Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 17.10.1978, Blaðsíða 7
Þriftjudagur 17. október 1978 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7 V Þórhaila Þorsteinsdóttir og Svanhildur Jóhannesdóttir i sýningu LA á leikriti Guömund- ar Kambans. Aöalsteinn Bergdal og Þórey Aöalsteinsdóttir í hlutverkum sinum viö” hjá Leikfélagi Akureyrar. .Þessvegna skiljum LEIKFÉLAG AKUREYRAR: Þessvegna skiljum við Eftir GUÐMUND KAMBAN Þýdandi: Karl ísfeld Leikstjórn: Haukur J. Gunnarsson Leikmynd: Jón Þórisson Jón Viðar Jónsson skrifar um leikhús Leikhópur Leikfélags Akureyrar er einkennilega samsettur og það er tæp- lega auðvelt verk að finna verkefni við hans hæfi. Leikrit Guðmundar Kamb- ans, Þess vegna skiljum við, er að mínu viti afar óhentugtverk fyrir þennan hóp. í leiknum,sem fjallar um hjú- skaparmál danskrar kaup- mannafjölskyldu á þriöja ára- tugnum, er mikið um feluleiki ýmiss konar, framhjáhöld og bældar ástriöur. Þvi veröa leikar- arnir aö vera færir um aö gefa i skyn fleira en þaö sem sagt er berum orðum, láta skina i þaö sem gerist undir yfirborðinu. I þessum hópi eru vissulega leikar- ar sem ráöa yfir þeirri tækni sem þarf til sliks, en þar eru einnig leikarar sem kunna betur aö draga einfaldar en kraftmiklar linur og ná þvi ekki fullu valdi á hlutverkum sínum. Þennan galla mætti e.t.v. fyrir- gefa væri hér um timabært og vel samið leikrit aö ræöa. En mér er hulin ráögáta hvað vakir fyrir forráöamönnum L.A. með þvi að draga fram þennan afdankaöa hjónaleik Kambans. Markmiö höfundar er aö prédika frjálslegri hjúskaparhætti og þeirri spurn- ingu er varpaö fram hvort hjón eigi ekki einfaldlega að slita sam- vistum séu þau farin aö fara i taugarnar hvort á öðru og annaö þeirra ástfangiö af þriöja aöila. Þessi viska kann að hafa átt eitthvert erindi við danska borg- ara, sem grundvölluðu sambúö sina á hugmyndum viktoriutim- ans; ég á bágt með aö trúa þvi aö enn sé til fólk sem þarf aö gera sér ferð i leikhúsið til þess að láta segja sér þetta. Það er svo ekki að sökum að spyrja aö hjá Kamban eru það karlarnir sem hlaupa útundan sér, konurnar eiga það ekki til að renna hýru auga til annarra karl- manna en þeirra sem þær eru giftar. Að haldi Kambans virðist fastheldni konunnar á karlmann- inn vera höfuðmeinsemd borgaralegs hjónabands. öryggisleysið og niöurlægingin sem ógift kona varð að þola i karlstýröu samfélagi þessa tima kemur honum ekki við. Leikurinn gerist á heimili Egg- erts Thorlaciusar stórkaupmanns i Kaupmannahöfn og snýst eink- um um hjónabandsraunir þriggja barna hans, Karls, Bald- vins og Sigþrúðar, sem eru ásamt mökum sinum tiðir gestir á heim- ilinu. Kamban hefur þann háttinn á að ganga á röðina: fyrsti þátt- urinn lýsir erjum Karls og Gerðu konu hans, i öðrum þætti beinist athyglin að ástandinu hjá Baldvin og Lovisu og i þeim þriðja er svo lýst skilnaði Sigþrúðar og Viggós bónda hennar. Einnig segir frá Stefaniu Thomsen, föðursystur þeirra systkina, sem sækir mann sinn, Axel Thomsen, með harðri hendi til útlanda eftir að hann hefur hlaupist að heiman, auk þess sem gömul vixlspor heim- ilisföðurins sjálfs koma litillega við sögu. Þessi uppbygging þjónar þeim tilgangi að koma prédikun höf- undar sem best til skila. Eftir tvær eða þrjár bunur I hjóna- bandshringekju fyrsta og annars þáttar, þar sem okkur er sýnt hvernig ástandið á ekki að vera, kemur mórallinn eins og isköld gusa yfir áhorfendur. Þegar Sig- þrúður kemst að þvi að Viggó bóndi hennar er ástfanginn i ann- arri konu býður hún honum skiln- aö. Eggert föður hennar, fulltrúa góðborgaralegra hjónabands- dyggöa, ofbýður að vonum slikt frjálslyndi og upphefst nú mikil samræða milli þeirra. Leggur Kamban bollaleggingar sinar hráar persónunum i munn og ber ekki við að laga þær að einkenn- um þeirra. Tækist Svanhildi Jó- hannesdóttur, sem leikur Svan- hildi, ekki að blása lifi i þetta uppgjör með liprum og sannfær- andi leik, væri nánast óþolandi að sitja undir þessu. Marinó Þor- steinsson, sem leikur Eggert af myndugleika og festu, skortir hins vegar þá sálfræðilegu nær- færni sem þarf ekki sist með þegar kemur i ljós á siöustu min- útum leiksins að hann átti i fyrnd- inni vingott við aðra konu en eiginkonu sina. Það má kallast gott að leik- stjóra og leikendum skuli hafa tekist að gera frambærilega sýn- ingu úr þessum samsetningi. Viða ma sjá þess merki að þau hafa átt bágt með að taka þetta fólk i fullri alvöru og sumsstaðar er farið með hjónabandsþref og há- tiðlegar umgengnisvenjur út i hreina skopstælingu. Þetta á framar öðru við um rifrildi Lovisu og Baldvins og kaffi- drykkjuna i öðrum þætti, hvort tveggja bráðskemmtileg atriði. Sumir leikaranna nýta kómiska möguleika hlutverkanna vel, ekki sist Alaðsteinn Bergdal i hlut- verki galgopans Baldvins. Astæða er einnig til að nefna Þrá- in Karlsson i litlu hlutverki hins kúgaða eiginmanns,Axels Thom- sens, fulls uppgjafar og kald- hæðnislegrar fyrirlitningar á fáránleik þessara sambýlishátta. Chófleg skopstæling er þó býsna varasöm i sýningu á verki af þessu tagi, þvi aö þrátt fyrir allt er ætlast til þess að viö tökum boðskap þess alvarlega. Og i meöferð Þóreyjar Aðalsteinsdótt- ur á hlutverki Lovisu undirstrikar kómikin beinlinis kvenhatur leik- ritsins. Þórey gerir hana að móð- ursjúku og eigingjörnu kvendi og væri Baldvin Aðalsteins Bergdals ekki ótrúverðugur spjátrungur sæti Lovisa uppi með alla skömmina. Hvorki Aðalsteinn né Þórey skýra hins vegar fyrir okk- ur hvers vegna i ósköpunum þetta fólk hangir saman — þaö er Held- ur ótrúlegt að svona týpur séu þrælbundnar af siðaboðum eldri kynslóða. Svipaða sögu er að segja um leik Gests E. Jónasson- ar (Karl), Nönnu I. Jónsdóttur (Gerða) og Theodórs Júliussonar (Viggó), þetta eru allt mjög óljós- ar peráónur sem leikstjóri og leikendur hefðu þurft að móta betur. Um leikmynd Jóns Þórissonar og búninga Hauks J. Gunnarsson- ar er margt gott að segja. Þó að leikmyndin sé nákvæm eftirliking borgaralegrar stofu er hún stil- hrein og laus við allt ofhlæði. Hún er öll i brúnum lit og fellur litur og snið búninga oft ágætlega að henni. Klæðaburður persónanna samsvarar gjarnan mismunandi afstöðu þeirra; þannig ganga forsvarar borgaralegs siðgæöis yfirleitt i dökkum og brúnum föt- um með stifu sniði, á meðan ljós- ari litir og sundurgerð einkenna klæðaburð yngra fólksins. Hér er um óvenju yfirvegaða notkun á búningum og lit að ræða, sem margt islenskt leikhúsfók mætti hiklaust taka sér til fyrirmyndar. MINNING Una Guðmundsdóttir Svo viðkunn og vinnusöm sem hún Una var, þykist ég vita, að ég séaðberai bakkafullan lækinn með þvi að sýna lit á að þakka fyrir mig og mina. Kynni okkar hófust með afar sérstæðum hætti um þetta leyti árs 1964. Sonur minn, Hjörtur Bergþór, lá þá lifshættulega veik- ur á Landakotsspitala. Hann var skorinn upp þrisvar á hálfum mánuði og fékk siðan brjóst- himnubólgu og háan hita ofan á allt annað. 1 sjö vikur nærðist hann einungis i æö. Ég vakti yfir honum eins og ég hafði úthald til og vinir og vandamenn voru boönir og búnir til að leysa mig af öðru hverju. Fööursystir drengsins, Friöa, bjó i næsta húsi viö Unu suður I Garði, og milli þeirra var náin vinátta. Hún fylgdist með liðan drengsins, bað Unu fyrir hann og ráðlagöi mér að tala við hana. Ég kunni í fyrstunni ekki viö að ráð- ast þannig að bláókunnugri konu meö mln vandamál og talsverður timi leið þar til ég kom mér að þvi. Þegar ekki leyndi sér lengur, að hjúkrunarliðiö taldi vonaust, aödrengurinn lifði af, þá var þaö, að ég hringdi I fyrsta en ekki slð- asta sinn i nr. 7084 i Geröum. Ég þurfti ekki einu sinni að segja til nafns, heldur var mér tekið sem gömlum vini: „Komdu sæl og blessuð, væna min. Ég vissi, að þú myndir hringjanúnaogbeið viðsimann”. Siðan fullvissaði hún mig um, að drengurinn ætti langt lif fyrir höndum. „Aftur á móti er maðurinn vií hliðina á honum feigur, en hann deyr þó ekki alveg strax”. Maðurinn dó tveim mánuðum seinna. Er skemmst af að segja, að þótt drengurinn ætti langt i land að ná heilsu og lengi eftir þetta þætti flestum vægast sagt tvisýnt um lif hans, tókst Unu si- fellt að halda viö bjartsýni minni, og við vorum orðnar perluvinkon- ur áður en við sáumst 1 fyrsta skipti. Það var þegar hún heim- sóttibann ásjúkrahúsið. Þástrax vann hún hug og hjarta okkar mæðginanna beggja. Núna er Hjörtur Bergþór orð- inn 23jaáraogá þriggja áradótt- ur, sem heitir Una Björg, eina af þeim 17 stúlkum, sem skirðar voru i höfuðið á henni Unu. Ekki veit ég nema hann eigi Unu lif að launa, a.m.k. held ég, að það sé erfiðara að afsanna það en sanna. Svo mikiö er vist, að milli okkar hnýttust þau bönd, sem ekki slitna. Siöan hafði ég þá einstaklega þægilegu tilfinningu aðeiga tvær mæður hvoraannarri betri og átti þvi láni aö fagna, aö Una skipaði mér að einhverju leyti i auttsæti fósturdóttur sinn- ar, Stefaniu, sem hún hafði misst unga, 27 ára að aldri. Við bjuggum sin i hvorum landsfjórðungi, og þvi var oft allt of langt milli funda okkar. Á með- an Una haföi sæmilega heilsu dvaldi hún stundum hjá okkur i Fljótstungu og varð okkur öllum jafn kær. Þær stundir, sem við áttum með henni, veröa okkur alltaf ógleymanlegar og dýrmæt- ar. Við gerðum ótaldar misjafn- lega vel heppnaðar tilraunir til að leysalifsgátuna, og skoðanir okk- ar fóru saman i flestum efnum. Una var vitur kona með af- brigðum, og að sjálfsögðu var það hún, sem bar gott fram úr góðum sjóði, miðlaði af mannkærleika sinum, lifsreynslu og siðast en ekki sist af sinum alkunnu hæfi- leikum, sem lesa má um i bók- inni Völvu Suðurnesja. Una var óvenju skemmtileg kona, gædd rikri kimnigáfu en fingerðri. Jafnvel þegar við kom- um til hennar i siðasta sinn, var hún með gamanyrði á vörum, þótt hún ætti orðiö erfitt um mál og mjög væri af henni dregiö, endaáttihún aöeins fáa daga ólif- aða. Þá eins og endranær fórum við rikari og kannski ögn betri af hennar fundi en við höfðum áöur verið. Hún var lifandi dæmi um gildi góðleikans. Oft hafði hún sagt við mig: „Þegar þú fréttir að hún Una þin sédáin, máttu ekki verða hrygg, heldur skaltu hugsa: Nú liöur Unu minni vel”. Núna er ég að reyna aö breyta eftir þessu. Hið fyrra er hægara sagt en gert. Hiö siðara efast ég ekki um og hlakka til að hitta hana aftur, þegar þar aö kemur. Ingibjörg Bergþórsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.