Þjóðviljinn - 17.10.1978, Page 8
Þriðjudagur 17. október 1978 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 9
Af þeim ráðstefnum sem framundan eru og flokksskrifstofan er að undirbúa er
sveitarstjómarráðstefnan tvimælalaust mesta nýmælið. Hún verður haldin dagana 24.-25.
nóvember og þangað eru boðaðir allir þeir sem kosnir hafa verið í bæjar- og sveitarstjórnir
á vegum Alþýðubandalagsins.
8 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 17. oklóber 1978
Innan Alþýðubandalagsins hafa verið starfandi 54 flokksfélög, en nú er unnið að stofnun félaga
á Snæfeilsnesi, i Ámessýslu og á Suðumesjum. Ég geri fastlega ráð fyrir þvi að á
næstu vikum bætist að minnsta kosti sjö flokksfélög við, þannig að þau verði innan tiðar
komin yf ir sextiu.
Forystuhlutverk Alþýðubandalagsins kallar á stóraukið flokksstarf
„I kjölfar kosninganna í vor og ríkisstjórnar-
myndunar hefur starfsemi Alþýðubandalagsins nú á
haustmánuðum miðast við þá viðtæku stjórnarábyrð
sem flokkurinn hefur axlað i íslensku þjóðfélagi. Að
loknum bæjar- og sveitarstjórnarkosningum varð
Alþýðubandalagið forystuafl í stjórn stærstu bæjar-
félaga landsins, svo sem Reykjavikur, Kópavogs og
Akureyrar, þar sem samtals rúmur helmingur
þjóðarinnar hefur búsetu. Auk þess er Alþýðubanda-
lagið samstarfsaðili að stjórn fjölmargra bæjar-og
sveitarfélaga um land allt.
Kjarabaráttan á þessu ári, átök verkalýðs-
hreyfingarinnar við fjandsamlegar aðgerðir fyrri
ríkisstjórnar og siðan framlag hennar til myndunar
þeirrar stjórnar sem við tók skapa Alþýðubanda-
laginu sem forystuafli í verkalýðshreyfingunni og
stærsta ríkisstjórnarf lokknum enn frekari sérstöðu
miðað við stjórnarþátttöku flokksins áður.
Öll þessi mikla atburðarás og grundvallarbreyting
á verkefnum og aðstöðu flokksins knýr nú enn frekar
á um það að Alþýðubandalagið reynist með innra
starfi sínu fært um að sinna hinni viðtæku þjóðfélags-
legu forystu og beita henni til þess að framkalla
breytingar í samræmi við hugsjónalegan grundvöll
sinn og hagsmuni launafólks."
Frá siftasta landsfundi: Þaft er ótvirætt styrkur Alþýftubandalagsins hvaft þaft stendur traustum fótum
um land allt, og flokksráftsfundur og landsfundur hafa þvi afteins gildi aft þeir séu sóttir úr öllum lands-
hlutum.
Fimm meiriháttar fundir og
rádstefnur eru á döfinni
Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Alþýftubandalagsins, Ólafur Ragnar Grimsson, formaftur fram-
kvæmdastjórnar, og Baldur óskarsson, starfsmaður verkalýftsmálaráfts, á flokksskrifstofunni að
Grettisgötu 3 i Reykjavik
Rætt við Baldur Óskarsson, Ólaf Ragnar Grímsson
r
og Olaf Jónsson um verkefni framkvæmdastjórnar
og flokksskrifstofu Alþýðubandalagsins
Þannig hóf Ólafur Ragnar
Grimsson, formaöur
framkvaemdastjórnar Alþýðu-
bandalagsins, að gera grein fyrir
verkefnum flokksins nú á haust-
mánuöum er Þjóðviljinn innti þá
Ólaf Ragnar, ólaf Jónsson, fram-
kvæmdastjóra flokksins, og
Baldur óskarsson, starfsmann
verkalýðsmálaráðs, eftir flokks-
starfinu og viöfangsefnum flokks-
skrifstofunnar. Við báðum ólaf
Ragnar að segja frá starfi
framkvæmdastjóra að undan-
förun.
Verkefni fram-
kvæmdastjórnar
„Strax i byrjum september að
lokinni rikisstjórnarmyndun
hófust umræður innan fram-
kvæmdastjórnar Alþýöubanda-
lagsins um þá uppbyggingu
flokksstarfsins sem breytt
viöhorf kalla á. Rætt hefur verið
um þau verkefni sem leggja bæri
höfuöáherslu á næstu mánuðina,
eða fram að áramótum.
1 rauninni má segja að sú
umræða sé fjórði áfanginn i starfi
framkvæmdastjórnar á þessu ári.
Fyrstu mánuði ársins setti
barátta verkalýðshreyfingar-
innar gegn fyrri rikisstjórn
mestan svip á störf hennar. Siðan
tók kosningaundirbúningurinn
við og þá tveggja mánaða törn i
umræðu um rikisstjórnarþátt-
töku. Og nú er það flokksstarfið.
Segja má að innan fram-
kvæmdastjórnar hafi hún skipst i
sex meginþætti.
1.
Rætt hefur veriö itarlega um
almenna þætti flokksstarfsins,
gerð úttekt á stöðu flokksins að
loknum kosningum og lagt mat á
ýmsar leiðir sem farnar hafa ver-
ið I ftokksstarfinu á liðnum árum
og hvernig hægt væri að sniða þær
og aörar nýrri að víötækari verk-
efnum flokksins. I þessu sam-
hengi hefur einnig verið fjallað
um nauðsyn félagafjölgunar I
flokknum, erindrekstur, fræðslu-
starf og sérstakar umræðuher-
ferðir tengdar tilteknum mála-
flokkum.
2.
Unnið hefur verið aö skipulagi
fimm ráöstefna og meiriháttar
fundasem haldnir verða á vegum
ftokksins á næstu tveimur mán-
uöum. Þar er helst að nefna fund
um utanrikismál til undirbúnings
þátttöku Alþýöubandalagsins I
Iandsfundi herstöövaandstæð-
inga, ráðstefnu um sveitar-
stjórnarmál, ráðstefnu ungra
sóslalista aðalfund verkalýðs-
málaráðs, flokksráösfund, og
reglubundna fundi miðstjórnar
flokksins.
3.
Fjallaö hefur verið um útgáfu-
starfsemi á vegum ftokksins og I
tengslum við hann. Einkum hefur
verið rætt um eflingu landshluta-
og héraðablaða og skipulags-
bundna aðstoð við þá starfsemi
innan ftokksins. Auk þess hafa
breytingar á Þjóðviljanum vegna
ritstjóraskipta og árvissra fjár-
hagserfiðleika I rekstri blaösins
verið til umraaðu innan fram-
kvæmdastjórnar og veröa það á
næstunni.
4.
Fjármál flokksins og þá sér-
staklega aukin fjárþörf hans
vegna meiri starfsemi og skipu-
lag fjársafnana meöal almennra
flokksmanna hafa veriö tekin til
itarlegrar umræðu. Það er alveg
ljóst að eigi flokkurinn að geta
sinnt þeim auknu verkefnum sem
hann hefur tekist á hendur verður
að auka mjög framlög frá al-
mennum flokksmönnum til þess
að geta staðið undir kostnaöi við
starfsmannahald og önnur um-
svif.
5.
1 fimmta lagi ber að nefna efl-
ingu flokksmiðstöðva sem víðast
um land. Á þvi er brýn nauðsyn
aöflokkurinneignist eöa geti tek-
ið á leigu húsnæöi þar sem hægt
er aðhafa varanlega aöstöðu fyr-
ir f jölbreytilegt flokksstarf.
6.
Að lokum er þess að geta að
ákvaröanir um aukiö ftokksstarf
kalla á fleiri starfemenn og breytt
skipulag I starfsmannahaldi.
Samhliöa eflingu flokksfélaga um
land allt þarf að efla aðalskrif-
stofuna og starfsemi hennar
verulega.”
Verkefni flokks-
skrifstofunnar
A 'skrifstofu Alþýðubandalags-
ins starfa. ekki nema tveir
starfsmenn I fullu starfi og einn I
hálfu. Auk þess leggja aö vísu
margir fram sjálfboðaliöastörf og
hlutastörf að sérstökum verkefn-
um. Ljóst er þó að starfsliðið er
að kaffærast I verkefnum, Þjóð-
viljinn bað Ólaf Jónsson fram-
kvæmdastjóra Alþýðubandalags-
ins að gefa lesendum yfirlit um
það helsta sem ftokksskrifstofan
hefur á slnum snærum þessar
vikurnar.
„Að loknum kosningum og
sumarleyfum hófst hér undirbún-
ingur að aðalfundum kjördæma-
ráðanna um allt land, en þeir eru
haldnir I september og október
samkvæmt venju. Þeim er nú lok-
iðifjórum kjördæmum.enl þeim
þremur sem eftir eru verða aðal-
fundir kjördæmaráða haldnir nú
um mánaðamótin.
Ja&iframt þessu hafa verið
haldnir fundir I flestum félögum
Alþýðubandalagsins um allt land
til þess að undirbúa kjördæmis-
ráðsfundina og flokksráðsfund.
Innan Alþýðubandalagsins hafa
verið starfandi 54 ftokksfélög, en
nú er unnið að stofnun félaga á
Snæfellsnesi, I Arnessýslu og á
Suðurnesjum. Ég geri fastlega
ráö fyrir þvi að á næstu vikum
bætist aö minnsta kostrs'jö flokks-
félög við, þannig að þau verði inn-
an tíöar komin yfir sextlu.
Okkar starf hér á skrifstofunni
fer afar mikið I aö sinna erindum
sem hingað berast. Akaflega
margir hafa samband við skrif-
stofuna simleiðis eða með þvi að
lita hér við. Þvi fer hér fram mik-
ilsverð þjónustabæði viö einstaka
flokksmenn og flokksfélög.
Þessa dagana erum við að boða
um 700 manns á ráðstefnur og
fundi sem haldnir veröa nú á
haustmánuðum og er það mikiö
starf. Segja má að Alþýöubanda-
lagið skipti niður landsfundar- og
ftokksráðsverkefnum I einstaka
málaflokka og ræði þá á sérstök-
um ráöstefnum. Með þvl reynum
viö að koma I veg fyrir að flokks-
ráðs- og landsfundir verði ein-
göngu afgreiðslustofnun heldur
geti orðið vettvangur stefnuum-
ræðu I þeim málum sem hæst
ber.
Ráðstefna um
sveitarstjórnarmál
Af þeim ráðstefnum sem fram-
undan eru og flokksskrifstofan er
að undirbúa er sveitarstjórnar-
ráðstefnan tvimælalaust mesta
nýmælið. Hún verður haldin dag-
ana 24.-25. nóvember og þangaö
eru boðaðir allir þeir sem kosnir
hafa verið I bæjar- og sveitar-
stjórnir I nafni Alþýöubandalags-
ins. Þeim fjölgaöi svo mikið við
siðustu kosningar að ekki er of-
sagt aö á þessu sviöi hafi orðið
kaflaskipti og tímamót I flokks-
starfinu.
A þessari ráðstefnu verða tekin
tilumræðu hin ýmsu mál sem eru
sameiginleg fyrir sveitarfélögin
og allir sveitarstjórnarmenn eru
að glíma við, auk þess sem unniö
Ólafur Jónsson: Þessa dagana
erum vift að bofta 700 manns á
ráðstefnur og fundi sem haldnir
verfta nú á haustmánuðum.
Baldur óskarsson: Þessi nefnd
miftstjórnar er mjög virk og ákaf-
lega þýftingarmikil i flokks-
starfinu. Þaft skiptir þvi miklu að
ársfundur verkalýðsmálaráftsins
takist vel.
Ólafur Ragnar Grimsson: ÖII
þessi mikla atburftarás og
grundvallarltreyting á verk-
efnum og aftstöftu flokksins knýr
nú enn frekar á um þaft aft
Alþýftubandalagift reynist meö
innra starfi sinu fært um aft sinna
hinni vifttæku þjóftfélagslegu
forystu og beita henni til þess aft
framkalla breytingar i samræmi
vift hugsjónalegan grundvöll sinn
og hagsmuni launafólks.
Frá fundi verkalýftsmálaráðs i byrjun árs: A ársfundi verkalýftsmálaráfts i nóvember verftur meftal
annars rætt um visitöluna og verfttryggingu launa og um samstarf verkalýftshreyfingarinnar og rikis-
stjórnarinnar.
veröur aö þvi aö marka og sam-
ræma stefnu Alþýðubandalags-
manna á þessu sviöi.
Ég vil i' þessu sambandi sér-
staklega hvetja öll flokksfélög til
þess aö undirbúa þessa sveitar-
stjórnarráðstefnu af mikilli kost-
gæfni meö þvi að taka sveitar-
stjórnarmál til sérstakrar um-
ræðu. Annars er hætt viö þvi að
árangurinn af ráðstefnunni verði
harla lítilfjörlegur.
Landsfundur
ungra sósíalista
Þ{i hefur æskulýösmálanefnd
Alþýðubandalagsins boðað til
landsfundar um málefni ungra
sósialista. Það er þriðja árið I röð
sem slikur fundur er haldinn.
Hann verður 21. til 22. október hér
iReykjavik. Undirbúningur undir
fundinn er hinsvegar að mestu
leyti i höndum æskulýösnefndar,
en þar verður væntanlega rætt
um hugsanlegar breytingar á
stöðu og starfi ungs fólks innan
Alþýöubandalagsins. Ljóst er að
skapa þarf aukið svigrúm fyrir
þátttöku ungs fólks i þeim teg-
undum flokksstarfs sem það hef-
ursérstakan áhuga á að einbeita
sér að.
Flokkur og fjárhagur
Ég vil sérstaklega taka það
fram að þvi fer fjarri að hægt sé
aösinna öllu þvi starfi sem vinna
þarf á vegum ftokksins og til að-
stoðar viö hin ýmsu flokksfélög
hér á flokksskrifstofunni. Það er
til að mynda mjög bagalegt aö
um umtalsverðan erindrekstur á
vegum flokksins er ekki að tefla
eins og á stendur. A þvi er mikil
þörf að hafa sem mest samband
við ftokksfélög vlðsvegar um land
og til þess þarf að skipuleggja
heimsóknir og erindrekstur.
Starfsemi flokksskrifstofunnar
ogþjónustanvið félögin takmark-
ast við fjárhagsgetu flokksins og
svigrúm hans til að ráða sér
starfefólk. Þetta er erfitt verkþvi
aö tekjustofnar eru ekki aörir en
framlög flokksmanna og skattar
ftokksfélaga.
1 þvi sambandi vildi ég hvetja
menn eindregiö til þess að vinna
skipulega að þvi að auka þátttöku
flokksmanna i styrktarmanna-
kerfinu en þaö er afar þýðingar-
mikið i flokksstarfinu.
Tvennar kosningar og aukin
verkefni flokksins á þessu ári
hafa reynst fjárfrek. Flokkurinn
hefur nú á undanförnum mánuö-
um leitað til mörg hundruö
ftokksmanna sem margir hafa
lagt fram tugi þúsunda króna i
flokksstarfið. Það er erfitt að
koma nú og biðja menn aö halda
áfram að styrkja flokksstarfið og
Þjóðviljann meö framlögum. En
það hefur verið styrkur Alþýðu-
bandalagsins gegnum árin að
fjöldi flokksmanna hefur verið
reiðubúinn að leggja fram veru-
legar fjárhæðirtil flokks og blaðs.
Þrátt fyrir mismunandi efnahag
og kjör hefur fólk ekki taliö eftir
sér að þrengja einkafjárhag sinn
meö framlögum til hreyfingar
sem þaö bæöi metur mikils og
ætlast til mikils af.”
r
Arsfundur
verkalýðsmálaráðs
Baldur óskarsson hefur sem
starfsmaður flokksskrifstofunnar
verið framkvæmdastjóri verka-
lýðsmálaráös, auk þess sem hann
hefur sinnt erindrekstri og
fræðslustarfsemi eftir föngum.
Viö báðum hann aö gera grein
fyrir störfum flokksins á þessum
vettvangi á næstunni.
„A vegum miðstjórnar er starf-
andi mjög fjölmennt verkalýðs-
málaráö. 1 þvi eru 250 virkir
félagar I hinum ýmsu samtökum
launafólks. Dagana 4. og 5.
nóvember er ákveöiö að halda
ársfund þessa ráðs i Reykjavik.
A ársfundi verkalýðsmálaráðs
veröur meðal annars rætt um
visitöluna og verðtryggingu
launa. Þá verður fjallað um sam-
starf rikisstjórnarinnar og verka-
lýöshreyfingarinnar, rætt um
efnahagsmálin og stöðu launa-
fólks, kjaramál og framlengingu
kjarasamninga og loks um starf
Alþýðubandalagsins að verka-
lýðsmálum.
Þegar þetta birtist er unnið að
þvi að senda út sérstakt fundar-
boð til ráðsmanna en fundurinn
verður að ööru leyti opinn öllum
áhugamönnum I Alþýöubanda-
laginu um verkalýðsmál og félög-
um i verkalýöshreyfingunni.
A fyrsta fundi verkalýðsmála-
ráös i ár sem haldinn var
skömmu eftir siðustu áramót var
þvi kjörin 18 manna stjórn. Hún
kemur saman einu sinni i viku og
oftar ef þörf krefur ásamt for-
ystumönnum flokksins til þess aö
móta afstöðu flokks og hreyfingar
til þeirra mála sem hæst ber
hverju sinni.
Þessi nefnd miðstjórnar er
mjög virk og er ákaflega þýð-
ingarmikil i flokksstarfinu. Þaö
skiptir þvi miklu aö þessi árs-
fundur verkalýösmálaráðsins
takist vel, og að vandaö sé til und-
irbúnings. Grundvöllur núver-
andi rikisstjórnar er alfarið sam-
vinna og samráö við verkalýös-
hreyfinguna og það hvilir fyrst og
fremst á herðum Alþýðubanda-
lagsins sem sterkasta stjórn-
málaafls launafólks i landinu að
leiða það samstarf.
Efling fræðslustarfs
Ef vikið er að fræðslumálunum
skal lögð á það áhersla að nauö-
synlegt er aö efna til fræðslu-
mála- og málfundanámskeiða
i rikara mæli en gert hef-
ur verið. Þörfin á þjálfun i fund-
arstörfum og ræðumennsku
er fyrir hendi i flestum
flokksfélögum, og slikt nám-
skeiðahald má samtimis nota til
pólitískrar umrasðu. Þaö hefur
þegar verið haldið eitt fræðslu-
námskeið á þessu hausti i Vest-
mannaeyjum og tókst það mjög
vel. Nú er fyrirhugað framhald á
þessu starfi og verða næstu
fræðslunámskeið á Akureyri
9.-12. nóvember.oginóvemberog
byrjun desember l Borgarnesi og
á Isafiröi. Takmarkaður mann-
afli á ftokksskrifstofunni kemur i
veg fyrir það aö hægt sé aö efla
fræðslustarf til muna á vegum
framkvæmdastjórnar sjálfrar, en
að sjálfsögðu er nauösynlegt að
einstök félög og kjördæmisráö
ræki þennan þátt flokksstarfsins
að eigin frumkvæði.”
Mikilvægur
flokksráðsfundur
Flokksráð Alþýðubandalagsins
fer með æðsta vald i málefnum
flokksins milli landsfunda.
Flokksráðsfundur er nú á döfinni
og Þjóöviljinn baö Ólaf Jónsson
að skýra frá undirbúningi hans.
,,A miðstjórnarfundi sem hald-
inn veröur næstkomandi föstudag
hér á Grettisgötu 3 verður lögð
fram tillaga um að boða til
Framhald á l4. siðu
0 Þrátt fyrir mismunandi efnahag og kjör hefur fólk ekki talið
eftir sér að þrengja einkafjárhag sinn með framlögum til
hreyfingar sem það bæði metur mikils og ætlast til mikils
af.
% Á vegum miðstjórnar er starfandi mjög fjölmennt verka-
lýðsmálaráð. í þvi eru 250 virkir félagar i hinum ýmsu sam-
tökum launafólks. Dagana 4. og 5. nóvember er ákveðið að
halda ársfund þessa ráðs i Reykjavik.
# Án virkrar og lifandi samtengingar i gegnum flokksstarfið
er hætta á þvi að starf fulltrúa flokksins á opinberum vett-
vangi eða innan fjöidahreyfinga feli ekki i sér þann slag-
kraft sem mögulegur er.