Þjóðviljinn - 25.11.1978, Síða 13

Þjóðviljinn - 25.11.1978, Síða 13
Laugardagur 25. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Margrét og Bessi i hlutverkum slnum. Á sama tíma að ári: 100. sýningin annað kvöld A sunnudagskvöldið verður hundraðasta sýning á bandariska gamanleiknum A SAMA TIMA AÐ ARI, sem nii er sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Þessi vin- sæli leikur Bandarikjamannsins Bernard Slade var frumsýndur á Húsavik i vor og sýndur i leikför um land allt til loka leikárs. 1 haust var verkiðsvo tekiö tilsýn- inga I Þjóöleikhúsinu. Þau Bessi Bjarnason og Margrét Guö- mundsdóttir hafa vakiö mikla kátinu áhorfenda meö túlkun sinni á þeim George og Doris, parinu, sem hittisteina helgi á ári til aö losna undan fjölskyldu- áhyggjum og erlinum heimafyrir. Það er Gislr Alfreðsson, sem er leikstjóri sýningarinnar en leikmyndina gerði Birgir Engilberts. "Þéss má geta, aö aðeins tvö leikrit Þjóðleikhússins hafa náð svo miklum sýningafjölda i einni lotu: gamanleikurinn Tópas, sem sýndur var alls 102 sinnum árin 1953 og ’54 og svo INÚK, sem hef- ur verið sýndur hátt á þriðja hundrað sinnum. Thomsens hús á Skipaskaga um aldamót. Ljósm. Magnús Ólafsson. Akranes gamla tímans Merkileg myndasýning á Akranesi A morgun verður opnuð sérstæö sýning I Bókhlöðunni á Akranesi, að þvi er blaðið Umbrot skýrir frá. Nefnist sýningin Akranes gamla timans. Sýndar verða ljós- myndir, teikningar, kort og skyggnimyndir með texta- og talskýringum. Um 300 myndir munu verða á Hlaupvídd sex í Hlégarði og Selfossi Skagaleikflokkurinn á Akranesi hefur nú undanfar- ið sýnt Hlaupvidd sex eftir Sigurð Pálsson i heimabæ sinum. Nú um helgina ætlar hópurinn i leikferð i Mosfellssveit og austur fyrir fjall. Sýnt veröur að Hlégarði kl. 5 I dag, laugar- dag, en I Selfossbiói kl. 3 á morgun, 26. nóv. Aðgöngumiðasala hefst á sýningarstöðunum tveimur timum fyrir sýningar. sýmngunni og eru pær flestar frá árabilinu frá 1890—1940. Elstu myndirnar á sýningunni eru unn- ar eftir glerplötum með stækk- unarvél Magnúsar ólafssonar, ljósmyndara og hafa fæstar þær myndir sést opinberlega fyrr. Flestar eru myndirnar eftir ljósmyndarana Magnús Ólafsson, Sæmund Guömundsson, Arna Böðvarsson og áhugaljósmyndar- ann Harald Böðvarsson. Helstu myndaseriur sýningar- innar eru um afstöðu húsa, einstakar húsamyndir, þjóölíf, mannamyndir og loftljósmyndir, auk uppdrátta, teikninga o.fl. Kynntir veröa ljósmyndarar sýn- ingarinnar, klukkutima dagskrá verður spiluö um Akranes gamla timans o.fl. Sýningin verður opin lallan desembermánuö og eru Imyndirnar til sölu. Sérstök kynningardagskrá veröur fyrir skóla bæjarins og jafnvel aðra skipulagða hópa. Fullorðnir greiða aögangseyri en sýningin er ókeypis fyrir börn. Þorsteinn Jónsson hefur annast skipulag sýningarinnar, en ýmsir einstaklingar og stofnanir hafa lagt hönd á plóginn við undirbún- ing hennar. —mhg Myrkra- messa í Menntskælingar I Kópavogi halda sina árlegu skammdegishátfð I dag, og hefst hún kl. 14 I Félags- heimili Kópavogs. Hátiðin, sem aðstandendur nefna myrkramessu er hald in i tilefni 1. desember ár hvert. I þetta sinn verður dagskráin mjög fjöibreytt: kórsöngur, leiksýning, samieikur, upplestur ofi. Hljómsveit sem skipuð er nemendum skólans mun leika. Kaffisala verður i hliðarsal, á vegum 3. bekkj- ar b. Aðgangseyrir er aðeins kr. 300.- jh Nýjasta mynd Zanussis I dag kl. 14 verður sýnd I Háskólabiói nýjasta kvik- mynd Pólska ieikstjórans Krysztof Zanussi, Gormur- inn (Spiral). Það er pólska sendiráðið sem gengst fyrir þessari sýningu i samvinnu við pólsk-islenska vináttu- félagið. Zanussi er einn þekktasti kvikmyndastjóri Póllands nú á dögum. Mynd hans Fjölskyldulif var sýnd hér á Listahátiö 1978 og vakti mikla hrifningu. önnur mynd hans, Dulbúningur, er á dagskrá Fjalakattarins i mars n.k. Zanussi kom hing- að til lands i september s.l. Kvikmyndir Zanussis fjalla flestar um vandamál menntafólks eða miðstéttarfjölskyldna. Hann er fæddur i Varsjá árið 1930 og hóf fyrst nám I eðlisfræði og heimspeki, en sneri sér siðan aö kvikmyndunum og lauk prófi i kvikmyndastjórn árið 1966, við kvikmynda- skólann i Lodz. Sýning á nýjustu mynd þessá merka kvikmynda- stjóra er tvimælalaust menningarviðburður, og ættu kvikmyndaunnendur ekki að láta sig vanta I Háskólabió klukkan 2 i dag. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill, meðan húsrúm leyfir. ih. Blásarakvartett í Austur- bæjarbíói Bandariski blásarakvart- ettinn Soni Ventorum heldur tónleika i dag kl. 2.30 i Austurbæjarbiói, á vegum Tónlistarfélags Reykja- vikur. A efnisskrá eru verk eftir Rossini, Teiemann, Gagaye, Stravinsky og Scott Joplin. Heimsókn Soni Ventorum hingað til lands er liður f tónleikaferð þeirra um Evrópu. ih Þj óðdansasýningar í Þjóöleikhúsinu Þjóðdansafélag Reykjavikur sýnir i Þjóðleikhúsinu á morgun, sunnudag, kl. 15 og á mánudags- kvöld kl. 20. Sýningin er þriþætt: söngdansar frá fyrri öldum svip- mynd frá kaupstaðarballi á 19. öld og loks veröa sýnd sýnishorn af þeim dönsum er Sigriður Þ. Balgeirsdóttir og Minerva Jóns- dóttir hafa safnaö siðustu tvo áratugina og eru það dansar sem komnir eru viðsvegar aö af landinu. Um fimmtlu félagar i Þjóödansafélaginu hafa undan- farna mánuði unnið að undirbún- ingi þessara sýninga undir stjórn próf. Sigriöar Þ. Valgeirsdóttur og Kolfinnu Sigurvinsdóttur kennara. Jón G. Asgeirsson hefur gengiö frá tónlist I fyrsta hluta sýningarinnar. Hljómeyki sér um söng við undirleik hljóöfæra- leikara. jj, Troels Bendtsen við eina af ljósmyndum sinum. L j ósmy ndasýning i Norrœna húsinu Um þessar mundir stendur yfir i Norræna húsinu sýning á ljós- myndum eftir Troels Bendtsen. Troels sýnir myndir sem hann tók af kvikmyndun Brekkukotsann- áls, og einnig fjörumyndir. Sýningin hefur hlotið mjög góða dóma gagnrýnenda. Henni lýkur á þriöjudaginn. Ljósmyndirnar eru til sölu og kosta óupplfmdar frá kr. 7000 til 27.000 Troels Bendtsen er Reyk- vikingur, fæddur 1943. Hann er kunnur þjóðlagasöngvari, söng og Ejölskyldu- kaffi A morgun, sunnudag, kl, 15 hefur Vestfirðingafélagið i Reykjavik f jölskyldukaffi i félagsheimili Bústaöakirkju. Félagiö býöur sérstaklega Vest- firðingum 67 ára og eldri, en væntir þess að yngri Vestfirðingar komi lika sem flest- ir ásamt börnum slnum og kaupi kaffi. Þar verður einnig smá- basar með góöum og ódýrum munum. Félagar og vinir sem vildu gefa kökur eða muni á basarainn, hafi samband viö Sigríði Valdemars- dóttur s. 15413, Asu Arnórsdóttur s. 34888, Jósiönu Magnúsdóttur s. 74303, Gunnjónu Jónsdóttur s. 25668 eöa viö Félagsheimilið kl. 10—12 I fyrramáliö. Ef ágóði verður, rennur hann til Vestfjarða. lék með Savanna-trlðinu og Þremur á palli. Viö ljósmyndun hefur hann fengist i 10 ár. Sýningin er opin frá kl. 14—22 um helgina, en kl.16—22 virka daga. Sigriður Ellu syngur íMH Sigriður Ella Magnúsdótt- ir og ólafur Vignir Alberts- •son haida tónleika i sal Menntaskólans við Hamra- hllð á morgun, sunnudag kl. 16. A efnisskrá eru sönglög eftir 8 tónskáld, þ.á m. Schubert, Verdi, Tsjækofski og Þórarín Guðmundsson. Aðgöngumiðar eru til sölu I Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.