Þjóðviljinn - 07.10.1978, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Lauganiagiir 7. október 1978
AF ÚTSÖLUVERÐI
MÍNUS INNKAUPSVERÐ
Ég trúi því staðfastlega og held áfram að
trúa því, þartil ég verð fullvissaður um eitt-
hvað annað, að íslenskir gróssérar séu æru-
kærari, grandvarari og í alla staði heiðarlegri
en annað fólk í landinu.
Uppá síðkastið hafa innflytjendur verið
bornir ýmsum sökum af aðilum, sem teljast
verða ábyrgir. Verðlagsyfirvöld hafa sem
sagt gagnrýnt þá sérstæðu ráðstöfun heildsala
að reyna í innkaupum að ná sem óhagstæðustu
kjörum, en kaupsýslumenn hafa sýnt fram á
að hægt er að reka blómlega verslun þó að inn-
kaupsverðið sé hærra en útsöluverðið. Að vísu
hefur þetta ekki verið sýnt á pappírunum, en
veraldleg umsvif stéttarinnar bera það með
sér að gróssérar á íslandi lepja ekki dauðann
úr kúskel. Með þvi að leggja tölur verðlags-
stjóra til grundvallar hefur almenningur
reiknað það út að hver heildsali í landinu nái
eftir einhverjum yfirskilvitlegum krókaleið-
um í f immtiu miljónir á ári, og þá lætur ekki
endanleg niðurstaða á sér standa. Heildsalar
eru 700,og 700 x 50.000.000 eru þrjátíu og f imm
miljarðar, eða hvorki meira né minna en and-
virði einnar og hálfrar Kröfluvirkjunar eða
þrjúþúsund og fimmhundruð meðalíbúða.
Njóti þeir, sem til hafa unnið.
Langstærsti innflytjandinn til landsins er
Samband islenskra Samvinnufélaga, stund-
um kallað sís og mun Sambandið og fyrirtæki
þess flytja inn um helminginn af öllum inn-
f lutningi landsmanna. Almenningur telur f ull-
víst að sís njóti sömu kjara í innkaupum og
heildsalarnir, því hvergi hef ur þ^ð sést að sís
bjóði annað útsöluverð en aðrir, og hafa því
reiknimeistarar neytenda í landinu verið f Ijót-
ir að setja dæmið í vasatölvuna og komast að
þeirri niðurstöðu að Sambandið græði á að
geta flutt vörufarmana með eigin skipum.
Margir álíta að hagræði sé að því að eiga
greiðan aðgang að afurðalánum og annarri
fyrirgreiðslu hins opinbera, og margir telja að
með umtalsverðri hagræðingu í rekstri stór-
fyrirtækis eins og Sambandsins megi halda
vöruverði niðri svo um munar, eins og upphaf-
lega mun hafa verið ætlunin, þegar Sam-
bandið hljópaf stokkunum norður í Köldukinn
upp úr aldamótunum síðustu (1902).
Einhverra hluta vegna hefur Sambandinu
ekki tekist að bjóða uppá hagstæðara vöruverð
en heildsalar, og er það mál manna að um sé
að kenna ofboðslegum reksturskostnaði og
fjárútlátum í mynd verðlauna í ritgerðasam-
keppnum meðal unglinga í gagnfræðaskólum
um ágæti Sambandsins. Þá er talið að vör-
urýrnun sé gífurleg — bara öllu stolið steini
léttara, eins og í Fríhöfninni.
Oll þessi atriði og víst f jölmörg önnur hafa
orðið til þess að í kaupfélögum úti á landi er
vöruverð víst mun hærra en annars staðar þar
sem ,,frjálst framtak'' blómstrar, og hefur
innanbúðarfólk í kaupfélögum úti á landi
sums staðar myndað með sér innkaupasam-
bönd til að fá vörur í ,,plássið" á skaplegu
verði. Þessi kaupfélög í kaupfélögunum eru
nef nd Kl'K og eru sums staðar með meiri um-
setningu en kaupfélagið sjálft.
Annars hljóta þessi mál verslunarinnar á
íslandi að fara að skýrast, ekki síst eftir síð-
ustu álitsgerð Verslunarráðsins, en lokaorð
hennar voru þessi:
Eftir vorri álitsgerð,
inn skal fært í sjóði
innkaupsverð minus útsöluverð
sem endanlegur gróði
Flosi
Trésmiðafélag
Reykjavikur
Félagar. — Félagsmálaskóli alþýðu er að
hef ja vetrarstarfið með fyrstu önn dagana
29. okt. — 11. nóv. Ákveðið hefur verið að
senda tvo þátttakendur frá félaginu, og
mun félagið greiða þátttökugjald og laun
samkv. 3. taxta alm. kaup fyrir dagvinnu.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja þessa
önn, eru beðnir að hafa samb. við skrifst.
félagsins eigi siðar en 18. okt.
Stjórn Trésmiðafélags Reykjavikur.
Kennara vantar
að Hliðaskóla vegna forfalla. Kennsla
fyrir hádegi i 6. bekk. Upplýsingar gefur
skólastjóri i sima 24558 um helgina og i
skólanum eftir helgi i sima 25080.
Fræðslustjóri
Starfsmaður óskast
Alþýðubandalagið i Reykjavik óskar að
ráða starfsmann ,á skrifstofu félagsins.
Reynsla i félagsstörfum og almennum
skrifstofustörfum æskileg. Þeir sem á-
huga hafa eru beðnir að leggja nafn og
simanúmer inn á skrifstofu félagsins að
Grettisgötu 3. Siminn er 17500 og skrifstof-
an er opin alla virka daga.
Sigölduvirkjun full-
búin um næstu áramót
• Afkastagetan 150 megawött
• Vinnu yiö Hrauneyjarfossvirkjun
miðar vel
Nú er veriö að setja niður
síðustu vélasamstæðuna í
Sigölduvirkjun og er gert
ráð fyrir því að hún verði
rekstrarhæf fyrir áramót.
Verður virkjunin þá full-
búin. Þrjár aflvélar eru í
virkjuninni, hver um sig 50
megawött, og heildaraf-
kastageta Sigölduvirkjun-
ar verður því 150 mega-
wött. Orkuf ramleiðslan
verður um 840 gigawatt-
stundir á ári.
Raforkan frá Sigölduvirkjun
fer inn á dreifikerfi landsvirkj-
unar, en auk þess hefur verið
gerður samningur milli Lands-
virkjunar og Járnblendifélagsins
um sölu á 30 megawöttum á ári til
verksmiðjunnar á Grundartanga,
þegar hún tekur til starfa.
Um 80 starfsmenn vinna nú hjá
Landsvirkjun við Sigöldu við
ýmis frágangsverkefni og að
koma fyrir siðustu vélasam-
stæðunni. Virkjunin verður fjar-
stýrð þegar hún verður fuligerð
og verða þar þá að jafnaði tveir
menn til eftirlits. Nú sjá fjórir
vélstjórar um rekstur stöðvarinn-
ar og verða væntanlega jafn
margir i vetur, eða þangað til
fjarstýribúnaðurinn verður kom-
inn i gagnið að öllu leyti.
Að sögn Páls Ólafssonar verk-
fræðings hjá Landsvirkjun er
svipað vatnsmagn i Tungnaá nú
og gengur og gerist á þessum árs-
tima. Aðaluppistöðulón Sigöldu-
virkjunar er Þórisvatn og á það
að tryggja rekstur stöðvarinnar
að vetrarlagi, en auk þess kemur
vatn úr lóni i Sigöldu.
A vegum Landsvirkjunar er
verið að vinna við að grafa fyrir
stöðvarhúsi Hrauneyjarfoss-
virkjunar og miðar verkinu
samkvæmt áætlun. Verktakar
reikna með þvi aö ljúka þeirri
vinnu i nóvember og eftir það
verður engin starfsemi við virkj-
unarframkvæmdir yfir veturinn
—eös.
Missagnir
leidréttar
Meinlegar villur slæddust
inn i smáfrétt um lát
Siguröar á Gilsbakka hér I
blaöinu i gær.
Þar er fyrri kona Sigurðar
sögð Andrésdóttir en var
Magnúsdóttir, Andréssonar
á Gilsbakka. Börn sin þrjú
átti Sigurður heitinn með
fyrri konu sinni en ekki
siðari.
Smástafavilla kemur og
fyrir i einu oröi i greininni.
Þar stendur margþáttuö
trúnaðarstörf en á að
sjálfsögðu að vera
margháttuÖL
Hlutaöeigendur eru beönir
velvirðingar á þessum
mistökum.