Þjóðviljinn - 07.10.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 7. október 1978 WÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Menntaskólinn
á Akureyri:
99. skóla-
árið
Menntaskólinn á Akureyri
var settur i 99. sinn 1. októ-
ber s.l.
Nemendur i skólanum i
vetur eru 540 auk 100 nem-
enda i Oldungadeild. Ný-
nemar i skólanum öllum eru
240 og hafa aldrei oröiö fleiri.
1 heimavist eru 125 nemend-
ur, og er heimavist löngu
fullsetin. 1 mötuneyti eru
nemendur um 200.
1 Menntaskólanum á Akur-
eyri er kennt á 5 sviðum,
málasviði, náttúrufræði-
sviði, eðlisfræðisviði, félags-
fræöisviði og tónlistarsviði i
samvinnu við Tónlistarskól-
ann á Akureyri. Kennslu-
greinar i skólanum eru 35
talsins en auk þess sækja
nemendur ýmsar valgreinar
i öðrum skólum i bænum.
Kennarar við Menntaskól-
ann á Akureyri eru 38, þar af
29 fastráðnir.
Lands-
samband
KFUM
og KFUK
K.F.U.M. og K.F.U.K. félögin á
tslandi hafa nýlega stofnað með
sér landssamband.
Áður hafði verið til Landssam-
band K.F.U.M., en það verður nú
lagt niður þar sem félög þau, sem
i þvi voru, hafa gengið i sam-
eiginlega sambandið.
Stofnfundur var haldinn i Hafn-
arfirði laugard. 9. sept. og sóttu
hann fulltrúar allra K.F.U.M. og
K.F.U.K. félagaá landinu, en þau
starfa í Reykjavík, Hafnarfirði,
Vestmannaeyjum, Akureyri og
Akranesi, auk þess sem yngri
deildir eru starfræktar i Kópa-
vogi, Garðabæ, Seltjarnarnesi og
Keflavik.
t byrjun næsta árs eru áttatiu
ár liðin siðan séra Friðrik Frið-
riksson stofnaði fyrstu K.F.U.M.
og K.F.U.K. félifein i Reykjavik
og mun þess þá verða minnst há-
tiðlega.
Landssambandið byggir á
hinum upprunalega grundvelli
þessara félaga, en það er svo
kallaður Parisargrundvöllur
fyrir K.F.U.M. og Lundúnarsam-
þykkt fyrir K.F.U.K. Auk þess er
tekið fram i lögum sambandsins,
að það starfi á grundvelli hinnar
islensku evangelisk-lúthersku
kirkju.
Hlutverki sambandsins er
þannig lýst ilögum þess, að þvi er
ætlaö að efla og auka kristilegt
starf meðal ungs fólks i landinu
og auka samstarf aðildarfélag-
anna svo sem með gagnkvæmum
heimsóknum, miðlun fundar-
efnis, samræmdri útgáfu-og
fræðslustarfsemi og almennri
upplýsingamiðlun.
Fyrsta stjórn landssambandsins
er þannig skipuð: Formaður er
Astráður Sigursteindórsson,
skólastjóri, Reykjavik, varafor-
maöur er Kristin Markúsdóttir,
skrifstofustúlka, Reykjavlk,
ritari er Jóhannes Ingibjartsson,
byggingarfræðingur, Akranesi,
gjaldkeri er Einar Th. Magnús-
son, skrifstofumaður, Reykjavik
og meðstjórnendur eru Gisli Frið-
geirsson, eðlisfræöingur, Vest-
mannaeyjum, Margrét Hró-
bjartsdóttir.hjúkrunarfræðingur,
Reykjavik og Guðrdn Dóra Guð-
mannsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, Garðabæ.
Ársþing Kennarasambands Vesturlands
Öll sveitarfélög eigi
aðild að ijölbrautaskóla
og námsbrautum verði komið upp sem víðast í skólaumdæminu
Um siðustu mánaðamót hélt
Kennarasamband Vesturlands
ársþing sitt i Munaðarnesi. Stjórn
Kennarasambandsins skipa þau
Jón Karl Einarsson, Jón Friðberg
Hjartarson, Einar Guðmundsson,
Gunnar Svanlaugsson, Halla
Guðundsdóttir, ólafur Torfason
og Þorsteinn Pétursson. Á þing-
inu voru samþykktar ýmsar á-
lyktanir. Skorað var á stjórnvöid
að ,,ganga þegar i stað aö kröfu
kennarasamtakanna um jöfnun
kennaraprófanna til launa og
veita fulla viðurkenningu starfs-
reynslu kennara við rööun þeirra
i launaflokka.
Þá var skorað á stéttarfélög
kennara innan BSRB að sam-
einast i ein heildarsamtök sem
opin verða öllum starfandi kenn-
urum.
Þá fagnaði þingið þeirri sam-
vinnu um framkvæmd og skipu-
lag framhaldsnáms á Vesturlandi
sem tekist hefur milli Fjölbrauta-
skólans á Akranesi og framhalds-
Framhald á 18. siðu
Breytt útlit
Liprari stýring
Sparneytnari
Betri aksturs-
eiginleikar
Hljóðlátari
Betri bíll en í fyrra
„Það kom í ljós í reynsluakstrinum
að 1979-gerðin er ótrúlega miklu
betri bíll en t.d. 1974-gerðin, og
meira að segja talsvert betri bíll
en 1978-gerðin“
ÓR — Vísir 2/9/1978
Við sýnum nýja og betri Volvo bíla í Volvosalnum:
Laugardaginn 7. október kl.14—19
og sunnudaginn 8. október kl.10—19
VOLVO 1979 ^VELTIH HF
Nýr bíll á góðu verði. Mm Suðurlandsbraut l6*Siml 35200