Þjóðviljinn - 07.10.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 7. oktdber 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Kveðja
Sigurður Snorrason
á Giisbakka
1 dag er Siguröur Snorrason
bóndi á Gilsbakka borinn til graf-
ar frá Gilsbakkakirkju. Enn
fækkar um einn þeim sem settu
mestan svip á lifiö I Hvitársiðunni
ibernsku minni. Um allt þaö fólk
eru minningarnar góöar, þaö
verður manni þvi ljósara sem
lengra liöur. I samfélagi eins og
þessari strjálbýlu sveit eru tengsl-
in milli fólks oftast mun sterkari
enþaögerir sérsjálft grein fyrir.
Svo getur virst, aö lifsbarátta og
áhyggjur standi að einhverju
leyti i vegi fyrir þvi, að hlýhugur
nágrannanna njóti sin á yfirborö-
inu, en hann nærist samt undir
niðri af haröneskju lifsins. Það
sannast best, þegar mest á reyn-
ir.
Sigurður var fæddur 23. október
1894 á La xf ossi I Stafh oltstungum.
Faðir hans var Snorri Þorsteins-
son, Jakobssonar, Snorrasonar
prests á Húsafelli Björnssonar,
en móðir Sigurðar var Guðriin
dóttir Sigurðar i Efstabæ i
Skorradal, Vigfússonar. Þeir
voru þvi systkinasynir, Sigurður
og Magnús Asgeirsson skáld frá
Reykjum, en fööurbróðir Sigurð-
ar var Kristleifur Þorsteinsson
rithöfundur á Stórakroppi.
Sigurður ólst að mestu upp á
Húsafelli hjá Astriði fööursystur
sinni. Um tvitugsaldur stundaði
hannnám i hinum merka alþýðu-
skóla Sigurðar Þórólfssonar á
Hvitárbakka. Ariö 1923 gekk hann
að eiga Guðrúnu á Gilsbakka
dóttur sr. Magndsar Andrésson-
ar. Þau hjónin tóku við búi á Gils-
bakka. Guörún var mikil
sæmdarkona, gædd stillilegri al-
úð og höfðingslund, og er merki-
legt, hvað þeir eiginleikar hennar
virðast lýsa af þvi málverki, sem
Collingwood fornfræðingur og
málari gerði af henni ársgamaUi,
þegar hann ferðaöist um ísland.
Guðrún dó á besta aldri áriö 1943,
en börn þeirra Siguröar eru
Magnús, Sigriöur ogGuðrún. Siö-
ari kona Siguröar er Anna
Brynjólfsdóttir frá Hlöðutúni.
Henni var vandi á höndum að
skipa húsfreyjusæti á Gilsbakka,
en það hefur hún gert við mikla
rausn, viröingu og vinsældir.
Sigurður á Gilsbakka tók að
visu við miklu og góðu búi á fag-
urri og sögufrægri jörð, en hann
sýndi lika rækilega .aðhonum var
trúandi fyrir miklu. Hann kunni
það lag að sameina gamla og
góða búnaöarhætti og það besta
af þeim nýju. Þaö var einkenni
hans.aðþráttfyrir öra lund.mikla
mælsku ogskarpa dómgreind var
hann I eðli sinu mjög hlédrægur
oggagnrýninnásjálfansig. Hann
sagði mér jafnvel, að hann hefði
séðeftir öllu, sem hann lét frá sér
faral rituðu máli, vegna þess aö
hann hefði viljað vanda þaö bet-
ur. Þrátt fyrir þetta komst hann
ekki hjá mörgum trúnaðarstörf-
um fyrir sveitunga sina, en
þekktust mun þátttaka hans i
samtökum bænda. Þar ávann
hann sér mikinn oröstir fyrir
viturlegar tillögur og ráð.
Ég hitti Sigurð i siðasta sinn á
liðnu sumri i 70 ára afmælisfagn-
aði ungmennafélags sveitarinn-
ar. Þar flutti hann ýtarlega og
ágæta ræðu, dró meðal annars
upp eftirminnilega mynd af lifinu
á félagssvæöinu i byrjun
aldarinnar. Skömmu siðar fékk
ég frá honum dýrmæta sendingu,
ávörp, sem hann hafði flutt nán-
um ættmennum minum fyrir
mörgum áratugum. Þar lýsir sér
vel orðsnilld hans, hlýhugur og
dómgreind. Ég geymi minningu
Sigurðar i þakklátum huga og
færi vandamönnum hans góðar
samúðarkveðjur að leiðarlokum.
Páll Bergþórsson
Bíll ársins í Japan kominn til íslands
Daihatsu Charade-enn
eitt svar við or kukreppu
Árið 1977 sendu Daihatsu
verksmiðjurnar á markað
smábíl, Daihatsu Charade
1000 j>g náði hann strax
í fyrstu tilraun þeim
áfanga að vera kosinn
,,Bifreið ársinsy/ í Japan.
Daihatsu umboðið á
(slandi, Brimborg h/f,
hefur nú fengið fyrstu
bílana af þessari gerð til
landsins og voru þeir
kynntir fyrir
blaðamönnum fyrir
skömmu.
Alls verða það 45 bilar
sem koma til landsins í
þessari fyrstu sendingu og
eru þeir þegar að verða
upppantaðir. Verð bílanna
er á bilinu 3.1-3.3 miljónir.
Einn af fyrstu bllunum á götuna. Sigtryggur Helgason !og Jóhann
Jóhannsson, forstjórar Brimborgar standa viö bílinn, sem er fimm
dyra.
Daihatsu Charade 1000 — þriggja strokka vél sem á að tryggja lágmarksnotkun á bensini, þótt vélin sé
örugg og aflmikil.
Að sögn forrráöamanna
Brimborgar sameinast i þessum
bil margir eiginleikar bæði
smærri og stærri bila; t.d. þætti
hann einíaldur, sterkur og spar-
neytinn meö afbrigöum. Bæði er
hægt að fá Daihatsu Charade með
þremum og fimm dyrum.
Útflutningsframleiðsla á Dai-
hatsu Charade hófst i júli sl. og er
tsland annaö Evrópulandið sem
fær þessa bila, en á næstu vikum
koma þeir á markaðinn i öllum
nágrannalöndunum.
Af tæknilegum upplýsingum
tengdum Daihatsu Charade má
nefna eftirfarandi:
Hann er litill bill að utanmáli,
en rúmgóður að innan og skráöur
5 manna. Hann er 3.45 m. að
lengd, 1.51 m. aðbreidd og 1.35 m.
á hæð. Hæð undir lægsta punkt er
16.5-18 cm. Hann vegur 660 kg. er
framhjóladrifinn með þriggja
strokka vatnskældri fjórgengis-
vél, sem framleiðir 55 din hö. viö
5500 snúninga, en vélin er 993 cc.
Vélin liggur þversum i vélarrými
er meö yfirliggjandi kambási og
búin jafnvægisöxli. Þriggja
strokka kerfi hefur áður veriö
notaö i tvigengisvélum, en þetta
er i fyrsta skipti sem þriggja
strokka fjórgengisvél hefur veriö
fjöldaframleidd fyrir fólksbila.
Daihatsu telur þessa vél vera
framtiöarlausn, þar sem vinnsla
og eldsneytiseyðsla er hagstæöust
ef 330 cc. eru fyrir hvern strokk.
Benzintankur tekur 34 litra
þannig að nærri lætur að hægt sé
aö aka frá Reykjavik norður um
til Langaness án þess aö taka
benzin.
Innflutningur á Daihatsu
bifreiðum til Islands hófst fyrir
rúmu ári og hafa nú verið
seldar hér á landi um 150
bifreiðar og jeppar af þeirri gerð.
Bifreiðaumboðiö, várahluta-
þjónusta og verkstæöi er allt til
húsa að Armúla 23, og þar er
þessi nýja gerö Daihatsu-bilanna
til sýnis um þessar mundir.
' s ? N, •/ í 4 k'- ' 1
Enn stoppar gamla
klukkan á Torginu
Enn er torgklukkan stopp og
ekkertbóiar á nýjum auglýsinga-
spjöldum úr óbrjótanlegu gleri,
sem krossviðurinn átti að vikja
fyrir.
Að sögn Eiriks Asgeirssonar,
forstjóra SVR er „læknir” klukk-
unnar, þ.e. sérfræðingur þeirra
SVR-manna i viðgerðum á úr-
verkinu I frii sem stendur, en úr-
verkiö er komið til ára sinna og
nokkur kúnst að eiga við það. Það
er til húsa uppi i risi á Lækjar-
götu 2 og oft hefur reynst erfitt að
komast að þvi.
Eirikur hafði þó góðar vonir um
að klukkan kæmist i gagniö næstu
daga, en þegar SVR flytur i
framtíðarhúsnæöi sitt sem verið
er að byggja á Lækjartorgi verð-
ur úrverkinukomiö fyrir þar. Þar
á að vera auðveldara að fylgjast
með þvi að það biliekki og hægur
vandi að komast aö þvi til viö-
geröa.
—Al.
Keflavík
Þjóðviljann vantar umboðsmann til að
annast dreifingu og innheimtu blaðsins i
Keflavik.
Upplýsingar hjá umboðsmanni i sima 1373
i Keflavik, eða hjá framkvæmdastjóra
blaðsins i Reykjavik, simi 81333.
UOBMUINN
Grindavík
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir blaðið i Grindavik.
Upplýsingar hjá umboðsmanni, simi 8320,
eða hjá afgr. blaðsins i Reykjavik, simi
81333
DlOOVIUINN
Blikkiöjan
Asgaröi 7, Garðaba
Onnumst pakrennusmiöi og
uppsefningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SIMI 53468