Þjóðviljinn - 07.12.1978, Side 6

Þjóðviljinn - 07.12.1978, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. desember 1978 A aö gefa fyrrverandi þingmönnum á þriöju miljón? Minnihluti nefndar um biðlaun alþingismanna: Kjör alþingis- manna eru góð Eins og segir í frétt á forsíðu blaðsins í dag var í gær afgreitt frá neðri deild frumvarp til laga um bið- laun Alþingismanna. Fjár- hags- og viðskiptanefnd neðri deildar sem fékk málið til athugunar að lok- inni fyrstu umræðu klofn- aði og skilaði minnihluti hennar séráliti þar sem lagt er til að frumvarpið verði fellt. Þar sem nokkuö hefur veriö sagt frá fyrstu umræöu um máliö hér i blaöinu, er ekki ástæöa til þess aö rekja umræöur þær, sem um þetta uröu i gær, en getiö skal nokkurra atriöa úr greinargerö minnihlutans, þeirra Kjartans Ólafssonar og Vilmundar Gylfa- sonar. Þar segir ma.: Aö undanförnu hefur allmikiö veriö rætt um launakjör og friö- indi alþingismanna og ' ýmsar skoöanir uppi i þeim efnum. Viö teljum, aö i heild séu þessi kjör þaö góö, aö ekki sé ástæöa til aö bæta þau nú meö þeim hætti, sem frumvarpiö gerir ráö fyrir. Rétt er aö vekja athygli á þvi, aö hver alþingismaöur, sem setiö hefur á Alþingi i 10 ár eöa lengur, á samkvæmt frumvarpinu aö fá greitt nokkuö á þriöju miljón króna viö brotthvarf af þingi, en þeir, sem skemur hafa setiö, hálfa þá upphæö. Sýnist þetta ný- mæli vera ástæöulaus rausn, ekki sist þegar haft er i huga, aö hér er i mörgum tilvikum um aö ræöa einstaklinga meö góöar tekjur af öörum störfum, m.a. hjá rikinu. pingsjé Sist er ástæöa til aö samþykkja þessa breytingu á kjörum alþingismanna nú á sama ári og kjarasamningar almenns launa- fóiks hafa ekki fengiö aö standa ó- haggaöir vegna lagasetninga frá Alþingi. Veröi frumvarpiö samþykkt felur þaö i sér viö- bótarútgjöld hjá rlkinu strax á þessu ári, sem nema nokkrum tugum miljóna kr. Þeim fjármun- um má verja betur meö öörum hætti. Þau rök hafa veriö færö fram til stuönings frumvarpinu, aö eöli- legt sé aö alþingismenn njóti I þessum efnum svipaöra réttinda og ýmsir opinberir embættis- menn. Þessi rök teljum viö ekki gild,enhitt þvert á móti eöliiegt, aö lltilfjörleg fjárhagsleg áhætta fylgi stjórnmálastarfi, ekki sist hjá alþingismönnum, sem búa viö þau launakjör og friöindi, er þeirra störfum fylgja nú. Ef kjós- endur segja alþingismanni upp I kosningum, eöa hann kýs aö hætta störfum á Alþingi, er þaö eitt eölilegt, aö hann sjái sér sjálfur farboröa þaöan I frá, nema um elli eöa örorku sé aö ræöa, en þá koma aö sjálfsögöu til eftirlaunagreiöslur samkv. lög- um og reglum, sem um þau efni gilda. Viö atkvæöagreiöslu um frum- varpiö voru allar breytingatillög- ur felldar og frumvarpiö siöan samþykkt frá neöri deild meö tuttugu atkvæöum gegn þrem. Veröur þaö siöan sent efri deild til afgreiöslu og eins og atkvæöatöl- ur bera meö sér er liklegt aö þaö veröi samþykkt þar, aö öllum lik- indum fyrir jól. sgt Frumvarp um sölu notaðra lausafjár- muna til umræðu í efri deild Stærsti pósturinn er sala notaðra bíla t gær var i efri deild fyrsta um- ræöa um frumvarp Helga Seljan um sölu notaöra lausafjármuna. Aöur hefur veriö sagt nokkuö frá þessu frumvarpi hér i blaöinu en þaö er endurílutt á þessu þingi og eitt aöalmarkmiö þess er aö koma á reglum um sölu notaöra bifreiöa. Ekki uröu miklar um- ræöur um frumvarpiö en þó lýsti Jón G. Sólnes yfir stuöningi viö meginefni þess. Frumvarpinu var síöan visaö til fjárhags- og viðskiptanefndar. sgt Blaðberar óskast Sogamýri (sem fyrst) Hringið í síma 81333 Ert þú með bækur í vanskilum frá Bókasafnl Kópavogs í tilefni af 25. ára afmæli bókasafnsins á þessu ári verða vanskila sektir felldar niður af öllum bókum sem skilað er i des- ember. Notið þvi tækifærið og losið ykkur við gamlar vanrækslusyndir. Bókasafn Kópavogs hefur opið alla virka daga frá kl. 2-9 og laugardaga frá kl. 2-5. Stjórnarfrumvarp í efri deild Varnir gegn mengun sjávar Lagt hefur veriö fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um heimild handa rikisstjórninni til þess aö staöfesta þrjá aiþjóöasamninga um oliumengun á hafinu. 1 at- hugasemdum frumvarpsins eru þessir samningar prentaöir i heild en þar segir einnig ma. um efni þeirra: Alþjóöasamningurinn um Ihlut- un á úthafinufjallar um aögeröir strandrikis vegna skipskaöa á út- hafinu til varnar gegn oliumeng- un, ef taliö er aö skipskaöinn geti valdiö tjóni á umhverfi og nyt jum innan lögsögu strandrikisins sé ekkertað gert. Samningurinn nær til oliumengunar af völdum hrá- oliu, brennsluoliu, disiloliu og smurningsoliu. Strandriki sem gripur til aögeröa samkvæmt samningi þessum skal aö jafnaöi hafa samráö um aðgeröir viö önnur viökomandi ríki, sérstak- lega þó þaö riki, sem skipiö er frá. Strandrikinu er þó heimilt, þegar um brýna nauösyn er aö ræöa, aö gera nauösynlegar ráöstafanir þegar I staö án undanfarandi ráö- færslu. Þá eru I samningnum ákvæði um aö öll aðildarrlki til- nefni sérfræöinga meö ákveðna þekkingu og getur strandríki leit- aö ráða hjá þeim þegar þörf kref-' ur. Til aö tryggja rétt annarra að- ila fyrir óþörfum aðgerðum strandrlkisins, ber strandrlki sem hefur gert ráöstafanir er brjóta I bága við ákvæði samn- ingsins skylda til aö greiöa skaöa- bætur. Ef strandrlki og viðkom- andi aöili koma sér ekki saman um bætur getur annar hvor aöil- inn skotiö máli slnu til sátta- nefndar eöa, ef máliö er ekki út- kljáö hjá sáttanefnd, þá til gerö- ardóms. Viðauki við samninginn fjallar um skipun sáttanefndar og gerð- ardóms svo og starfsaðferðir þeirra. Samningur þessi hefur þegar öðlast alþjóðlegt gildi og eru aðil- ar aö honum 31 talsins. Alþjóöa sa mn in gurinn um einkaréttarlega ábyrgö fjallar um ábyrgö skipeiganda ef skip hans veldur oliumengun I um- hverfi sjávar. Samningurinn gild- ir fyrir tankskip sem flytja hrá- oliu, brennsluoliu, þykka disil- oliu, smurningsollu og hvallýsi. Fjárhagsleg ábyrgö skipeiganda er bundin viö 2000 franka fyrir hverja rúmlest rúmlestatals skipsins, en þó á skipeigandi ekki rétt til aö notfæra sér þessa tak- mörkun ef mengunin er honum sjálfum aö kenna. Abyrgö skip- eiganda er hinsvegar engin ef oliumengun veröur vegna hern- aöaraögeröar, ófriöar, borgara- styrjaldar, uppreisnar eöa nátt- úruhamfara sem eigi veröa um- flúnar eöa ráöiö viö. Einnig fellur ábyrgö skipeiganda niöur, ef um er aö ræöa áfall sem þriöji aðili orsakar visvitandi eða ef áfallið má rekja til kæruleysis eða van- rækslu yfirvalda I viðhaldi sigl- ingaljósa og tækja. Skipum sem flytja meira en 2000 tonn af oliu I farmi skal skylt að hafa vátryggingu eöa aðra fjárhagslega tryggingu er svari til þeirrar hámarksábyrgðar er samningurinn kveður á um. Vott- orð um að sllk trygging sé i gildi skal gefið út fyrir hvert skip og skal vottoröiö haft um borö i skip- inu. Samningsriki skulú sjá um að slik trygging sé I gildi fyrir skip sem koma eða fara úr þeirra höfnum. Samningur þessi hefur einnig öðlast alþjóðlegt gildi og eru aðil- ar að honum 34 talsins. Alþjóöasamningurinn um stofnun aiþjóöasjóðs var gerður I fyrsta lagi meö þvi markmiði að sjóðurinn yröi nokkurs konar baktrygging fyrir tjónþola oliu- mengunar, þegar þær hámarks- bætur sem skipeigendum er gert aö greiða samkvæmt samningn- um um einkaréttarlega ábyrgö duga ekki til aö bæta tjónþola upp þaö tjón, sem hann hefur orðið fyrir. 1 öðru lagi er sjóðnum ætlað aö draga aö nokkru leyti úr þeirri fjárhagslegu ábyrgð, sem skip- eigendum er sett samkvæmt ákvæðum samningsins um einka- réttarlega ábyrgö. Fjárframlög i sjóöinn greiöast árlega af þeim sem flytja inn meira en 150.000 lestir á ári af gjaldskyldri oliu, eins og hún er skilgreind I samningnum. Svart- olia sem flutt er til landsins frá Sovétrikjunum myndi samkvæmt samningnum vera gjaldskyld. Samningurinn hefur ekki enn öölast alþjóölegt gildi samkvæmt 40. gr. hans, en 12 riki hafa þegar staöfest hann. Frumvarp rætt í neðri deild Rækjusjó- menn fái aðgang að aflatrygg- ingasjóði í gær var til fyrstu umræðu I neðri deild frumvarp um breyt- ingu á lögum um Aflatrygginga- sjóð sem gerir ráð fyrir þvi að rækjusjómenn eigi rétt á greiðsl- um úr sjóönum ef þeir veröi aö hætta veiöum vegna fyrirvara- litillar lokunar veiöisvæöa og einnig þótt veiöar séu aldrei hafn- ar af sömu ástæöu. Frumvarpiö er flutt af þingmönnum úr öllum flokkum og þvi var aö lokinni fyrstu umræöu visaö til annarrar umræöu og sjávarútvegsnefndar. sgt Frumvarp um fuglaveiöar og fuglafriöun til fyrstu umræðu í efri deild: Þingmenn ekki sam- mála um svani, hrafna, máva og rjúpur 1 gær lauk i efri deild fyrstu umræöu um frumvarp til laga um fuglaveiöar og fuglafriðun. Var frumvarp- inu vísað til menntamála- nefndar deildarinnar og ann- arrar umræðu. Þvi miöur gefst ekki kostur á að rekja hér umræður þær sem urðu um þetta mál en geta má þessað undir sumum ræðum þegar þingmenn tölúðu um kostgóðar fuglategundir vor- ar þá hugsuöu þing- fréttamenn um sósu og rauökál. Var þess getiö til að hér væri um hömlulausa jólatilhlökkun aö ræða.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.