Þjóðviljinn - 14.12.1978, Page 1
UÚÐVIUINN
Fimmtudagur 14. desember 1978 — 277. tbl. 43. árg.
Stiórnarflokkarnir sömdu um tekiuhliðina í sær:
Fannst látinn
I fyrrakvöld var gerð
viðtæk leit aö manni, sem
fariö hafði til rjúpnaveiöa I
Norðurárdal um morguninn
en kom ekki fram. Laust eftir
miðnætti fannst maðurinn
látinn, haföi oröið bráðkvaddur
Maðurinn, sem var um
fimmtugt hafði fariö með vini
sinum til rjvipnaveiða i daln-
um. Félagar úr björgunar-
sveitum SVFl leituðu hans um
kvöldið.
SKATTVISITALAN 150
OG VÖRUGJALDIÐ 18%
Ónýttur per-
sónuafsláttur
nýtist til
lœkkunar á
gjöldum lág-
launafólks
I gær náðist samkomu-
lag i meginatriðum milli
stjórnarf lokkanna um
tekjuhlið fjárlaga. Þetta
samkomulag er i aðal-
atriðum byggt á tillögum
skattanefndar þeirrar
sem ríkisstjórnin skipaði
og sagt var frá hér í
blaðinu í gær.
Þau atriði sem deilum hafa
valdið innan rlkisstjórnarinnar,
eru einkum, hvernig skipta ætti
skattalækkuninni til láglauna-
fólks milli hækkunar skattleysis-
marka og þess að lækka sjúkra-
tryggingagjald. Alþýöu-
flokkurinn vildi hækka skatt-
leysismörkin en Alþýðubanda-
lagið lækka eöa fella niður
sjúkratryggingagjaldiö. Sú lausn
varð á þvi máli að skattvisitalan,
sem ræöur skattleysismörkum,
hækkar og veröur 150 stig,
sjúkratryggingagjald lækkar úr
2,0% i 1,5% á lágum tekjum og
ónýttur persónuafsláttur sem
eykst vegna hækkunar skatt-
leysismarka kemur til lækkunar
á gjöldum láglaunafólks.
Þá var einnig deilt hart um
hækkun vörugjalds, en Tómas
Arnason lagði fram tillögur um
það á sunnudgskvöld að það
skyldi hækkað úr 16% i 20 til þess
að mæta tekjutapi vegna skatta
og tollalækkana. Alþýðubanda-
lagiö var mjög andvigt þessari
hækkun og niðurstaðan verður
liklega sú að vörugjald hækkar
úr 16% 118 en tekjutapinu verður
m.a. mætt með niðurskuröi
rekstrargjalda á fjárlögum, en á
þaö hefur Alþýðubandalagið
alltaf lagt áherslu. Þetta
samkomulag stjórnarflokkanna
Framhald á 18. siðu
Launin 12% hærri
9% hærra fiskverð
Nú þegar mikið er talað um
frystihús á hausnum er hið
myndarlega Fiskiðjusamlag á
Húsavlk rekið með miklum
blóma og þó er bæði starfsfólki
þess greitt umfram umsamið
kaup og sjómönnum hærra verð
fyrir fiskinn. Fiskiðjusamlagið
er hlutafélag f eigu Kaupfélags-
ins, bæjarfélagsins, Verkalýðs-
félagsins, Samvinnuféiags út-
gerðar og sjómanna að þvi er
Kristján Asgeirsson bæjar-
fulltrúi tjáði Þjóðviljanum I
gær.
Síöan 1974 hefur starfsfólki,
ööru en því sem vinnur eftir
og samt blóm -
legur rekstur
bónuskerfi, verið greidd 12%
uppbót ofaná umsamið kaup en
bónusfyrirkomulagið við flökun
ogsnyrtingu er einnig öðru vlsi
en gerist og gengur. Þar er
gengið út frá fastri meðal-
nýtingu I stað svokallaðrar
fljótandi nýtingar og kemur þaö
betur út fýrir mannskapinn þar
sem hann er þá ekki að keppa
innbyröis.
Þrátt fyrir þetta varö tekjuaf-
gangur Fiskiðjusamlagsins á
slðasta ári 56 miljónir króna og
var hann notaður til að greiöa
9% hærra fískverð. Aöur hafði
að sjálfsögðu verið reiknaöar út
afskriftír, greiddur 10% arður
til hluthafa og lagt I end-
urnýjunar- og varasjóö.
Kristján Asgeirsson sagði að
saga samvirkrar stjórnar sam-
vinnuhreyfingarinnar, bæjar-
félagsins og verkalýðsfélagsins
á helstu atvinnutækjumbæjarins
á slöustu árum væri hin merk-
asta og þess virði að vera sögð.
—GFr
Ur Fiskiðjusamlagi Húsavlkur: Hér hefur um árabil verið betri bónus og hærra kaup en annars staðar
og samt er mikill tekjuafgangur. (Ljósm.: eik)
FISKIÐJUSAMLAGIÐ Á HÚSAVÍK:
Vilmundur Gvlfason:
Tíma-
fréttin
röng
Vilmundur Gylfason alþingis-
maður sagði i samtali við Þjóð-
viljann i gær að frétt á forsiðu
Timansígær ætti við engin rök að
styðjast. Þar var þvi haldið fram
að hluti af þingliði Alþýðuflokks-
ins undir forustu Vilmundar væri
að undirbúa eigin fjárlagatillögur
og ætluðu sér með þeim að bregða
fæti fyrir rikisstjórnina með
stuöningi Sjálfstæðisflokksins.
Staöreyndin er sú, sagði Vil-
mundur, að við erum búnir að
vera á stöðugum fundum um
efnahagsmál af öllum stærðum
og gerðum allt frá þvi i júll og svo
er einnig núna. Vandinn er sá að
við sem erum áhugamenn um
önnur mál, t.d. menningarmál,
erum orðnir dauðleiðir á þessu og
viljum leysa efnahagsmálin til
lengri tima en þriggja mánaða I
senn. önnur og merkilegri mál
eiga lika að komast aö, en þau
gera það bara ekki.
— GFr
Afurðalán
siávarútvegs:
Vaxtalækk-
SUÐURNES:
Ellefu naudungaruppboðum
bjargað fyrir horn
Þau áttu öll að fara fram í dag
Á mánudaginn var voru
auglýst nauðungaruppboð
hjá 11 útvegs* eða fisk-
vinnslu-fyrirtækjum á Suð-
urnesjum,og var í flestum
tilfellum um annað og síð-
asta uppboð að ræða. Að
sögn Jóns Eysteinssonar
bæjarfógeta í Keflavík var
i gær búið að bjarga öllum
þessum málum fyrir horn/
eins og sagt er, það er að
þeim hefur verið frestað.
1 nær öllum tilfellum koma
þessi nauðungaruppboð til vegna
vangoldinna skatta og eins er um
aö ræða skuldir við ýmsa sjóði.
Sagði fógeti að hér væri sam-
tals um að ræða mjög háar upp-
hæðir sem hefðu safnast saman á
þessu ári. Til aö mynda hefðu
þessi fyrirtæki flest ekki greitt
neitt af opinberum gjöldum á
þessu ári.
Hvort aðeins er um frest aö
ræða að þessu sinni, eða hvort
fyrirtækin geta greitt þessar
skuldir var ekki vitað I gær.
— S.dór
un og geng-
istrygging
1 gær mælti Svavar Gestsson
fyrir stjórnarfrumvarpi um
afúrðalán sjávarútvegsins. Hin
nýja skipan felst I þvl að lánin
verða gengistryggð, bera vexti
sem tlðkast erlendis á þess háttar
lánum 8,5% og greiöast fram-
leiðendum hér við útskipun vör-
unnar. Þessar ráðstafanir hafa I
för með sér samkvæmt mati fisk-
framleiöenda að vaxtabyrði þess-
ara fyrirtækja lækkar um 2,5%.
Það samsvarar um 10% lækkun á
launakostnaði I fiskvinnslunni.
Frumvarpið fékk góðar undir-
tektir við fyrstu umræðu I efri
deild þótt sjálfstæðismenn hefðu
nokkurn fyrirvara á stuðningi
slnum. — sgt