Þjóðviljinn - 13.10.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. október 1978
Borgarfulltrúar Alþýöubandalagsins á félagsfundi:
Álfheibur Ingadóttir, fram-
kvæmdastjóri borgarmálarábs
Alþýbubandalagsins, I ræöustól.
Anna Sigrður Hróömarsdóttir
fundarritari og Einar Karl
Haraldsson fundarstjóri til hlið-
ar. Ljósm. Leifur.
Gáfu
skýrslu
um störf
sín
Fjörugar umræðururðu á
félagsfunds Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík um
borgarmálin siðast liðinn
miövíkudag, en þar voru
mættir 5 borgarfulltrúar
félagsins og gáfu þeir e.k.
skýrslu um störf sín og
svöruðu fyrirspurnum.
A þessum fundi komu fram
fjöldamörg atriöi sem verið er aö
vinna aö á vegum hins nýja
meirihluta i Reykjavik,og verður
þeirra getiö nánar hér i Þjóö-
viljanum á næstunni. Fundurinn
var vel sóttur og stóöu umræöur
fram undir miönætti. —Ai
Frá hinum fjölmenna félagsfundi Alþýöubandalagsins á Hótel Esju f fyrrakvöld
Ljósm. Leifur
A þessari mynd eru m.a. borgarfulltrúarnir Guömundur Þ. Jónsson, Sigurjón Pétursson, Guörún Helgadóttir, Adda Bára Sigfúsdóttir og
Þór Vigfússon, en þau höföu framsögu um ýmsa málaflokka á fundinum. Ljósm. Leifur.
„Ég hef unna stödu!
sagöi Kortsnoj um biðstööuna
Viktor Kortsnoj var
kokhraustur þegar
þrítugasta og fyrsta ein-
vigisskák hans við
Karpov fór í bið í gær og
sagðist hann hafa unna
stöðu.
I biöstööunni hefur hvor um
sig hrók og sex peð og stendur
Kortsnoj aö þvi leytinu betur aö
hann hefur komiö peöum sinum
lengra. Karpov hefur aftur á
móti valdað fripeö sem kann aö
reynast Kortsnoj dýrkeypt ef
hann seilist of langt til vinnings.
Kortsnoj sem hafði hvitt lék
eins og venjulega c peðinu fram
i fyrsta leik og upp kom drottn-
ingarbragö. I þetta sinn beitti
Kortsnoj hinu svokallaöa upp-
skipta-afbrigöi. Hann náöi strax
eins og lög gera ráö fyrir i þvi
afbrigði, þægilegum þrýsting á
drottningarvæng og þægilegra
tafli. Uppskipti uröu á drottn-
ingunum og tveimur léttum
mönnum mjög fljótlega og gerö-
ist siöan ekki meira i skákinni
næstu tuttugu leiki, nema aö
Kortsnoj lokaöi drottningar-
vængnum meö peöum sinum og
Karpov beiö. Tóku nú kapparnir
aö leika mönnum sinum fram og
til baka þannig aö hvorki gekk
né rak. Bauö Karpov þá oftsinn-
is upp á þrátefli, en Kortsnoj
sneri sér ávallt aö einhverju
öðru. bað var siöan ekki fyrr en
i 41. leik að Kortsnoj lét loks til
skarar skriöa meö gegnumbroti
á miðboröinu. Upphófust þá
allsherjar uppskipti sem enduöu
meö þvi aö hvor um sig átti eftir
einn hrók og sex peö eins og fyrr
greinir.
31. skákin:
Hvitt: Viktor Kortsnoj
Svart: Anatoli Karpov
Drottningarbra gð:
1. c4-e6
2. Rc3-d5
3. d4-Rf6
4. cxd5
Umsjón: ÁSGEIR ÁRNASON
Karpov. Missir hann titilinn?
Uppskiptaafbrigöiö. Þvi beitti
meöal annarra Botvinik fyrr-
verandi heimsmeistari og læri-
faðir Karpovs.
4. - exd5
5. Bg5-Be7
6. e3-0-0
7. Bd3-Rbd7
8. Rf3
Sumir kjósa sér heidur að
leika riddaranum til e2 og siöan
jafnvel langhrókering meö sókn
á kóngsvæng i huga. Aðrir láta
sér nægja eftir Re2 aö leika
leikjum eins og f3 og Rg3 seinna
meir meö framrás á miöboröi i
huga.
8. - He8
9. Dc2-c6
10. 0-0-RÍ8
11. Bxf6
Velþekkt tema i þessari byrj-
un. Hvitur lætur biskupinn af
hendi af frjálsum og einlægum
vilja til þess að koma framrás-
inni b2-b4 fljótt i kring og hefja
þar með svokallaða minnihluta-
árás á drottningarvæng.
11. - Bxf6
12. b4-Bg4
13. Rd2-Hc8
Þessi leikur er fyrst og fremst
til þess að sporna viö þvi aö
hvitur leiki b4-b5 þar sem hrók-
urinn á c8 mun gefa svörtum
ákjósanlegt mótspil á miðboröi.
14. Bf5-Bxf5
15. Dxf5-Dd7
16. Dxd7-Rxd7
bar meö er komið upp enda-
'tafl sem breytist Iitt næstu
tuttugu leikina! Kortsnoj
einbeitir sér aö þvi aö hindra
allt mótspil svarts og lokar þvi
drottningarvængnum.
17. a4-Be7
18. Hfbl-Rf6
19. a5-a6
20. Ra4-Bf8
21. Rc5-He7
22. Kfl-Re8
23. Ke2-Rd6
24. Kd3-Hce8
25. Hel-g6
26. He2-f6
Aö sjálfsögöu hvarflar ekki aö
Karpov aö leika peðinu lengra,
enda myndi slikt aöeins gefa
hvitum kost á framrásinni g2-g4
siöar meir.
27. Hael-Bh6
28. Rdb3-Bf8
29. Rd2-Bh6
„Var einhver að gefa i skyn aö
jafntefli stæöi til boöa?”
30. h3
„Nei”
30. - Kf7
31. g4-Bf8
32. f3-Hd8
33. Rdb3-Rb5
34. Hfl-Bh6
35. Í4-Bf8
36. Rd2-Rd6
37. Hfel-h6
38. Hfl-Hb8
39. Hal-Hbe8
40. Hael-Hb8
Allir hvitu mennirnir beina nú
spjótum sinum að e4-reitnum,
svo þaö er annaöhvort nú eöa
aldrei...
41. e4!-dxe4
42. Rdxe4-Rb5
43. Rc3-Hxe2
44. Hxe2-Bxc5
45. bxc5-Hd8
46. Rxb5-axb5
47. f5
1 þessari viökvæmu stööu ■
skákin sett i biö og Karpov
biðleik.