Þjóðviljinn - 13.10.1978, Síða 5
Föstudagur 13. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
a/ erfendum vettvangi
Viðvikjandi Ródesiu-
málum hefur tvennt
vakið mesta athygli
siðustu dagana. Annað
er að Ian Smith hefur
fengið leyfi bandariskra
stjórnarvalda til þess að
heimsækja Bandaríkin
og tala máli stjórnar
sinnar, sem flestar
rikisstjórnir heims og
þar með Sameinuðu
þjóðirnar álita ólöglega.
Hitt er að Sambia hefur
opnað landamæri sin og
Ródesiu á ný fyrir járn-
brautarumferð, eftir að
þau höfðu verið lokuð i
þvi nær sex ár vegna
Ródesiustríðsins.
Það voru 27 ihaldssamir
bandariskir öldungadeildar-
þingmenn, oddviti þeirra hinn
Kaunda — sárreiöur Bretum fyrir svindlið á viðskiptabanninu og
Bandarikjamönnum fyrir að bjóða Smith heim, en er þeim þó hinn
hjálplegasti i Rósesiumálum.
Nigeriu Ut af undirferli þeirra
viðvikjandi viðskiptabanninu.
Bretland og Bandarikin geta
sem sé reiknað með þvi, að
Kaunda sé þeim ekki ýkja frá-
hverfur i Ródesiumálum. Ljós
ábendingum það er opnun landa-
mæranna. Hungursneyð vofir yfir
Sambiu næsta ár ef landsmenn ná
ekki til sin tilbúnum áburði, á
máisakra sina, og hann fá þeir
ekki nógu snemma nema eftir
járnbraut, sem liggur i gegnum
Ródesiu til hafna i Suður-Afrlku
og Mósambik. Sambia á hvergi
land að sjó og er þvi báglega
stödd með aðflutninga. Benguela-
járnbrautin er lokuð vegna
ótryggs ástands i Angolu og nú
þykir sýnt að Tazara-brautin svo-
kallaða, sem byggð var með kin-
verskri aðstoð og liggur til
Dar-es-Salaam, höfuðborgar
Tansaniu, anni ekki áburöar-
flutningunum nógufljótt, enupp á
siðkastið hefur utanrikisverslun
Sambiu mestanpart byggst á
þeirri járnbraut.
Nigeriumenn meö
Talsmenn bráðabirgða-
stjórnarinnar í Ródesiu kunna
Carter og Callaghan
beita Kaunda fyrir sig
japanskættaði senator Hayakawa
frá Kaliforniu, sem buðu Smith til
Bandarikjanna, iþeim tilgangi aö
hann mætti tala máli bráða-
birgðastjórnar hvitra Ródesiu-
manna og „hófsamra” blökku-
manna, landa þeirra, i eyru
bandariskra áhrifamanna.
Almennt var við þvi bUist að
Smith yrði ekki hleypt inn 1
Bandarikin. Samkvæmt alþjóð-
legu mati er þessi oddviti hvltra
Ródesiumanna ekki málsvari
rikisstjórnar, heldur foringi
stigamannaflokks, sem rikir i
krafti ógna og ofbeldis. Fengi
Smith að koma til Bandarikj-
anna, þar sem bUast mátti við að
þarlent ihald hampaði honum og
hossaði, gæti það skoðast sem
gróf ögrun og móðgun ekki ein-
ungis gagnvart Afrikurikjum,
heldur og Sameinuðu þjóðunum,
sem Bandarikjamenn á sinni tið
gengust manna mest fyrir að
stofnaðar yrðu.
Fleiri járn i eldi
En eftir að hafa tvlstigiö i
hálfan mánuð ákvað Bandarikja-
stjórn að Smith skyldi fá vega-
bréfsáritun. Akvarðanir i utan-
rikismálum eru sjaldan eða
aldrei teknar nema með tilliti til
hagsmuna hlutaðeigandi rikis-
stjórnar i innanlandsmálum.
Þessa stundina gætir i Banda-
rikjunum allsvæsinnar hægri-
sveiflu („byltingin” gegn skött-
unum o.fl.), sem stjórnarand-
stöðuflokkurinn, repúblikanar,
reynir auðvitað að græða á. Með
þvi að hleypa inn i landið þeim
ódeiga framverði i baráttunni
gegn „heimskommUnismanum”,
sem Smith er að eigin sögn og
áliti hægriöfgamanna viða um
heim, gerir Carter Bandarikja-
forseti sér efalaust vonir um að
geta aflað sér samúðar einhverra
hægrikjósenda.
Stjórn Carters hefur þó án efa
fleiri járn i eldinum. Carter, sem
er að vonum uppveðraöur eftir
árangur sinn i Camp
David-viðræðunum, vill nú upp-
vægur koma á annari ráðstefnu
hliðstæðri um Ródesiumátin, sem
hann ætlast til að haldin verði I
Bandarikjunum, liklega I New
York. Þess hefur þegar verið
getiðtilaðSmithhafi veriö sleppt
inn i Bandarikin gegn loforði um,
að hann samþykkti hlutdeild i
slikri ráðstefnu.
Þar aðauki er vitaskuld þess að
gæta að Bandarikjastjóm hefur
ekkert á móti Smith sem slikum.
Bingham-skýrslan svokallaða
hefur nýlega afhjúpað að Bretar
brutu gróflega viðskiptabannið á
Ródesiu og sáu stjórn Ians Smith
„Liflinur” Sambiu. Benguela-járnbrautin er lokið vegna striðsástands
I Angólu og brautin til Dar-es-Salaam nægir ekki. Þvi verður aö flytja
áburðinn, sem Sambiu liggur lifið á að fá, til hafnarborganna Maputo I
Mósambik og Durban i Suöur-Afriku og þaðan með járnbraut norður I
gegnum Ródesiu.
sér ekki læti yfir opnun landa-
mæranna, sem þeir telja jafn-
gilda opinberri viöurkenningu
Sambiu á bráðabirgðastjórninni.
Og almennt mun titið svo á, að
með opnuninni beygi Sambia sig
fyrir þeirri stjórn. En yfirvofandi
hungursneyð og flutningaöröug-
leikar eru ekki einu ástæðurnar
til þess, aö Kaunda gerist Vestur-
veldunum hliöhollur i Ródesiu-
málum. Hann á við vaxandi and-
stöðu að glima innanlands, og
magnaðist sú andstaða mjög við
að hann bolaði pólitiskum and-
stæðingum sinum frá þátttöku i
forsetakosningum, sem fara eiga
fram i landinu I desember.
Lýðræðinu er ekki fyrir aö fara I
Sambiu, frekar en viðast hvar
annarsstaðar i Afriku. Sjálfsagt
vonast Kaunda i launaskyni eftir
stóraukinni efnahagsaðstoð frá
Vesturveldunum, en sú aðstoð
myndi trúlega lægja óánægjuöld-
urnar heima fyrir. Sagt er að i
Kano hafi Callaghan lofað
Kaunda slikri aðstoð, ef hann
fjargviðraðist ekki alltof mikið Ut
af uppljdstrunum Bingham-
skýrslunnar.
Vi'st er um það að Kaunda og
hans nánustu menn hafa undan-
farna daga verið út og suður i
þeim tilgangi að koma i gang á ný
friðarumleitunum viðvikjandi
Ródesiu. Fer ekki leynt að það
gerist isamráði við Bretland og
Bandarikin og þar að auki með
stuðningi Nigeriu, sem er hvað
öflugust Afrikurikja vegna fjöl-
mennis og oliu. Kaunda heimsótti
sjálfur Samora Machel, rikis-
leiötoga I Mósambik, og aörir
háttsettir Sambiumenn sóttu
heim forseta Angólu, Tansaniu,
Botsvana og Keniu. Nigeria sendi
fyrir nokkru nefnd embættis-
manna til Sambiu og Tansaniu.
Nyerere Tansaniuforseti og
Machel i Mósambik, sem efast
um að Vesturveldunum gangi
gott eitt til, kváðu draga viðsig að
lofa nokkru ákveðnu.
Smith til viðtals
fyrir skæruliða
En hvað þá um Ródesiumenn
sjálfa, svarta og hvita?
Samkvæmt sambiskum heimild-
um er Ian SmithnU reiðubúinn að
ræða við skæruliða Föðurlands-
fylkingarinnar, sem hann til
þessa hefur kallað verstu
ónöfnum og svariö fyrir að hann
myndi nokkru sinni mæla máli.
En hann hefur þegar gengið á bak
þeirra orða með leyniviðræðum
við Joshua Nkomo i Sambiu.
Meðan Smith gerði sér vonir um
að blökkumenn Ródesiu snerust
til liðs við bráðabirgðastjórn
þeir'ra Muzorewa biskups og séra
Sitholes, vildi hann ekki tala við
Nkomo og Mugabe, leiðtoga
Föðurlandsfylkingarinnar. En
þegar þaðsýndi sig að klerkarnir
tveir voru næsta fylgislittir,
hugsaði Smith sér að bjarga þvi
sem bjargað yröi fyrir hvita
Ródesiumenn með þvi að ræða
viö Mugabe og Nkomo, svo fremi
þeir yrðu þá til viðtals.
Þeir Muzorewa og Sithole vilja
hinsvegar ekki viöræður. Þeir sjá
fram á að samningaumleitanir
Smiths við skærutiðana muni
hafa i' för með sér, aö þeir verði
algerlega utangátta og missi það
titla vald, sem þeir nú hafa.
Mugabe og Nkomo
tilleiðanlegir
Hvað leiðtoga föðurlands-
fylkingarinnar snertir má ganga
að þvi sem visu að Nkomo fáist til
viöræðna. ZAPU-skæruliðar hans
hafa griðland i Sambiu og hann
treystir sér þvi varla til að breyta
á móti vilja Kaunda. Auk þess
virðist Nkomo maður furðu
slunginn og hefur einstakt lag á
þvi að eiga hönk upp i bakið á svo
að segja öllum. Vesturveldin og
Smith stiga i vænginn við hann,
Sovétrikin vopna skæruliða hans,
KUbanir þjálfa þá. Allir þessir
aðilar munu vilja Nkomo til valda
i Ródesiu frekar en Mugabe, og
varla slær Nkomo hendinni móti
þeirri vinsemd. Hann gæti lika
þurft á aðstoð að utan að halda til
þess að komast til æðstu valda i
fööurlandi sinu, þvf að hann er af
Framhald á 14. siðu
fyrir oliu.enda þótt sú stjórn væri
að forminu til I uppreisn gegn
þeim sjálfum.og i Ródeslumálum
hafa Bandarikin og Bretland
jafnan verið i einum anda. Af ótta
við reiði Afrikurikja hafa Banda-
rikin hinsvegar ekki þorað aö
rétta bráðabirgðastjórn Smiths,
og Muzorewa biskups og fl.
hjálparhönd. En Bandarikja-
mennog Bretar eru ekki enn von-
lausir um að takast megi meö
samningum að fá til valda i
Ródesiu stjórn, sem verði þeim
ekki ýkja óþjál en hljóti þó alþjóð-
lega viðurkenningu. Gjarnan
vildu þeir hafa Smith með i slikri
stjórn, ef mögulegt væri.
Hungursneyð við
dyr Sambiumanna
Afriskir leiðtogar hafa að
vonum ekki tekiö þvi vel að Smith
skuli fá vegabréfsátritun til
Bandarik janna . Kenneth
Kaunda, Sambiuf«-setí, segist
fullur „viðbjóðs og vonbrigða”
yfir þvi að „moröinginn,
kynþáttahatarinn, brjál-
æðingurinn” Smith skuli nU fá
fararleyfi inn i Bandarikin. En
Kaunda lætur liklega sitja við
stóruorðin tóm, líktoghann gerði
er hann tók Callaghan forsætis-
ráðherra Breta til bæna 1 Kano i
Mikið úrvaí
austurrískum
ullarkápum
Opið á laugardögum
#
LAUGAVEGI66 ' SIMI 25980