Þjóðviljinn - 06.10.1978, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 06.10.1978, Qupperneq 9
Fftstudagur 6. október 1978 . pjöÐVILJINN — SIÐA 9 Léleg þjónusta við vinnandi fólk Þann l.september s.L breyttist opnunartimi sundlauganna 1 Reykjavik þannig að nú loka þær kl. 19.30 virka daga, 17.30 á laugardögum og 13.30 á sunnu- dftgum. Þar sem margir hafa komið að máli við Þjftðviljann og bent á hversu takmörkuð þjftn- usta sundlauganna er við vinn- andi fftlk þótti okkur rétt að fræö- ast örlitiö um rekstur og þjftnustu sundlauganna. Heimildamaður blaðsins er Stefán Kristjiínsson I- þróttafulltrúi Reykjavikurborg- ar, sem leystí greiðlega úr spurn- ingum blaðsins. Samkvæmt upplýsingum hans sýnast kvartanir manna á rökum reistar.Otivinnandi " húsmæöur með börn hafa t.d. nær enga möguleika á að fara i sund virka daga vikunnar og erfiðis- vinnumenn varla heldur. Þegar dagurinn byrjar milli kl. 7 og 8 á barnagráti, morgunmat og ferða- lögum bæjarhlutanna á milli á dagheimili eða til dagmömm- unnar, þá er augljóst aö timinn fyrir vinnu nýtist ekki til sund- iðkunar. Margir nota hádegið til að fara i sund.en það er engin til- viljun að hádegisgestir sundlaug- anna eru flestir' karlmenn. —Karlmenn sem hafa frjálsan vinnutfma, sitja á slnum eigin skrifstofum eða rikisins og ,,eru I mat” í 1-2 klukkuttma dag hvern. Konurnar sem á sömu skrif- stofum vinna hafa ekki sama frjálsræði.ekki bila til að skjótast i laugarnar og þær verða að vera til staöar kl. 1 og svara þvi til I simann að skrifstofustjórinn, deildarstjórinn, verslunarstjór- inn eða hvað þeir nú heita, séu ó- komnir úr mat. Vinnudagur þessara kvenna endar um kl. 5. og þeirra sem vinna i verslunum kl.6. Af- greiðslustúlkur verða að nota hd- degið til innkaupa, hinar milli 5 og 6, svo þarf að sækja barnið eða börnin á barnaheimilið, koma sér heim og gefa þeim að borða. Þegar þeirri törn er lokið er llka búið aö loka sundlaugunum og þannig liöa dagarnir. Þetta dæmi um virkan dag úti- vinnandi húsmóður hljóta allir að viðurkenna að stenst og það sýnir að þeim er bókstaflega meinaður aögangur að sundlaugunum nema laugardagseftirmið- dagana. Góður sundsprettur er þeim þó ekki siður hollur en öðrum, t.d. erfiðisvinnu- mönnum, sem hafa held- ur ekki tök á að nýta sér þjónustu sundlauganna virka daga. Þeirra vinnudagur hefst um 7 leytið á morgnana og lýkur um 7leytiðá kvöldin eða seinna. Matartimi þeirra gefur ekki kost á sundlaugarferð, og eftir vinnu- tima verða þeir aö velja milli kvöldmatar og sundspretts. En hvers vegna eru sundlaug- arnar ekki opnar lengur? Hvers vegna þarf aö loka þeim strax eftir hádegiö á sunnudögum og hvers vegna eru skólasundlaug- arnar lokaðar allan sumar- timann? Menn segja vafalaust að það sé of dýrt að halda þeim opnum, þvi vinnutlmi þeirra sem við sundlaugarnar starfa endar ekki fyrr en 2 klukkutfmum eftir aðhætt er að selja ofan í laugina. En er þaö afsakanlegt að halda þessum dýru mannvirkjum ó- notuöum og lokuöum öll kvöld og stóran hluta helganna einmitt þann tima sem vinnandi fólk er I frli? Vinsældir Læragjáar á sunnudögum og á kvöldin sýna aö Reykvfkingar kunna vel aö meta heita vatnið eftir kvöldmat og jafnveleftir miðnætti, þótt ekki sé farið fram á það hér að sundlaug- arnar verði opnar allan sólar- hringinn. Gestafjöldinn myndi áreiöanlega aukast ef opnunar- timinn yrði rýmkaður þannig að vinnandi fólk ætti þess kost að synda sér til heilsubótar. -AI 1 Breiðholtinu þar sem tugþúsundir manna búa er útisundiaug sem er lokuö og ftnotuð nema þann tlma sem skólinn starfar. Laugin er sæmilega stór, 16,75 metrar x7,5 og tilvalinn baðstaður fyrir Breiðhylt- inga á sumrin. Sundlaugarnar í Reykjavík eru 8 Eitt af þvi sem Reykvikingar gjarnan stæra sig af og sýna út- lendingum með stolti eru sund- laugarnar i borginni. Þá stendur heldurekki á aðdáunarorðum þar sem hreint vatn og hreint loft borgarinnar er rómað. Sundlaug- arnar eru dýr mannvirki og rekstur þcirra kostar sitt og þrátt fyrir mikinn gestafjölda er tals- vert tap á laugununt þremur, Laugardalslaug, Sundlaug Vest- urbæjar og Sundhöllinni. Sam- kvæmt upplýsingum Stefáns Kristjánssonar iþróttafulltrúa borgarinnar lætur nærri að að- gangseyrir nemi um 60% af út- gjöldum en borgarsjóður greiðir mismuninn þ.e. 40%. Þetta er mun hagstæðara hlutfall en vlöa erlendis, þar sem aðgangseyrir 1.100.000 sundlaugar- gestir. A síðasta ári sóttu um 1 miljón og 100 þúsund manns sundlaug- arnar i borginni. Um 580 þúsund manns fóru I Laugardalslaugina, 360þúsund I Sundlaug Vesturbæj- ar og 160 þúsund I Sundhöllina við Barónsstig. Tekjur Laugardalslaugarinnar voru 73 miljónir en kostnaður 116 þannig að rekstrarhalli var 43 miljónir króna. Þess ber að geta að mjög kostnaðarsamar við- gerðir voru gerðar á Laugardals- lauginni sl. ár vegna steypugalla og sá kostnaður bættist við dag- legan rekstur laugarinnar. Tekjur Sundlaugar Vestur- bæjarar voru 38 miljónir en gjöld 50 miljónir þannig að hallinn var 12 miljónir króna. Tekjur Sund- hallarinnar voru 23 miljónir, • gjöld 51 miljónn og hallinn 28 miljónir króna. Rekstur þessara Skólasundlaugin IF jölbrautaskólanum I Breiðholti. Laugin er 12,5x7,5 metrar að stærð. Þá fáu góöviðrisdaga sem gefur hér I Reykjavfk á sumrin eru iaugarn- ar sneisafullar af fólki. Beri sólardag upp á sunnudegi þegar allir eiga fri eru laugarnar hins vegar lokaðar, nema sundlaugin f Laugar- dal, þar sem þessi mynd er tekin, er opin til hálf sex. þriggja stundstaða kostaði þvi borgarsjóð 83 miljónir á árinu 1977 en laugargestir greiddu 124 miljónir króna. 80% Um 80% af sundlaugargestum kaupir sér afsláttarmiða. Þetta eru hinir daglegu gestir i sund- laugunum, enda er mikill verð- munur á miöunum og venjulegu gjaldi. Fyrir fullorðna kostar 230 krónur I laugina en borgi maöur meö miða kostar það 150 krónur. Barnagjald kostar 100 krónur en miðarnir 50 krónur stykkið. Samkvæmt þessum upplýsing- um hefur hver Reykvikingur lagt leiö sina 14 sinnum á ári að meðaltali i sund. Þetta er þó mjög fjarri lagi, þvi meirihluti sund- laugargesta syndir reglulega og aörir koma nær aldrei I sund- laugarnar. Ein af skýringunum á þvi gæti verið opnunartiminn, sem að margra áliti er allt of stuttur og mismunar fólki veru- lega. Opnunartimi Um vetur, þ.e. frá 1. september til 30. aprit,opna laugarnar þrjár kl. 7.20 á morgnana og sölu er hætt kl. 19.30 virka daga. Á laugardögum er opnað kl. 7.20 og sölu hætt kl. 17.30 og á sunnudög- um er opnað kl. 8 og sölu hættkl. 13.30. Sumartiminn er hins vegar breytilegur þvi þá er Laugardals- laugin opin lengur en hinar tvær á sunnudögum. Virka dagaá sumr- in, þ.e. frá 1. mai til 31. ágúst opna laugarnar kl. 7.20 og sölu er hætt kl. 20.30. Á laugardögum er opnað á sama tima en sölu hætt kl. 17.30. A sunnudögum opna laugarnar kl. 8. 1 Sundlaug Vest- urbæjarar og Sundhöllinni er hætt að selja ofan i kl. 14.30 en i Laugardalslauginni kl. 17.30. Hálftima eftir aö hætt er aö selja ofan i laugina verða menn að fara uppúr,og siöan má reikna meðað ræsting og annaö taki 1 og 1/2 tima eftir það. Aeftirtöldum hátiðisdögum eru sundlaugarnar opnar hálfan dag- inn: Skirdag;- 2. páskadag* Sumardaginn fyrsta;l. maijUpp- stigningardag; 2. hvitasunnudag; aðfangadagjóla og gamlársdag. Eftirtalda hátiðisdaga eru sund- laugarnar lokaðar: Nýársdag; Föstudaginn langa,' Páskadag; Hvitasunnudagr 17. júni' Fridag verslunarmanna^ jóladag og 2. i jólum. 5 skólasundlaugar En það eru fleiri sundlaugar i Reykjavik. 1 5 skólum borgarinn- ar eru sundlaugar, þar af 1 úti- sundlaug sem er um 16x7 metra stór. Þessar sundlaugaijsem eru i Austurbæjarskólanum, Breiöa- gerðisskóla, Arbæjarskóla, Fjöl- brautaskólanum og Breiðholts- skólanum,eru aöeins notaðar fyr- ir skólasund, sem sagt nýttar virka daga á skólatima um vetur. Oll sumur eru þær lokaöar, nema hvaö sundnámskeiö fyrir börn hafa verið haldin I þeim i júnimánuöi. —AI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.