Þjóðviljinn - 21.10.1978, Qupperneq 3
Laugardagur 21. október 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Háskóli í auðv aldsþj óðfélagi
Kosning 1. des.-nefndar stúdenta í Sigtúni i dag
í dag verður kosið til 1.
des-nefndar stúdenta.
Framboðsfundur hefst í
Sigtúni kl. 13.30 og stend-
ur í u.þ.b. klukkustund.
Að fundinum loknum
hefst kosning og lýkur
henni kl. 17.30. Tveir
listar eru í kjöri/ A-listi
Vöku og B-listi Verðandi.
Verðandi# félag rót-
tækra stúdenta, setur nú
fram sem umræðuefni 1.
desember: Háskóli í
auðva Idsþjóðfélagi.
Þjóðviljinn hitti að máli
einn frambjóðenda
Verðandi til 1. des.-
nefndar, Einar Pál
Svavarsson, og spurði
hann að því, hvers vegna
vinstri menn í Háskól-
anum brydduðu nú upp á
þessu umræðuefni.
„Undanfarin ár höfum viö
tekiö fyrir efni sem ekki hafa
veriö nátengd skólanum,” sagöi
Einar Páll. „Viö höfum m.a.
reynt aö varpa ljósi á jafnréttis-
baráttu kynjanna og stööu
verkamanna í þjóöfélaginu.
Einnig hefur hermáliö veriö
tekiö fyrir oftar en einu sinni.
En vinstri menn vilja nii llta sér
nær og reyna aö skilgreina stööu
sina innan háskólans og hinna
ýmsu deilda hans og á hinn
bóginn skoöa stofnunina
Háskóla tslands og stöðu hennar
innan auðvaldsþjóöfélagsins,
hvernig markaöslögmálin ráöa
vali I námi o.s.frv. Viö höfum
lika hug á stofnun starfshópa
innan háskóladeildanna sem
haldi uppi virkri fagrýni.”
Einar Páll sagðist bvlast viö
aö dagskráin 1. desember verði
meö svipuöu sniöi og veriö hefur
undanfarin ár, en vinstri menn
hafa sigraö I 1. des.
kosningunum og ráöiö vali dag-
skrár óslitiö siöan áriö 1971.
Reynt yröi aö blanda saman
ávörpum og léttu efni.
„Hugmyndin er aö reyna aö
gera grein fyrir þvi i dagskránni
1. desember, hvernig verka-
lýösstéttin heldur mennta-
kerfinu uppi, þótt meginþorri
háskólaborgara fari aö loknu
námi til starfa fyrir þaö þjóö-
félagskerfi, sem hlýtur aö auka
biliö milli verkalýös og
stúdenta,” sagöi Einar Páll.
Hann sagöist aö lokum vilja
hvetja alla stúdenta til aö gagn-
rýninni afstööu og skilgreiningu
á skólanum og námi sinu innan
þjóöfélagsins, og vinna aö þvi aö
vinstri menn nái kjöri meö þvi
aö kjósa lista Veröandi, B-list-
ann i dag. —eös
Framboðslisti Verðandi, félags róttækra stúdenta
Anna Theodóra
Gunnarsdóttir
Eggert Eggertsson.
Einar Páii
I Svavarsson
Guömundur
Hálfdánarson
Oddfrlöur H.
Þorsteinsdóttir
Sigrún
Guðmundsdóttir
Ýr Logadóttir
Frestun á framkvæmdum við Hrauneyjafoss
Landsvirkjun neitaði
ekki tilmælunum
Viötal við Hjörleif Guttormsson, iðnaðarráðherra
í samstarfsyfirlýsingu stjórn-
arfiokkanna frá þvi í sumar var
þvi lýst yfir aö endurskoöuð yröi
framkvæmdaáætlun Hrauneyja-
fossvirkjunar. Nú upp á siðkastið
hafa svo birst i blöðum ýmsar
fregnir um aö Landsvirkjun
þumbaðist við gegn tilmælum
rikisstjórnarinnar um aö hægja á
framkvæmdum viö virkjunina.
Þjóðviljinn leitaöi upplýsinga um
þetta mál hjá Hjörleifi Guttorms-
syni, iðnaöarráöherra.
— Hvers efnis eru þau bréfa-
skipti sem farið hafa fram á milli
iönaöaráðuneytisins og stjórnar
Landsvirkjunar?
— „Ég vil f þessu sambandi
visa til samstarfsyfirlýsingar
stjórnarflokkanna frá í sumar, en
þar var m.a. gert ráö fyrir aö
geröyröi áætlun um raforkuöflun
og orkuþörfnæstu 5-10 ára og yrði
i því skyni endurskoðuð fram-
kvæmdaáætlun Hrauneyjafoss-
virkjunár. I framhaldi af þessu
skrifaöi iönaöar ráðuney tiö
Landsvirkjun bréf i september sl.
með tilmælum um þessa endur-
skoöun, þá ekkisist aö dregið yröi
i land, svo sem framast er unnt á
.næsta ári, vegna erfiörar fjár-
hagsstööu. í svari, sem barst
u.þ .b. mánuöi slöar, eru svo settir
fram nokkrir kostir um breytta
framkvæmdatilhögun og sam-
svarandi dreifingu fjár-
magns.Hefur stjórnin lagt mat
sitt á þessa kosti, sem fela 1 sér
mismunandi mikla breytingu frá
upphaflegri áætlun. Stjórnin
byggir matiö á ákveönum for-
sendum varöandi orkuþörf, einn-
ig á samtengda svæðinu utan
landsvirkjunarsvæöisins. Svar
stjórnar Landsvirkjunar veröur
til meðferöarhér I ráðuneytinu á
næstunni og þá verður höfð hliö-
sjón af öörum mikilvægum fram-
kvæmdaþáttum á sviöi orku-
mála.”
— Túlkar þú svar stjörnar
Landsvirkjunar sem neitun viö
tilmælum ráöuneytisins um end-
urskoðun framkvæmdaáætlunar-
innar?
Ekki neitun.
— „Nei, ég túlka það engan
veginn sem neitun þótt þaö hafi
verið gefiö i skyn i blööum ný-
lega. Matið á þeim kostum sem
gefast,kann aö vera nokkuð mis-
jafnt, en á þaö á eftir aö reyna
betur.Égvil leggja á þaö áherslu
ab málefni raforkuiönaöarins
verður að skoöa i samhengi, þar
sem i senn verði gætt ráödeildar
og eðlilegs öryggis fyrir alla
landshluta. Viö umfjöllun þessara
mála er miöað viö orkuspá orku-
spárnefndar sem gefin var út
endurskoðuðl júli sl. Niðurstööur
hennar byggja á tilteknum for-
sendum, sumpart um flókin at-
riöi.'þar ámeöal um mismunandi
rafhitunarkosti og uppbyggingu
dreifikerfis. baö fer m.a. eftir
fjárveitingum til uppbyggingar
dreifikerfisins hversu ört raf-
orkunotkun vex, en á þessu sviöi
hafa menn haft úr allt of litlu aö
spila. Þá má einnig nefna annaö
atriöi, sem alltof litiö hefur veriö
sinnt hérlendis, en það er hag-
kvæm orkunýting, sem sumir
kalla orkusparnað. Þessi atriöi og
fleiri koma inn I myndina, þegar
fjallaö er um uppbyggingu raf-
orkukerfisins til lengri tima.
sgt.
TO sölu
Drengjareiðhjól fyrir 7-8 ára og barna-
rimlarúm m/dýnu.
Uppl. i sima 74375.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-up bifreið,
Jeppabifreið og sendibifreið. Ennfremur
nokkrar ógangfærar bifreiðar þ.á m.
Sorpbifreið, er verða sýndar að Grensás-
vegi 9 þriðjudaginn 24. október kl. 12-3.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
LANDSPÍTALINN
Staða HJOKRUNARDEILDAR-
STJÓRA á dagdeild öldrunar-
lækningadeildar Hátúni 10 B er laus
til umsóknar.
Staða HJUKRUNARDEILDAR-
STJóRA við lyflækningadeild 3D er
laus til umsóknar. Staðan veitist frá
1. jan. 1979.
Upplýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri i sima 29000.
KÓPA VOGSHÆLI
IÐJUÞJÁLFI óskast til starfa við
hælið nú þegar. Upplýsingar veitir
forstöðumaður i sima 41500.
Reykjavik, 22.10. 1978
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000
Laus staða
Staöa forstööumanns viögeröarstofu Þjóöskjalasafns
Islands er laus tii umsóknar. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun og starfsferil, sérstaklega aö
þvi er varöar handrita- og skjalaviögeröir, sendist
Menntamálaráöuneytinu fyrir 25. nóvember
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
19. október 1978.
Til sölu er húseignín
Klapparstigur 11, Hauganesi 150 ferm á
einni hæð. útborgun eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur örn Sigurðsson,
Hauganesi, simi 96-61318.