Þjóðviljinn - 21.10.1978, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐyiLJINN Laugardagur 21. október 1978
Það er sannarlega gott til þess að vita að
dagblöðin íslensku hafa lagt metnað sinn i það
að f á hæf ustu menn (og konur) til að f jalla um
menningarmál og að umsagnir gagnrýnenda
skuli oft vera drjúgur þáttur af lesefni dag-
blaðanna. í þessum umsögnum er leitast við
að gera listrænum umsvifum landsmanna
sérfræðileg skil,og fer þá ekki á milli mála að
gagnrýnandinn þarf helst að vera meira
gáfnaljós, en sá sem listina fremur og hálfu
listfengari.
Morgunblaðið hef ur — að hinum blöðunum
ólöstuðum — á að skipa vöskustu vitringasveit
sem um getur i heimi fjölmiðla og eru gull-
kornin ófá, sem hrokkið hafa úr stílvopnum
listvitringa Morgunblaðsins og vakið óskiptan
aðhlátur almennings í landinu á þessum síð-
ustu alvörutímum.
Það mun mjög útbreidd skoðun að flestir
þeir sem um listir og bókmenntir fjalla í
Morgunblaðinu (og jafnvel hinum blöðunum
lika) séu fábjánar, en ég vil einarðlega mót-
mæla þeirri staðhæfingu og mun hér á eftir
reyna að sýna f ramá undantekningar, þó ekki
væri nema til þess að sanna regluna.
Einn af afkastamestu listspekingum
Morgunblaðsins er Jóhann Hjálmarsson, mið-
aldra Ijóðskáld og skelleggur málsvari ungra
skálda sem orðin eru miðaldra, eða komin á
fyrra eða jafnvel síðara hrörnunarskeiðið.
Og það eru einmitt menn eins og Jóhann,
sem halda uppi heiðri gagnrýnendastéttarinn-
ar. Ef einhver skyldi leyfa sér að efast um
ágæti mannsins, þá leyfi ég mér að benda á
gagnrýni hans um Disneyrímur Þórarins Eld-
járns, sem Iðunn gefur út. Gagnrýnin birtist í
Morgunblaðinu 17. okt. undir yfirskriftinni
„MIKKI MÚS i STUÐLUM OG HÖFUÐSTÖF-
UM"
I þessum tilskrifum er varpað fram hug-
mynd, sem telja má að brjóti blað í hugmynd-
um um Ijóðlist, en greinarhöfundur varpar
fram þeirri frumlegu skoðun, að stílbrigði í
Ijóðlist séu tvö, nefnilega „gamall stíll" og
„nýr stíll".
Með þessum nýju kenningum er kollvarpað
öðrum eldri, sem til þessa dags hafa verið
teknar góðar og gildar, nefnilega þeim, að til
séu aðeins tvenns konar Ijóð: „góð Ijóð" og
„vond Ijóð".
Orðrétt segir gagnrýnandinn:
„Margir, sem fást við að yrkja í gömlum stíl
gæta þess ekki að laga hugmyndir sínar eftir
nýjum tíma'i og síðan;„Yrkisefni hans (Þór.
Eldj.) gæti ekki verið nýtískulegra: heimur
Walt Disneys."
Hér sannast hið fornkveðna „Errare human-
um est", því svo sannarlega er krítikkerinn
hér haldinn alvarlegri mannlegri „skjátlun"
og fer með staðlausa stafi.
Ef nokkurt yrkisefni er gamaldags, þá eru
það kvæðabálkar um útlendar hetjur. Þetta
yrkisefni er meira að segja miklu eldra en
ríman, eins og dæmin sanna.
Ein af þeim guðsgjöfum, sem listrænir
gagnrýnendur virðast — oft að eigin áliti —
hafa í ríkara mæli en almúginn í landinu er
kímnigáfa og þess vegna veitist þeim létt að
f jalla um þá hlið tilverunnar og húmor ann-
arra en þeirra sjálfra. Jóhann Hjálmarsson,
sem af mörgum er talinn mesti húmoristi
Morgunblaðsins (og eru þar þó kynlegir kvist-
ir fyrir), gefur Þórarni Eldjárn eftirfarandi
einkunn fyrir „húmor": „Þórarinn hefur dá-
lítið sérstakan húmor, maður skellihlær ekki
aðþví sem hann segir, heldur brosir inní sér".
Persónulega vildi ég fórna góðri saltfisk-
máltíð til að fá að sjá hvernig nefndur krítikk-
er verður í framan, þegar hann brosir „inní
sér" og bera það saman við andlitið, þegar
hann brosir utaná sér.
Undir lokin í bókmenntagagnrýni Jóhanns
kemur svo æsilegur vitsmunasprettur byggð-
ur á eigin reynslu og annarra ungra skálda af
eldri kynslóðinni:
„Aftur á móti mætti spyrja, hvort skáldið
hefur erindi sem erfiði. Nær boðskapur rím-
unnar til fólks? Til hvaða lesenda höfðar
formið? Ég held til dæmis að efni rímunnar
eigi ekki við þá kynslóð sem vönust er rímum,
fólk, sem nú er orðið aldrað. Og bágt á ég með
að hugsa mér ungt fólk lesa rimu og allra sist
kveða hana."
Hér slær nú heldur betur útí f yrir hinum al-
vitra gagnrýnanda, og ég ætia að leyfa mér að
gerast svo djarfur að gera framangreindum
spurningum og fullyrðingum nokkur skil. Um
það hvort boðskapur rímunnar nái til fólks
nægir að geta þess að samkvæmt upplýsingum
bókaútgáfunnar Iðunnar, hefur engin Ijóða-
bók selst þar, fyrr né síðar, í svipuðu upplagi
og Disneyrímur Þórarins/enda að seljast upp.
Hins vegar er það vitað að þegar Ijóð góð-
skálda af kynslóð hinna ungu miðaldra eru
gefin út, brestur venjulega flótti i lið vina og
vandamanna góðskáldanna, en upplagið
venjulega miðað við að hægt sé að þröngva
þeim nánustu til að kaupa Ijóðspekina. For-
eldrarþessaraskálda eru venjulega þeir einu,
sem kaupa I jóðabækurnar af því að þeir ná því
ekki að bjarga sér á f lótta sakir aldurs og ör-
kumla, ef þeir eru þá ofar moldu.
Jóhann Hjálmarsson er vafalaust vel að sér
i því hvernig á að yrkja og yrkja vel. En þá
virðist hann líka harla fáfróður um sögu ís-
lenskrar Ijóðlistar, ef hann heldur að það fólk
sem nú er aldrað hafi einhvern tímann
gluggað í rímur.
Flestir telja að Jónas Hallgrímsson hafi
greitt rímunni banahöggið með ritgerð um
Tristansrímu Sigurðar Breiðf jörð 1831 og full-
víst er talið að það haf i aðeins verið kynlegir
kvistir, sem kunnu rímur um síðustu aldamót.
Þess vegna hefur Þórarinn Eldjárn endurvak-
ið rímuna með þeim neista, sem vonandi á eft-
ir að verða mikið rímnabál. Og það að Jóhann
skuli eiga bágt með að hugsa sér ungt fólk
lesa rímu og „allra síst að kveða hana" sýnir
bara að hann er orðinn gamall og man ekki
lengur þá liðnu tíð þegar hann var sjálf ur ung-
ur og hin Ijóðelska íslenska æska lá og pældi í
Ijóðperlunum hans, en rímnaskáldin settu
saman leirbull á við þetta:
Engan vissi ég vænni
vinsælli né Ijóðrænni
en skáld á grein grænni
sem gáfnaljósum var kænni.
og viðlagið:
Trítlaði ei fróður troðna slóð
tregur að bjóða uppá Ijóð.
Bíður nú þjóðin alveg óð
eftir þeim rjóða Ijóðasjóð.
Flosi.
UEFA-KEPPNIN 04
IBV
keppa á Melavellinum
í dag kl. 14.00
Forsala á midum
hefst kl. 10 f.h.
Komið og sjáið spennandi leik
Inn-
kaup á
gólf-
teppum
t annari viku nóv. veröur
haidinn á vegum Bygginga-
vörudeildar fundur meö inn-
kaupamönnum kaupfélag-
anna tii kaupa á gölfteppum.
Þar veröa kynntar vörur frá
umboösfyrirtækjum Bygg-
ingavörudeildar erlendis,
sem leggja fram tilboö sin.
Sföan veröa geröar þar sam-
eiginlegar pantanir
Sambandsins og
kaupfélaganna.
Ekki er vitaö um heildar-
upphæö pantananna en þær
munu vafalaust velta á
tugum milj. aö fob-verö-
mæti. Jafnframt má svo
vænta þess aö kaupfélögin
noti tækifæriö til þess aö
gera margvisleg önnur inn-
kaup á söluskrifstofum
deildarinnar.
(Heim.: Sambandsfréttir).
—mhg