Þjóðviljinn - 29.12.1978, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. desember 1978.
Skipting bænda eft-
ir bústærð 1977
Eftirfarandi tafla sýnir skiptingu bænda eftir bústærö áriö 1977,
samkvæmt spjaldskrá Stéttarsambands bænda:
Fjöldi ærgilda Bændur sem ekki Bændur i Bændur
eru i félagsb. félagsb. samt.
1 — 100 213i, 20, 233.
101 — 200, . . . . 585 149, 734.
201 — 300, . . . . 624, 273, 897.
301 — 400, . . . . 670, 182, 852.
401 — 500 539, 130, 669.
501 — 600 358, 56, 414.
601 — 700 249 20, 269.
701 — 800 159 14, 172.
801 — 900, .. . . 108, 0, 108.
901 — 1000 60, 4, 64.
1001 — 1100 32, 0, 32.
1101 — 1200 9, 0, 9.
1201 — 1300, . . . . 7 7.
1^01 1400 4.
1401 — 1500, .... 2’ 0, 2.
1501 — 1600| . . . . i> o| 1.
1601 — 1700, . ... 3, 0, 3.
2100 — 2200 .... 2, 0, 2.
2201 — 2200 1, 0; 1.
Samtals 3625 848 4473.
2716bændur eru með innan viö 400 ærgildi eöa samtals 651.190.
1083 bændur eru meö 400-600 ærgildi eöa samtals 528.750.
401 bóndi er meö 601-800 ærgildi eöa samtals 303.850.
233 bændur eru meö 801-2300 ærgildi eöa samtals 226.650.
4473 bændur eiga þvi samtals 1.710.440 ærgildi.
BUfjáreign þéttbýlisbúa er 33.995 ærgildi.
Búfjáreign rikisbúa er 15.513 ærgildi.
Búfé ótalið á þessari skýrslu 19.464 ærgildi.
Ærgildi samtals i landinu 1.779.412.
—mhg
Félagsmála-
námskeið
Ab. i Borgarnesi og nærsveitum
Nokkrir þátttakendur I Félagsmálanámskeiöinu i Borgarnesi.
Dagana 26. — 28. nóv. gekkst
Alþýöubandalagsfélag Borgar-
ness og nærsveita fyrir félags-
málanámskeiöi. Leiöbeinandi á
námskeiöinu var Baldur óskars-
son starfsmaöur Alþýöubanda-
lagsins.
Aö þvi er Rööull segir okkur var
aöaláhersia lögö á undirstööu-
atriöi ræöumennsku og fór i þaö
mikill hluti þess skamma tima,
sem námskeiðið stóö yfir. Þó var
nokkuö fariö út i fundarsköp og
fundarreglur, og reynt var þaö
fundaform, sem nefnt hefur veriö
hringborösumræöa. Þaö tækifæri
var notaö til þess aö ræöa þaö
efni, sem þátttakendur þekkja
kannski ýmsu öðru betur og hafa
áhuga á, þ.a.e.a.s. Alþýöubanda-
lagiö, þátttaka þess I ríkisstjórn,
staöa þess i þjóöfélaginu, innra
starf flokksins o.fl.
Þátttaka I námskeiöinu var góö
og I lok þess lýstu menn ánægju
meö þetta framtak og þökkuöu
Baldri óskarssyni ágæta leiö-
sögn.
Geta má þess, aö áhugi er á aö
stofna einskonar málfundaklúbb
innan Alþýöubandalagsfélags
Borgarness og nærsveita, þar
sem þátttakendum gæfist kostur
á aö viöhalda og þróa áfram þann
lærdóm, sem þeir fengu á nám-
skeiöinu. Einnig er fyrirhugaö
framhaldsnámskeiö i mars eöa
april næstkomandi, sem væntan-
lega yröi þá meö meira pólitisku
ivafi.
—mhg
Urgur í bændum
Sagt frá bændafundum 1 Borgarfirði
Eftirfarandi grein birt-
ist í síðasta tbl. Röðuls og
er undirskrift hennar R.B.
Á undanförnum vikum
hafa verið haldnir tveir
bændafundir hér í héraði,
báðir með aðkomnu stór-
menni.
Sá fyrri var haldinn af
Búnaðarfélagi Lunddæla í
Brautartungu 16. nóv. For-
saga hans er sú, að tals-
verður urgur hefur verið í
Laundareykjadal og Anda-
kíl, vegna f járf jölda á rík-
isbúunum Hesti og Hvann-
eyri, einkum því fyrr-
nefnda.
Af þessu tilefni óskaöi Björn
Sigurbjörnsson eftir aö fá aö
koma á fund til aö skýra sjónar-
miö Rannsóknarstofnunar land-
búnaöarins og heyra sjónarmiö
heimamanna. Af þessu varö svo I
Brautartungu, sem fyrr er sagt.
Björn hélt framsögu um málið
og kom viöa viö, sagöi frá starf-
semi Rannsóknarstofnunarinnar
og þýöingu rannsókna i lgndbún-
aöi yfirleitt. Hann las upp lista
yfir tilraunir á Hesti og greindi
frá fjárfjölda, sem nú er rétt um
1000 aö hans sögh.
Hjálpaöist mjög aö hvaö kalt
var i veöri, hitun i húsinu léleg og
framsaga ýtarleg, aö mönnum
kólnaöi nokkuö. En kaffiveitingar
kvenfélagsins þiddu sál og lik-
ama og hófust umræður.
Margir tóku til máls og ræddu
erindi Björns og málefni Hestbús-
ins vitt og breitt. Einkum var
rætt, hvort ekki megi nýta aö-
stööu hjá bændum til tilrauna og
fá þannig fleiri og ódýrari til-
raunir. Fræöimenn tóku þessari
hugmynd dauflega, enda hefur
reynslan sýnt, aö mjög bregöur til
beggja vona meö framkvæmd
dreiföra tilrauna.
Rannsóknir á Hesti hafa, aö
sögn Stefáns Scheving
Thorsteinssonar, tilraunastjóra,
veriö tviþættar. Annarsvegar
snúiö aö meöferö fjár og hinsveg-y
ar kynbótum. Bændur hafa eink-
um talið sig hafa gagn af
kynbótum meö hrútakaupum,
en vegna garnaveiici á Hesti er
lifdýrasala þaöan bönnuö, enda
sagöi Bjarni Arason þaö vera
skoðun stjórnar Rannsóknar-
stofnunarinnar, en hann er for-
maöur hennar, aö Hestur ætti
ekki aö vera kynbótabú; kynbæt-
ur væru hlutverk fjárræktarfé-
laganna.
Margt fleira bar á góma I
Brautartungu, sem ekki veröur
rakiö hér, svo sem beitarþols-
rannsóknir, ítala, giröing um
heimaland Hests. Mál manna
var, aö fundurinn heföi upplýst
mörg atriöi, einkum hiö hrikalega
sambandsleysi bænda og rann-
sóknarmanna og nauösyn úrbóta
þar á.
Siðari fundurinn var haldinn i
Logalandi 1. des. og voru fram-
sögumenn Steingrimur Her-
mannsson, landbúnaöarráöherra,
og Gunnar Guðbjartsson, for-
maöur Stéttarsambands bænda.
Fundarefnið var viöhorf I fram-
leiðslu- og kjaramálum bænda.
Gunn'ar talaöi fyrstur og geröi
grein fyrir þróun framleiöslu-
mála. En þau eru nú I álika hnút
og þeim, er Siguröur Jórsalafari
reiö Eysteini bróöur sinum á
Jórdánarbakka austur. Birgöir af
smjöri og ostum eru miklar fyrir
og fara vaxandi. Fyrir ostinn má
fá nokkuö erlendis, en smjöriö er
gersamlega verölaust. Fram-
leiöslugeta osta er takmörkuö, en
sé hún fullnýtt má á verölagsár-
inu 1978-1979 auka framleiösluna
um 500 tonn. En smjörbirgðir aö
ári eru samt áætlaöar 1800-2000
tonn I staö 1400 tonna nú.
Ekki er ástandiö ósvipaö i
kjötframleiöslunni. Flytja þarf úr
landi yfir 5000 tonn, og þar af er
algjörlega óvist hvort hægt er aö
losna viö 1800 tonn.
Lögboðnar útflutningsbætur *
duga hvergi nærri til aö brúa biliö
milli framleiðslu- og söluverös og
var talað um þrjá miljaröa i þvi
sambandi. Geymslukostnaöur af-
uröanna er geypimikill, þannig er
vaxtakostnaöur viö aö geyma 1
smjörkg. I eitt ár 600 kr. Þaö kost-
ar þvi uppundir 1 miljarö á ári aö
velta núverandi birgðamagni á
undan sér. Þaö kom frá hjá Stein-
grimi, aö bankakerfinu þykir
þetta léleg fjárfesting og oröin
mikil tregöa á aö fjármagna
birgöasöfnunina.
Hér er þvi mikill vandi á ferö-
um og hann tviþættur, annars-
vegar aö losna úr þessari birgöa-
klemmu, hinsvegar aö ná tökum
á framleiöslumagninu. Megin
atriöiö I þvi fyrra er hver á aö
borga, en i þvi siðara hvaöa aö-
feröir á aö nota.
Bændum þykir aö vonum hart
aö þurfa aö bera skaöa af aö
fylgja dyggilega framleiöslu-
hvatnmgu; ekki eru nema liölega
tvö ár siöan borgfirskir bændur
voru eindregiö hvattir til þess af
ráðamönnum, aö auka mjólkur-
framleiösluna sem mest. Þeir
benda lika á, aö löggjafinn hafi
ekki getaö komiö sér saman um
aögeröir til framleiöslustjórnun-
ar, þó aö tillögur um þaö efni hafi
legiö fyrir.
En framleiöslustjórnun er mjög
viökvæmt mál og i mörg horn aö
lita, aöstaöa bænda er mjög mis-
jöfn, bæöi náttúruskilyröi og aörir
framleiösluþættir og aögeröir
koma þvi misþungt niöur á ein-
staklingnum. Veröur þvi aö
Gunnar Guöbjartsson
Steingrimur Hermannsson
gaumgæfa hvert spor. Bænda-
samtökin hafa lagt fram sinar til-
lögur, og þó aö margt sé óljóst I
þeim, eru þær augljóslega grund-
völlur aögeröa.
Þessir fundir voru báöir fjöl-
sóttir og margir heimamenn tóku
til máls, þótt ekki veröi þeir taldir
hér. Þeir voru gagnlegir og hafi
fundarboöendur þakkir fyrir.
R.B.
RÖÐULL KOMINN UT
Blað Ab. í Borgarnesi og nærsveitum
Út er komið 7. tbl. Röð-
uls, blaðs Alþýðubanda-
lagsins í Borgarnesi og
nærsveitum. Efni þess er
m.a.:
Heilög jól, eftir Ólaf Jens Sig-
urösson, Uppskurö þarf á efna-
hagslifinu, eftir J.G. Birt er af-
mælisgrein um Guörúnu Guö-
mundsdóltur frá Mel 100 ára.
Urgur I bændum, frásögn af
bændafundum I Borgarfiröi, eftir
R.B. Frá félagsmálanámskeiöi
Ab I Borgarnesi. Visna- og gam-
anmál. „Félagi Jesús”, eftir J.G.
TheódörÞóröarson segir frá starf-
semi leikdeildar umf Skalla-
grims. Guömundur Þorsteinsson,
bóndi á Skálpastööum ritar grein-
ina Veröbólguþankar. J.ó. minn-
ist 50 ára afmælis Hvitárbrúar.
Sagt er frá starfsemi ungmenna-
félaganna Islendings, Brúarinn-
ar, umf. Stafholtstungna, Skalla-
grims og Reykdæla. Fréttir frá
Máli og menningu, Golklúbbi
Borgarness og Borgfiröingafé-
laginu f Réykjavik. Þáttur um
verkalýðsmál, umsjá Baldur
Jónsson. Réttindamál I höfn, eftir
J.G. Basar Dvalarheimilis
aldraðra. Hvaö kostar Kveldúlfs-
völlurinn? eftir J.G. Slitlagiö viö
Hafnarfjall — eitthvaö fyrir þétt-
býliö, viötal viö Birgi Guömunds-
son, umdæmisverkfræöing Vega-
gerðarinnar i Borgarnesi.
Eins og af þessari upptalningu
má marka er efni Rööuls mikiö og
fjölbreytt aö venju.
—mhg
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
ónnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468