Þjóðviljinn - 12.01.1979, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 12. janúar 1979.
Föstudagur 12. janúar 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
NESKAUPSTAÐUR 50 ÁRA
Þann 1. janúar sl. voru liðin 50 ár frá þvi að Nes-
kaupstaður hlaut kaupstaðaréttindi og sl. sunnudag
voru 50 ár liðin frá þvi að fyrsti bæjarstjórnar-
fundurinn var haldinn þar i bæ. í tilefni þessara
timamóta hélt bæjarstjórnin i Neskaupstað sér-
stakan hátiðarfund i félagsheimilinu Egilsbúð, að
viðstöddu fjölmenni. Að loknum þessum fundi bauð
bæjarstjórnin bæjarbúum til kaffisamsætis og var
húsiðopið milli klukkan 15.00 og 19.00. Á milli 800 og
900 manns þáðu boðið, eða rúmlega helmingur
bæjarbúa.
Blaðamaður Þjóðviljans var staddur i Neskaup-
stað um siðustu helgi og mun hér verða sagt frá
hátiðarfundinum og i blaðinu i dag og á morgun
verða birt viðtöl við fólk i Neskaupstað og iblaðinu i
dag verður frásögn af hátiðarfundinum.
NESKAUPSTAÐUR
F j árhagsáætlunin hefur 5
þúsund faldast á 50 árum
Frá hátföarfundi bæjarstjómar.
frásögn af
843. fundi bæjarstjórnar
Neskaupstaðar hátíðarfundi
Fjölmenni var mætt í félagsheimilinu Egilsbúð í Nes-
kaupstað kl. 14.00 sl. sunnudag þegar Kristinn Jóhanns-
son forseti bæjarstjórnar Neskaupstaðar setti 843. fund
bæjarstjó rnar— hátíðarfund-ítilefni þess, að50 ár voru
þá liðin frá því að fyrsti bæjarstjórnarfundurinn var
haldinn í Neskaupstað, en þann 1. janúar sl. voru liðin 50
ár frá því að Neskaupstaður hlaut kaupstaðarréttindi.
Eftir að Kristinn Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar
hafði sett þennan hátíðarfund hélt hann afar fróðlega
ræðu, þar sem hann rákti söguna, aðdraganda þess að
Neshrepp var breytt í Neskaupstað og síðan \ stórum
dráttum gang mála til dagsins í dag.
Kristinn Jóhannsson forseti bæjarstjórnar I ræöustól, til hægri viö hann
Logi Kristjánsson bæjarstjóri og lengst til hægri Sigrún Þormóösdóttir
varaforseti bæjarstjórnar. (Ljósm. S.dór)
Bæjarréttindabaráttan
hefst
Kristinn sagöi svo frá aödrag-
anda þess aö kaupstaöarréttindin
fengust:
t ársbyrjun 1925 berst hrepps-
nefnd Neshrepps erindi frá Mál-
fundafélaginu Austra, Verkalýös-
félagi Noröfjaröar og stúkunni
Nýju öldinni, þar sem þess er far-
iöá leitaö kannaö sé rækilega um
möguleika á bæjarréttindum
fyrir hreppinn.
Erindinu var vel tekiö í hrepps-
nefnd og einróma samþykkt aö
kjósa nefnd manna til aö vinna aö
málinu. Næstu ár kemur bæjar-
réttindamáliö oft fyrir hrepps-
nefnd, eöa alls 9 sinnum, og auk
þess eru haldnir um þaö 2
borgarafundir. Ekki var barátta
heimamanna átakalaus, þvi
sýslunefnd S-Múl. mælti gegn
málinu. Sýslunefndarmenn Norö-
fj.-hrepps og Mjóafj.hrepps voru
þó meömæltir.
Hreppsnefnd lét ekki deigan
slga og fól 3 mönnum (Ingvari
Pálmas., Páli Þormar og Jónasi
Guöm.s.) aö semja frumvarp aö
bæjarstjórnarlögum fyrir Nes-
kauptún og þegar hreppsnefnd
haföi lagt blessun slna á frum-
varpssmiöina, var Ingvari
Pálmasyni alþ.m. kjördæmisins
faliö aö flytja þaö á þingi. Þar
var máliö flutt 2 ár i röö.
Þaö var svo i upphafi hrepps-
nefndarfundar 3. aprll 1928, aö
oddviti las upp skeyti frá Ingvari
Pálmasyni alþ.m. „Innileg ham-
ingjuósk til Neskaupstaöar i til-
efni af lögum um bæjarréttindi
sem afgreidd voru frá efri deild I
gær.”
Konungur staöfesti svo lögin 7.
maf og skyldu þau taka gildi 1.
janúar.Þar meö var máliö komiö I
höfn og fögnuöu heimamenn úr-
slitum þess. Var m.a. ákveöiö i
hreppsnefnd aö hafa sérstakan
nýjársfangaö af þessu tilefni, en
hvergi hef ég getaö séö hvort
hann var haldinn og hvaö þar
hefur þá fariö fram. — Þó haía
eldri menn tjáö mér aö þeir muni
eftir miklum flugeldaskotum af
bryggju Sameinuöu verslananna
þessi áramót. Fyrstu bæjar-
stjórnarkosningarnar fóru svo
fram daginn eftir, 2. jan. og ný-
kjörin bæjarstjórn hélt sinn
fyrsta fund 7. janúar 1929 — fyrir
fimmtlu árum.
Allir hinir nýkjörnu bæjarfull-
trúar voru mættir, 8 aö tölu. Þeir
voru: Gisli Kristjánsson útg.m.
Bjargi, Guöjón Hjörleifsson
skipstj., Ingvar Pálmason alþ.m.
Ekru, Jón Sveinsson skrifst.m.
Eyri, Jónas Guömundsson kenn-
ari, Páll G Þormar versl.stj.
Þórsmörk, Stefán Guömundsson
smiöur, Laufási, og Þorvaldur
Sigurösson kennari.
Bæjarstjórinn, Kristinn Olafs-
son, var skipaöur af ráöherra, en
hann var jafnframt bæjarfógeti.
Þá var hann einnig sjálfkjörinn
Mi
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
■
forseti bæjarstj. meö atkvæöis-
rétt og óbundiö málfrelsi — og þvl
i raun 9. bæjarfulltrúinn.
Þrír þeirra manna, sem þennan
fund sátu, eru enn á lifi. Þaö eru
Gisli Kristjánsson, Stefán
Guömundsson og Þorvaldur
Sigurösson, allir löngu burtfluttir
héöan.
Verkefni þessa fundar var
nefndakosning og voru kosnar 13
nefndir, svo snemma byrjaöi
nefndafarganiö...
Uppbyggingin
Þessu næst rakti Kristinn nokk-
uö þá uppbyggingu staöarins sem
framkvæmd hefur veriö á þess-
um 50 árum. Hann benti á aö
bæjarstjórn Neskaupstaöar heföi
alla tiö veriö ljóst, aö grundvöllur
sá sem tilvera bæjarfélagsins
byggist á er öflugt atvinnullf.
Hefur bæjarstjórn alla tlö lagt á
þaö höfuö-áherslu aö treysta þann
grundvöll, ýmist meö beinum
bæjarrekstri eöa meö því aö hafa
forgöngu um stofnun atvinnu-
fyrirtækja. Nefndi hann mörg
dæmi I þessu sambandi, byggingu
fóöurmjölverksmiöju á kreppu-
árunum, sem siöar var breytt I
sildarmjölsverksmiðju,kaupum á
togaranum Brimi og á beim árum
gekkst bæjarfélagiö fyrir atvinnu
bótavinnu. Einnig var byggð
dráttarbraut, vélaverkstæöi og
eftir striö var bæjarútgeröin
stofnuö og siöar Sildarvinnslan.
Framkvæmdir í 50 ár
Síöar rakti hann helstu fram-
kvæmdir bæjarstjórnar Nes-
kaupstaöar sl. 50 ár og sagöi þá:
A fyrsta áratugnum ber hæst
byggingu barnaskólans sem var
glæsileg bygging og kostaöi um
160þús. kr. Húsiö var tekiö i notk-
un haustiö 1931, en áöur haföi
barnaskólinn veriö til húsa þar
sem nú er sjómannastofa og
diskótek, en þaö hús hygg ég aö
hafi verið byggt 1913. Ariö 1931 er
lika stofnaöur hér gagnfræöa-
skóli, en áöur haföi veriö
unglingaskóli í hreppnum.
— A fimmta áratugnum er svo
sundlaugin byggö. Hún var vigö 8.
ágúst 1943 og hefur veriö okkur
mikill heilsubrunnur siöan. Þá
var einnig reist ný rafstöö, byggö
bæjarbryggja og bygging sjúkra-
húss hafin.
Það var i lok þessa áratugs,
1950, aö rekstur dagheimilis fyrir
börn hefst i barnaskólanum yfir
sumarmánuðina.
— Stærsta verkefni 6. áratugs-
■ ■■iiaiiHiHiHiaiia
Samþykktar tillögur á hátíðarfundi
A hátiöarfundi bæjarstjórnar
Neskaupstaöar voru eftirfar-
andi tillögur samþykktar sam-
hljóöa:
ítilefni af 50áraafmælikaup-
staöarréttinda Neskaupstaöar,
flytja bæjarfulltrúar I bæjar-
stjórn Neskaupstaöar eftirfar-
andi tillögu:
Bæjarstjórn Neskaupstaöar
samþykkir aö gera sérstakt
átak I umhverfis- og fegrunar-
málum i bæjarlandinu.
Gera skal áætlun til fjögurra
ára og verja til verkefnis þessa
a.m.k. l%af tekjum bæjarsjóös
ár hvert.
Áætlunin skal gerö I samráöi
viö sérfróöa menn og hafist
handa samkvæmt henni á þessu
ári.
Framsögumaöur: 1. varaforseti
Jóhann K. Sigurðsson.
1 tilefni af 50 ára afmæli Nes
kaupstaöar flytja bæjarfulltrú-
ar í bæjarstjórn Neskaupstaðar
eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Neskaupstaöar
samþykkir aö taka félagsmál til
sérstakrar umfjöllunar á af-
maelisárinu. A árinu veröi skip-
an þeirra samræmd meö þaö
markmiö i huga, aö IbUar Nes-
kaupstaöar treysti og auki fé-
lagslega samstööu og félags-
þroska og búi jafnt ungum sem
öldnum sem best lifsskilyröi.
Framsögumaöur: 2. varaforseti
Sigrún Þormóösdóttir.
Ljósmyndasýnlngin vakti óskipta athygii fólks, enda margar Ijósmyndlrnar ómetanlegt verömæti fyrir
Neskaupstaö (Ljósm. S.dór)
Sögulegar
ljósmyndir
Noröfirðingafélagiö i Reykja-
vik sendi bæjarstjórn Neskaup-
staöar mikinn fjölda ljósmynda,
san Björn Björnsson kaupmaður
og ljósmyndari i Neskaupstaö tók
þar i bæ meöan hann bjó eystra.
Þarna er um aö ræöa ómetanlegt
ljósmyndasafn fyrir Neskaup-
staö. Myndirnar sýna þróun bæj-
arins, atvinnullfsins og einnig eru
i safninu mikill fjöldi manna-
mynda. Elstu myndirnar eru frá
'•inu 1912. Siöar mun Noröfirö-
ingafélagiö ætla aö gefa Nes-
kaupstaöarbæ þessar myndir, en
i tilefni af 50 ára afmæli kaup-
staöarins voru þær hengdar upp 1
félagsheimilinu Egilsbúö.
Þaö er ekki sterkt til oröa tekið
þótt sagt sé aö myndasýningin
hafi vakiö hrifningu bæjarbúa.
Þeir komu hundruöum saman til
aö skoöa sýninguna og stóöu lengi
viö, einkum og sér i lagi þeir
eldri.—S.dór.
ins var aö ljúka byggingu F.S.N.,
en þaö var vigt 17. janúar 1957.
Þess má geta, aö bærinn — og
áður Neshreppur — höföu rekiö
sjúkrahús i Bjarnaborg (þar sem
nú búa Sigf. Sig.v.s. og Helgi
Hjörl.s.)
Janúar 1957 var mánuður mik-
illa atburða fyrir Neskaupstaö. 1
byrjun mánaöarins geröist sá
hörmulegi atburöur, aö togarinn
Goöanes fórst. Sjúkrahúsiö var
svo vígt þann 17. eins og fyrr
sagöi, en daginn áöur kom nýr
togari bæjarútgeröarinnar, Gerp-
ir, til landsins.
önnur helstu verkefni á
þessum árum voru aö gera
iþróttavöll,auk þess sem bygging
gagnfræöaskóla og félagsheimilis
hófst.
Verkefni 7. áratugsins eru
mörg. Þá er gagnfræöaskólinn
tekinn i notkun, Egilsbúö vigö og
Iþróttahús reist.
Þá var lika gerö hafnaruppfyll-
ing viö Egilsbraut og hafin hafnar-
gerö I Ormsstaöahjáleigu. Slöast,
en ekki sist, var hafin bygging
dagheimilis.
A þessum áratug höfum viö svo
lokiö dagheimilisbyggingunni,
stækkaö barnaskólann, unniö aö
mikilli nýbyggingu viö sjúkra-
húsiö og hafiö byggingu fjöl-
brautaskóla.
Aukin áhersla hefur veriö lögö
á umhverfismál og lagningu
bundins slitlags á götur, byggöir
verkamannabústaöir og leigu- og
söluibúöir, og ekki má gleyma
hinum miklu hafnarmannvirkj-
um; sem gjörbreytt hafa aöstööu
til útgeröar stærri skipa, auk þess
sem þar er lifhöfn fyrir smábát-
ana.
114 manns setið fund í
bæjarstjórn
Þessu næst greindi Kristinn frá
þvl aö á þessum 50 árum, sem
liöin eru frá þvi Neskaupstaöur
varötilhafillámanns setiö fund
i bæjarstjórn. Siðan sagöi hann:
Sá bæjarfulltrúi sem lengst
hefur setiö I bæjarstjórn er Bjarni
Þóröarson, sem var bæjarfull-
trúi frá 1938 —1978 eöa I 40 ár og 4
mán. betur, þar af bæjarstjóri i 23
og hálft ár. Hann hefur setiö alls
559 bæjarstj. fundi (af 842) og þaö
er áreiöanlega ekki ofsagt eöa á
neinn hallaö, þó sagt sé aö hann
hafi öörum fremur átt þátt I aö
móta störf og stefnu bæjarstj.
Neskaupstaöar.
Þeir bæjarfulltrúar aörir sem
lengst hafa setiö i bæjarstjórn
eru: Jóhahnes Stefánsson i 33 ár
og sat 481 fund, Lúövik Jósepsson
i 32 ár, en sat aðeins 211 fundi,og
Eyþór Þóröarsoni 24 ár og sat 368
fundi. Ármann Eiriksson sat 260
fundi og Vigfús Guttormsson 258.
— Bæjarstjórar hafa alls veriö 8
I þessari röö: Kristinn Ólafsson 7
1/2 ár, Eyþór Þoröarson rúm 2
ár, Karl Karlsson tæpt 1 ár, Jón
Sigfússon tæp 4 ár, Ragnar
Pétursson 2 1/2 ár, Hjálmar Jóns-
son tæp 4 ár, Bjarni bóröarson 23
1/2 ár og Logi Kristjánsson, sem
gegnt hefur starfinu frá 1. júlí
1973 eöa i 5 1/2 ár.
— Sjö manns hafa gegnt starfi
forseta bæjarstjórnar þetta tima-
bil, þar af Jóhannes Stefánsson
lengst eöa i rúm 17 ár.
Fjárhagsáætlunin 5 þúsund
faldast
Margt hefur breyst á 50 árum
og þessu til staöfestingar sagöi
Kristinn:
Þaö er vissulega lærdómsrikt
aö skoða fyrstu fjárhagsáætlun
Neskaupstaöar. Þá voru útsvör
svo til eini tekjustofninn, rétt tæp
90% heildarteknanna. Meöal ann-
arra tekjuliöa má nefna sótara-
gjald og hundaskatt. Gjaldameg-
in vekur athygli, aö fátækramál-
in, styrkir til þurfalinga og
gamalmenna eins og þaö heitir,
er stærsti útgjaldaliöurinn. Þetta
helst nokkur ár og kemst upp i aö
vera 27% allra útgjalda. Þetta
Speglar glöggt þjóöfélagsástand
þessara tima.
Heildartekjur bæjarsjóös 1929
eru áætlaöar kr. 83.550, en eru nú
50 árum siöar áætlaðar 443
milljónir. Arin eru 50, en upphæö
fjárhagsáætlunar hefur 5 þúsund
faldast. (Ég þori varla aö láta
bæjarstjórann heyra, aö 1929 voru
laun bæjarstjórans 4 þús. krónur,
eöa tæp 5% útgjaldanna, sem þá
samsvarar um 21 miljón nú).
Annaö þótti mér lika merkilegt^"
þegar reikningum þessara ára er
flett. Þaö viröist semsé hafa
verið leikur einn aö fá lán til
framkvæmda. T.d. kostaöi bygg-
ing rafveitunnar 1928 —'29 um 90
þús. kr. og af þvi lánaöi Sp. N. 43
þús. og verktaki annaö eins.
— Sá er eldurinn heitastur sem
á sjálfum brennur, var eitt sinn
sagt. Þegar flett er gömlum
fundargeröarbókum, rekst maö-
ur á ýmislegt, sem áreiöanlega
hafa veriö áþreifanleg og brenn-
andi vandamál á sinni tíö. Engu
aö siöur geta þau verkaö kát-
broslega á mann svona 'löngu
siöar.
Viö sem nú ræöum háalvarlega
eitt og annað sem aö okkur snýr,
og gerum um þaö samþykktir
getum lika veriö þess fullviss, aö
næsta kynslóö kimi aö þeim ef
þeir lesa þær eftir 50 ár. Tímarnir
breytast og mennirnir meö.
Eitt naut handa öilum kún-
um
Ekki lita öll mál sem bæjar-
stjórnin átti viö aö glima fyrr á
árum jafn háalvarlega út i augum
okkar i dag. 1 þvl sambandi sagöi
Kristinn frá eftirfarandi:
Þaö var t.d. 14. ágúst 1928, aö
haldinn var fundur i hreppsnefnd
og skýrt frá þvi, ,,aö nauti Sigfús-
ar Sveinssonar yröi lógaö innan
skamms og yröi þvi ekki nema
eitt naut handa öllum kúm í kaup-
túninu. Samþykkti þvi hrepps-
nefnd aö bjóöa Sigfúsi kr. 375 I
nautiö.
— Og nautiö fékkst keypt. En
áriö eftir varö bæjarstjórn hins
nýja kaupstaöar aö greiöa kr. 501
skaðabætur til Guöriöar
Guömundsdóttur i Seldal fyrir
spellvirki, sem þarfanaut bæjar-
ins haföi valdiö á heimili hennar.
Og ekki leynir sér kreppuára-
blærinn á samþykkt bæjarstj. frá
1933 um ,,aö taka fisk, bæöi blaut-
an, upp úr salti og þurrkaöan,
upp i bæjargjöld og gefa gang
verð fyrir.”
Og þeir sem muna vöruskort og
skömmtun striösáranna eru ekk-
ert hissa á þvi, aö þá skoraöi
bæjarstjórn einróma á rikis-
stjórnina aö auka sykurskammt-
inn um 1 kg á hvern ibúa.
Aö lokum sagöi Kristinn:
Vist er hollt að huga aö þvi
liöna, nema lærdóm i skóla
reynslunnar, öölast þrek til átaka
af kynnum viö störf þeirra sem
gengnir eru og búa okkur þannig
sem best undir framtiöarverkefn-
in.
En ætiö hlvtur þó ókominn tlmi
‘ aö veröa okkur hulin ráögata.
Vafalaust mun velvilji,
skilningur og fyrirgreiösla lög-
gjafarvaldsins og stjórnar
peningavaldsins i landinu skipta
miklu um framtiöargiftu bæjar-
félagsins, en þó skiptir enn meiru,
aö ibúum Neskaupstaöar auönist
héreftir sem hingaö til aö vinna
aö framgangi velferöarmála
bæjarfélagsins i anda samstarfs
og samhjálpar.
Þaö er áreiöanlega sameiginleg
ósk okkar allra, sem nú gegnum
störfum bæjarfulltrúa, aö áfram
megi takast aö treysta þann
grundvöll atvinnulifs, sem bærinn
okkar byggir á, jafnframt þvi
sem bæjarbúum veröi tryggöur
sem bestur aöbúnaöur og fjöl-
breyttast lif. —
Tveir bæjarstjórar, Bjarni Þóröarson sem var bejarstjóri I Neskaupstaö I 23 ár og
átti ssti í bæjarstjórn i 40 ár og Logi Kristjánsson núverandi bæjarstjóri i Nes-
kaupstaö. (Ljósm. S.dór)
Fjölmenni var i kaffisamsætinu sem bejarstjórnin efndi til og bauö öllum bejar-
búum. (Ljósm. S.dór)
rTiTfwnm~Bin ■■■»■!■ iim i muii
pigaHUJWWini