan og efnalegan stuöning. Viö gefum út tlmarit og bækl- inga og reynum aö koma á framfæri viö fjölmiöla upplýs- ingum um þær hörmungar sem alþýöan i Chile býr viö, um pyntingar og ómannúölega meöferö á fólki og um þær fasisku aðferðir sem herforingj- arnir nota til aö halda sér i sessi. Ég er staddur hér á Islandi i einkaerindum, en ég mun áreiöanlega nota tækifæriö til aö ræða viö fólk um Chile og hvaö hægt sé aö gera til aö sýna i verki samstööu með chflenskri alþýðu. ih Rithöfundadagar í Stokkhólmi Þessa dagana standa yfir I Stokkhólmi norrænir rithöfunda- dagar. Þaö eru Kulturhuset, Hasselby Slott og Stokkholms stadsbibliotek sem gangast fyrir þessari menningarviku. Dagskrá vikunnar er viðamikil og hófst á þriðjudaginn en lýkur á sunnu- dag. Norrænir rithöfundar lesa úr verkum sinum og ræða viðáheyr- endur; fram fara umræður og kynning norrænna bókmennta. Þá eru kynntar stuttar kvik- myndir, hljómleikar haldnir með norrænni tónlist og bókasýning er opin bæði i borgarbókasafni, menningarhúsinu og viöar. Eftirtaldir norrænir rithöf- undar aörir en sænskir taka þátt i menningarvikunni I boði þeirra stofnana sem fyrir henni standa: Jóhann Hjálmarsson og Vésteinn Lúöviksson, Steinbjörn Jacobsen frá Færeyjum, Marienne Larsen, Poul Pedersen og Hans Lövetand frá Danmörku, Einar Okland, Eva Sell og Kjell Sandvik frá Noregi og Marta Tikkanen, Kaarina Helakisa, Daniel Katz og Bo Carpelan frá Finnlandi. Þorgeir Þorgeinsson er höf- undur kvikmyndanna sem sýndar eru frá Islandi en þær eru Maöur og verksmiöja og Róöur. Þá er einnig efnttilsérstakrar sýningar i Kulturhuset sem helguð er höf- undum er þar koma fram og rit- höfundasamtökum Noröurlanda. Fréttabréf Samtaka migrenisjúklinga Út er komið Fréttabréf Migrenisamtakanna, 1. tbl. 1. árg. Ritstjóri þess og ábyrgðar- maður erNorma E. Samúelsdótt- grenisjúklinga. Langloka, eftir ritstjórann, Normu E. Samúels- dóttur. Birt eru lög fyrir Samtök migrenisjúklinga. ir. 1 Fréttabréfinu eru eftirtaldar Stjórn Samtaka migrenisjúk- greinar, auk smærra efnis: , linga er skipuð þeim Einari Loga Frástjóminni, eftir EinárLoga Einarssyni, Normu E. Samúels- Einarsson, Þankastrik um migr- dóttur, Reginu Einarsdóttur, eni. Frá islenskum migrenisjúk- Arna Böövarssyni og Helga lingum. Ræöa Tryggva Jónasson- Danielssyni. ar, flutt á stofnfundi Samtaka mi- —mhg Heimsmeistaramót i Master Mind r F orkeppni Invicta Plastics Ltd. (umboö á tslandi David Pitt & Co.) halda fyrsta heimsmeistaramót i MASTER MIND á Englandi I Stratford-Upon-Avon, dagana 3.-5. nóvember 1978. Islenska umboöiö mun gangast fyrir undankeppni hér á landi laugardagana 14. og 21. október. Keppninni veröur hagaö þannig aö laugardaginn 14. október fer fram f orkeppni og veröur hún öll- um opin, 12 ára og eldri. Keppnis- staöir veröa, PENNINN, Hallar- múla og FRIMERKJAMIÐ- STOÐIN, Skólavörðustig. Keppn- in stendur frá kl. 10.00-12.00 og 13.00-16.00. Aö lokinni þessari keppni veröa 20 bestu keppendurnir fundnir. Þeir keppa til úrslita þ. 21. októ- ber á Hótel Loftleiðum. Undankeppninni veröur hagaö þannig aö hver keppandi fær aö reyna aö leysa tölvuraöaö spil. I hverju spili hafa veriö spilaöar 5 umferðir og þarf keppandinn aö- eins aö spila eina röö, þá sjöttu, leysa hana rétt og á sem skemmstum tima. I úrslitakeppninni, verður 20 á Islandi keppendum skipt I f jóra riöla og fær sigurvegarinn i hverjum þeirra I verölaun frá isl. umboö- inu nýjustu geröina af MASTER MIND sem er rafeindaspil (electronic). Þessir fjórir munu siöan keppa til úrslita og fær sig- urvegarinn I verölaun ferö á heimsmeistarakeppnina ásamt uppihaldi meöan keppnin stend- ur. Flugleiöir hafa aðstoöaö viö aö koma þessari keppni á lagg- irnar. A heimsmeistaramótinu er keppt um fern verölaun: — Fyrstu verðlaun 300 pund og gull- bikar önnur verðlaun 200 pund Þriöju verðlaun 100 pund Fjóröu verölaun 50 pund. Keppni þessi er tilkomin vegna þeirrar gifurlegu útbreiöslu sem MASTER MIND hefur náö áund- anförnum árum. Aaöeins 6 árum hafa selst 28.000.000 (miljón) spil. Ef öllum kössunum væri raðað enda viö enda væri rööin 8.711 km. löng. Siðan Isl. umboðið hóf aðselja MASTER MIND á Islandi áriö 1975 hafa selst hér á landi yf- ir 15.000 spil. Félag áhugamanna um harmonikkuleik heitir nú Félag harmonikku- unnenda A siðasta aðalfundi Félags áhugamanna um harmonikuleik var ákveðin breyting á nafni félagsins. Heitir það nú Félag ha r m onlku unnenda. A fundinum var öll stjórn félagsins endurkjörin, en hana skipa: Bjarni Marteinsson, for- maður, Guömundur Guömunds- son, ritari, Elsa Benediktsdóttir, ' gjaldkeri, Guömar Hauksson, meðstjórnandi og Karl Jónatans- son, meöstjórnandi. Vetrarstarf félagsins er nú þegar hafiö og munu næstu skemmtifundir veröa haldn- ir sunnudagana 8. okt., 5 nóv. og 3. des. Fundirnir verða I sam- komusal Verkstjórafélags tslands að Skipholti 3, þriðju hæð, kl. 15.30. Helstu verkefni, sem félagið mun snúa sér að á komandi vetri eru: Aukin hópvinna innan félags- ins. Gerð útvarpsþátta á vegum félagsins. Húsnæöisvandamál félagsins. Harmonlkukennsla veröi tekin inn i rikisstyrkta tónlistarskóla landsins. Nótnasafn o.fl. Um 100 manns eru nú I félaginu og er þegar fariö aö stofna harmonikuáhugahópa úti á lands- byggöinni, i tengslum við félagið. Félagið hvetur alla velunnara harmonikutónlistar aö taka þátt i starfinu. —mhg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.