Þjóðviljinn - 17.10.1978, Page 6

Þjóðviljinn - 17.10.1978, Page 6
6 StÐA — ÞJÓOVILJINN ‘ Þriöjudagur 17. október 1978 F ullorðinsf ræðsla Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri Náms- flokka Reykjavikur, heldur fræðsluerindi i kvöld þriðjudag 17. október kl. 20.30 i fundasal BSRB að Grettisgötu 89. Aðgangur er heimill öllu áhugafólki — hvort sem það er i bandalaginu eða ekki. Fræðslunefnd BSRB Eldhúsval sf. Höfum flutt fyrirtæki okkar að Brautar- holti 6. Sýningareldhús á staðnum. Slnf óníuhl j ómsveit íslands Tónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn 19. október 1978 kl. 20.30. Verkefni: Leifur Þórarinsson — Jo Kabalevsky — Sellókonsert nr. 1 Glasunow — Arstíðirnar Stjórnandi Páll P. Pálsson Einleikari Gisela Depkat Aðgöngumiðar i bókverslunum Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og við innganginn. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS i ísland — Búlgaría Fyrirhuguð er stofnun samtaka til efl- ingar auknum kynnum Islands og Búlg- ariu. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku i samtök- um þessum sendi nafn, heimilisfang og simanúmer i pósthólf 107 Reykjavik. Undirbúningsnefnd Fóstra — Forstöðumaður Foreldradagheimilið Króasel óskar eftir fóstru hálfan daginn (f.h.) sem jafnframt gegnir starfi forstöðumanns. Þarf að geta hafið störf eigi siðar en 1. janúar 1979. Möguleiki er á vistun barns (barna). Upplýsingar i sima 81572 og 74165. Króasel Hábæ 28 I I Auglýsið í Þjóðviljanum Myndin var tekin á föstudag á lokadegi trúnaöarmannanámskeiös Sambands byggingarmanna, sijást á henni trúnaðarmennirnir og leiðbeinendur. (Ljósm.: eik) Trúnaðarmannanám- skeið hyggingamanna Síðustu viku hefur verió haldið trúnaðarmanna- námskeið á vegum MFA og Sambands byggingar- manna og verið stíf dag- skrá f rá 9 á morgnana til 6 á kvöldin. Jón Snorri Þorleifsson, sem er einn af kennurum á námskeiðinu, sagði í samtali við Þjóð- viljann að þetta væri fyrsta námskeiðið af nokkrum sem fyrirhuguð væru í vetur fyrir trúnaðarmenn byggingar- manna. í tengslum við þessi námskeið á að endur- skipuleggja og treysta trúnaðarmannakerf i stétt- arinnar. Menningar- og fræðslusamband alþýðu hóf i fyrra slikt námskeiðahald fyrir trúnaðar- menn i ýmsum atvinnugreinum innan ASÍ og eru þau i samræmi við samninga og liður i aukinni fræðslu verkalýðsins. ,Framhald á 14. siðu Akiro Idoh og Jóhann Einvarðsson undirrita . lánssamninginn. Hitaveita Suðurnesja Tekur 3 miljarða japanskt bankalán Öku-Þór endurvakinn Féiag islenskra bifreiðaeig- enda hefur nú ákveöið að hefja út- gáfu málgagns sin, Bilabiaösins öku-Þórs,aðnýju.F.t.B. gaf blað þetta út um árabil, en nú hefur út- gáfa þess legið niðri um alllangt skeið, en þess i stað hefur F.t.B. gefið út litíð fréttabréf meö ákveðnu millibili, sem dreift hefur verið til félagsmanna. Höfuðtdgangur F.l.B. með þvl aö endurvekja Öku-Þór, er aö freista þess að skapa þannig nánari tengsl milli félagsmanna i F.t.B. og félagsstjórnarinnar, auka kynningu félagsins Ut á viö, og auka þvi möguleika á að koma sjónarmiöum og baráttumálum á framfæri. Stefnt er að þvi að blaöiö komi út fjórum sinnum á ári I fram- tiðinni. Meðal efnisflokka sem ætlunin er að hafa i blaðinu má nefna: greinar um þjónustu viö bifreiðaeigendur, upplýsingar um tryggingamál, upplýsingar um málefni F.Í.B., greinar um bif- reiðaiþróttir o.fl.. Mun F.Í.B. njóta upplýsinga og niöurstaða úr könnunum er hin erlendu systur- félög F.I.B. hafa gengist fyrir að afla, eftirþvisem við á hérlendis. Fyrsta tölublað Oku-Þórs mun koma út á næstunni og verður það sent til allra félagsmanna i F.t.B. Ritstjórar Öku-Þórs munu verða þeir Sveinn Torfi Sveins- son verkfræðingur og Steinar J. Lúðviksson blaðamaður. Leidrétting við krossgátu Vegna mistaka voru rangar töl- ur i reitunum neðan við verð- launakrossgátu Þjóöviljans sl. sunnudag — raunar þær sömu og sunnudaginn áður. Réttu tölurn- ar, sem mynda eiga karlmanns- nafn, eru þessar: 11 ? 28 2 3 25 Fimmtudaginn 5. okt. siðastliö- inn var undirritaður lánssamn- ingur milli Hitaveitu Suðurnesja og fimm japanskra banka um lán að upphæð US $ 10.000.000,- sem er jafnvirði riflega 3 miljarða isl. króna. Lánstiminn er 10 ár og vextir eru breytilegir 3/4% yfir milli- banka-vexti i London á hverjum tima; þeir eru nú um 10%. Kvikmynd Þorsteins Jónsson- ar, „Bóndi”, verður framlag ts- lands til Norrænu kvikmynda- daganna sem haldnir verða i tuttugasta sinn i Lubeck i Þýskaiandi dagana 2.-5. nóvem- ber n.k. Það er menningarráð Lubeck- borgar sem stendur fyrir þess- um kvikmyndadögum i samráði | viö norrænu sendiráðin i V- ' Þýskalandi. Hafa margir fyrir satt að þetta séu merkustu ár- | legu viðburðir i norrænni kvik- myndalist, og ekki vandaiaust að Noröurlöndin sjálf skuli ekki hafa forgöngu um þá. Meðal kvikmynda sem sýndar verða i , ár má nefna Manninn á þakinu Lánið er með ábyrgð rikissjóðs og fengið fyrir milligöngu Nikko Securities i London með aðstoð Seðlabanka Islands. Lánsfé þessu verður varið til þess að ljúka hita- veituframkvæmdum. Lánssamning undirrituðu Jó- hann Einvarðsson, stjórnarfor- maður f.h. Hitaveitu Suðurnesja og Akira Idoh f.h. hinna japönsku banka. eftir Bo Widerberg, dönsku myndirnar Þú ert ekki einn og Ég og Charly, og siðustu mynd finnska kvikmyndastjórans Risto Jarva, sem fórsti bilslysi fyrir tæpu ári. Jarva var einn þekktasti kvikmyndastjóri Finna. Ein mynda hans, gamanmyndin „Sólarferð” var sýnd á norrænu kvikmyndavik- unni i Reykjavik i fyrra. „Bóndi” Þorsteins Jónssonar hlaut sem kunnugt er fyrstu verðlaun i fyrstu islensku kvik- myndasamkeppninni, sem haldin var i tengslum við kvik- myndahátið Listahátiðar i febrúar s.l. _______________________V r, . ) Islensk kvikmynd á Norrænum kvikmynda- dögum í Lubeck

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.