Þjóðviljinn - 17.10.1978, Síða 16
1
DWÐVIUINN
Þriöjudagur 17. október 1978
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9—21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9—12 og 5—7 á laugardögum. Utan þessa tima er
hægt að ná i þlaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I
þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285,
útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
Skipholti 19, R. I BUÐIN
simi 29800, (5 HnurP—f
Verslið í sérverslun
með litasjónvörp
og hljómtœki
Heildarfiskaflinn janúar-september
ívið meiri en á
sama tíma í fyrra
Heildarfiskaflinn, mánuðina
janúartil septemberloka i ár, er
heldur meiri en hann var á
sama tima i fyrra. Aflinn þessa
mánuði i fyrra varð 1.136.151
lest^ en i ár er hann 1.177.189
lestir (bráðabirgðatölur).
Botnfiskaflinn i fyrra varð
26.769 lestir, en er i ár 26.905
lestir. Bátaaflinn i fyrra varö
9.438 lestir en i ár 8.210 lestir. Og
togaraaflinn i fyrra varð 17.331
lest en i ár 18.695.
Loðnuaflinn I fyrra varð
695.877 lestir en i ár 710.119
lestir. Mestu munar að i fyrra
varð kolmunnaaflinn aðeins
9.455 lestir en i ár 24.526 lestir.
Sílda raflinn er hinsvegar minni
i ár en i fyrra, en þá var hann
4.448 lestir en nú 2.686 lestir.
—S.dór.
Ibúasamtök Þing-
holtanna stofnuð
A laugardaginn voru stofnuð I
Miðbæjarskólanum i Reykjavik
ibúasamtök Þingholtanna og eru
markmið samtakanna að skapa
manneskjulegt umhverfi I Þing-
holtshverfi og standa vörð um
menningarleg verðmæti hverfis-
ins. Hverfið takmarkast af Skóla-
vörðustig, Bankastræti, Lækjar-
götu, Sóleyjargötu og Njarðar-
götu. Um 40 manns sóttu stofn-
fundinn og skipuðu sér niður i
starfshópa um ýmis málefni en
stjórnarkjör biður aðalfundar
sem haldinn verður innan
mánaðar.
Markmiði sinu hyggjast sam-
tökin ná með verndun húsa i
hverfinu sem hafa menningarlegt
og/eða sögulegt gildi, sköpun lif-
vænlegs umhverfis fyrir börn
með leiksvæðum og annari
aðstöðu til útivistar, aðhæfa
umferð bila að þörfum þeirra sem
i hverfinu búa, dreifingu
upplýsinga og fræðsluefnis um
sögu og náttúru hverfisins, sögu
einstakra húsa og ibúa o.s.frv.,
uppbyggingu félagsmiðstöðvar
sem stuðlað gæti að félagslegum
samskiptum fólks á öllum aldri,
stuðla að þvi að þjónusta i hverf-
inu taki mið að þörfum ibúanna
t.d. er varðar skóla og dagvistun,
draga úr skaðlegum umhverfis-
áhrifum svo sem efna- og hávaða-
mengun, fylgjast með og taka
þátt i skipulagi hverfisins og beita
áhrifum til að koma fram
umræddum markmiðum, reyna
að koma i veg fyrir að félög eða
einstaklingar valdi skemmdum á
umhverfi með óæskilegu niðurrifi
eða uppbyggingu og stuðla að þvi
að húsum i hverfinu verði vel við
haldið.
Sigurður Harðarson formaður
skipulagsnefndar Reykjavikur- '
borgar sótti fundinn og fagnaði
stofnun félagsins. Hann sagði að
gagnasöfnun væri nú i fullum
gangi varðandi nýtt deiliskipulag
þessa hverfis og hét fullri sam-
vinnu við ibúana varðandi mótun
þess.
_______ —GFr
Miklar
hafnar-
fram-
kvæmdir
á Patreks-
firdi
A Patreksfirði standa nú yfir
miklar hafnarframkvæmdir
Unnið er að dýpkun við innsta
hluta viðlegukantsins. Þá er hafin
vinna við að breikka inn-
siglinguna. Verður hún breikkuö
um 17 metra, eða úr 23 metrum I
40 metra.
Innsiglingarennan hafði
mjókkað vegna sandburðar og
hruns úr Oddanum og var hún
oröin mjög erfið umferðar um
fjöru. Grjótvarnargarður verður
nú settur innan á Oddann þegar
breikkun og dýpkun er lokið.
Verkið er unnið með krana frá
Vita- og bafnamálastjórn. Verður
mokað upp tæplega 30.000 rúm-
metrum, og mun það kosta um 80
miljónir króna. —eös
LOÐNUVEIÐIN:
Heildar-
aflinn
kominn í
300 þús.
tonn
Mjög góð loönuveiöi hefur verið
siðustu daga og er heildaraflinn
kominn i 300 þúsund tonn, sem er
um 40 þúsund tonnum meira en
var á allri sumar- og haustloðnu-
vertiöinni í fyrra.
S.l. föstudag komu 19 skip með
10.600 lestir, á laugardag 13 skip
með 8.400 lestir, á sunnudag 7
skip með 4.200 iestir og siðdegis i
gær höfðu 5 skip komið að með
2.700 lestir.
Aflanum er landað viðsvegar
um Norður- og Austurlandshafn-
ir, allt til Reyðarfjarðar. Skipin
eru um það bil 3 sólarhringa i
veiðiferð. —S.dór.
Tvær nýjar ferðaskrif-
stofur í uppsiglíngu
Fyrrverandi forstjóri Ferðamiðstöðv-
arinnar sækir um ferðaskrifstofuleyfi
Að sögn Brynjólfs Ingólfssonar,
ráðuneytisstjóra I samgöngu-
málaráðuneytinu, liggja þar nú
tvær umsóknir um rekstur á
nýjum ferðaskrifstofum. önnur
umsóknin er frá Páli Jónssyni i
Pólaris, en hin frá Friðjóni Sæ-
mundssyni, sem var forstjóri
Ferðamiðstöðvarinnar þar til á
sl. sumri. Þjóðviljinn hefur
fregnað að með Friðjóni í stofnun
nýrrar ferðaskrifstofu verði
fleira fyrrverandi starfsfólk
Ferðamiðstöðvarinnar.
Brynjólfur Ingólfsson sagði, að
til þessa hefði sú trygging, sem
leggja verður fram við stofnun
ferðaskrifstofu, verið 7 milj. kr.
en nú stæði til að hækka það
tryggingarfé uppi 15 milj. kr. og
sagði Brynjólfur að beöið yrði
með að veita þessum tveimur
umsækjendum leyfi, þar til þessi
hækkun er komin til fram-
kvæmda.
Þrátt fyrir, að ein af ferðaskrif-
stofum landsins sé nú auglýst til
gjaldþrotaskipta i Lögbirtingar-
blaðinu, virðast menn óhræddir
við að stofna nýjar ferðaskrifstof-
ur, þvi að þeim Kjartani Helga-
syni og Böðvari Valgeirssyni var
veitt ferðaskrifstofuleyfi fyrr á
þessu ári og eru þeir báöir þegar
byrjaðir sina starfsemi og virðist
ganga vel.
—S.dór.
Lítil
hreyfing í
kennara-
deilunni
Fjármálaráðuneytið
heldur fundi með
forustumönnum
grunnskólakennara
Enn hefur ekkert gerst i
kjaradeilu Sambands grunn-
skólakennara við rikis-
valdið. I gær voru forsvars-
menn kennara boðaðir á
fund með fulltrúum fjár-
málaráðuney tisins. A
fundinum var skipst á
skoðunum og hefur annar
slikur fundur verið boðaður i
dag. Kjaranefnd hefur ekki
haldið fund um máiið enn.
Nefndin ætlaði að koma
saman fyrir viku, en fund-
inum hefur verið frestað
hvað eftir annað. —eös
Ferðamið-
stöðin ekki
gjaldþrota
Stjórn Feröamiðstöðvar-
innar h/f, hefur sent frá sér
fréttatilkynningu, þar sem
segir að gjaldþrotaúr-
skurður gegn fyrirtækinu
hafi verið upp kveðinn ,,af
vangá”. Stjórnin kveðst geta
sýnt fram á að fyrirtækið
eigi fyrir skuldum og óskar
eftir heimild til áfram-
haldandi reksturs.
Framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins boðar
til fundar um utanríkismál
Áhersluþættir í næstu
íi
framtíð
I viötali við Þjóðviljann I gær
sagði Ólafur Ragnar Grlmsson,
formaður framkvæmdastjórnar
Alþýðubandalagsins, að fram-
kvæmdastjórn heföi í septem-
bermánuði ákveðið að boða til
fundar um utanrikismá! þar
sem félögum í Alþýðubandalag-
inu yrði gefinn kostur á að ræöa
baráttuverkefni flokksins á
þessu sviði i næstu framtið.
Með tilliti til þeirra breytinga
sem orðið hafa i islenskum
stjórnmálum og margvislegra
nýrra möguleika til þess að
koma stefnumálum Alþýðu-
bandalagsins á þessu sviði á
framfæriog einnig með tilliti til
þess að i hönd fer vetrarstarf
Samtaka herstöðvaandstæðinga
er boðað til fundar um utan-
rikismálin á miðvikudagskvöld
kl. 20:30 i Lindarbæ.
Á fundinum verða flutt fjögur
stutt inngangsávörp. Svava
Jakobsdóttir alþingismaður
fjallarum baráttuna fyrirbrott-
för hersins og aðra mikilvæga
þætti i utanrikismálastefnu
Alþýðubandalagsins. Stefán
Jónsson alþingismaöur fjallar
um hugmyndir um friölýsingu
Norður-Atlantshafsins. Tryggvi
Þór Aöalsteinsson formaður
Sveinafélags húsgagnasmiða
fjallar um baráttu verkalýðs-
Asmundur
Stefán
Svava
Tryggvi Þór
hreyfingarinnar fyrir brottför
hersins. Loks flytur Asmundur
Asmundsson formaður Sam-
taka herstöðvaandstæðinga
spjall um starfsemi samtak-
anna.
Ölafur Ragnar sagði að þessi
fundur væri sá fyrsti sem fram-
kvæmdastjórn Alþýðubanda-
lagsins hygðist beita sér fyrir
þar sem utanrikismálin yrðu
tekin til meöferðar og væri
mikilvægt að sem flest Alþýðu-
bandalagsfólk notaði þennan
vettvang til þátttöku i umræð-
um um þau.
Að loknum inngangsávörpum
verða almennar umræður. At-
hygli skal vakin á þvi að lands-
fundur Samtaka herstöðvaand-
stæðinga er um næstu helgi og
veitir þvi fundurinn á miðviku-
dagskvöldið tækifæri til þess að
fjalla um umræðuefni lands-
fundarins.
-ekh
Flokksstarf og harátta Samtaka herstöðvaandstœðinga meðal umrœðu-
j efna. Fundurinn er opinn öllu Alþýðubandalagsfólki j