Þjóðviljinn - 21.10.1978, Side 11
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. október 1978
Laugardagur 21. október 1978 IÞJÓDVILJINN — StDA 11 ‘
RÆTT VIÐ SIGURJÓN
ÓLAFSSON
MYNDHÖGGVARA, SEM
ER SJÖTUGUR í DAG
ÉG
PRIÓNA
Listskynjunin kemur meö vinnunni....
I MYNDIR
Blaöamannastarfiö býö-
ur yfirleitt ekki upp á Ijóð-
ræn eöa táknræn augna-
blik. En þegar undirritaður
barðist við norðanáttina
tiI fundar við Sigurjón
ólafsson, var engu líkara
en allur hinn hefti kraftur
í höggmyndum hins aldna
meistara hefði leystst úr
læðingi og stígi trylltan
dans á Laugarnestangan-
um til heiðurs skapara sín-
um, Sigurjóni ólafssyni
sem er sjötugur í dag.
Húsamálari og
hausagerðarmaður
Þegar hinn kviki, snaggaralegi
högglistamaöur hefur bjargaö
blaöamanni inn Ur vindhviöun-
um, förum viö skyndilega aö ræöa
pólitfk.
— Blessaöur vertu, ég hef aJdrei
haft neinn tima til aö hugsa um
pólitik. Aö visu gekk ég i
Kommúnistaflokk Danmerkur
1939, en þaö var bara út af þvi, aö
þá voru allir aö ganga úr honum
af ótta viö nasista. Ég hef alltaf
helgaö mig vinnunni. Þessu er
nefnilega þveröfugt fariö meö
pólitikusana. Þeir hafa aldrei
tima til að velta list fyrir sér.
Þess vegna eru þeir ólæsir á
myndlist — algjörir analfabetar.
Þaö er alltaf eitthvaö meira aktú-
elt aö gerast i brauöpólitikinni en
i listinni. En engu aö siöur ræöur
pólitikin yfir listinni — allavega
fjárhagslega. En ég þarf ekki aö
kvarta, þaö hefur nefnilega alltaf
hjálpaö mér, aö ég hef gaman af
aö gera hausa. Og ég hef alltaf
komiö hausunum I peninga. Ætli
ég hafi ekki gert svona 160 til 170
hausa. Já — þaö er hérumbil uppi
Thorvaldsen, hann geröi 200
hausa.
Blaöamaður umlar eitthvaö um
skilningsleysi yfirvalda á lista-
mönnum og hneykslast á bvi aö
lágmynd afmælisbarnsins „Salt-
fiskstöflun” hafi ekki hlotiö veg-
legri sess, en aö vera „annkanna-
legur veggur á bersvæöi” eins og
Björn Th. hefur oröaö þaö.
— Já, hana geröi ég i Dan-
mörku á árunum 1935-36. Ég
steypti þetta allt sjálfur I gips,
þetta var heljarmikil vinna.
Nútildags er þetta gert fyrir lista-
mennina. En ég er gamall hand-
verksmaöur, ég læröi húsamálun
i Iönskólanum sem ungur maöur
og útskrifaöist þaöan meö sveins-
próf 1927. Ég var lika aöstoöar-
maöur prófessorsins mins i
Kaupmannahöfn, Einars Utzon-
Franks. Þaö hefur komiö sér vel
að kunna handverk.
Holberg og séra
Friðrik
Eftir nokkra afleggjara I um-
ræöunum tökum viö aö spjalla um
sjúkdóma og elli.
— Ég hætti ekki aö reykja fyrr
en ég fékk berkla fyrir tæpum
tuttugu árum og var nærri þvi
dauður. Hins vegar hef ég aldrei
veriö neinn drykkjumaöur. Mér
hrýs hugur viö þvi aö vera timbr-
aöur næsta dag og geta ekki unn-
iö. Ég fæ miklu meira út úr vinn-
unni en fyllerii. En ég hef misst
eitt skynfæri. Eöa eins og Lax-
ness oröaöi þaö, þegar ég hitti
hann fyrir ári: — Segöu mér
Sigurjón, hefur þú misst nokkurn
sans? Og veistu hvaöa sans ég hef
misst? Lyktarskynið, en hin
skynfærin hafa skerpst aö sama
skapi. En þaö háir mér ekkert viö
vinnu.
Séra Friörik, sá ágæti maöur:
hann var alltaf afskaplega leiður
yfir þvi aö vera ekki likamlegur
plslarvottur. Þaö var hans heit-
asta ósk. Hann missti reyndar
sjónina aö lokum. En hann hljóp
upp stiga eins og strákur, þótt
hann væri kominn á niræöisaldur.
Hann var 85 ára, þegar hann
komst aö þvi aö hann gat ekki
lengur tekiö tröppurnar I nokkr-
um stökkum. Hann vildi ekki trúa
þessu og geröi aöra atlögu, en allt
fór á sama veg. Þá sagöi hann,
„Jæja, kölkunin byrjar hér.” og
klappaöi sér á fótleggina. „Þaö er
nú gott aö hún byrjar ekki
hérna”. Og klappaöi sér á haus-
inn.
Annar merkur maöur, danska
leikritaskáldið Holberg, segir I
ævisögu sinni, sem hann skrifaöi
sjötugur: „Ég er alltaf aö lesa, en
ég gleymi jafnóöum þvi, sem ég
les. Ég get bara ekki hætt þessum
ávana.”
Hann sagöi llka: „Ég hef étiö
til aö lifa, en aörir hafa lifaö til aö
éta — en þeir eru bara allir dauö-
ir.”
Gelsted, ellin og
bjórinn
Sigurjón er nú spuröur um áhrif
aldursins á vinnu hans.
— Ég er farinn að taka tillit til
þess, aö ég þarf aö fara snemma i
hattinn, ég þoli ekki reyk og ryk,
og ég er alveg hættur aö skralla.
En ég vinn 4 til 5 tlma á degi
hverjum.
Aður fyrr var unglingum kennt
aö prjóna, svo þeir heföu eitt-
hvaö aö gera I ellinni. Ég læröi nú
aldrei aö prjbna almennilega en
ég prjóna enn I myndir. Ég vann i
grjóti meöan ég gat þaö, en svo
þoldi ég ekki rykið og fór þá aö
fást viö kopar, en þoli hann illa
núoröiö. Ég vinn mest I tré þessa
dagana. En ég segi eins og Otto
gamli Gelsted: Ég held áfram
meöan ekki eru öll sund lokuö.
Hann orti llka baráttusöng fyrir
danska stúdenta, sem fjallar um
likt þema og byrjar svona:
„Skal vi havne til sidst
i en skumring
hvor de rödeste katte
er gra
ga til grunde I altings
forplumring
som en andelig ladegardsá?
Á gá væk! Vi er træt af
attropa
den forsonlige udviklings
mænd,
for vi ved at för fanden fár
skopa
er de endt i det gamle igen”
Gelsted var einstáklega
skemmtilegur maöur og mikill
vinur minn. Hann haföi þann hátt
á, aö þegar hann eignaöist pen-
inga, — hann var bókmennta-
ráöunautur — lagöi hann þá alla
inn á hinar og þessar knæpur
Kaupmannahafnar. Svo þegar
þorstinn sótti aö honum og hann
átti ekki peninga, þá gekk hann
inn á veitingastaöina og tók út á
reikning. Og hann var aldrei
snuöaður.
Hann var mikill vinur danska
skáldsins Johannes V. Jensens.
Jensen var sprottinn úr yfirstétt
og drakk aldrei annaö en léttvin.
Gelsted var hins vegar verka-
lýössinni og drakk ekkert annaö
en bjór. Þegar þeir drukku sam-
an var Gelsted vanur aö striða
Jensen á þvi, aö hann gæti ekkert
pissaö af þessu rauövini, en
drykki maöur bjór gæti maður
pissaö langt.
Gelsted var heiöursmaöur. Mér
finnst alltaf tómlegt aö koma til
Danmerkur og hitta hann
ekki lengur.
✓
I dönsku neðan-
j arðarhreyf ingunni
Sigurjón bjó og starfaði i Dan-
mörku um 20 ára skeiö. Þegar
striöiö skall á, fór hann ekki heim
til Islands um Petsamó, eins og
svo margir landar hans geröu,
heldur varö eftir I Danmörku —
og gekk I dönsku neöanjarðar-
hreyfinguna.
— Ég var tekinn þrivegis af
nasistum, en ég slapp alltaf. Oft
var þaö hrein heppni, sem bjarg-
aöi mér úr klóm þeirra.
Eitt skipti var ég leiddur til
yfirheyrslu, og þýski foringinn,
sem yfirheyröi mig, byrjaöi á þvi
aö spyrja mig af hverju ég væri á
móti nasistum. „Ef það er eitt-
hvaö, sem ég hef á móti nasistum,
þá er þaö þaö, aö ég er ekki nærri
nóg á móti þeim.” „Das gefallt
uns” (Þetta likar okkur), sagöi
Þjóöverjinn og mér var umsvifa-
laust sleppt úr haldi.
í annað skipti var ég handtek-
inn og útlitið var sannarlega
svart. Nasistarnir spuröu hvort -
ég væri danskur, en ég kvaöst
vera tslendingur og búa i Nýhöfn
númer 63. „Hvaðan frá tslandi”,
þrumuöu þeir. Ég sagöi eins og
satt var, aö ég væri fæddur og
uppalinn á Eyrarbakka. Þeir
drógu fram heljarmikiö kort af
tslandi, sem var frá árinu 1902.
Svo var fariö að leita aö Eyrar-
bakka. Þaö vildi mér til happs, aö
Eyrarbakki var merktur stóru
svörtu letri á þessu gamla korti.
„Hérna er þaö”, æpti einn nasist-
anna. „Þér eruö Germani”, öskr-
aöi fyrirliöinn, „Snautiö út”.
Heföiég t.d. veriö frá Stokkseyri,
sem ekki var merkt inn á kortið
þá veit ég ekki, hvort ég væri
hérna I dag. Svona skiptir heppn-
in miklu máli.
Höggmyndirnar áttu
að fara í höfnina
Sigurjón segir frá ýmsum at-
burðum á listferli sinum i Dan-
mörku. Hann minnist á, þegar
hann var fenginn til aö gera stór-
ar steinhöggsmyndir sem standa
áttu beggja megin viö ráöhús-
tröppurnar I Vejle, og áttu aö
tákna hinar fjórar atvinnugrein-
ar borgarinnar. Þegar verkinu
lauk 1944, var honum borgaö fyrir
verkiö en nýir borgarráösmenn
höföu tekiö viö og breytt um skoö-
un varöandi staösetningu mynd-
anna, og hugöust sökkva þeim I
höfnina til uppfyllingar I nýja
bryggju. En allt fór vel aö lokum
— fimmtán árum seinna, (og
stytturnar standa nú á upphafleg-
um áætlunarstaö).
Sigurjón segir llka frá þvi, þeg-
ar verkum hans var úthýst vorið
1939 af hinni opinberu Charlotten-
borgarsýningu, þar sem verk
hans voru talin of viövaningsleg.
Þaö uröu heilmikil blaöaskrif út
af báöum málunum, og Sigurjón
flettir i gömlum blaöaúrklippum
og getur ekki stillt sig um aö
brosa.
— Þaö var miklu meiri hasar I
myndlistaskrifum hérna áöur
fyrr. Og þaö hefur alltaf veriö
meira fjör I dönsku pressunni en
þeirri Islensku varöandi lista-
gagnrýni. Hér á tslandi hrósa
menn öllu. Þaö er ekkert oröiö
variö I þetta. Þó var nú alltaf
gaman aö honum Guömundi úr
Grindavíkinni. sem skrifaöi i
Alþýöublaöiö. Þaö eina, sem hann
gat funið aö höggmyndum.var aö
hakinn væri ekki nógu beittur.
Móna Lísa og
sjónvarpið
— Listskynjunin kemur meö
vinnunni. Maöur vinnur aö hlut-
Ég vinn mest I tré þessa dagana
Þaö var sem hinn hefti kraftur höggmyndanna heföi leystst úr læöingi...
Ég hef alltaf veriöduglegur viö aö búa til hausa....
Maöur vinnur aö hlutunum og fer smám saman aö gera sér grein fyrir efninu
og forminu.
unum og fer smátt og smátt aö
gera sér grein fyrir efninu og
forminu. Þaö ættu allir aö fá aö
kynnast sllkum hlutum. Kynnast
snertingunni viö verkiö. Listfræö-
ingar geta t.d. oft komiö meö
skýringar á list, sem eru alveg út
i hött.
Almenningur hefur ekki tlma til
aö setja sig inn I myndlist. Þegar
túristar koma á Louvre hlaupa
allir til aö finna Mónu LIsu. Aróö-
ur hefur svo óhemju mikiö aö
segja. Fólk heldur til dæmis aö
Erró sé eitthvaö nýtt. Þetta hefur
allt veriö gert áöur. En tslending-
ar þekkja ekki til þessara hluta.
Þeir eru sóldýrkendur, eiga blla,
sem þeir keyra eitthvaö I og sjón-
vörp til aö glápa á.
Ég myndi aldreí þora að eiga
sjónvarp. Þaö getur eyöilagt
sjónminniö. Danskurinn segir:
„Det som kommer let, gar let”.
Þaö er nefnilega hægt aö þjálfa
litaskynjun. Þegar ég var aö læra
hjá Asgrlmi foröum, þá sá ég
fleiri og fleiri liti á degi hverjum.
Nú las ég einhversstaöar aö 8%
allra manna séu litblindir, svo
ætla má að 20-30% fólks sjái bara
fjóra liti. Þaö fólk er náttúrulega
ánægt meö litasjónvarp. En ég er
hræddur um, aö þaö myndi gera
endanlega út af viö litaskyniö
mitt. -im
SJÖTUGUR
Sigurj ón
Olafsson
MYNDHÖGGVARI
ÞegarAsaþór glimdi viö Elli
kerlingu i trtgaröahöll, féll kapp-
inn á kné öörum fæti, enda nú orö-
inn löngu dauöur. Hafi sú sama
kerling knúö dyra á Laugarnes-
töngum — sem lýsti þó furöuleg-
um skorti hennar á mannþekk-
ingu —, þá hefur Vittorio Gio-
vanni annnaöhvort ekki heyrt til
hennar fyrir hamarshöggum sln-
um og borvélagný eöa þá boöiö
henni innfyrir og sagt henni sodd-
an sögur af Bakkanum aö sú
gamla hafi skellt sér á lær og
steingleymt erindinu. Nema hann
hafi bara sett hana f stól eins og
hvern annan intresant haus og
slöan hoppaö i kringum hana,
hjólkvikur, meö leir i báöum
höndum. Allavegana hefur hann
aö minnsta kosti ekki enn boriö á
hana rétt kennsl.
Viö Islendingar höfum eignazt
þrjá mikla myndhöggvara, og
þótt Sigurjón Olafsson sé þeirra
yngstur, ber kirkjubók og kal-
endri saman um aö hann fylli sjö-
unda tuginn í dag. Þótt skyggt sé
fyrir augu og skimaö um, bólar
samt hvergi á þeim f jóröa i þeirri
röö, eftir aö Gerði leiö. En þess
höfum viö einfaldlega ekki sakn-
aö sem vert væri, þvl Sigurjón
hefur ekki gefiö okkur neitt ráö-
rúm til þess. A hverjum starfs-
kafla slnum, meö hverri nýrri
sýningu eða meginverki, hefur
hann ávallt reitt fram eitthvað
sem var I broddi timans og al-
ferskt. Hvert eitt efni sem hann
tekur sér I hendur veröur honum
aönýjum miöli, nýrri samkveikju
anda og áþreifanleika: Mýrar-
eikin og Undistofnarnir i Dan-
mörku, grágrýtiö á Laugarnesi,
rekadrumbarnir, málmplöturnar
og logsuöan, plastmótin stóru, og
nú siöast borvélin, kvistir og
naglar. Honumeraðþvileytieins
fariö og starfbræörum hans á
morgni aldanna, aö hann þvingar
aldrei hugmynd i efni, heldur laö-
ar hugmyndina úr þvi, leikur sér
aö hennium stund, ogeigi þau öll
þrjú skap saman, ja, þá gerir
Sigurjón Ólafsson ekki víðreist
næstu vikurnar; varla I matinn.
Þaö er þetta dæmalausa næmi á
efniö sem löngu hefur skipaö
Sigurjóni I brodd norrænnar
höggmyndalistar á okkar öld. Að
þvi leytinu fara jafnvel fáir um
veröldina I skóna hans.
Þegar við Asgeröur kona mln
settum bú saman, áttum viö fyrst
undir þaki I fornu húsi við Ný-
höfnina I Kaupmannahöfn. Þar á
gólfi stóö mikill og svardökkur
eikardrumbur, uppgrafin mýrar-
eik, formuö I stórgeröum mynd-
um karls og konu. Þetta var
þungt og magnaö verk, i senn
drumbur, þar sem ekkert haföi
veriö af eikinni haft, en þó mynd.
Hún var frá árinu 1939 og eftir
Sigurjón. En spölkorn frá okkur,
uppi á Kóngsins nýjatorgi, stóö
rókokóhesturinn undir Kristjáni
kóngi fimmta og tróö undir sér
öfundina. Hann var svo nýr, þótt
gamall væri, aö eirinn glóöi enn 1
sólinni. Aö þessum hesti haföi
Sigurjón lika unniö og mótaö upp
eftir blýhestinum gamla sem
kominn var aö ofanlotum. Mér
varö þá hugsaö sem svo (eöa
kannski þaö hafi veriö siöar):
Hvernig getur einn og sami maö-
urinn endurunniö svona glamp-
andi rókokóverk, meö öllum
tæknilegum göldrum þess, og
gengiö síöan aö eikardrumbinum
atarna, gagnsósa og sprungnum,
og glaðst viö hann á svo innilegan
hátt? Asgeröur þekkti Sigurjón,
enégekkinemaaönafni og oröi.
Það var ekki fyrr en siöar,
frammi á Laugarnestöngum, sem
mér opnaöist þaö I verkum hans,
aö þar máttihvorugt vera annars
vant. Þegar slikt kallaöi á, geröi
hann myndir meö klassiskri fág-
un og ytri glæsibrag: minnis-
merkiö um Knút Rasmussen,
myndina af móöur sinni, styttuna
af séra Friöriki ..., en hinsvegar
verksvo einföld, aö óreyndar sál-
ir héldu aö soleiðis væri nú eng-
inn vandi: Krluna, Grimuna og
marmaramyndina Ekkjuna, sem
er einhver innhverfasta högg-
myndasmíö sem ég hef séö. En á-
vallt þó hvort meö ööru, þannig
aö I kunnáttunni býr ævinlega
frumstæöur kraftur, en I einfald-
leikanum háþjálfuö kunnátta. Og
þegar stóru verkefnin kölluðu á,
Búrfell, Landsnámsmerkiö eöa
önnur sllk, þá gekk hann I fang
viö þau af sama sjálfsagöa létt-
leikanum og þegar hann tekur
upp kartöflurnar stnar austur á
Eyrarbakka eöa leikur sér meö
borvél og koparnagla viö fallega
berktan drumb. Þvi er varla von
hann geti elzt; lifiö er honum svo
flunkunýtt á hverjum guðsbless-
uöum degi.
Þaö er heldur ekki um daufan
aö detta í þvi húsi. Eiginkona
hans, Birgitte, gengur meö rösku
látleysi aö hverju verki og er nú
komin I háskólann, en börn þeirra
hjóna eru á vængjum tónlistar-
innar og múslsera svo fagurlega,
aö varla munu til múslkalskari
sjófuglar en á Laugarneshlein-
um. Og aldrei hef ég til þess vitaö
að Sigurjóni félli daglahgt verk úr
hendi. Jafnvel viö glas á manna
mótum kann hann ekki aö standa
drykklanga stund I sömu sporum.
Þannig er allt 1 teikni hreyfingar
og athafnarinnar. Þótt embættis-
menn séu heim reknir á þessum
aldri og sagt aö labba sér nú i
Tryggingarnar til að drepa tlm-
ann,þá sé ég ekki þann á Laugar-
nesinu tylla sér par né gleöjast
viöönnur ellilaunen þau, aöfá
ótrauöur aö vinna.
Þvi sé honum enn heill, Vittorio
okkar Giovanni! Og viö lofum þvl
aö fara aö taka afmæli hans
alvarlega áriö 1998 eöa svo.
Bj. Th. Björnsson